Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 03.11.2011, Síða 10

Fréttir - Eyjafréttir - 03.11.2011, Síða 10
10 Fréttir / Fimmtudagur 3. nóvember 2011 Bárður Hafsteinsson, skipaverkfræðingur og Grímur Gíslason, framkvæmdastjóri: Smíðakostnaður nútímalegrar og hagkvæmrar ferju 3 milljarðar -Hugmyndir um nýjan Herjólf - Skipið getur verið tilbúið á 18 mánuðum NÝR HERJÓLFUR? Þannig lítur skipið út sem Bárður og Grímur leggja til að verði smíðað. Það er 77,8 metra langt og 16,2 metra breitt. Þetta fyrirtæki hefur hannað margar álíka ferjur. Djúprista þess er 3,2 metrar með fulifermi (DW 500 tonn) og áætlaður hámarks ganghraði um 16 sjómílur, en raunsiglingahraði yrði um 15 sjómílur á klst. Skipið getur flutt 66 bifreiðar, eða 6 flutningavagna, 19,5 metra að lengd, og 27 bifreiðar. Undanfarið höfum við undirritaðir unnið að því að skoða möguleika varðandi nýja ferju til siglinga milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar. Þessi vinna er alfarið að frumkvæði okkar sjálfra sem áhugamanna um bættar samgöngur milli lands og Eyja. Báðir höfum við talsverðar taugar til þessa máls þar sem við höfum, á sinn hátt hvor, tengsl við siglingar milli lands og Eyja í langan tíma. Skipatækni, fyrirtæki Bárðar, hann- aði núverandi Herjólf, sem allir eru sammála um að reynst hafi mjög vel í því verkefni sem hann var hann- aður til, þ.e. siglinga milli Þorláks- hafnar og Eyja. Grímur var lengi starfsmaður Herjólfs, stjómarformaður fyrirtæk- isins og sat í smíðanefnd þegar núverandi skip var byggt. Við teljum okkur því hafa nokkra þekkingu og reynslu í þessum efnum og viljum nýta hana til að stuðla að því að næstu nauðsynlegu skref verði stig- in í samgöngumálum Eyjamanna. Núverandi Herjólfur hentar ekki til siglinga í Landeyjahöfn og nýtt skip því nauðsynlegt Við höfum báðir velt núverandi ástandi vel fyrir okkur, fylgst með umræðunni og reynt að meta hlutina út frá því. Eins höfum við sett okkur í samband við erlenda sérfræðinga í hönnun ferja til að kalla fram lausnir sem dugað gætu til að leysa þann vanda sem uppi er. Það má eflaust deila um það hvort Landeyjahöfn er rétt hönnuð, hvort hún hefði átt að vera annars staðar, hvort hægt er að bæta hana með byggingu garða eða öðmm ráðstöf- unum. Til þess tökum við enga af- stöðu hér, enda er ljóst að hvort sem höfnin þarfnast breytinga, dýpkun- arbúnaðar eða einhvers annars þá liggur fyrir að núverandi Herjólfur hentar illa til siglinga í núverandi Landeyjahöfn. Djúprista hans er of mikil, vindfangið er of mikið og stjómhæfni skipsins minnkar mikið við það litla dýpi, sem er í Land- eyjahöfn. Markmiðið að leita einfaldra, nútímalegra lausna Markmið okkar, þegar við hófum að skoða þetta, var að leita nútímalegra lausna á þeim vanda sem uppi er og miða við þær aðstæður sem í Land- eyjahöfn em. Reyna að fá hannað skip sem uppfyllti kröfur á hafsvæði samkvæmt EU klassa B og svo- kallað Stokkhólmsákvæði stöðug- leikareglnanna, með sem minnsta djúpristu, með sem minnst vindfang og með sem mesta stjórnhæfni. Skipið þyrfti að vera einfalt að gerð, flytja 60 til 70 bifreiðar og taka um 300 farþega og vera sem ódýrast í smíðum. Astæða þess að við miðum við að ferjan flytji 300 farþega er