Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 31.03.2011, Blaðsíða 19

Fréttir - Eyjafréttir - 31.03.2011, Blaðsíða 19
Fréttir / Fimmtudagur 31. mars 2011 19 íþróttir Handbolti: Stóðu fyrir sínu með U17 Þær Drífa Þor- valdsdóttir og Berglind Dúna Sigurðardóttir stóðu fyrir sínu með landsliði íslands í hand- bolta, skipuðu stúlkum 17 ára og yngri. Liðið lék í undankeppni EM en riðill íslands fór fram hér á landi. Stelpurnar voru í riðli _með Spáni, Sviss og Króatíu og ísland vann tvö síðamefndu liðin en tapaði fyrir Spáni. íslenska liðið endaði í þriðja sæti á markatölu en tvö efstu liðin komust áfram. Eyja- stelpumar stóðu þó fyrir sínu um helgina og var Drífa valin í úr- valslið mótsins. Friðrik Stefánsson. Körfubolti: Friðrik hættur Körfukn att- leiksmaðurinn Friðrik Erlendur Stefánsson til- kynnti að hann væri hættur að spila körfubolta eftir að Njarð- vík féll úr leik í íslandsmótinu. Friðrik hefur lengst af leikið með Njarðvík og hefur verið lykilmaður liðsins undanfarin ár auk þess að vera um tíma fyrirliði Njarðvíkinga. Þá hefur hann einnig verið lykil- maður í íslenska landsliðinu í körfubolta og gegndi einnig fyrir- liðastöðu þar. Friðrik lék með yngri flokkum Týs í körfubolta áður en hann gekk í raðir KR. Auk þess hefur hann leikið með KFI og Þór Akureyri og um tíma sem atvinnumaður í Finnlandi. Hann á að baki tvo leiki með meistaraflokki IV, forvera körfu- knattleiksliðs ÍBV. Handbolti: Guðbjörg í úrvalsliði N1 deildarinnar Guðbjörg Guð- mannsdóttir, handknattleiks- kona úr IBV er í úrvalsliði síðari umferðar N1 deildarinnar. Guðbjörg var einnig í úrvals- liðinu fyrir fyrri umferðina enda einn besti homamaður deildarinn- ar og mikil íþróttakona. Bikar- meistarar Fram eiga þrjá fulltrúa í úrvalsliðinu, Islandsmeistarar Vals tvo og ÍB V og HK sitt hvom leikmanninn. Þá var Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, línumaður Vals, valin best og Hilmar Guðlaugs- son, þjálfari HK, valinn besti þjálfarinn. Úrvalsliðið er þannig skipað: íris Björk Símonardóttir, Fram, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, Val, Guðbjörg Guðmannsdóttir, ÍBV, Stella Sigurðardóttir, Fram, Brynja Magnúsdóttir, HK, Kristín Guðmundsdóttir, Val, Guðrún Þór Hálfdánsdóttir, Fram. Guðbjörg Guð- mannsdóttir. |1 deild karla, handbolti: Fjölnir - ÍBV: 23:30 Mikilvægasti leikur vetrarins á morgun - Eyjamenn taka á móti Víkingum í úrslitaleik um 4. sætið STEFNAN SETT UPP. Davíð Þór Óskarsson segir að leikmenn ÍBV stefni ótrauðir á að komast upp í úrvalsdeild. En fyrst þarf að tryggja sæti í umspilskeppninni með því að vinna Víkinga á morgun. Á morgun, föstudag, leikur karla- lið IBV mikilvægasta leik sinn það sem af er vetrar þegar strákarnir taka á móti Víkingum í Eyjum. Víkingar eiga ennþá möguleika á að ná fjórða sætinu en ef það á að ganga upp, þurfa þeir að vinna tvo síðustu leiki sína og treysta á að IBV nái ekki í fleiri stig. Það er kannski ekki svo fjarri lagi því IBV á afar erfiðan útileik fyrir höndum f síðustu umferðinni þegar peyjarnir sækja Stjörnuna heim. Eyjamenn hafa verið að finna takt- inn að nýju eftir afleitt gengi í 2. umferð. Gengið hefur verið skárra í 3. umferð 1. deildarinnar en þó ekkert í líkingu við 1. umferðina þegar ÍBV tapaði ekki leik. Nú síðast vann IBV Fjölni á útivelli 23:30 en staðan í hálfleik var 10:13. Markahæstir voru þeir Sigurður Bragason með níu mörk og Vignir Stefánsson sem skoraði fimm. En eins og áður sagði snýst