Fréttablaðið - 08.04.2013, Síða 13

Fréttablaðið - 08.04.2013, Síða 13
MÁNUDAGUR 8. apríl 2013 | SKOÐUN | 13 Ósk Sigurðardóttir MPM-nám Iðjuþjálfi og verkefnastjóri Barna- og unglingageðdeild LSH „Námið sameinar tæknilegar hliðar verkefnastjórnunar og mannlega þætti sem eru nauðsynlegir til þess að ná árangri í verkefnum. Ég hef fengið tækifæri til að vinna að fjölbreyttum, raunhæfum verkefnum með fólki úr öllum starfsgreinum, aukið fræðilega þekkingu mína og eflt samskiptafærni. Ég mæli hiklaust með þessu metnaðarfulla og hagnýta námi.“ MEISTARANÁM Í VERKEFNASTJÓRNUN www.hr.is Opinn kynningarfundur um meistaranám í verkefnastjórnun í Háskólanum í Reykjavík, miðvikudaginn 10. apríl kl. 17–18 í stofu V101. MPM-nám er hagnýtt stjórnendanám með vinnu sem hentar þeim sem vilja stýra fjölbreyttum og krefjandi verkefnum. OPIÐ FYRIR UMSÓKNIR Í MEISTARANÁM TIL 30. APRÍL Skráning á: mpm@ru.is Metsölubókin síðustu jól var um Gísla á Uppsölum og ég þekki mann sem segir að nú ætli sagan að endurtaka sig: „Framsókn er Gísli á Uppsölum,“ segir hann og sér fyrir sér þjóðina halda inn í sinn afdal og afneita heiminum, talandi hrognamál sem enginn skilur. Undanfarið hefur farið fram markviss leit að hinum þjóðlegu gildum með tilheyrandi lopapeysufári og lifrarpylsuáti; kannski er það sú leit sem leiðir svo marga á vit þessa sérís- lenska flokks, sem stjórnaði hér á áttunda áratugnum hagkerfi sem var eins konar heimsundur, með það verðbólgumarkmið að ná hundrað prósenta verðbólgu. Kannski er nostalgían að leiða þjóðina þangað – gekk ekki allt svo vel í verðbólgunni? – og bráðum verða allir karlar með barta og í útsniðnum buxum, konur í köflóttum pilsum í leður- stígvélum og Geirfinnur týnist aftur. Eftir einhverjum öðrum var haft að Framsókn væri fóta- nuddtæki ársins. Vanhugsuð, hvatvís hópsálarkaup sem enda á háaloftinu. Ég veit það ekki. Kannski er Framsókn bara Sjálfstæðis- flokkurinn í ár á þessum tímum fullkominnar upplausnar í flokkakerfinu þar sem fjöld- inn þeytist frá Jóni Gnarr til Ólafs Ragnars til Sigmundar Davíðs, í örvæntingarfullri leit að valkosti sem gengur fram af elítunni og framkallar harð- orðar ályktanir á aðalfundi álitsgjafafélagsins á Facebook. „Eru þar flestir aumingjar“, hefur lengi verið viðkvæðið um sjálft Alþingi – Búsáhaldabylt- ingin gekk út á að ríða húsum þar frekar en í Borgartúni þar sem raunverulegir sökudólgar breiddu úr sér, enda hefur bylt- ingarfólkið sjálfsagt ekki ratað svo langt austur í borginni, og ekki jókst virðing Alþingis við framgöngu málmorranna í Sjálf- stæðisflokknum undanfarin ár: og hví skyldi maður ekki kjósa Framsókn eins og hvað annað? Flokkur þeirra ópólitísku. Hvað er annars Framsókn? Varla sveitaflokkur lengur, eng- inn vinstri flokkur, varla einu sinni miðjuflokkur. En samt ekki einskær hægriflokkur með tilheyrandi einkavæðingarhót- anir: Þrjú lykilorð eru að baki velgengni Framsóknarmanna um þessar mundir: Heimilin – Icesave – þjóðrækni. Næsta orrusta Úrskurður EFTA-dómstólsins í Icesave-málinu breytti öllu. Hann sýndi svo sem að smá- þjóðir njóta réttar í evrópsku lagaumhverfi þegar gömul stór- veldi sækja að þeim en enginn tók eftir því heldur var mórall- inn þessi: Það var rétt hjá okkur að fella þessa samninga. Elít- unni skjátlaðist. Skítt með það að vilja haga sér á ábyrgan hátt gagnvart innistæðueigendum í Englandi og Hollandi. Tröll hirði þessar ensku ömmur. Við skuld- um engum neitt. Því harðari og óbilgjarnari sem menn voru, þeim mun réttar höfðu þeir fyrir