ekki sú að við teljum endilega að það sé nægjanlegur fjöldi í öllum ferðum, heldur er hér um hagkvæmnisatriði að ræða. Stærri farþegasalur hefur í för með sér stærra vindfang o.fl., en skipið mun geta flutt 399 farþega í undantekningartilfellum. Tveggja stefna skip sem uppfyllir það sem leitað er eftir kostar 3 milljarða Við höfum frá upphafi sjálfir horft mjög til hönnunar á svokölluðu tveggja stefna skipi, þar sem slík skip eru mjög hentug og mikið notuð til siglinga á stuttum leiðum víða um heim. Þá eru þau skip ein- föld að gerð og hafa, samkvæmt þeim upplýsingum sem við höfum fengið, gríðarlega mikla stjórn- hæfni. Við höfum nú undir höndum hönnun að slíku skipi. Það hefur tvöfalda skrúfu á báðum endum skipsins, (Azimuth propeller) en skrúfumar virka bæði sem fram- driftsbúnaður, stýrisbúnaður og bógskrúfur. I skipinu er tvö aðskilin vélarúm og í hvoru em tvær 800 kW ljósavélar sem drífa bæði fram- driftsbúnaðinn, sem er rafdrifmn, og sjá um raforkuþörf skipsins. Skipið á því að, hafa mikið rekstraröryggi og uppfyllir nýjustu loftmengunar- kröfur. Sú hönnun sem við leggjum hér fram er skip, sem er hannað af norska ráðgjafarfyrirtækinu Multi Maritime AS, 77,8 metra langt og 16,2 metra breitt. Þetta fyrirtæki hefur hannað margar álíka ferjur. Djúprista þess er 3,2 metrar með fullfermi (DW 500 tonn) og áætl- aður hámarks ganghraði um 16 sjómflur, en raunsiglingahraði yrði um 15 sjómflur á klst. Skipið getur flutt 66 bifreiðar, eða 6 ílutninga- vagna, 19,5 metra að lengd, og 27 bifreiðar. Við höfum fengið verð í það skip sem hér er lýst, hjá norsku skipa- smíðastöðinni Fiskestrand BLRT AS, sem smíðað hefur margar hlið- stæðar ferjur, og er það nálægt 3 milljörðum. Við höfum einnig kann- að verð víðar og komist að svipaðri niðurstöðu. Verð á skipi sem þessu, smíðuðu í Noregi eða öðru landi í Norður-Evrópu, er áætlað um og undir 3 milljörðum. Smíðatími þess skips sem við kynnum hér er 18 mánuðir. Gríðarlega mikilvægt samfélags- verkefni Við teljum nauðsynlegt að ýta umræðunni um nýja ferju fram á veg og tími sé kominn til að fara að vinna að þessu af alvöru. Tryggar samgöngur við Vestmannaeyjar skipta samfélagið í Vestmanna- eyjum gríðarlegu máli og eru klár- lega það samfélagsverkefni sem mikilvægast er fyrir Eyjamenn. En rétt er þó að leggja áherslu á að þetta er ekki bara mikilvægt fyrir Eyja- menn heldur fyrir íslenskt samfélag því að góðar samgöngur koma öllum landsmönnum til góða. Höfum við efni á að eiga höfn sem ekkert skip getur siglt í? Eflaust munu einhverjir koma fram með þau sjónarmið að við höfum ekki efni á að ráðast í fjárfestingu sem þessa. Vel má vera að það sé rétt en það er þá líka rétt að velta upp spumingunni um það hvort við höfum efni á því að eiga fjárfest- ingu í höfn sem hefur takmarkað notagildi vegna vöntunar á skipi sem getur siglt í hana. Þá er rétt að horfa til rekstrarkostnaðar skipsins og samfélagslegra áhrifa þegar um þetta er rætt. Getur Lífeyrissjóður Vestmanna- eyja komið að fjármögnun? Eyjamenn hafa löngum verið þekkt- ir sem forgöngumenn í framfara- málum. Það var vel rifjað upp fyrir landsmönnum í síðustu viku, þegar ákveðið var að varðskipið Þór kæmi fyrst til hafnar í Eyjum, að það voru