Fréttablaðið - 02.04.2013, Blaðsíða 14
2. apríl 2013 ÞRIÐJUDAGUR| SKOÐUN | 14
Hver einasta langferð
byrjar á fyrsta skrefinu
og í þessari viku getum
við byrjað þúsund daga
ferð til móts við nýja
framtíð.
Fimmta apríl verða
þúsund dagar þangað til
tímamörkunum verður
náð sem voru sett til þess
að ná svokölluðum þús-
aldar markmiðum um
þróun. Þau eru umfangs-
mesta og árangursríkasta
átak í að uppræta fátækt
sem um getur í sögunni.
Fleiri leiðtogar en nokkru sinni
komu saman til fundar á vett-
vangi Sameinuðu þjóðanna árið
2000 við upphaf nýrrar aldar og
nýrrar þúsaldar. Þeir ákváðu að
byrja 21. öldina með fyrirheiti
um að minnka sárustu fátækt og
hungur í heiminum um helming,
berjast gegn loftslagsbreyt ingum
og sjúkdómum; takast á við
skort á vatni og hreinlæti: auka
menntun og tækifæri stúlkna og
kvenna.
Þetta var ekki í fyrsta skipti
sem stjórnmálaleiðtogar höfðu
gefið hátíðleg loforð. Gárungarnir
spáðu því að þessi háleitu mark-
mið myndu fljótt gleymast. Þvert
á móti hafa þúsaldarmarkmiðin
orðið hvatning til þess að fylkja
liði um raunhæfar að gerðir með
framúrskarandi góðum árangri.
Á síðustu þrettán árum hafa
600 milljónir manna losnað úr
gildru sárustu fátæktar og hefur
hinum fátækustu því fækkað
um helming. Metfjöldi barna
gengur nú í grunnskóla og er
fjölda stúlkna og drengja jafn í
fyrsta skipti í sögunni.
Mæðra- og barnadauði
hefur minnkað. Hnitmið-
aðar fjárfestingar í bar-
áttunni gegn mýrarköldu,
HIV/alnæmi og berklum
hafa bjargað milljónum
mannslífa. Dauðs föllum
af völdum alnæmis hefur
fækkað um þriðjung
í Afríku á síðustu sex
árum.
Meiri árangur
Það eru líka markmið
og viðmið þar sem við
verðum að ná meiri árangri. Of
margar konur deyja enn af barns-
förum, þegar hægt er að bjarga
þeim. Of mörg samfélög skortir
lágmarkshreinlætisaðstöðu sem
veldur því að óhreint vatn verður
banvæn ógn. Í mörgum heims-
hlutum, jafnt hinum auðugustu
sem hinum fátækustu, eykst
bilið á milli ríkra og snauðra. Of
margir eru skildir eftir.
Til þess að ná skjótari árangri
þarf alþjóðasamfélagið að stíga
fjögur skref núna.
Í fyrsta lagi hraða árangri með
klókum og hnitmiðuðum fjárfest-
ingum sem hafa margfeldisáhrif
og valda keðjuverkun á öllum
öðrum sviðum. Í Afríku er þörf
á einni milljón heilbrigðisstarfs-
manna til að ná til afskekktustu
byggða þar sem konur og börn
deyja af völdum sjúkdóma sem
ýmist er hægt að koma í veg
fyrir eða eru læknanlegir. Auka
þarf fjárfestingar í hreinlæti og
tryggja almennan aðgang að lág-
marksheilsugæslu, þar á meðal
fæðingarhjálp, og úrræðum til að
berjast gegn HIV og mýrarköldu.
Einn helsti drifkrafturinn í
þeim framförum sem nauðsyn-
legar eru til að ná þúsaldar-
markmiðunum er jafn aðgangur
kvenna og stúlkna að menntun,
heilsugæslu, næringu og efna-
hagslegum tækifærum.
Í öðru lagi ættum við að
einbeita okkur að fátækustu
ríkjunum sem standa hvað höll-
ustum fæti en í þeim býr einn og
hálfur milljarður manna. Hungur,
átök, gerræði og skipulögð glæpa-
starfsemi hafa löngum herjað á
mörg þeirra ríkja sem eru í þess-
um hópi og því gengur þeim illa
að ná markmiðunum, þótt reynt
hafi verið til hins ýtrasta. Mörg
hafa ekki uppfyllt eitt einasta
þúsaldarmarkmiðanna. Með því
að fjárfesta á Sahel-svæðinu,
austurodda Afríku og Mið-Asíu
getum við hrundið af stað þróun í
efnahagsmálum, öryggi og friðar-
uppbyggingu sem síðan getur
undið upp á sig.
