Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 29.12.2011, Blaðsíða 8

Fréttir - Eyjafréttir - 29.12.2011, Blaðsíða 8
8 Fréttir / Fimmtudagur 29. desember 2011 upphafi, var haldinn undir lok janúarmánaðar, og stóð í aðeins fjórar mínútur. Elliði Vignisson, bæjarstjóri, sagði að tvennt hefði valdið þessum stutta tíma. „Annars vegar var því máli sem átti að ræða frestað til næsta fundar og hins vegar erum við með röggsaman forseta sem réttilega sér ekki tilgang í að hanga yfir einhverju til þess eins að lengja fundi,“ sagði Elliði. Þessi röggsami forseti heitir Gunnlaugur Grettisson. Febrúar Þjófurinn fundinn Um áramótin var brotist inn í Gullbúðina við Vestmannabraut og þaðan stolið skartgripum og úrum fyrir hundruð þúsunda króna. f byrjun febrúar greindi lögreglan frá því að málið væri upplýst, hinn seki fundinn og þýfið að mestu endur- heimt. Einarsstofa opnuð Kári Bjarnason og hans fólk í Safnahúsinu stóð fyrir mikilli dagskrá þann 7. febrúar, þegar svokölluð Einarsstofa var opnuð í anddyri Safnahússins. Þetta var í tilefni þess að þennan dag voru 105 ár liðin frá fæðingu Einars Sigurðs- sonar, sem oftast var kallaður Einar ríki. Afkomendur Einars lögðu sitt af mörkum til að þessi hugmynd gæti orðið að veruleika. Einarsstofa var síðan vettvangur margra sýninga og annarra uppákoma það sem eftir var ársins. Golli kvaddur Einhverjir sögðust hafa séð tár á hvarmi, þegar Páll Marvin og Georg Skæringsson hjá Sæheimum slepptu selkópnum Golla, suður í Höfðavík. Kópurinn, sem var nefndur Golli, eftir þeim Georg (Gogga) og Páli Marvin (Palla), hafði dvalið hjá þeim í góðu yfirlæti um þriggja mánaða skeið en nú var komið að kveðjustund. Verkfall afboðað Um tíma leit út fyrir að loðnu- vertíðin gæti orðið endaslepp þar sem bræðslumenn höfðu boðað til verkfalls. Sú deila var þó leyst á síðustu stundu og þar með fór fryst- ing á fullt. Þó kom þetta illa við vinnsluaðila þar sem þeir höfðu hagað veiðum og vinnslu með tilliti til þess að verkfall myndi skella á og því hafði verið gengið meira á kvót- ann en efni stóðu til. Sjálf loðnu- vertíðin var reyndar einkar góð að því undanskildu að tíðin var frekar leiðinleg, loðnan mjög góð bæði til frystingar og hrognatöku og svo bættist við að gott verð var bæði á lýsi og mjöli. Skandia mætt til leiks Þar sem reynslan hafði sýnt að dýpkunarskipið Perlan réði ekki að fullu við að sjá um sanddælingu í Landeyjahöfn var fengið annað skip til verksins, Skandia, og kom það til Eyja í febrúar. Reyndar kom í ljós að rétt eins og með Perluna, þá réðu veður og ölduhæð öllu um það hvort skipið gæti athafnað sig. Tíðar bilanir áttu einnig sinn þátt í því að Skandiu tókst ekki það ætlunarverk sem henni var ætlað, að halda Land- eyjahöfn opinni yfir veturinn. Nám í bjórdrykkju Enn bættist í menntaflóruna í Vestmannaeyjum þegar Bjórskólinn hélt námskeið hér í febrúar. Sveinn Waage, lektor við skólann, sá um kennsluna en Sveinn átti síðan eftir að halda orðstír Eyjanna á lofti með þátttöku sinni í Útsvari, síðar á árinu. Þeir sem eitthvað mundu frá þessu námskeiði létu vel af því. Varmó á nýjan stað Þau Aldís Atladóttir og Kristinn Andersen, sem rekið höfðu kaffi- húsið Varmó við