Fréttir - Eyjafréttir - 27.08.1998, Side 2
30 ár liðin frá
1 fyrsta bikar-
meistaratitli ÍBV
p*“| ú eru liðin 30 ár frá því
I k I ÍBV varð í fyrsta skipti
bikarnieistari í knattspyrnu. Þá
lagði ÍBV B-lið KR 2-1 í nóvem-
ber á gamla Melavellinum í
Reykjavík 1968. ÍBV er nú að
fara að spila sinn níunda
bikarúrslitaleik, þrír bikarmeis-
taratitlar eru í höfn en ÍBV
hefur tapað fimm úrsli-
taleikjum. Árið 1968 var merki-
legt í sögu IBV. Þá spilaði liðið í
fyrsta skipti í efstu deild og stóð
sig framar öllum vonum. IBV
lauk keppnistímabilinu á glæsi-
legan hátt með því að vinna
bikarkeppnina fyrir framan
nokkur þúsund manns á gamla
Melavellinum í Reykjavík.
Mikill mannfjöldi mætti á
flugvöllinn í Eyjum til þess að
taka á móti bikarmeisturunum
og hylla þá. Forseti bæjar-
stjórnar, Sigurgeir Kristján-
sson, flutti þakkarorð til
bikarmcistaranna og þjálfara
þeirra, Hreiðars Ársælssonar og
afhentir voru blómvendir frá
bæjarstjórn og íþróttafélög-
unum.
I fjölmiðlum, sem greinilega
voru allir á bandi KR, frá 1968 má
sjá að leikurinn hafi farið fram
laugardaginn 5. október. Ymsir
áhangendur ÍBV fóru með
Herjólfi í Þorlákshöfn á föstudegi
og aðrir fóru með öðrum skipum
aðfararnótt laugardags og aðrir
flugu. Voru áhorfendur því allfjöl-
mennir frá Eyjum og létu þeir ekki
sitt eftir liggja við að hvetja sína
menn, sérstaklega í síðari hálfleik
er hljómaði næstum stanslaust í 45
mínútur, áfram IBV, undir öruggri
stjórn Sigga Vító og Helga
Bergvins, sem stjórnuðu liði sínu
af alkunnu öryggi og festu, en þó
fyllstu kurteisi, eins og það var
orðað.
Margt á Melavellinum
og mikil stemmning
KR-ingar voru betri í fyrri
hálfleik og áttu þeir m.a. tvö stan-
garskot. Eina mark hálfleiksins
gerðu samt Eyjamenn um miðjan
fyrri hálfleik.
Sigmar Pálmason var þá í liði
ÍBV. Hann segir að ofboðslega
margt hafi verið á vellinum og
þetta hafi verið stórviðburður.
Stuðningsmenn ÍBV á Melavellinum 1968. Þarna má sjá
mörg kunnugleg andlit.
Þrátt fyrir að andstæðingarnir hafi
verið B-lið KR hafi helmingur KR
verið úr A-liðinu. Prýðisgott veður
var á vellinum og mikil stemmn-
ing.
„Ég man vel eftir mörkunum.
Þegar við náðum forystunni átti ég
fyrirgjöf á Steina (Aðalstein
Sigurjónsson) sem skallaði að
markinu. Þar varði einn KR-
ingana á marklínu með hendinni
og dæmd var vítaspyrna. Sá sem
átti að taka vítaspyrnuna fyrir
okkur harðneitaði því, sagðist ekki
leggja í það. Ég var spurður hvort
ég treysti mér í vítaspyrnuna. Ég
helt það nú og skoraði. Ég held að
þetta hafi verið ágætis víti," segir
Sigmar.
I Vísi sagði um markið:
„Boltinn fór fyrir markið og þar
hoppaði hann í höndina á Þorgeiri
Guðmundssyni sem ekkert sá fyrir
sólinni, sem skein beint í augum.
Dómarinn Grétar Norðfjörð
dæmdi réttilega vítaspyrnu (úr því
sem komið var) og skoraði Sigmar
Pálmason auðveldlega úr henni."
Gleymdu Val
í seinni hálfleik voru Eyjamenn
ntiklu grimmari og voru þeir mun
sterkari aðilinn. Um miðjan seinni
hálfleik kom svo rothöggið.