Fjárhagsleg fyrirheit
Í þriðja lagi verðum við að standa
við fjárhagsleg fyrirheit. Ekki
er hægt að laga fjárlagahalla á
kostnað hinna fátækustu og ber-
skjölduðustu. Það er ekki sið-
ferðilega réttlætanlegt og kemur
hvorki gefendum né þiggjendum
til góða. Þrátt fyrir erfiða tíma
hafa mörg ríki sýnt gott fordæmi
með því að standa við loforð sín.
Ný ríki bætast í hóp þeirra sem
veita þróunaraðstoð eftir því sem
framþróun þeirra sjálfra leyfir.
Við fögnum þessu og hvetjum
aðra til að taka sér þetta til fyrir-
myndar.
Í fjórða lagi ætti þúsund daga
markið að vera öllum, frá grasrót-
inni til ríkisstjórna, hvatning til
að fylkja liði innan hnattrænnar
hreyfingar. Okkur ber að beisla
kraft nýrrar tækni og samfélags-
miðla en í þeim felast tækifæri
sem ekki voru til staðar þegar
þúsaldarmarkmiðin voru færð í
orð um síðustu aldamót.
Þúsaldarmarkmiðin hafa sýnt
að hnitmiðuð markmið geta skipt
sköpum í þróunarstarfi.
Þau sameina, fylkja liði og veita
innblástur. Þau ýta undir ný-
sköpun í þágu betri heims.
Árangur næstu þúsund daga
getur ekki aðeins reynst þungur
á metunum í lífi milljóna manna
heldur getur hann einnig skapað
slagkraft fyrir áætlanir um hvað
taki við eftir 2015 í þágu sjálf-
bærrar þróunar.
Margt verður ógert. En nú,
þegar við lítum til næstu kyn-
slóðar sjálfbærra þróunarmark-
miða, getum við sótt innblástur
í þá staðreynd að þúsaldarmark-
miðin hafa sýnt og sannað að með
pólitískan vilja að vopni er hægt
að uppræta örbirgð og slíkt er
meira að segja innan seilingar.
Við skulum gera eins mikið úr
næstu þúsund dögum og hægt
er og standa við loforð þúsalda-
mótanna.
Þúsund dagar til að standa við loforð
Ármúli 8 I 108 Reykjavík
Sími 516 0600 I www.birgisson.is
GLÆSILEGAR
HURÐIR
STERKAR OG HLJÓÐEINANGRANDI
-Einfaldar í uppsetningu. Fjölbreytt úrval.
Þekking og persónuleg þjónusta
ÞRÓUNAR-
AÐSTOÐ
Ban Ki-moon
framkvæmda-
stjóri Sameinuðu
þjóðanna
➜ Fimmta apríl verða
þúsund dagar þangað til
tímamörkunum verður náð
sem voru sett til þess að ná
svokölluðum þúsaldarmark-
miðum um þróun.
AF NETINU
Uppþot við Mývatn?
Svokallað mat á umhverfisá-
hrifum var marklaust á valdatíma
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar.
Framleitt af starfsmönnum
Landsvirkjunar og öðrum sem
voru þóknanlegir. Væri það nei-
kvætt, komu framsóknarkerlingar
til skjalanna, Siv Friðleifsdóttir
og Valgerður Sverrisdóttir. Þær
völtuðu bara yfir matið, svo
einfalt var það. Vegna þessarar
fortíðar er marklaust að nota tíu
ára gamalt umhverfismat á orku-
veri í Bjarnarflagi við Mývatn.
Þar þarf nýtt mat, sem er óháð
Landsvirkjun og óháð ráðherra
hverju sinni. Hugmynd Harðar
Arnarsonar forstjóra um notkun
tíu ára gamals mats er fráleit og
mun valda uppþotum.
http://www.jonas.is
Jónas Kristjánsson
Töfralausnir
Margir virðast halda að í afnámi
verðtryggingar sé fólgin kjarabót.
Þar á meðal eru t.d. nokkrir
verkalýðsforingjar, sem hafa farið
mikinn í þessum efnum og borið
mjög þungar sakir á aðra félaga
sína í verkalýðshreyfingunni.
Afnám verðtryggingar tekur mjög
langan tíma, það er ekki hægt
að láta hana gilda afturvirkt. Í
dag er sú staða að nánast öll ný
íbúðalán sem bankar veita eru
óverðtryggð. Lækkuðu reikning-
arnir eitthvað?
http://www.gudmundur.eyjan.is
Guðmundur Gunnarsson