Kirkjuveginn, færðu sig um set og opnuðu nýtt Varmó á horni Strandvegar og Herjólfsgötu, í húsi Tölvunar. Komnar í Vosbúð Og fleiri færðu sig um set. Þær Helga Dís Gísladóttir og Guðrún TALSVERÐUR hópur fólks lagði á sig að fara suður í Klauf til að kveðja selinn Golla en sá hafði dvalið í góðu yfirlæti hjá þeim Páli Marvin Jónssyni og Georg Skæringssyni í Sæheimum í um þriggja mánaða skeið. Málþing um Þorstein og Blik Fyrstu helgina í apríl efndu Sögu- setur 1627 og Bókasafn Vestmanna- eyja til málþings um Þorstein Þ. Víglundsson og Blik, í tilefni þess að 75 ár voru liðin frá því að Blik kom fyrst út. Mikill fjöldi sótti þetta málþing, bæði heimamenn og aðkomnir. Steinunn Guðmundsdóttir, sem rekið höfðu Nytjamarkaðinn við Kirkjuveg, færðu sig vestar í bæinn í Vosbúð við Strandveg þar sem var mun betra pláss að þeirra sögn. Kona í fyrsta sinn Sá merkisatburður átti sér stað á aðalsafnaðarfundi Landakirkju, að þar var í fyrsta sinn í sögu safnað- arins kona kjörin sem formaður sóknarnefndar. Sú var Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir, forstöðumaður Póstsins í Vestmannaeyjum. Endurbætt Höll Gagngerðar endurbætur voru gerðar á Höllinni, og þóttu einkar vel heppnaðar. Fyrsta uppákoman í endurbættum sal var svo með hljómsveitinni Mannakornum sem hélt tónleika þar. Aldurhniginn fýll Skipverjar á Kristbjörgu VE fengu merktan fýl í net sín og afhentu Óskari Sigurðssyni í Stórhöfða merkið. f ljós kom að Óskar hafði merktfuglinn fyrir 41 ári, árið 1970. Óskar sagði að fuglinn hefði verið fullorðinn þegar hann var merktur og gæti því verið enn eldri, jafnvel farinn að nálgast fimmtugt og sagðist hafa heyrt að fýlar gætu náð þeim aldri. Mars Skátar ósáttir Það olli nokkrum úlfaþyt þegar bæjarráð ákvað að bjóða út rekstur- inn á tjaldsvæðinu f Herjólfsdal en skátamir hafa séð um það frá árinu 1978. Voru skátar mjög ósáttir við þessa ráðstöfun enda hefur þessi umsjón verið helsta fjáröflunarleið þeirra. Eivör og Fjallabræður í heimsókn Hinir ýmsu listamenn ofan af fasta- landinu voru iðnir við að koma út til Eyja til tónleikahalds. Færeyska söngdívan Eivör Pálsdóttir var með tónleika í Landakirkju og svo tróðu Fjallabræður upp í Höllinni. Að- sókn er oftast mjög góð á uppá- komur sem slíkar og mun sú vera m.a. ein ástæðan fyrir tíðum heim- sóknum listamanna til Eyja. Grímur kokkur áhrifamikill Grímur Gíslason hafði ástæðu til að gleðjast þegar fyrirtæki hans, Grímur kokkur, fékk viðurkenningu á sýningunni Netið Expo 2011 fyrir að vera áhrifamesta fyrirtækið á samskiptamiðlum á Islandi. Gísli, bróðir Gríms, veitti verðlaununum viðtöku en hann hefur séð um markaðssetningu fyrirtækisins á Netinu. Eintóm hamingja Fyrirtækið Capacent kannaði afstöðu íbúa í 16 bæjum á íslandi til þeirrar þjónustu sem sveitarfélögin bjóða. I ljós kom að íbúar í Vest- mannaeyjum voru ánægðastir allra með þá þjónustu og átti það við um nær alla þá þætti sem um var spurt. Kaldar kveðjur Eyjamönnum þóttu heldur kaldar kveðjur sjávarútvegsráðherra þegar tilkynnt var um úthlutun makrfl- kvóta ársins 2011. Nýjar og gjör- breyttar reglur tóku nú gildi. Ný útgerðarfyrirtæki fengu nú úthlutun, flest í kjördæmi ráðherrans, en útgerðir í Eyjum