Fréttablaðið - 02.04.2013, Blaðsíða 10
2. apríl 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Fundur ÖBÍ um kjör öryrkja verður
haldinn laugardaginn 13. apríl frá
kl. 14.00–16.30 á Hilton Reykjavík.
Frambjóðendur munu svara spurningum.
Sendu inn þína spurningu fyrir 3. apríl á
www.obi.is.
„... þingmaður
og svarið er?“
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Háaleitisbraut 66, 1O3 Reykjavík, sími 528 44OO
Einnig er hægt að
hringja í söfnunar-
símann 9O7 2OO2,
gefa framlag á
framlag.is,
gjofsemgefur.is eða
á söfnunarreikning
O334-26-886,
kt. 45O67O-O499.
Valgreiðsla hefur verið send í
heimabanka þinn. Með því að greiða
hana styður þú innanlandsaðstoð
Hjálparstarfs kirkjunnar og hjálpar
til sjálfshjálpar.
Hjálpum heima
Hjálparstarf kirkjunnar veitir fjölbreytta
aðstoð á Íslandi. Við hjálpum til sjálfshjálpar.
LONDON, AP Breskum
stjórn völdum hefur enn
einu sinni mistekist að vísa
hinum herskáa íslamska
klerki Abu Qatada úr landi.
Bresk yfirvöld hafa reynt
að framselja hann til Jórd-
aníu frá árinu 2011 en þar
var hann sakfelldur fyrir
skipulagningu á hryðju-
verkum árin 1999 og 2000.
Í nýjasta dómsmálinu vegna fram-
salskröfunnar féllst breskur dómur
á röksemdir verjanda Qatadas sem
hélt því fram að skjólstæð-
ingur sinn gæti orðið fyrir
pyntingum í Jórdaníu.
Qatada hefur verið lýst
sem lykilmanni í hryðju-
verkasamtökunum al-Kaída
í Evrópu með tengsl við
Osama bin Laden. Þá telja
bresk stjórnvöld að hann
hafi á sínum tíma verið
í sambandi við Zacarias
Moussaoui, sem tók þátt í skipulagn-
ingu hryðjuverkaárásanna á Banda-
ríkin 11. september 2011. - mþl
Ekkert gengur að vísa Abu Qatada úr landi:
Framsal klerks bannað
ABU QUATADA
SVÍÞJÓÐ Svíar geyma 18 milljarða
sænskra króna í rúmdýnum
sínum, eða rúmlega 340 milljarða
íslenskra króna. Niðurstöður
nýrrar könnunar á vegum Forex
bank sýna að sex af hverjum tíu
Svíum varðveita reiðufé sitt heima.
Alls geyma 30 prósent að
minnsta kosti 1.000 sænskar
krónur heima og tuttugasti hver
geymir 20.000 sænskar krónur
heima í stað þess að nýta sér þjón-
ustu banka til þess að varðveita
féð.
Frekar heima en í banka:
Milljarðar í
rúmdýnum
NORÐUR-KÓREA, AP Stjórnvöld í Norður-Kóreu hafa
brugðist illa við heræfingum Bandaríkjanna og
Suður-Kóreu og viðskiptaþvingunum Sameinuðu
þjóðanna. Hótanir um beitingu kjarnavopna gegn
sunnanmönnum og Bandaríkjunum heyrast nú
nánast daglega að norðan.
Leiðtogi Norður-Kóreu, Kim Jong-un, kallaði
þjóðþingið saman í gær og lýsti því yfir að nú væri
allur máttur ríkisins settur í að smíða kjarnavopn
og viðhalda efnahag landsins. Ástæðuna segir hann
vera stærð herliðs Bandaríkjanna handan landa-
mæranna í suðri.
Stríðsgreinendur segja þó árás að norðan ólík-
lega því harka Norður-Kóreu sé frekar bragð til að
fá nýja ríkisstjórn í Suður-Kóreu til að beita mýkri
aðgerðum gegn sér. Þá sé verið að reyna að hafa
betur í diplómatískum viðræðum við Bandaríkin og
festa nýjan og ungan leiðtoga Norður-Kóreu betur í
sessi.
Á laugardag tilkynntu stjórnvöld í Pjongjang,
höfuðborg Norður-Kóreu, að stríðsástand ríkti í
samskiptum ríkjanna á Kóreuskaga. Í tilkynningu
frá ríkisfréttastofunni var sagt að allar ögranir á
landamærum ríkjanna myndu nú leiða til átaka og
beitingar kjarnavopna.
Vopnahlé hefur ríkt milli ríkjanna tveggja í
tæp 60 ár en Kóreustríðinu lauk um mitt ár 1953.
Síðan hafa samskipti ríkjanna verið verulega stirð.
Bandaríkjamenn hafa jafnframt haft fast herlið í
Suður-Kóreu frá stríðslokum. - bþh
Spennan á Kóreuskaga eykst er norðanmenn lýsa stríðsástandi milli ríkjanna:
Allur máttur í smíði kjarnavopna
LEIÐTOGINN Kim Jong-un greiðir eigin tillögu atkvæði í
norðurkóreska þinginu á laugardag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP