Fréttir - Eyjafréttir - 27.08.1998, Síða 1
COCA COLA BIKARIIMHI
ÚRSLITALEIKUR
ÍBV - LEIFTUR
sunnudaginn 30. ágúst ki. 15 á Laugardalsvelli
Útgefandi: Knattspymudeild ÍBV. Umsjón: Þorsteinn Gunnarsson
MIKiL
MEIÐSLI í
HERBÚÐUM
ÍBV
Mikil meiðsli hrjá ÍBV liðið fyrir
bikarúrslitaleikinn á sunnu-
daginn. ívar Bjarklind verður
ekki með vegna hnémeiðsla.
Sömu sögu er að segja af
Þjóðverjanum Jens Paeslack
sem er mjög tæpur í leikinn.
Steinar Guðgeirsson er mei-
ddur og óvíst með hann og
Kristinn Lárusson hefur átt
við meiðsli að stríða. Þá er Ijóst
að Kjartan Antonsson kemur
ekki frá Bandaríkjunum í leikinn
eins og vonir stóðu til. Þrátt fyrir
þetta segir Bjarni
Jóhannsson, þjálfari ÍBV, að
leikurinn leggist vel í sig.
,,Við höfum heila viku til að
undirbúa okkur fyrir leikinn. Við
erum með leikmenn sem búa yfir
reynslu að spila í bikarúrslita-
leikjum og það telst okkur til
tekna. Andstæðingar okkar eru
erfiðir en við þurfum fyrst og
fremst að einbeita okkur að því
að spila okkar bolta og ná upp
góðri stemmningu fyrir leikinn,”
segir Bjarni.
Vegna landfræðilegrar legu
Vestmannaeyja, eins og Bjarni
kemst að orði, mun ÍBV undirbúa
sig fyrir úrslitaleikinn á þann hátt
að liðið fer daginn áður, á laug-
ardaginn, frá Eyjum og mun
dvelja á Hótel Örk síðustu nótti-
na fyrir leik. Þar verður ein æfing
á laugardeginum og reynt að
berja hópinn saman.
,,Það er mikill kostur að gista í
rólegheitunum á Hótel Örk.
Menn ættu að vera úthvíldir og
einbeittir þegar ballið byrjar,"
segir Bjarni.
Stuðningsmenn ÍBV eiga
bikarinn skilinn
Það verður þvílíkt húllumhæ
og mikið um að vera hjá stuðn-
ingsmönnum ÍBV, bæði í Eyjum
og í Reykjavík, sem fer í gang í
tengslum við bikarúrslitaleikinn.
Hundruð manna fer upp á land
og tekur alla helgina í leikinn.
Gera leikmenn ÍBV sér grein fyrir
því hvað mikið batterí fer í gang í
kringum þennan leik?
„Leikmenn eru sér fullkomlega
meðvitaðir um það hvílíkur íþrót-
taviðburður þetta er. Ég trúi ekki
öðru en þeir séu með á nótunum
hvað þeir eigi öfluga stuðnings-
menn og komi til með að sýna í
verki að stuðningsmenn liðsins
eigi það orðið inni að bikarinn
fari til Eyja," sagði Bjarni.
Lið ÍBV sem vann fyrsta bikarmeistaratitil bandalagsins, 1968. F.v. Bragi Steingrímsson, Páll
Pálmason, Hreiðar Ársælsson þjálfari, Sigurður Ingi Ingólfsson, Aðalsteinn Sigurjónsson, Óla-
fur Sigurvinsson, Friðfinnur Finnbogason, Haraldur Júlíusson, Sævar Tryggvason, Valur
Andersen, Einar Friðþjófsson og Sigmar Pálmason.
Níundi bikarúrslitaleikur IBV
- 3 bikartitlar, 5 bikartöp .
/
- Tekst IBV loks að vinna bikarmeistaratitil eftir 17 ára hlé?
ikarkeppni KSÍ var sett á stofn 1960. ÍBV
hefur oft átt góða tíð í bikarkeppninni
enda ávallt þótt stemmningslið með baráttuan-
dann í fyrirrúmi.
Strax á fyrsta ári sínu í 1. deildinni 1968 setti
ÍBV mark sitt á bikarkeppnina nreð því að vinna
keppnina. Lék þá til úrslita á gamla Melavellinum
við KR-b. KRingar voru þarna í einhverjum
feluleik því þetta b lið þeirra var skipað mörgum
af leikjahæstu mönnum þeirra þetta sumarið.
Leikurinn var skemmtilegur og spennandi og lauk
með sigri ÍBV 2-l. Sigmar Pálmason skoraði úr
vítaspyrnu og Valur Andersen skoraði sigurmarkið
með skalla.
ÍBV komst aftur í úrslit 1970 en tapaði þá fyrir
Fram l-2. Tómas Pálsson skoraði mark ÍBV.
Aftur var ÍBV í úrslitum 1972 og enn var leikið
á Melavellinum við slæmar aðstæður, hvasst og
gekk á með snjóéljum. ÍBV sigraði 2-0 og kom
heim með bikarinn siglandi með varðskipi.
