Fréttablaðið - 02.04.2013, Qupperneq 2
2. apríl 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 2
2013
Helgi, þarf að styrkja stíginn?
„Já, ef það gengur upp.“
Helgi Gíslason er framkvæmdastjóri Skóg-
ræktarfélags Reykjavíkur en til stendur að
lagfæra stíginn í Esjuhlíðum fáist til þess
styrkur.
Flokkur heimilanna var kynntur
á blaðamannafundi í gær. Pétur
Gunnlaugsson er formaður flokks-
ins, en hann gekk úr Lýðræðis-
vaktinni fyrir skemmstu. Inga
Karen Ingólfsdóttir er varafor-
maður.
Átta hópar sameinast í Flokki
heimilanna. Það eru Lýðveldis-
f lokkur i nn , Samtök fu l l -
veldissinna, áhugahópur um
tján ingarfrelsi, Sjálfstæðir sjálf-
stæðismenn, Þjóðarflokkurinn,
áhugahópur úr Hagsmunasam-
tökum heimilanna, áhugafólk um
kjör aldraðra og öryrkja og fyrr-
verandi félagar í Samstöðu.
Þá munu Píratar, Dögun og Lýð-
ræðisvaktin ekki bjóða fram sam-
eiginlega til Alþingiskosninga í lok
mánaðarins.
„Stefnur og áherslumál flokk-
anna eru að sumu leyti misjöfn
og rétt þykir að halda sérkennum
þeirra, sérstöðu og sjálfstæði til
haga,“ stendur í tilkynningu frá
framboðunum. Framboðin segjast
þrátt fyrir þetta vera viljug til
þess að starfa saman á nýju þingi
að sameiginlegum stefnumálum
þeirra, nái þau kjöri. - þeb
Þrír smáflokkar sameinast ekki og Flokkur heimilanna var stofnaður í gær:
Varð ekki úr kosningabandalagi
LÖGREGLUFRÉTTIR
Banaslys í Breiðdal
Þriggja ára gömul stúlka lést þegar fjór-
hjól sem hún var farþegi á valt af vegi
í nánd við Skjöldólfsstaði í Breiðdal
á sunnudag. Ökumaður hjólsins var
fluttur á sjúkrahús í Neskaupstað til
aðhlynningar en er ekki alvarlega slas-
aður. Lögreglan á Eskifirði rannsakar nú
málið en verst frekari fregna af því.
FYRIR HEIMILIN Meðal frambjóðenda hjá Flokki heimilanna eru Ásgerður Jóna
Flosadóttir hjá Fjölskylduhjálp Íslands, Halldór Gunnarsson prestur og Arnþrúður
Karlsdóttir, útvarpsstjóri á útvarpi Sögu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SLYS
Útskrifaður af gjörgæslu
Vélsleðamaður sem slasaðist alvarlega
í slysi á Bíldsárskarði á Vaðlaheiði á
páskadag er kominn af gjörgæsludeild.
Maðurinn hlaut fjölda beinbrota og
skemmdir á ósæð í slysinu og þurfti
að gangast undir aðgerð á Landspítal-
anum.
NOREGUR Helmingur Norðmanna
vill að Erna Solberg, formaður
norskra hægri manna, verði for-
sætisráðherra Noregs. Jens Stol-
tenberg forsætisráðherra nýtur
stuðnings 43 prósenta þeirra sem
þátt tóku í fylgiskönnun norska
blaðsins Aftenposten.
Solberg er vinsælust meðal
þeirra sem eru 30 til 44 ára. Í
fyrra naut Stoltenberg fylgis 51
prósents kvenna. Nú styðja 46
prósent norskra kvenna Stolten-
berg. Solberg nýtur jafnmikils
fylgis meðal kvenna. - ibs
Stjórnmálafylgi í Noregi:
Erna Solberg
nýtur vinsælda
MJANMAR, AP Fjögur ný dagblöð litu dagsins ljós í Mjanmar, einnig
þekktu sem Burma, í gær en það er í fyrsta sinn síðan árið 1964 sem
einkarekin dagblöð fá útgáfuleyfi í landinu. Stjórn landsins, með
Thein Sein forseta í fararbroddi, afnam ritskoðun í landinu í fyrra og
gáfu út leyfi fyrir einkarekna dagblaðaútgáfu frá og með 1. apríl.
„Við höfum beðið eftir þessum degi í hálfa öld,“ sagði hinn 81 árs
gamli Khin Maung Lay, ritstjóri dagblaðsins Golden Fresh Land sem
kom út í 80 þúsund eintökum í gær og seldist upp. Nú þegar hafa
sautján ný dagblöð fengið útgáfuleyfi í landinu og þykir þetta eitt af
mörgum skrefum í átt að lýðræði í Mjanmar. - áp
Dagblaðaútgáfa blómstrar í Mjanmar:
Fjögur ný dagblöð komu út í gær
MIKIL SALA Götusalan blómstraði í borginni Yangon í gær. Hálf öld er síðan einka-
rekin dagblaðaútgáfa var bönnuð í landinu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DANMÖRK Um níu hundruð þúsund
nemendur í Danmörku snúa ekki
aftur í skólann í dag eftir páskafrí
ef verkbann kennara í landinu tekur
gildi. Bannið yrði það stærsta í sögu
Danmerkur en um sextíu þúsund
kennarar fá ekki að sinna starfi
sínu frá og með deginum í dag.
Það eru dönsk stjórnvöld sem
standa fyrir banninu sem kenn-
arar eru mjög ósáttir við og saka
stjórnvöld um óbilgirni í sinn garð.
Undan fari bannsins er harðar
deilur milli stjórnvalda og kennara,
meðal annars um vinnutímann.