Vestmannaeyingar sem keyptu fyrsta björgunarskip landsins og lögðu þannig grunn að Landhelgis- gæslunni. Það er aðeins eitt dæmi um drifkraft Eyjamanna og margt fleira mætti tína til hvað það varðar. Nú þurfa Vestmannaeyingar enn á ný að sýna kraft sinn, taka forystuna og sigla þessu máli áfram. Okkur finnst rétt að velta upp þeim möguleika hvort Eyjamenn geta ekki sjálfir komið að fjármögnum skips og gert leigusamning við rik- isvaldið til langs tíma þar sem fjár- festingin yrði endurgreidd í formi leigu sem gæfi eðlilega ávöxtun á fjárfestinguna. Gæti t.d. Lífeyrissjóður Vest- mannaeyja ávaxtað fé sitt á þennan hátt, en um leið stuðlað að því að koma þessu mikilvægasta sam- félagsmáli sem brennur á Eyjabúum í farsæla höfn? Mætti einnig hugsa sér aðkomu fleiri aðila, fyrirtækja, bæjarfélagsins o.fl. á þennan hátt? Verkefnið er svo mikilvægt og svo stórt að Eyjamenn þurfa nú að sýna samtakamátt sinn og kraft í verki og finna leiðir sem duga til að hrinda þessu í framkvæmd. Skip er fáanlegt á skömmum tíma á ásættanlegu verði - Viljinn er allt sem þarf Við teljum að tími sé kominn til að fara að láta verkin tala og vinna fast og ákveðið að því að byggja nýja og nútímalega ferju. Okkar framlag hér sýnir að það er hægt að fá nýtt og öflugt skip á mun skemmri tíma en áður hefur verið haldið fram og einnig er hægt að fá það á mun lægra verði en talað hefur verið um til þessa. Jafnvel þó að það sé byggt í skipasmíðastöð sem treysta má að skili verkinu vel og á umsömdum tíma. Við vonum að þetta innlegg okkar verði til að koma umræðunni um þetta mál á nýtt plan og að nú verði farið að keyra málið áfram af þeim krafti sem þarf til að leysa þann vanda sem við er að etja. Við erum tilbúnir til frekari þátttöku í að koma þessu máli í farsælan farveg og miðla af þekkingu okkar og reynslu í þeim efnum. Bárður Hafsteinsson, skipaverk- frœðingur og Grímur Gíslason, framkvœmdastjóri. Ahugamenn um eðlilegar og traustar samgöngur milli lands og Eyja Landakirkja - Minning látinna á Allra heilagra messu og minning Oddgeirs Fyrsta sunnudag í nóvember held- ur Landakirkja Allra heilagra messu. Þá mun minning þeirra heiðruð sem dáið hafa sl. 12 mánuði, eða frá fyrsta sunnudegi í nóvember 2010. Nöfn þeirra eru lesin í bæninni eftir prédikun samkvæmt prestsþjónustubók Vestmannaeyjaprestakalls. Einnig verður hægt að koma nöfnum ást- vina, sem ekki eru í þeirri bók en Kristjánssonar látist hafa á þessum tíma, til prestanna og þá verða þau einnig lesin upp því það er ekki ætlunin að miða aðeins við þá sem jarð- settir eru hér í Kirkjugarði Vestmannaeyja. I messunni verður einnig hægt að tendra ljós á kerti og setja á ljósastiku í kómum en það er góður siður til áherslu bænarinnar. Minning Oddgeirs Kristjánssonar verður einnig heiðruð sérstaklega þar sem öld er liðin frá fæðingu hans í nóvember. Verða lög eftir hann leikin og sungin bæði í for- spili og eftirspili. Kór Landakirkju mun flytja kórverk og syngja sálma dagsins undir stjóm organ- ista Landakirkju, Kitty Kovács. Prestur er sr. Kristján Bjömsson. Kafftsopi verður eftir messu í Safnaðarheimilinu. Oddgeir endurreisti Lúðrasveit Vestmanneyja á sínum tíma.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.