Fréttir - Eyjafréttir - 03.11.2011, Blaðsíða 2
2
Fréttir / Fimmtudagur 3. nóvember 2011
Alvöru töfrar í Ronju Ræningjadóttur
-Þröstur Guðbjartsson er leikstjóri - Verður frumsýnd á laugardag
FJÖLMENN SÝNING Alls taka 27 leikarar þátt í sýningunni og er þetta hinn myndarlegasti hópur. Þröstur
leikst jóri er iangst til hægri.
Leikfélag Vestmannaeyja frumsýnir
á laugardaginn klukkan 17:00 fjöl-
skylduleikritið um Ronju Ræn-
ingjadóttur. Það er Þröstur Guð-
bjartsson sem leikstýrir en alls taka
27 leikarar þátt í verkinu, frá 12 ára
og upp úr. Aðalhlutverk er í hönd-
um Söru Hlínar Sölvadóttur, sem
leikur Ronju og Kristleifs Krist-
leifssonar, sem leikur Birki. Auk
þess leika þau Zindri Freyr Ragn-
arsson og Asta Steinunn Astþórs-
dóttir, foreldra Ronju, Birkir
Högnason og Heiða Marinósdóttir,
foreldra Birkis og Alexander Tórs-
hamar leikur Skalla-Pétur.
Söguna um Ronju Ræningjadóttur
kannast flestir við en söguna skrif-
aði sænski barnabókahöfundurinn
Astrid Lindgren. Þröstur sagði í
samtali við Fréttir að sagan væri
klassísk barátta milli góðs og ills.
„Sagan fjallar um Ronju, frá fæð-
ingu og til tólf ára aldurs, samskipti
hennar við fjölskylduna og átök
milli ræningjaflokkanna annars
vegar og ræningjaflokkanna og her-
manna fógetans hins vegar. Þema
sögunnar er líklega baráttan um að
komast af.
Ronja kynnist sem sagt Birki, syni
erkióvinna foreldra sinna og þau
verða miklir vinir. Því verður enn
meiri togstreita á milli ræningja-
flokkanna en áður. Sagan gerist í
Matthíasarskógi en heimili ræn-
ingjaflokkanna er Klettaborgin,
sem gerir það að verkum að sviðs-
myndin er ógurlega flott. Við
fæðingu Ronju klofnar einmitt
Klettaborgin þannig að strax í
upphafi sýningarinnar verður mikið
af leikhústöfrum," sagði Þröstur
með ævintýraglampa í augunum.
Hann segir leikritið vera upplagt
fyrir alla fjölskylduna. „Það er
helst að allra yngstu krakkamir
gætu orðið svolítið skelkaðir en
börn fimm ára og eldri þola alveg
gassaganginn í verkinu. Astrid
Lindgren samdi fullt af skemmti-
legum bamasögum en þessi er
kannski í þyngri kantinum, eins og
Bróðir minn ljónshjarta. Léttari
verk vom t.d. Emil í Kattholti,
Kalli á þakinu og síðast en ekki síst
Lína Langsokkur."
Þú talaðir um að sviðsmyndin tœki
breytingum í upphafi sýningar-
innar?
„Já, þá koma fram alvöru leikhús-
töfrar. Við lögðum mikla vinnu í
leikmyndina sem opnast í upphafí
sýningarinnar. En svo má ekki
gleyma því að leikarar em búnir að
leggja mikið á sig. Æfmgaferlið
hefur verið langt og strangt, um
tveir mánuðir og sumir leikararnir
hafa m.a. fómað útlitinu fyrir
leikritið."
Þröstur er ekki ókunnur aðstæðum
hjá Leikfélagi Vestmannaeyja en
hann leikstýrði Dýrunum í Hálsa-
skógi árið 2004. Aðspurður segist
hann sjá mikinn kraft í Leikfélag-
inu um þessar mundir. „Það hefur
verið mikið líf í leikhúsinu.
