Fréttablaðið - 08.04.2013, Page 16
8. apríl 2013 MÁNUDAGUR| TÍMAMÓT | 16TÍMAMÓT
Tónleikaröð í tengslum við Menningarvor
í Mosfellsbæ hefst annað kvöld. Tónleika-
röðin fer fram þrjú þriðjudagskvöld í röð
og á morgun verður sérstakt tékkneskt
kvöld, þann 16. apríl franskt kvöld og
lýkur röðinni svo með íslensku tónleika-
kvöldi. Arnhildur Valgarðsdóttir organisti
og Hjörleifur Valsson fiðluleikari munu
leika eldfjöruga tónlist eftir tékknesku
tónskáldin Smetana, Dvorak og Janacek
annað kvöld.
„Ég hef verið að æfa tékkneska píanó-
tónlist undanfarið því ég er að taka upp
disk með tónlist eftir Dvorak og Hjörleif-
ur stundaði tónlistarnám í Tékklandi. Það
lá því beint við að óska eftir því að fá að
spila tékkneska tónlist á Menningarvor-
inu,“ segir Arnhildur þegar hún er innt
eftir því af hverju tékknesk tónlist hafi
orðið fyrir valinu.
Arnhildur segir tékkneska tónlist mjög
þjóðlega og tilfinningaríka og lofar fjör-
ugum tónleikum. Hjörleifur tekur undir
þetta og segir tónlistarhefð landsins ríka.
„Þjóðernisrómansinn er mjög ríkur í tékk-
neskri tónlistarhefð. Það er mikil og djúp
tónlistarhefð í landinu og mörg af þekkt-
ustu tónskáldunum 19. aldar voru frá
þessu svæði, til dæmis Gustav Mahler.
Tékkland er mikil miðstöð fyrir tónlist
og það mætti kalla hana eina af mörgum
góðum tónlistarmekkum heimsins,“ segir
Hjörleifur og bætir við: „Það er þó rétt að
geta þess að Tékkland skiptist í tvö svæði;
Bæheim og Móravíu, og er tónlist þessara
tveggja landshluta töluvert ólík. Janacek
er höfuðskáld Mórava og tónlist hans er
gædd mjög skýrum móróvskum stíl.“
Tónleikarnir fara fram í Bókasafni
Mosfellsbæjar og hefjast klukkan 20 og
er aðgangseyrir enginn. Í hléi verður
boðið upp á Budweiser Budvar-bjórinn og
Berch erovka, sem er tékkneskur krydd-
líkjör búinn til úr tuttugu kryddjurtum
eftir tvö hundruð ára gamalli uppskrift.
Að tónleikunum loknum mun Erling-
ur Gíslason lesa upp úr ritverkinu Góða
dátanum Svejk og Hjörleifur heldur tölu
um tónskáld kvöldsins út frá veru sinni
í Prag. „Fyrsti fiðlukennari minn norð-
ur í landi var Tékki og þegar ég fermd-
ist fékk ég ferð til Tékklands í fermingar-
gjöf og heimsótti þá landið í fyrsta sinn.
Ég stundaði svo tónlistarnám í Prag í þrjú
ár. Ég mun segja stuttlega frá námsárun-
um og mínum fyrstu kynnum af þessum
tónskáldum,“ segir Hjörleifur.
sara@frettabladid.is
Leika fj öruga tónlist
eft ir tékknesk tónskáld
Arnhildur Valgarðsdóttir og Hjörleifur Valsson koma fram á tékknesku tónlistarkvöldi í
tengslum við Menningarvorið í Mosfellsbæ. Frítt er inn á tónleikaröðina.
LEIKA TÉKKNESKA TÓNA Arnhildur Valgarðsdóttir organisti og Hjörleifur Valsson
fiðluleikari leika tékkneska tónlist í Bókasafni Mosfellsbæjar annað kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Tónlistarmaðurinn Jean Bapt-
iste Arban lést þennan dag
árið 1889. Arban er kunnastur
fyrir að hafa veitt kornett-
hljóðfærinu brautargengi
með kennsluaðferðum sem
nefndar eru „aðferð Arbans“.
Arban fæddist í Lyon í Frakk-
landi þann 28. febrúar árið
1825 og lést í París þann
8. apríl árið 1889. Um það
leyti sem Arban fæddist var
verið að þróa kornettið úr
fyrirrennara þess, kornópean.
Þegar Arban hóf leik á kornett
þurfti hann að komast yfir
ýmsa galla til að ná því stigi í
leiknum sem hann sóttist eftir.
