Fréttir - Eyjafréttir - 29.12.2011, Blaðsíða 10
10
Fréttir / Fimmtudagur 29. desember 2011
kjölfar papanna og koma við á þeim
stöðum þar sem papar dvöldu á
Islandi. Síðar um sumarið var svo
efnt til messuhalds á sunnudegi
utandyra þar sem papanna var
sérstaklega minnst.
Engar lundaveiðar
Umhverfis- og skipulagsráð ákvað á
fundi í júní að banna lundaveiði
alfarið í Vestmannaeyjum á þessu
sumri. Mun slfkt ekki hafa gerst
áður. Ástæðan var að sjálfsögðu
slæmt ástand lundastofnsins í
Eyjum og var þetta gert í sátt og
með samþykki flestra veiðimanna í
Eyjum.
Eyjamaður nr. 4.200
Um síðustu helgina í júní gerðust
þau gleðilegu tíðindi að íbúafjöldinn
í Vestmannaeyjum fór upp í 4.200
manns. Það gerðist þegar þeim Páli
Þorvaldi Hjarðar og Önnu Rós
Hallgrímsdóttur fæddist sonur, 17
marka myndarpeyi sem var þriðja
barn þeirra. I tilefni þessa bankaði
Elliði bæjarstjóri upp á hjá fjöl-
skyldunni og færði þeim blóm,
ásamt því að hvetja þau til enn
frekari barneigna.
Gróft kynferðisbrot
Vestmannaeyingur var í lok júní
úrskurðaður í gæsluvarðhald,
grunaður um grófa kynferðislega
misnotkun á ungri stjúpdóttur sinni.
Við leit fannst í fórum hans fjöldi
kynferðislegra mynda og mynd-
banda, m.a. af honum og barninu.
Nær ár var frá því að málið var tekið
til meðferðar og var gagnrýnt að
ekki skyldi hafa verið krafist gæslu-
varðhalds fyrr, og félagsmálayfir-
völd í Vestmannaeyjum hefðu
sérstaklega óskað þess. Maðurinn
var svo fundinn sekur, síðar á árinu,
og dæmdur til sjö ára fangelsisvist-
ar.
Fjölsýn hætt
Um mánaðamótin júní-júlí hætti
sjónvarpsstöðin Fjölsýn í
Vestmannaeyjum útsendingum eftir
að hafa verið um 16 ár í loftinu.
Ástæðan var sú að ákrifendur stöð-
varinnar voru orðnir of fáir til að
áframhaldandi rekstur gengi upp,
auk þess sem tækjabúnaður upp-
fyllti ekki lengur kröfur.
Sigmund í 50 ár
Sigmund Jóhannsson, teiknari og
uppfinningamaður, hélt upp á 50 ára
feril sinn sem teiknari með veglegri
sýningu í Akóges þar sem var til
sýnis þverskurður af verkum hans í
hálfa öld. Fjöldi fólks heiðraði lista-
manninn á þessum tímamótum og
var sýningin óhemju fjölsótt.
Fjölmennt Herminatormót
Þótt alla jafna sé ekki fjallað um
íþróttir og þeim tengda atburði í
þessum annál þá skal þó minnst á
Herminator golfmótið, sem Hermann
Hreiðarsson, knattspyrnumaður,
stóð fyrir í lok júní, nú í þriðja sinn.
Þetta var fjáröflunarmót og til þess
boðið landsþekktu fólki sem greiðir
vel fyrir að fá að taka þátt í mótinu.
Ekki er talið víst að allir þeir sem nú
voru þátttakendur verði með á næsta
ári.
Júlí
Mikið um að vera á gos-
lokum
Goslokahátíð þótti takast fádæma
vel þrátt fyrir misjafnt veður.
Regnhlífar þurfti á laugardag en svo
stytti upp um kvöldið. Mikið var
um sýningar, Berglind og Sigríður
Inga sýndu gler og föt í BK
Eyjabúð, ellefu handverkslistamenn
efndu til sýningar í Svölukoti,
Sigurbjörg Kristín sýndi listmuni úr
skinni í Athena gallerí og þau Jakob
og Sigríður voru með sýningar í
Einarsstofu í Safnahúsinu, Jakob
með málverk og Sísí með ljósmynd-
ir. Þá fékk tónlistin sitt, Bjartmar
með tónleika í Vinaminni og
stórtónleikamir „Óður til Oddgeirs"
í Höllinni, að svo ógleymdum fjöl-
mennustu tónleikunum, í
Skvísusundi á laugardagskvöld.
Engin hamborgarafabrikka
Ekki voru allir við það sáttir þegar
þjóðhátíðamefnd tilkynnti að þeir
ætluðu að semja við fyrirtæki úr
Reykjavík, Hamborgarafabrikkuna,
um sölu á hamborgurum á
þjóðhátíð. Þótti ýmsum heima-
mönnum nokkuð að sér vegið með
því að gefa ekki veitingamönnum í
Eyjum kost á að bjóða í þá þjónustu.