Leikfélagið er nú komið með allt
húsið sem gefur möguleika á mjög
lfflegu starfi en það kostar jafn-
framt mikla vinnu. Það er búið að
vera mikið álag á leikhúsfólkinu
sem hefur verið að koma eftir
vinnu eða skóladag, æfa í nokkra
klukkutíma og þess á milli er verið
að standsetja húsið. Ofan á allt
þetta voru svo teknar upp sýningar
á Mamma Mia og haldnir tónleikar.
Allt hefur þetta tekið tíma frá okkur
en við höfum algjörlega einbeitt
okkur að Ronju undanfamar vikur.
En það er greinilega mikill kraftur í
Leikfélaginu. Það er eins og eld-
fjall sem er að hreinsa sig um
þessar mundir," sagði Þröstur og
lofaði góðri fjölskylduskemmtun í
Leikhúsinu næstu vikumar.
Bæjarstjórn-
Bæjarlistamaður:
Tekist á
um fyrir-
komulag
Reglur um starfslaun bæjarlista-
manns vora rædd á síðasta fundi
bæjarstjómar. Áður hafði
fræðslu- og menningarráð sam-
þykkt breytingar á reglunum og
vill veita verðlaun bæjarlista-
manns til tveggja ára, annað
hvert ár í stað þess að veita þau á
hverju ári.
Nýjar reglur kveða á um að auk
umsókna verði sóst eftir tilnefn-
ingum og samþykkt að koma á
fót sjóði til að styðja við unga
listamenn sem veitt verður úr
annað hvert ár þ.e. þegar bæjar-
listamaður er ekki tilnefndur. I
fundargerð bæjarstjómar segir að
bæjarstjóm taki undir þá megin-
hugsun sem fram kemur í breyt-
ingunum og telur þær til bóta.
Hins vegar frestar bæjarstjóm
afgreiðslu málsins og óskar eftir
rökstuðningi fyrir því að horfið
skuli frá árlegri úthlutun.
Kristín Jóhannsdóttir, menning-
ar og markaðsfulltrúi Vest-
mannaeyjabæjar sem líka er full-
trúi V-listans í bæjarstjóm, sat
bæjarstjómarfundinn og er á
móti því að bæjarlistamaður
verði tilnefndur annað hvert ár.
„Afgreiðslu málsins var frestað
og þarf að ræða betur. Ég vil
tilnefna bæjarlistamann á hveiju
ári og tel það ekki neinum vand-
kvæðum bundið. Ég gæti nefnt
nöfn á frambærilegum bæjar-
listamönnum tíu ár fram í tím-
ann. Við eigum fullt af flottu
fólki, það sýnir sig á Safnahelgi
sem er framundan. Nýjar reglur
kveða á um að hægt sé að til-
nefna fólk og ég er ekki á móti
því, fólk fer þá fram á tilnefn-
ingu í stað umsókna. Við eram
að styrkja unga listamenn og
þarf ekki sérstakan sjóð til þess.
Ekkert mælir á móti því að þeir
séu bæjarlistamenn frekar en
aðrir. Mér finnst tilnefning
bæjarlistamanns mjög mikilvæg
og hann skilar svo af sér list-
viðburði til bæjarfélagsins. Auk
þess er tilnefning bæjarlista-
manns skemmtilegur vorboði á
hverju ári,“ sagði Kristín.þegar
hún var spurð út í málið.
Osátt við að bæjarfélagið sé beitt dagsektum
-Málið í ferli, segir Ólafur Snorrason hjá umhverfis- og framkvæmdasviði
Umhverfisstofnun hefur beitt Vestmannaeyjabæ
dagsektum frá 1. júní sl. en upphaflega var þeim
beitt vegna þess að mengun frá Sorporkustöðinni
mældist yfir leyfilegum mörkum. Umhverfis-
stofnun byggði ákvörðun sína á grandvelli mæl-
inga sem fóra fram í mars 2011 sem sýndu ryk-
mengun upp á 420mg/Nm3. Fulltrúar bæjarins
voru hins vegar mjög ósáttir við þá niðurstöðu og
létu mæla aftur og þær mælingar leiddu í ljós að
ryk mældist 230/Nm3 en losunarmörk era 200
mg Nm3 í eldri sorpbrennslum.