Markmið hans var að ná fram
blæbrigðum flautunnar við
leik á kornett, en flestir töldu
hljóðfærið of klunnalegt til að
það tækist. Með rannsóknum
sínum og æfingum tókst
Arban þó að koma hljóð-
færinu á stall með vinsælustu
hljóðfærum þess tíma
Arban var ráðinn prófessor við
Tónlistarskólann í París árið
1857 þar sem hann kenndi
nemendum á hljóðfærið.
Hann þótti metnaðarfullur
kennari og þegar skólinn stóð
frammi fyrir skorti á kennslu-
efni, setti Arban saman mikla
kennslubók sem byggðist
fyrst og fremst á hans eigin
tækni. Bókin heitir La grande
méthode complète de cornet
à piston et de saxhorn par
Arban og er enn stuðst við
hana í dag við kennslu á
kornett og trompet.
Heimild: Visindavefur.hi.is
ÞETTA GERÐIST: 8. APRÍL 1989
Tónlistarmaðurinn Arban lést
Á námsárunum í Tékklandi lék Hjörleifur nokkrum
sinnum fyrir Václav Havel, fyrrverandi forseta
landsins. Havel var níundi og jafnframt síðasti forseti
Tékkóslóvakíu og fyrsti forseti lýðræðisríkisins Tékk-
lands. Havel lést þann 8. desember árið
2011.
SPILAÐI FYRIR FORSETANN
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim er
sýndu okkur hluttekningu og samúð vegna
fráfalls eiginkonu minnar, móður okkar
og ömmu,
AUÐAR GARÐARSDÓTTUR
Bárugötu 35, Reykjavík,
og heiðruðu minningu hennar. Sérstakar
þakkir sendum við öllu starfsfólki
líknardeildar Landspítalans í Kópavogi fyrir hlýlegt viðmót,
umönnun og hjúkrun, sem sannlega var til fyrirmyndar.
Jóhannes Bergsveinsson
börn og barnabörn.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Fjölbreytt úrval legsteina
Frí áletrun og uppsetning
Sjá nánar á granithollin.is sími 555 38 88
Bæjarhrauni 26 (á móti Fjarðarkaupum)
Bæjarhrauni 26 - 220 Hafnarfirði
www.granithollin.is
Sími 555 38 88
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
GÍSLI KRISTINN SIGURKARLSSON
lögfræðingur,
Lágholtsvegi 10, Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum við Hringbraut
þriðjudaginn 2. apríl, verður jarðsunginn frá
Neskirkju fimmtudaginn 11. apríl kl. 13.00.
Arnheiður Ingólfsdóttir
Ingólfur Gíslason
Kristín Gísladóttir
Roland Hamilton
Flóki Ingólfsson
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
AUÐUNN VALDIMARSSON
Kríuhólum 2, Reykjavík,
lést fimmtudaginn 4. apríl á gjörgæsludeild
Landspítalans í Fossvogi.
Útförin auglýst síðar.
Gréta Oddsdóttir
Þuríður L. Auðunsdóttir Þ. Skorri Steingrímsson
Valdimar Auðunsson Julia Doppler
Sæunn Auðunsdóttir Róbert Ó. Skúlason
Steingrímur og Bjarkar Þormóðssynir
VirðingReynsla & Þjónusta
Allan sólarhringinn
www.kvedja.is
571 8222
82o 3939 svafar
82o 3938 hermann
Lokafyrirlestur í hádegis-
fyrirlestraröð Sagnfræð-
ingafélags Íslands verður
fluttur á morgun. Yfirskrift
fyrirlestraraðarinnar þessa
vorönn var Hvað er sögu-
legur skáldskapur?
Að þessu sinni mun Guð-
rún Harðardóttir, sérfræð-
ingur í byggingarsögu hjá
Þjóðminjasafni Íslands,
flytja erindi sem ber titilinn
Skáldað í byggingaarfinn? Í
fyrirlestrinum verður gerð
tilraun til að kortleggja til-
gátuteikningar og tilgátu-
hús sem reist hafa verið
á Íslandi á undanförnum
árum. Þjóðveldisbærinn í
Þjórsárdal og Eiríksstaðir í
Haukadal eru dæmi um til-
gátuhús sem risið hafa á síð-
ustu árum. Þá verður einnig
skoðað í hvaða samhengi til-
gátuteikningar eru gerðar
og tilgátubyggingar reistar.
Fyrirlesturinn fer fram í
fyrirlestrasal Þjóðminja-
safnsins og hefst klukkan
12.05.
Rýnt í tilgátuhús
Lokafyrirlestur í fyrirlestraröð Sagnfræðinga-
félags Íslands fl uttur í Þjóðminjasafninu.
RÝNT Í TILGÁTUHÚS Guðrún Harðardóttir, sérfræðingur í byggingar-
sögu, flytur lokafyrirlesturinn í hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðinga-
félags Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN