Fréttablaðið - 02.04.2013, Page 14

Fréttablaðið - 02.04.2013, Page 14
2. apríl 2013 ÞRIÐJUDAGUR| SKOÐUN | 14 Hver einasta langferð byrjar á fyrsta skrefinu og í þessari viku getum við byrjað þúsund daga ferð til móts við nýja framtíð. Fimmta apríl verða þúsund dagar þangað til tímamörkunum verður náð sem voru sett til þess að ná svokölluðum þús- aldar markmiðum um þróun. Þau eru umfangs- mesta og árangursríkasta átak í að uppræta fátækt sem um getur í sögunni. Fleiri leiðtogar en nokkru sinni komu saman til fundar á vett- vangi Sameinuðu þjóðanna árið 2000 við upphaf nýrrar aldar og nýrrar þúsaldar. Þeir ákváðu að byrja 21. öldina með fyrirheiti um að minnka sárustu fátækt og hungur í heiminum um helming, berjast gegn loftslagsbreyt ingum og sjúkdómum; takast á við skort á vatni og hreinlæti: auka menntun og tækifæri stúlkna og kvenna. Þetta var ekki í fyrsta skipti sem stjórnmálaleiðtogar höfðu gefið hátíðleg loforð. Gárungarnir spáðu því að þessi háleitu mark- mið myndu fljótt gleymast. Þvert á móti hafa þúsaldarmarkmiðin orðið hvatning til þess að fylkja liði um raunhæfar að gerðir með framúrskarandi góðum árangri. Á síðustu þrettán árum hafa 600 milljónir manna losnað úr gildru sárustu fátæktar og hefur hinum fátækustu því fækkað um helming. Metfjöldi barna gengur nú í grunnskóla og er fjölda stúlkna og drengja jafn í fyrsta skipti í sögunni. Mæðra- og barnadauði hefur minnkað. Hnitmið- aðar fjárfestingar í bar- áttunni gegn mýrarköldu, HIV/alnæmi og berklum hafa bjargað milljónum mannslífa. Dauðs föllum af völdum alnæmis hefur fækkað um þriðjung í Afríku á síðustu sex árum. Meiri árangur Það eru líka markmið og viðmið þar sem við verðum að ná meiri árangri. Of margar konur deyja enn af barns- förum, þegar hægt er að bjarga þeim. Of mörg samfélög skortir lágmarkshreinlætisaðstöðu sem veldur því að óhreint vatn verður banvæn ógn. Í mörgum heims- hlutum, jafnt hinum auðugustu sem hinum fátækustu, eykst bilið á milli ríkra og snauðra. Of margir eru skildir eftir. Til þess að ná skjótari árangri þarf alþjóðasamfélagið að stíga fjögur skref núna. Í fyrsta lagi hraða árangri með klókum og hnitmiðuðum fjárfest- ingum sem hafa margfeldisáhrif og valda keðjuverkun á öllum öðrum sviðum. Í Afríku er þörf á einni milljón heilbrigðisstarfs- manna til að ná til afskekktustu byggða þar sem konur og börn deyja af völdum sjúkdóma sem ýmist er hægt að koma í veg fyrir eða eru læknanlegir. Auka þarf fjárfestingar í hreinlæti og tryggja almennan aðgang að lág- marksheilsugæslu, þar á meðal fæðingarhjálp, og úrræðum til að berjast gegn HIV og mýrarköldu. Einn helsti drifkrafturinn í þeim framförum sem nauðsyn- legar eru til að ná þúsaldar- markmiðunum er jafn aðgangur kvenna og stúlkna að menntun, heilsugæslu, næringu og efna- hagslegum tækifærum. Í öðru lagi ættum við að einbeita okkur að fátækustu ríkjunum sem standa hvað höll- ustum fæti en í þeim býr einn og hálfur milljarður manna. Hungur, átök, gerræði og skipulögð glæpa- starfsemi hafa löngum herjað á mörg þeirra ríkja sem eru í þess- um hópi og því gengur þeim illa að ná markmiðunum, þótt reynt hafi verið til hins ýtrasta. Mörg hafa ekki uppfyllt eitt einasta þúsaldarmarkmiðanna. Með því að fjárfesta á Sahel-svæðinu, austurodda Afríku og Mið-Asíu getum við hrundið af stað þróun í efnahagsmálum, öryggi og