Reyndin varð sú að ekki náðist að
ljúka samningi fyrir þjóðhátíð og
því varð ekkert úr komu Hamborg-
arafabrikkunnar til Eyja þetta sinn-
ið.
Stjömur í heimsókn
Þeir fóm ekki hátt tvennir tónleikar
sem haldnir vom á Prófastinum um
miðjan júlí. Þeir vom hvergi aug-
lýstir og aðsókn heldur dræm á þá
fyrri. Svo flaug fiskisagan og vel
mætt á þá seinni. Þama vom á ferð
nokkur af skæmstu nöfnunum úr
tónlistarlífinu í dag, sveitir sem hafa
náð að skapa sér talsverða sérstöðu,
svo sem Of Monsters and Men,
Valdimar og Agent Fresco, auk
minna þekktra aðila svo sem
Lockerbie og Kiriyama. Eflaust
yrði aðsókn meiri í dag á tónleika
þessara aðila, þar sem sumir þeirra
hafa risið hátt á íslenskum stjömu-
himni í haust.
Mormónar á ferð
Mormónar í Utah í Bandaríkjunum
hafa haldið uppi góðu sambandi við
Vestmannaeyjar hin síðari ár, enda
rekja margir þeirra ættir sínar til
Eyja. Mormónar vora með dagskrá
og sýningu í Sagnheimum í júlí í
samstarfi við Sögusetur 1627. Þar
vom flutt erindi auk þess sem mor-
mónakór frá Reykjavfk og Selfossi
söng fyrir gesti.
Magnús enn hæstur
I lok júlí fengu landsmenn hinn
árlega glaðning frá ríkisskattstjóra.
Samkvæmt þeirri álagningu kom í
ljós að Eyjamaðurinn Guðbjörg M.
Matthíasdóttir greiddi alls 98,2
milljónir í opinber gjöld og var hún
fjórði hæsti greiðandi á landinu. En
af útsvarsgreiðendum var Magnús
Kristinsson enn á toppnum með
rúmlega 4,7 milljónir í útsvar en
aðrir sem náðu yfir fjórar milljónir
voru þeir Olafur Ágúst Einarsson,
skipstjóri, og Stefán B. Friðriksson,
framkvæmdastjóri ísfélagsins.
Lyftan aftur í gagnið
Endurbyggð upptökumannvirki
Vestmannaeyjabæjar vom formlega
tekin í notkun í lok júlí eftir að hafa
verið ónothæf í rétt tæp fimm ár, eða
frá því í júlí 2006 þegar lyftan
bilaði. Glófaxi VE 300 var fyrsta
skipið sem tekið var upp í endur-
byggðri lyftu.
Tveir geisladiskar
Tveir Eyjamenn gáfu út geisladiska
fyrir þjóðhátíðina með tónlist sem
var ætlað að höfða sérstaklega til
Vestmannaeyinga. Gfsli Helgason
var með disk með eigin tónlist sem
hann nefndi Ut við sund og eyjar og
Ámi Johnsen gaf út tvo diska með
rúmlega 40 sjómannalögum. Meðal
söngvara vom þeir Raggi Bjama og
Kristján Jóhannsson auk þess sem
Ámi tók að sjálfsögðu lagið líka.
Þessi annáll ársins 2011 er að
mestu unninn upp úr þeim
tölublöðum af Fréttum sem út komu
á árinu. Sem fyrr hefur verið reynt
að tína út hið markverðasta ásamt
því sem kalla má óvenjulegt eða
spaugilegt og ekki stuðst við neina
sérstaka reglu í því. Fréttum af
íþróttum hefur nær alveg verið
sleppt, rýmisins vegna, enda eru
þeim þætti gerð skil á öðrum
vettvangi. Eflaust hefur einhverju
verið sleppt, sem einhverjum þætti
hafa átt hér heima og þá verður það
bara að hafa sinn gang, kemur
kannski nœst. Þetta er fyrri hluti
annálsins, síðari hlutinn mun birtast
í nœsta blaði Frétta.
Með ósk um góð og friðsæl áramót
og gœfuríkt komandi ár.
Gjört á jólaföstu 2011
Sigurgeir Jónsson
NÚMER 4.200. Sonur hjónanna Páls Þorvaldar Hjarðar og Önnu Rós Hallgrímsdóttur kom íbúafjölda
Vestmannaeyja upp í 4.200 en af því tilefni heimsótti Eliiði Vignisson, bæjarstjóri fjölskylduna og afhenti
þeim blómvönd.
Nútímalegt byggðasafn
Á goslokahátíðinni var nýtt og
endurbætt byggðasafn opnað um
leið og nýr safnstjóri tók við í
Sagnheimum, Helga Hallbergs-
dóttir, sem tók við af Jóhönnu Yr
Jónsdóttur. Unnið hafði verið við
endurbætur á safninu um margra
vikna skeið, það fært til nútímalegra
horfs og fjölmiðlunartæknin nýtt.