Sigmar lýsir markinu svona:
„Við fengum hornspyrnu sem ég
tók. Allir voru að fylgjsat með
Halla gullskalla (Haraldi
Júlfussyni) sem var orðinn einhver
frægasti skallamaður landsins. En
KR-ingarnir gættu ekki að sér og
gleymdu þá Val Andersen sem var
hörku skallamaður. Hann var
alveg frýr og stökk herðar yfir alla
og skallaði glæsilega í netið. Þetta
var þrumufleygur hjá honum og
algjörlega óverjandi," segir
Sigmar.
KR-ingum tókst að minnka
muninn tíu mínútum fyrir leikslok
með marki Jóhannes Reynissonar
en Páll Pálmason varði svo vel í
lokin og ÍBV vann 2-l.
„Þustu menn út á völlinn og
fögnuðu ÍBV-mönnum mjög, þeir
höfðu gert það er enginn gat með
sanngirni af þeim krafist, að verða
bikarmeistarar í knattspyrnu fyrsta
árið í fyrstu deild. Vestmanna-
eyingar voru að vonum ánægðir
og ekki síður þjálfari þeirra,
Hreiðar Ársælsson, sem var
borinn út af vellinum í gullstól
eins og konungur væri á ferð,"
sagði í blaðinu Bergmál frá þes-
sum tíma.
Ingvar Pálsson, stjórnarmeð-
limur KSI, afhenti Vestmanna-
eyingum fagran farandbikar og
annan minni, nákvæma eftir-
líkingur til eignar. Síðan hylltu
manna hæst og hamrar knöttinn í net KR-inga með
skalla eftir hornspyrnu Sigmars Pálmasonar.
viðstaddir ÍBV geysilega.
I Morgunblaðinu og Tímanum
var Valur Andersen sagður mestur
leikmanna IBV. Einnig var Sævari
Tryggvasyni, Sigurði Inga
Ingólfssyni og Pálma Pálmasyni
(eftir að taugarnar róuðust) hrósað
sérstaklega. Dómari leiksins var
Grétar Norðfjörð.
Bikartitill ÍBV 1968 var merki-
legur fyrir margra hluta sakir.
Þetta var í fyrsta skipti sem
bikarinn vannst af liði utan
höfuðborgarinnar. IBV varð annað
utanbæjarliðið til að taka þátt í
Evrópukeppni í kjölfarið.
Að sögn Sigmars var vel tekið á
móti liðinu við heimkomuna.
Helgina eftir leikinn var haldin
stórveisla í Samkomuhúsinu liðinu
til heiðurs.
SAGT EFTIR LEIKINN 1968
í Vísi, mánudaginn 7. október, var eftirfarandi haft eftir
nokkrum mönnum:
Hafsteinn Guðmundsson, formaður landsliðsnefndar KSÍ:
„Skemmtilegur og fjörugur leikur, en knattspyrnan ekkert sérstök að
gæðum. Urslitin ósanngjörn, IBV átti mest skilið jafntefli, ekki
sigur."
Walter Pfeiffer, þjálfari KR:
„Betra liðið tapaði, við vorunt óheppnir og keppnisskapið ekki eins
gott og í síðustu leikjum, 3-1 fyrir okkur hefði verið sanngjarnara. En
ég er ánægður rneð árangur liðsins, hvað er hægt að ætlast til meira af
varaliði á móti 1. deildarliði."
Viktor Helgason, leikmaður hjá IBV (lék ekki með vegna rneiðs-
la);
„Ég er ntjög ánægður nteð leikinn og úrslitin. Við vorum nervösir
því að við þekktum ekki getu mótherjans. Ég vil ekkert segja hvort
úrslitin hafi verið sanngjörn."
Þórólfur Beck, leikmaður aðalliðs KR:
„Óheppni! Óheppni! Betra liðið tapaði. KR spilaði mun betri
knattspyrnu."
Ellert Schrarn, formaður knattspyrnudeildar KR:
„Spennandi leikur. B-liðið stóð sig með sóma og lék betri knattspyr-
nu. Ánægjulegt fyrir Vestmannaeyinga að hafa sigrað og ég óska
þeim til hamingju með það."
Stefán Runólfsson, formaður ÍBV:
„Mjög ánægður með leikinn og úrslitin. Sanngjarn sigur okkar
ntanna. KR átti meira í fyrri hálfleik en við allan síðari hálfleikinn."