sér. Þetta var nefnilega stríð. Nú geta frambjóðendur Fram- sóknar sagt þetta um allar efa- semdir um loforð þeirra: Já, já, þið hélduð líka að við hefðum rangt fyrir okkur í Icesave – og málið útrætt. Skiptir þá engu máli að Framsóknarfrömuðirn- ir höfðu rangt fyrir sér í því að taka upp norska krónu og Kan- adadal. Og ótal öðrum málum. Skiptir þá engu að þeir eru arftakar flokksins sem rústaði félagslega – norræna – húsnæð- iskerfinu; kom af stað fasteigna- bólunni með lánaaustri til fólks sem getur ekki greitt þau; blés upp aðra bólu með Kárahnjúka- virkjun; blés upp enn aðra bólu með kvótakerfinu; gerði liðs- odda sína að auðkýfingum á rússneska vísu með nálægð við valdastólana. Flokksins sem ríkti yfir Framsóknarára- tugnum eins og hver önnur hæð yfir Grænlandi. Gott og vel. Fólk telur – og kannski réttilega – að orrustan um Ísland geisi enn. Og að þeir sem berjist séu annars vegar erlendir „kröfuhafar“ og hins vegar „heimilin í landinu“. Það er áreiðanlega nokkur einföldun – kröfuhafarnir og hákarlarnir margir innlendir – og „heim- ilin“ misjafnlega illa leikin og margur laumufarþeginn þar sjálfsagt veinandi um skjald- borg fyrir sig. Það breytir því ekki að þetta er frásögnin sem Framsókn býður upp á og mörgum þykir hún spennandi. Nú er fyrir dyrum næsta orr- usta í þessu stríði: snjóhengju- orrustan. Kenningin er sú að Íslendingar hafi komið sér í svo ævintýralegar skuldir erlendis að það verði í sjálfu sér að stór- felldri tekjulind fyrir „heimil- in í landinu“ þegar þarf að fara að afskrifa þær. Í þau átök við „kröfuhafa“ þarf vissa óskamm- feilni sem fólk trúir Framsókn- armönnum betur til en grand- vörum og skilvísum vinstri mönnum. Að missa plottið En vinstri menn gleymdu sér í annarri frásögn sem margt fólk á öllu erfiðara með að lifa sig inn í. Það er sagan um Hrunið – ekki bara bankanna heldur alls kerfisins, allra gilda, allra siða; að hrunið hafi verið „okkur öllum“ að kenna og að samfé- lagið yrði að taka upp nýtt fyrir- komulag allra hluta til að koma í veg fyrir að sagan endur- tæki sig. Þessi hugmynd var hin hliðin á hugmyndinni um Íslendinga sem mestu afbragðs- þjóð heimsins – nú var hún orðin misheppnaðasta þjóð heims. Öll endurspeglaðist þessi hugsun og viðleitni í Stjórnarskrármálinu. Sú vinna bar vitni þeirri hugsun að stofna þyrfti nýtt lýðveldi – hið fyrra hefði brugðist; væri ónýtt og á engu væri byggjandi af því sem þjóðin hefði gert á fullveldistíma sínum. Þetta er nokkuð ströng kenn- ing og mörgu fólki hefur reynst erfitt að lifa sig inn í hana – ekki síst þegar vinstri menn hrein- lega gátu ekki hætt að tala um stjórnarskrána sem ekki varð að veruleika – tóku sér stöðu í ósigrinum miðjum en sýndu „heimilunum í landinu“ full- komið áhugaleysi. Vinstri menn voru á kjörtímabilinu fjarska duglegir að sanna að þeir kynnu að skera niður ríkisútgjöld og standa sig gagnvart alþjóð- legum skuldbindingum – væru ábyrgir – en áttuðu sig ekki á því að þetta var eiginlega eitruð blanda fyrir þá: annars vegar ábyrgðarkenndin gagn- vart „kröfuhöfunum“ og hins vegar hugmyndin um að samfé- lagið allt hefði á einhvern hátt „brugðist“ og byrja þyrfti allt upp á nýtt. Þrjú lykilorð Framsóknar En samt ekki einskær hægriflokkur með tilheyrandi einkavæðingar- hótanir: Þrjú lykilorð eru að baki velgengni Fram- sóknarmanna um þessar mundir: Heimilin– Icesave – þjóðrækni. Í DAG Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur ZENBOOK™ HÖNNUN HRAÐI FEGURÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.