Vom flestir gesta sammála um að
vel hefði tekist til.
Sorpflokkun hafin
Mikið hafði gengið á í sorphirðu-
málum Eyjamanna á árinu. Eftir að
mælingar á díoxíni og öðmm lítt
heilsubætandi efnum sýndu að of
mikið var af þeim í útblæstri frá
Sorporkustöðinni, var bæjaryfir-
völdum gert að skyldu að bæta úr
því. Sýnt þótti að ekki gengi að
halda áfram í óbreyttri mynd og
ráðstafanir til að minnka þetta
efnainnihald gengu lítt. Umhverfis-
stofnun hótaði að beita dagsektum,
sem þó var raunar fallið frá síðar.
Ymsir kostir voru í stöðunni og mis-
góðir. Kaup á nýrri stöð voru
útilokuð vegna kostnaðar, sömu-
leiðis að flytja sorp upp á land. Úr
varð að nýta Sorpu áfram en í
breyttri mynd, með flokkun sorps,
svokölluðu þriggja tunnu kerfi.
Hófu bæjarbúar að flokka sorp sitt í
júlí og þótt einhverjir bölvuðu þessu
kerfi í sand og ösku til að byrja með,
vom Eyjamenn að vanda fljótir að
laga sig að nýjum siðum og undir
árslok kvörtuðu fáir.
Enginn á vakt á nóttinni
í júlí urðu þær breytingar á vakta-
fyrirkomulagi lögreglunnar að fimm
daga vikunnar var enginn lögreglu-
maður á vakt á tímabilinu milli kl.
þrjú og sjö að nóttu til og aðeins
einn á dagvakt í miðri viku auk yfir-
lögregluþjóns og fulltrúa. Karl
Gauti Hjaltason, sýslumaður og
lögreglustjóri í Vestmannaeyjum,
sagði þetta tilkomið vegna skertra
fjárframlaga til lögreglu, auk þess
sem sértekjur hefðu minnkað þegar
sjúkraflutningarnir voru færðir
annað. „Þetta er til skammar,“ sagði
Karl Gauti og var að vonum óhress.
Ók burt í fátinu
Þrátt fyrir niðurskurð hélt þó
lögreglan ótrauð áfram við að sinna
sínum skyldustörfum sem sum hver
voru af furðulegum toga. Til að
mynda var lögreglu tilkynnt í júlí að
ekið hefði verið á bflskúrshurð á
íbúðarhúsi og ökumaðurinn ekið í
burtu án þess að tilkynna um óhapp-
ið. Nokkrar skemmdir urðu á bfl
sem var inni í skúrnum. Við nánari
eftirgrennslan fannst ökumaðurinn
og viðurkenndi að hafa ekið á hurð-
ina. Gaf hann þá skýringu að mikið
fát hefði komið á sig við þetta og
hann því ekið í burtu án þess að
tilkynna það.
Féllu frá skipulaginu
I júlí voru lögð fram drög að nýju
skipulagi á malarvellinum af bæjar-
stjóm. Gerðu þær tillögur ráð fyrir
að á svæðinu yrðu verslanir og
þjónustufyrirtæki, þ.á.m. hafði
Húsasmiðjan hug á að flytja sig
þangað. Mikil andstaða var við
þessi áform og var m.a. bent á að
ekki hefði gefist vel í öðmm sveitar-
félögum að flytja slíka starfsemi frá
miðbæjarsvæði. Svo fór að fallið
var frá þessu skipulagi og fékk
Húsasmiðjan í framhaldi af því
úthlutað lóð við Græðisbraut þar
sem áður var smurstöð Skeljungs.
Framkvæmdir við væntanlega bygg-
ingu þar hófust síðan í desember.
Átök hjá hluthöfum í VSV
Harkaleg átök í eigendahópi
Vinnslustöðvarinnar birtust ljóslega
á aðalfundi félagsins í júlí, bæði í
stjórnarkjöri sem og afgreiðslu
mála. Þar áttust við annars vegar
heimamenn sem ráða um tveimur
þriðju hluta í félaginu og hins vegar
þeir bræður frá Rifi, Guðmundur og
Hjálmar Kristjánssynir sem fara
með þriðjungshlut. Þeir lögðu fram
á fundinum þrjár tillögur um
rannsókn á starfsemi VSV og var
þeim öllum vísað frá í atkvæða-
greiðslu. Hvomgur þeirra bræðra
náði kjöri til aðalstjórnar né
varastjómar en lögmaður þeirra náði
sæti í aðalstjórn.
Goslokahátíðin 2010 tókst fádæma vel þrátt fyrir misjafn veður. Hápunkturinn eins og undanfarin ár var í
Skvísusundinu þegar Eyjamenn og gestir þeirra koma saman og skemmta sér.