misstu 8000 tonna kvóta sem metinn var upp á 1,2 milljarða. Á landsvísu var þó ráðherrann hvað mest gagnrýndur fyrir að úthluta þessum heimildum án þess að greitt væri fyrir þær. Húsið ónýtt vegna veggja- títlu Þau Styrmir Gíslason og Hólmfríður Á. Sigurpálsdóttir lentu í þeirri óskemmtilegu lífsreynslu að hús þeirra, Sólvangur við Kirkjuveg, sem þau höfðu staðið f að gera upp og endurbæta, var dæmt óíbúðar- hæft og ónýtt vegna veggjatítlu, og úrskurðað að það skyldi rifið. Þar sem tryggingar bæta ekki tjón af þessum toga, sátu þau uppi með skaðann. Átta nemendur útskrifaðir I þriðja sinn útskrifaði símenntunar- miðstöðin Viska nemendur frá Grunnmenntaskólanum en það er 300 stunda nám sem gefur rétt á einingum í framhaldsskóla. Að þessu sinni útskrifuðust átta nem- endur. Vertíðarstemming Stemmingin í fiskvinnslunni í mars var ekki ósvipuð því sem var í þá gömlu góðu daga þegar vertíð var vertíð. Landburður var af fiski, bæði af netabátum og togbátum og mikil vinna í öllum fiskvinnslu- húsum. Má segja að rétt hafi náðst að hreinsa til eftir góða loðnuvertíð þegar næsta töm hófst. Breyting á stjóm Sparisjóðs Á aðalfundi Sparisjóðsins kom fram að endurskipulagningu hans var lokið. Með aðkomu ríkisins í lok síðasta árs urðu þær breytingar á stjórn að þrír fulltrúar eru frá Bankasýslu ríkisins en tveir úr hópi stofnfjáreigenda. Fulltrúar stofn- fjáreigenda em þau Rut Haralds- dóttir og Hörður Oskarsson Apríl Mamma Mia á svið Eitt mesta stórvirki sem Leikfélag Vestmannaeyja hefur ráðist í var söngleikurinn Mamma Mia, sem byggður er á tónlist Abba-flokksins. Verkið hlaut einróma lof áhorfenda og sýningafjöldi sló met. Stálu níðþungum iárna- mottum Oftast fara þjófnaðir og gripdeildir þannig fram að þjófamir grípa hluti sem unnt er að komast með á braut án mikilla tilfæringa. En sú var ekki raunin þegar þjófar létu greipar sópa utan við Skipalyftuna og höfðu á brott með sér sex níðþungar jáma- mottur. Ljóst þótti að þeir hefðu þurft öflugt flutningatæki til að koma mottunum burt. Framtíð í Baldurshaga Enn héldu búferlaflutningar versl- ana áfram og nú var það verslunin Framtíð sem flutti af Heiðarveg- inum í verslunarmiðstöðina í Baldurshaga. Loksins allir sammála Á kaffistofu Hjólbarðaverkstæðisins em oft líflegar umræður (og mis- gáfulegar að einhverra sögn). Oftar en ekki eru menn þar ósammála. Því kom það á óvart þegar allir reyndust sammála í máli sem borið var upp til atkvæða á kaffistofunni. Það var um hvort lögin um Icesave ættu að standa eða ekki. Allir við- staddir sögðu nei við því og mun þetta í fyrsta sinn sem slíkt gerist á kaffistofunni, að allir séu sammála. HEIMILI SEM VAR. Hólmfríður og Styrmir framan við húsið sem þangað til á síðasta ári var heimili þeirra. Það heitir Sólvangur og var húsið byggt árið 1920. Lögin felld Þjóðaratkvæðagreiðslur hafa ekki verið daglegt brauð á Islandi og því kom ekki á óvart mjög þokkaleg kjörsókn þegar greidd voru um það atkvæði í apríl, hvort samþykkja ætti Icesave-lögin eða ekki. Kjör- sókn á landinu öllu var um 75% en kjörsókn í Vestmannaeyjum 70%. Úrslitin urðu á þann veg að um 60% voru á móti lögunum en 40% með.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.