allt um síðasta heimaleik hjá IBV í deildar- keppninni á morgun. Með sigri tryggja Eyjamenn sér endanlega 4. sætið og um leið sæti í umspili um eitt laust sæti í úrvalsdeild ásamt liðunum sem enda f 2. og 3. sæti 1. deildar og liðinu í 7. og næstneðsta sæti úrvalsdeildarinnar en það verður annað hvort Afturelding eða Selfoss. Eigum harma að hefna Davíð Þór Óskarsson er einn af reyndari leikmönnum liðsins en þessi fyrrum skytta hefur leyst línustöðuna í vetur og gert það með sóma. Auk þess er Davíð öflugur varnarmaður en hann sagði að leikurinn gegn Fjölni hefði verið frekar þægilegur. „Ef eitthvað var, þá gerðum við þetta okkur erfitt fyrir. Þetta var skyldusigur en við lentum í vandræðum með þá héma heima. Þannig að það var ekkert vanmat í gangi gegn þeim um síðustu helgi og menn voru klárir á að vinna þennan leik. Við van- mátum þá hér á heimavelli og vomm næstum því búnir að tapa fyrir þeim. Það var gott spark í rassinn á okkur. Davíð segir leikmenn IBV vera meðvitaða um mikilvægi leiksins gegn Víkingum. „Þessi leikur skipt- ir hrikalega miklu máli. Ef við vinnum þá tryggjum við okkur sæti í úrslitakeppninni, sem er búið að vera markmið vetrarins. Með því höldum við áfram að berjast um að komast upp í úrvalsdeild. En við eigum harma að hefna. Víkingar hafa leikið okkur grátt í vetur, náðu jafntefli hér í Eyjum sfðast og svo vomm við ekkert mjög velkomnir í Víkinni. En við höfum verið að finna okkur aftur. Við vitum að við erum ekkert meistarar og þurfum að mæta klárir í alla leiki. Arnar Pétursson, þjálfari hefur tekið okkur algjörlega í gegn, bæði á æfingum og hugarfarslega þannig að við séum að toppa á réttum tíma. Mér finnst við vera á réttri leið og erum að ná aftur sama krafti og var í byrjun. Vonandi náum við að komast aftur á sama ról áður en tímabilið er búið.“ Finnst þér IBV eiga eríndi upp í úrvalsdeild eins og hópurinn er núna? „Ef ég á að vera alveg hreinskilinn, þá held ég að við þyrftum aðstoð ef við fæmm upp. En þetta era efni- legir strákar sem em að koma upp og miðað við hvað er að gerast í úrvalsdeild þá er ekkert óeðlilegt að við þyrftum liðsauka ef við fæmm upp. Selfoss og Afturelding em neðst, annað fellur og hitt fer í umspilið. Næsta skref er úrvalsdeild En markmiðið er samt alltafað fara upp? „Já það er klárlega markmiðið hjá mér og öllum hópnum, held ég. Við viljum stíga næsta skref í að þróa bæði liðið og okkur sjálfa sem hand- boltamenn og það gerum við með því að fara í úrvalsdeild," sagði Davíð Þór að lokum. 1. deild karla Grótta 19 15 2 2 569:451 32 ÍR 19 14 1 4 568:475 29 Stjaman 19 12 1 6 527:446 25 ÍBV 19 9 3 7 490:501 21 Vikingur 19 8 1 10 537:528 17 Selfoss U 19 7 0 12 491:557 14 FHU 19 5 0 14 475:528 10 Fjölnir 19 2 0 17 442:613 4 |2. deild karla: Úrslitakeppnin að hefjast Mæta IA í átta liða úrslitum - Töpuðu heimaleikjaréttinum í slysalegu tapi á heimavelli í síðasta leik Körfuboltalið ÍBV leikur á laug- ardaginn gegn IA í átta liða úr- slitum 2. deildar. í úrslitum 2. deildar mætast liðin aðeins í ein- um leik og sigurvegarinn kemst áfram. Eyjamenn töpuðu heima- leikjaréttinum með því að tapa fyrir Reyni Sandgerði á heima- velli um síðustu helgi en lokatölur urðu 82:86 eftir að staðan í hálf- leik hafði verið 44:41 fyrir ÍBV. Jón Gunnar Magnússon, þjálfari ÍBV, tók undir að tapið fyrir Reyni hafi verið slæmt. „Það var leiðinlegt að ná ekki að landa sigri gegn Reynismönnum á heimavelli í síðasta leik. Við vomm klaufar og erum ósáttir við að hafa tapað heimaleikjaréttinum svona klaufa- lega. Það stefnir því allt í að við höfum leikið okkar síðasta heima- leik í vetur.