Haraldur Júlíusson skoraði bæði mörk IBV.
ÍBV og Fram hafa marga hildi háð í bikarkepp-
ninni og þau léku til úrslita tvö ár í röð. 1980
vann Fram 2-l, mark ÍBV skoraði Ómar
Jóhannsson. Á þessum tíma var umgjörð
bikarúrslitaleiksins orðin eins og við þekkjum
hana í dag, leikið á aðalleikvanginum í Laugardal
síðla sumars og mörg þúsund manns á vellinum og
stemmningin frábær.
1981 var komið að ÍBV að hrósa sigri gegn
Fram. ÍBV vann 3-2 í æsispennandi leik. Sigurlás
Þorleifsson skoraði tvö mörk og Þórður
Hallgrímsson eitt. ÍBV hefur ekki unnið bikarinn
síðan fyrirliði ÍBV 1981, Þórður Hallgrímsson,
hampaði honum.
1983 var ÍBV enn í úrslitum en tapaði fyrir IA
l-2 í mjög skemmtilegum leik. Valþór Sigþórsson
kom IBV yfir í leiknum.
Eyjamenn þurftu að bíða í 12 ár eftir næsta
bikarúrslitaleik. Þá áttust aftur við ÍBV og ÍA
1996 og lyktir leiksins urðu þær sömu og 12
árum áður, 2-l. Skagamenn náðu forystunni með
mjög umdeildri vítaspyrnu svo vægt sé til orða
tekið. Tryggvi Guðmundsson skoraði mark ÍBV á
lokamínútunni úr vítaspyrnu.
í fyrra (1997) mættust svo ÍBV og Keflavík í
úrslitum eins og frægt var. Leifur Geir
Hafsteinsson náði forystunni fyrir IBV í fram-
lengingu eftir markalausar 90 mínútur en Keflavík
jafnaði metin á síðustu mínútu leiksins. Því fór
fram annar úrslitaleikur sem var einnig markalaus.
Eyjamenn brenndu m.a. af vítaspyrnu. í fram-
lengingunni var heldur ekkert skorað og því varð
að grípa til vítaspyrnukeppni. Þar reyndusl
Keflvíkingar sterkari og urðu þeir bikarmeistarar.
ÍBV hefur því átta sinnum leikið til úrslita og
þrisvar orðið bikarmeistari, 1968, 1972 og 1981.
ÍBV hefur tapað fimm sinnum, 1970, 1980, 1983,
1996 og 1997.
Forsala
AÐGÖNGUMIÐA Á
BENSÍNSTÖÐVUM
ESSO
Aðalstyrktaraðili ÍBV, Olíufélagið
hf- ESSO, sér um forsölu á
aðgöngumiðum fyrir bikarúrsli-
taleikinn fyrir ÍBV. Forsalan hófst
mánudaginn 24. ágúst og sten-
dur til föstudagsins 28. ágúst.
Miðar á leikinn fást á eftirtöl-
dum bensínstöðvum ESSO:
- Á Geirsgötunni
■ Við Ártúnshöfða
- Við Lækjargötu,
Hafnarfirði
í Vestmannaeyjum verður for-
sala aðgöngumiða hjá ESSO á
Básaskersbryggju.
Miðaverð er 1200 kr. Fyrir 17 ára
og eldri, 500 kr. fyrir 11-16 ára
og 10áraog yngri fá frítt.
Pakkaferðir á
LEIKINN -
MlKIÐ PANTAÐ
Herjólfur, Flugfélag Vestmanna-
eyja, íslandsflug og Flugfélag
íslands bjóða upp á pakkaferðir
á bikarúrslitaleikinn.
Nú þegar er mikið búið að panta.
Svo virðist sem Vestmanna-
eyingar ætli að taka langa helgi í.
Reykjavík því mikið er pantað á
föstudegi og laugardegi til
Reykjavíkur svo til baka á sun-
nudegi og mánudegi.
Herjólfur - Vm, Þhöfn, Vm,
rúta fram og til baka og miði á
leikinn á 3000 kr.
Flugfélag Vestmannaeyja -
flug Vm, Bakki, Vm og rúta fram
og til baka á 4000 kr.
Flugfélag Vestmannaeyja
og ísiandsflug bjóða sérstök
bikarfargjöld.
ÖFLUGIR STUÐN-
INGSMANNA-
KLÚBBAR ÍBV
Stuðningsmannaklúbbur ÍBV í
Reykjavík hefur haft veg og
vanda að undirbúningi fyrir
bikarúrslitaleikinn á höfuðbor- ■
þarsvæðinu. Stuðningsmenn
IBV munu mála höfuðborgina
hvíta alla bikarúrslitahelgina og
er dagskráin afar fjölbreytt.
Stuðningsmannaklúbburinn í
Eyjum lætur heldur ekki sitt eftir
liggja. Nánar er sagt frá þeirra
uppákomum á bls. 3.