Vegna nýrra tillagna um endur-
bætur á kennslustarfi er þess kraf-
ist að kennarar eyði meiri tíma
innan veggja skólans án þess að fá
sérstaklega greitt fyrir. Stjórnvöld
boðuðu bannið í lok febrúar en það
er ótímabundið.
Danskir vinnustaðir hafa margir
hverjir gert ráðstafanir varðandi
barnapössun fyrir starfsmenn sína
en það er ljóst að fjölmargir þurfa
að vera heima. Kennarar segjast
ekki ætla að taka banninu þegjandi
og hljóðalaust og boða til mótmæla
víðs vegar um landið á morgun. - áp
Danskir kennarar ósáttir við verkbann stjórnvalda sem tók gildi í gær:
900 þúsund nemendur heima
BÖRNIN FÁ EKKI KENNSLU Margir
vinnustaðir hafa gert ráðstafanir varð-
andi barnapössun.
LANDHELGISGÆSLAN Skip á leið í
brotajárn í Belgíu með íslenskri
áhöfn sökk í miklum stormi á leið
sinni yfir Atlantshafið á föstudag-
inn langa. Áhöfninni var bjargað
með naumindum í togarann Cape
Ballard sem hafði brotajárns-
skipið, Cape Beaver í togi. Stöð 2
greindi frá þessu í gærkvöldi.
Skipin voru á leið frá Kanada
til Belgíu þar sem rífa átti Cape
Beaver. Engin meiðsl urðu á
fólki en Cape Ballard siglir nú til
hafnar í Hafnarfirði. - bþh
Aftakaveður á Atlantshafi:
Íslenskir sjó-
menn í lífsháska
SPURNING DAGSINS
FYRIR FÓLKIÐ Í LANDINU
Vinstri græn boða til opinna stjórnmálafunda í kvöld kl. 20.
Suðurkjördæmi – Flughótelinu í Reykjanesbæ
með Steingrími J. Sigfússyni og Arndísi Soffíu Sigurðardóttur.
Norðvesturkjördæmi – Gamla kaupfélaginu á Akranesi
með Lilju Rafney Magnúsdóttur og Árna Þór Sigurðssyni.
Rjúkandi kaffi og líflegar umræður.
ÁRNI ÞÓR LILJA RAFNEYARNDÍS SOFFÍASTEINGRÍMUR
ÞÉR ER BOÐIÐ á
OPINN STJÓRNMÁLAFUND
ALLIR
VELKOMNIR
MENNING „Þetta getur rennt stoðum
undir þessa kenningu mína, en á
hinn bóginn er allt eins líklegt að
þessi fundur hafi nákvæmlega enga
þýðingu í því samhengi. Það er
ljóst að efniviðurinn var í landinu,“
segir Guðmundur G. Þórarinsson,
fyrrverandi alþingismaður og for-
seti Skáksambands Íslands, um
ein stakan fund í fjöru á Snæfells-
nesi. Guðmundur hefur sett fram þá
kenningu að elstu taflmenn heims
með nútímaútlit, Lewis-taflmenn-
irnir, séu íslenskir að uppruna.
Eins og Fréttablaðið greindi frá
í vikunni fann Örn Erlendsson for-
stjóri þrjá rostungshausa og stakar
rostungstennur í fjörunni við
sumar hús sitt í Staðarsveit á Snæ-
fellsnesi. Taflmennirnir fundust
hins vegar árið 1831 á skosku
eyjunni Lewis. Þeir eru flestir
skornir úr rostungstönn og taldir
gerðir á árabilinu 1150 til 1200.
Lewis-taflmennirnir, eða list-
munirnir sem margir telja rétt-
nefni, eru sagðir vera dýr mætustu
taflmenn sögunnar sem nú eru
taldir meðal fimm merkustu forn-
gripa í eigu Breska þjóðminja-
safnsins. Lengi vel var því haldið
fram að þeir hefðu verið gerðir í
Þrándheimi.
Sumir fræðimenn Breska þjóð-
minjasafnsins telja ólíklegt að grip-
irnir geti verið af íslenskum upp-
runa, en vegleg bók um efnið kemur
út seinna á þessu ári á vegum forn-
leifafræðinga hjá Skoska þjóðminja-
safninu, þar sem kenningu Guð-
mundar er gert hátt undir höfði.
Guðmundur hefur sett fram þá
kenningu að taflmennirnir hafi
verið gerðir í Skálholti, og nefnt
í því sambandi sem mögulegan
höfund Margréti hina högu, senni-
lega fyrstu myndlistarkonu Íslands,
og séu skornir úr rostungstönnum
frá Grænlandi. Aðspurður segir
Guðmundur að fundur eins og sá
á Snæfellsnesi geti rennt stoðum
undir það að efniviðurinn hafi verið
til staðar, en aldursgreining mundi
færa okkur nær sannleikanum. Að
minnsta kosti sé ljóst að fundur sem
þessi dragi ekki úr þeirri skoðun
hans að rostungstennur hafi verið
nýttar við útskurð og listsköpun á
söguöld á Íslandi. svavar@frettabladid.is
Hausafundur styrkir
taflmannakenningu
Fundur rostungshausa á Snæfellsnesi setur kenningu um uppruna hinna frægu
Lewis-taflmanna í nýtt samhengi, en þeir eru skornir úr rostungstönnum. Sér-
fræðingar Skoska þjóðminjasafnsins gefa út veglegt rit um taflmennina á árinu.
TAFLMENN The New York Times, The Scotsman og Daily Telegraph eru meðal miðla
sem hafa fjallað um kenningu Guðmundar, og sýnir það hversu frægir gripirnir eru.
ROSTUNGSHAUS Einn af hausunum
frá Snæfellsnesi þjónar sem stofustáss.
MYND/ÖRN ERLENDSSON