Fréttablaðið - 08.04.2013, Síða 45
MÁNUDAGUR 8. apríl 2013 | MENNING | 21
➜
Gildi Orkuveitu Reykjavíkur eru framsýni, hagsýni og heiðarleiki. www.or.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
6
36
59
0
4/
13
OPINN ÁRSFUNDUR
ORKUVEITU REYKJAVÍKUR
2013
DAGSKRÁ
Tímamótaár
Bjarni Bjarnason, forstjóri
Erum við á Plani?
Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri fjármála
Vatn, vöktun og virkjanir
Hólmfríður Sigurðardóttir, umhverfisstjóri
Bjargræðiskvartettinn syngur
Hvernig sjáum við hlutverk
Orkuveitunnar þróast?
Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins
Andri Snær Magnason, rithöfundur
Pallborðsumræður
Andri Snær Magnason, Þorsteinn Víglundsson
og Bjarni Bjarnason
Kaffiveitingar að fundi loknum
Inga Dóra Hrólfsdóttir,
framkvæmdastjóri veitureksturs
Orkuveitunnar, verður fundarstjóri
Orkuveita Reykjavíkur þjónar um þremur af hverjum fjórum landsmönnum og rekur
vatnsveitu, hitaveitu, rafveitu, fráveitu eða gagnaveitu í 20 sveitarfélögum.
Væntingar viðskiptavina, eigenda fyrirtækisins og annarra hagsmunaaðila hafa
verið mismunandi og tekið breytingum.
Orkuveitan tók til starfa í núverandi mynd árið 2002 og þá var lögbundinn tilgangur
fyrirtækisins „... vinnsla og framleiðsla raforku, varma og vatns, dreifing og sala
afurða fyrirtækisins ásamt hverri þeirri starfsemi annarri sem nýtt getur
rannsóknir, þekkingu eða búnað fyrirtækisins, sem og iðnþróun og nýsköpun af
hverju tagi, ásamt annarri viðskipta- og fjármálastarfsemi samkvæmt ákvörðun
stjórnar hverju sinni“.
Tíu árum síðar, sumarið 2012, var einhugur í þeim sveitarstjórnum, sem eiga hlut í
Orkuveitunni, um að kjarnastarfsemi fyrirtækisins felist í „... rekstri vatnsveitu,
hitaveitu, rafveitu og fráveitu, sölu og framleiðslu á rafmagni og heitu og köldu
vatni. Orkuveita Reykjavíkur getur nýtt þekkingu fyrirtækisins til þátttöku í öðrum
veiturekstri, s.s. rekstri gagnaveitu, enda þjóni hann markmiðum eigenda og
þátttakan hljóti samþykki þeirra“.
Á opnum ársfundi Orkuveitunnar spyrjum við og leitum svara við því hvernig
hlutverkið muni eða eigi að þróast næstu árin, til dæmis til 2022.
Orkuveita Reykjavíkur heldur opinn ársfund föstudaginn
12. apríl 2013 kl. 13:00 til 15:00. Fundurinn verður í
höfuðstöðvum Orkuveitunnar, Bæjarhálsi 1 í Reykjavík.
HVERNIG MUN HLUTVERK ORKUVEITUNNAR ÞRÓAST?
Listakonan Sigga Björg sýnir um
þessar mundir verk og nýja bók í
ÞOKU, galleríi sem er að finna í
kjallara verslunarinnar Hríms. „Ég
gaf út litla bók, 9 fingers, í Skot-
landi fyrir skömmu í tengslum við
sýningu þar. Í henni eru níu frekar
abstrakt sögur og teikningar.
Á sýningunni, sem ber heitið
Herbergi 9, er þessi bók til sýnis
og sölu í númeruðum eintökum. En
ég er líka búin að vinna innsetn-
ingu inn í rýmið sem var unnin út
frá hlutum í sögunum og sömu-
leiðis má sjá teikningar og mál-
verk sem ég sýndi með bókinni úti
í Glasgow.“
Sigga Björg hefur verið með
annan fótinn í Glasgow síðan hún
var þar í námi fyrir tæpum tíu
árum. Þar er gott að vera að henn-
ar sögn.
„Skotland er ekki svo ólíkt
Íslandi en samhengið er samt
stærra. Og Glasgow er æðis legur
staður fyrir listamenn, þar er
mjög góð stemming og mikið um að
vera í listum. Enda er ég að reyna
að finna út úr því hvernig ég get
verið á báðum stöðum, mér finnst
svo gott að búa á Íslandi en vinna í
útlöndum.“
Sýning Siggu Bjargar, sem stend-
ur til 12. maí, er hluti af utandag-
skrá myndlistarsýningarinnar
Sequences.
Gott að vinna
í Glasgow en
búa á Íslandi
Sigga Björg Sigurðardóttir skapar eigin heim í gall-
eríinu Þoku með bók, málverkum og teikningum.
Furðudýr og aðrar kynjaverur í ýmsum athöfnum hafa lengi verið viðfangsefni Siggu Bjargar. Verurnar eru oft á
tíðum frekar ógeðfelldar og óhugnanlegar en á sama tíma er hægt að skynja eitthvað mannlegt við þær. Í bók Siggu
Bjargar hafa teikningarnar ölast líf með orðum. Sumar sagnanna innihalda söguþráð en aðrar snúast um senur.
Lesandinn fær að kynnast ákveðnum karakterum betur, eins og frönskum kassa sem á við bagalegt vandamál að
stríða og hárkúlunni Smith, sem er ekki öll þar sem hún er séð.
Furðudýr og kynaverur
Nokkrar af myndum banda-
ríska listamannsins Matthews
Barney verða sýndar í Bíói Para-
dís næstu daga í tengslum við
myndlistarhátíðina Sequences.
Meðal mynda sem sjá má eru
Blood of two sem sýnd verður
á miðvikudag eins og Draw-
ing Restraint 17, sem er hluti
af seríu Barneys sem hófst árið
1987 með tilraunum í stúdíói
– líkamlegar hugleiðslur í list-
rænu ferli. Þá verður Cremaster
3 sýnd næsta sunnudag í kvik-
myndahúsinu.
Matthew
Barney í Bíói
Paradís
MATTHEW BARNEY Hefur meðal
annars gert mynd með sambýliskonu
sinni og barnsmóður, Björk.
Mannfræðifélag Íslands boðar
til málþings um þema fyrir-
lestraraðar vetrarins, ástina,
laugardaginn 13. apríl kl. 12-14
í Reykjavíkurakademíunni við
Hringbraut. Framsöguerindi
flytja, dr. Sólveig Anna Bóas-
dóttir, dr. Sigrún Júlíusdóttir, dr.
Unnur Dís Skaptadóttir og Mar-
grét Sigurðardóttir, æskulýðs-
fulltrúi.
Dr. Sólveig Anna Bóasdóttir er
dósent í guðfræðilegri siðfræði.
Rannsóknir hennar hafa snúið
að ást, kynlífi og hjónabandi, í
ljósi kristinnar og femínískrar
siðfræði. Í erindinu gagnrýnir
hún þá áherslu sem sögulega
hefur verð lögð á ást tvíeykisins
karls og konu.
Málþing haldið
um ástina
GALLERÍ
sýning Siggu
Bjargar
stendur til
12. maí.
F
RÉ
TT
AB
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M