friðar- uppbyggingu sem síðan getur undið upp á sig. Fjárhagsleg fyrirheit Í þriðja lagi verðum við að standa við fjárhagsleg fyrirheit. Ekki er hægt að laga fjárlagahalla á kostnað hinna fátækustu og ber- skjölduðustu. Það er ekki sið- ferðilega réttlætanlegt og kemur hvorki gefendum né þiggjendum til góða. Þrátt fyrir erfiða tíma hafa mörg ríki sýnt gott fordæmi með því að standa við loforð sín. Ný ríki bætast í hóp þeirra sem veita þróunaraðstoð eftir því sem framþróun þeirra sjálfra leyfir. Við fögnum þessu og hvetjum aðra til að taka sér þetta til fyrir- myndar. Í fjórða lagi ætti þúsund daga markið að vera öllum, frá grasrót- inni til ríkisstjórna, hvatning til að fylkja liði innan hnattrænnar hreyfingar. Okkur ber að beisla kraft nýrrar tækni og samfélags- miðla en í þeim felast tækifæri sem ekki voru til staðar þegar þúsaldarmarkmiðin voru færð í orð um síðustu aldamót. Þúsaldarmarkmiðin hafa sýnt að hnitmiðuð markmið geta skipt sköpum í þróunarstarfi. Þau sameina, fylkja liði og veita innblástur. Þau ýta undir ný- sköpun í þágu betri heims. Árangur næstu þúsund daga getur ekki aðeins reynst þungur á metunum í lífi milljóna manna heldur getur hann einnig skapað slagkraft fyrir áætlanir um hvað taki við eftir 2015 í þágu sjálf- bærrar þróunar. Margt verður ógert. En nú, þegar við lítum til næstu kyn- slóðar sjálfbærra þróunarmark- miða, getum við sótt innblástur í þá staðreynd að þúsaldarmark- miðin hafa sýnt og sannað að með pólitískan vilja að vopni er hægt að uppræta örbirgð og slíkt er meira að segja innan seilingar. Við skulum gera eins mikið úr næstu þúsund dögum og hægt er og standa við loforð þúsalda- mótanna. Þúsund dagar til að standa við loforð Ármúli 8 I 108 Reykjavík Sími 516 0600 I www.birgisson.is GLÆSILEGAR HURÐIR STERKAR OG HLJÓÐEINANGRANDI -Einfaldar í uppsetningu. Fjölbreytt úrval. Þekking og persónuleg þjónusta ÞRÓUNAR- AÐSTOÐ Ban Ki-moon framkvæmda- stjóri Sameinuðu þjóðanna ➜ Fimmta apríl verða þúsund dagar þangað til tímamörkunum verður náð sem voru sett til þess að ná svokölluðum þúsaldarmark- miðum um þróun. AF NETINU Uppþot við Mývatn? Svokallað mat á umhverfisá- hrifum var marklaust á valdatíma Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Framleitt af starfsmönnum Landsvirkjunar og öðrum sem voru þóknanlegir. Væri það nei- kvætt, komu framsóknarkerlingar til skjalanna, Siv Friðleifsdóttir og Valgerður Sverrisdóttir. Þær völtuðu bara yfir matið, svo einfalt var það. Vegna þessarar fortíðar er marklaust að nota tíu ára gamalt umhverfismat á orku- veri í Bjarnarflagi við Mývatn. Þar þarf nýtt mat, sem er óháð Landsvirkjun og óháð ráðherra hverju sinni. Hugmynd Harðar Arnarsonar forstjóra um notkun tíu ára gamals mats er fráleit og mun valda uppþotum. http://www.jonas.is Jónas Kristjánsson Töfralausnir Margir virðast halda að í afnámi verðtryggingar sé fólgin kjarabót. Þar á meðal eru t.d. nokkrir verkalýðsforingjar, sem hafa farið mikinn í þessum efnum og borið mjög þungar sakir á aðra félaga sína í verkalýðshreyfingunni. Afnám verðtryggingar tekur mjög langan tíma, það er ekki hægt að láta hana gilda afturvirkt. Í dag er sú staða að nánast öll ný íbúðalán sem bankar veita eru óverðtryggð. Lækkuðu reikning- arnir eitthvað? http://www.gudmundur.eyjan.is Guðmundur Gunnarsson

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.