“ TVÖSTIG. Jón Gunnar rís hæst í loft upp og skorar tvö stig gegn Reyni um síðustu helgi. En hvernig líst þér á að mœta Skagamönnum ? „Mér líst ágætlega á það. Ég veit reyndar mjög lítið um liðið en ég veit þó það að ef við gemm eins og lagt verður upp með, þá eigum við góða möguleika. Ég veit ekki betur en að allir leikmenn séu heilir og að við getum teflt fram okkar sterkasta liði. Staðan er einfaldlega þannig að ef við vinnum næstu tvo leiki, þá emm við komnir upp í 1. deild því það fara tvö lið upp.“ Finnst þér ÍBV vera með nógu gott liðfyrir 1. deildina? „Já mér finnst við vera með lið sem gæti vel plumað sig í 1. deild. Við höfum tekið þetta á léttu nótunum í vetur og ekkert verið að stressa okkur allt of mikið á æfmgasókn en 1. deildin kallar á betri æfmgasókn," sagði Jón Gunnar. íþróttir Fótbolti: Strákarnir fengu tækifæri Þeir Þórarinn Ingi Valdimarsson og Eiður Aron Sigurbjörnsson fengu báðir að spreyta sig með U- 21 árs landsliði Islands. Liðið lék tvo leiki, báða ytra en fyrst var leikið gegn Úkraínu og svo Englendingum. Þórarinn Ingi var í byrjunarliði íslenska liðsins og lék allan leikinn en Eiður Aron kom inn á í hálfleik. Eiður fiskaði m.a. vítaspymu sem íslenska liðið nýtti en lokatölur urðu 3:2 Úkraínumönnum í vil eftir að staðan í hálfleik hafði verið 1:0. í leiknum gegn Englendingum á mánudag var Eiður Aron ekki í leikmannahópi liðsins og Þór- arinn Ingi byrjaði á bekknum. íslenska liðið vann frækinn sigur 1:2 en Þórarinn Ingi kom inn á í blálokin. Þeir félagar héldu svo til móts við ÍBV sem er nú í æfinga- ferð á Spáni. Knattspyrna: Eyjamenn á uppleið Eftir frekar slaka byrjun í Lengju- bikarnum, virðist karlalið IBV vera komið á skrið. ÍBV tapaði fyrstu tveimur leikjunum, gegn Leikni R. og Val engerði svo jafn- tefli gegn Víkingi O. og Fjölni. í kjölfarið komu svo tveir sigur- leikir, fyrst gegn HK á dögunum og síðasta fimmtudag lögðu Eyjamenn Víking R. að velli. Lokatölur urðu 1:2 fyrir ÍBV en Ian Jeffs gerði bæði mörk ÍBV. Víkingar komust reyndar yfir á heimavelli sínum en áður hafði m.a. Tryggvi Guðmundsson átt hörkuskot í slá. Staðan í hálfleik var 1:0 Víkingum í vil en Eyjamenn svömðu með tveimur mörkum. Eftir leikinn héldu leik- menn ÍBV svo til Spánar í æfinga- ferð. Þar verða m.a. fjórir leik- menn til skoðunar sem koma frá Crewe, Newcastle og Tel Aviv frá ísrael en um er að ræða tvo bakverði, sóknarmann og mark- vörð. Framundan Föstudagur 1. aprfl Kl. 15:45 ÍBV-Þór Ak. 4. flokkur karla, handbolti. Kl. 17:00 ÍBV-ÞórAk. 3. flokkur karla, handbolti. Kl. 19:30 ÍBV-Víkingur 1. deild karla, handbolti. Laugardagur 2. aprfl Kl. 14:30 IA-ÍBV 2. deild karla, úrslit, körfubolti. Kl. 13:00 ÍBV-Þróttur 3. flokkur karla, handbolti. KI. 13:00 Snæfellsnes-ÍBV 5. flokkur karla, AB, fótbolti. Kl. 14:00 ÍBV-ÍR 3. flokkur kvenna, handbolti. Kl. 15:00 ÍBV-Þróttur 4. flokkur karla, handbolti. Sunnudagur 3. aprfl Kl. 14:00 Léttir-KFS Lengjubikar karla C, fótbolti. Kl. 11:00 ÍBV-FH 2 3. flokkur karla, handbolti. Kl. 11:30 ÍBV-Fram 1 3. flokkur kvenna, handbolti. Kl. 12:30 ÍBV-Fram 2. flokkur karla, handbolti. Kl. 15:00 Snæfellsnes-ÍBV 2 3. flokkur kvenna, fótbolti. Kl. 16:00 Selfoss-ÍBV 3. flokkur kvenna, fótbolti. Kl. 16:00 HK-ÍBV 3. flokkur karla, AB, fótbolti.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.