Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 03.11.2011, Page 20

Fréttir - Eyjafréttir - 03.11.2011, Page 20
Frcttir / Fimmtudagur 3. nóvember 2011 ÁTTATÍU OG FIMM ár skilja að Þór, nýtt skip Landhelgisgæslunnar við bryggju í Friðarhöfn á miðvikudaginn. Fyrsti Þór var keyptur til Vestmannaeyja 1926 og er minnismerkið um hann í forgrunni þar sem skrúfan af fyrsta Þór af fjórum trónir á toppnum. Myndir Óskar Pétur. Þór var boðinn velkominn til Eyja Það var mikið um dýrðir þegar Þór, nýtt skip Landhelgisgæslunnar, kom til Vestmannaeyja á miðviku- daginn. Vestmannaeyjar voru fyrsta höfn Þórs hér á landi. Þór er smíð- aður í Chíle og tók siglingin til íslands rúman mánuð. Vestmannaeyjar tóku á móti Þór og áhöfn í góðu veðri og íbúamir sýndu að þeir kunnu að meta þann heiður sem frumkvæði Eyjamanna í öryggismálum sjómanna var sýnt með þessu. Fjölmenni var við komu skipsins og fjöldi manns nýtti boð um að skoða það. Og þeir urðu ekki fyrir vonbrigð- um því Þór er stórglæsilegt skip. Sennilega gera fáir sér jafn vel grein fyrir þörfmni á öflugu björg- unarskipi og björgunarmiðstöð á sjó og Vestmannaeyingar og Vestfirðingar fyrir utan að sjálf- sögðu sjómennina. Það er því hægt að óska okkur öllum til hamingju með Þór. ÞRÍR HEIÐURSMENN. Sigurður Steinar Ketilsson skipstjóri, Sveinn Rúnar Valgeirsson, skipstjóri á Lóðsinum og hafnarstjóri og Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar við komu Þórs til Eyja. PlLOl FJÖLMENNI. Mikill fjöldi Eyjamanna var mættur á bryggjuna þegar Þór kom til hafnar í Eyjum og enn fleiri nýttu sér tækifærið og skoðuðu skipið.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.