Olafur Snorrason, framkvæmdastjóri umhverf-
is- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar,
sagði málið vera í ákveðnu ferli milli Um-
hverfisstofnunar og Vestmannaeyjabæjar. „Við
erum ósátt við að bæjarfélagið sé beitt dagsektum
þar sem við teljum að við höfum uppfyllt þau
skilyrði sem sett vora og því ekki grandvöllur
fyrir þvingunaraðgerðum. Við höfum leitað til
Samabands íslenskra sveitarfélaga og þeir eru
sammála okkar túlkun og þar stendur hnífurinn í
kúnni.Við erum ósammála Umhverfisstofnun en
ekki hefur verið tekin ákvörðun um næstu skref
en ég reikna með að það verði gert á næsta fundi
framkvæmda- og hafnarráðs.Við funduðum með
fulltrúum Umhverfisstofnunar síðasta fimmtudag
en náðum ekki saman um þetta mál en að öðra
leyti var það gagnlegur fundur," sagði Olafur um
dagsektargreiðslur sem lagðar era á Vestmanna-
eyjabæ.
Sigríður Kristjánsdóttir, deildarstjóri Umhverfis-
stofnunar sagði að af hálfu bæjarins væri búið að
ná niður rykmengun í útblæstri og hún væri innan
leyfilegra skekkjumarka og sektargreiðslur hefðu
verið lækkaðar í samræmi við það. Önnur atriði
væru í skoðun s.s. hreinsun á skolvatni en
niðurstöðu í málinu væri að vænta fljótlega.
GÓÐ GJÖF Bjarni Sighvatsson afhendir Hirti Kristjánssyni yfirlækni gjafabréf vegna ómtækis sem
Bjarni og fieiri gáfu Heilbrigðisstofnuninni Vestmannaeyjum. Skilyrðið er að það verði notað á sjúkrahús-
inu í Vestmannaeyjum sem á undir högg að sækja.
7—
■Æmkl
tJtgefandi: Eyjasýn éhf. 480878-0549 - Vestmannaeyjum. Jtitstjóri: Ómar Gaiðarsson.
Blaðamenn: (Judbjörg Sigurgeirsdóttir og Júlíus Ingason. Ábyrgdarmemi: Ómar Gardars-
son & Gisli Valtý'sson.
Prentvinna: Eyjasýn/ Eyjaprent. Veshnannaeyjmn. Aðsetur ritstjómar: Strandvegi 47.
Símar: 481 1300 & 481 3310. Myndriti: 481-1893. Netfang/rafpóstnr frettir@eyjafrettir.is.
bttp//www.cyjafrettir.is
Listvinafélag Vestmannaeyja:
Oddgeirstónleikar
Listavina-
félagið ætlar
að leggja
sitt af
mörkum til
að heiðra
minningu
Oddgeirs
Kristjáns-
sonar, tón-
skálds sem
hefði orðið
100 ára 16.
nóvember nk.
„Það verða tónleikar í Akóges kl.
fimm eftir hádegi sunnudaginn 13.
nóvember nk. þar sem eingöngu
verða leikin lög Oddgeirs,“ sagði
Hermann Einarsson, formaður
Listvinafélagsins, og hann lofar
fjölbreyttri dagskrá enda af nógu
að taka þegar Oddgeir er annars
vegar.
„Þarna komar fram tvær sveitir,
Stórsveit Tónlistarskólans umdir
stjóm Eggerts Björgvinssonar og
Tríó Reynis Sigurðssonar en með
honum era Jón Páll Bjamason og
Gunnar Hrafnsson. Þeir munu
leika lög Oddgeirs í gömlum og
nýjum útsetningum og ætlunin er
að skapa þama þægilega kaffi-
húsastemmningu. Ættu ungir og
aldnir að finna eitthvað við sitt
hæfi og verður miðaverði stillt í
hóf,“ sagði Hermann að endingu.
ERÉTTER koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu á Kletti,
Tristinum, Toppnum, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Krónunni, ísjakanum,
vershm 11-11 og Skýlinu í Friðarböfn.. FRÉTl'IK eru prentaðar í 8000 eintökmn.
FRÉ'iTlR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprenhm, hljóðrihm,
notknn ljósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.