Bekkjarfélaginn - 16.12.1960, Blaðsíða 6

Bekkjarfélaginn - 16.12.1960, Blaðsíða 6
Regluleg félagsstarfsemi er í þann veg að hef jast í skólanuin. Stendur til að hægt verði að koma ýmsum þáttum af stað eftir áramót. Verður hón að mestu leyti í höndum nemendanna sjálfra í samráði við kennara. Var haldinn í því skyni fundur bekkjarfulltrúa, þar sem kosin var bráðabirgðanefnd þeirra. Kosningu hlutu Halla Hauksdóttir, Viðar ölafs- son, og Þorsteinn Helgason hér úr bekk og Margrét Þóroddsdóttir II - B og Ásmundur Hilmarsson II - C. Einnig er í ráði að kjósa síðar aðrar nefndir svo sem árshátíðarnefnd og nefnd til að sjá um almennar skemmtanir. Skal hér getið þess helzta sem á döfinni er eða þegar hafið. Almennar_skemmtanir_(dansæfingar)_ verða með svipuðu sniði og áður þ.e.a.s. félagsvist og dans á eftir. Verður kosin sérstök nefnd til að sjá um þær og gera þær fjölbreyttari. Kvikmyndasýningar. Hafnar eru nú sýningar kvikmynda í salnum í kjallara skólans. Nokkur vinna er í sambandi við þetta, eins og flutningur stóla o.fl. en þetta getur orðið hin skemmtilegasta dægrastytting. Allur ágóði rennur til ýmiss konar hluta til að nota fyrir nemendur svo sem bókasafns. Frímerki ogtafl er nýhafið eða að hefjast, hvort tveggja á föstudagskvöldum. Þriggja manna nefndir sjá um hvort um sig. Skrýtla. Bjarni: "Hvað er hljómsveit á ensku?" Kristín: "Band". Bjarni: "Hvað er þá hljómsveitarstjóri?" Kristín: "Banditt". Ritnefndin óskar skólastjora, yfirk. kennurum og nemendum skólans GLEÐILEGRA JÖLA.

x

Bekkjarfélaginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bekkjarfélaginn
https://timarit.is/publication/1093

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.