Fréttablaðið - 04.01.2014, Blaðsíða 46
Klak Innovit leitar að öflugum framkvæmdastjóra og verkefnastjóra til að leiða
starfsemi fyrirtækisins.
Upplýsingar veita:
Þórir Þorvarðarson
thorir@hagvangur.is
Sverrir Briem
sverrir@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á
hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 12. janúar.
Umsókn fylgi ítarleg starfsferilskrá,
nauðsynlegar staðfestingar og
greinargerð um áhuga og hæfni
viðkomandi í starfið.
Farið verður með allar umsóknir
og fyrirspurnir sem trúnaðarmál
og þeim svarað.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Klak Innovit er í fararbroddi í nýsköpunar- og frumkvöðlaumhverfinu á Íslandi. Yfir 4000 gestir sóttu viðburði
félagsins árið 2013 í þeim 13 verkefnum sem félagið stýrir. Klak Innovit er með starfsemi í Háskóla Íslands,
Háskólanum í Reykjavík, Innovation House Eiðistorgi og á þeim stöðum sem verkefni krefjast hverju sinni.
Markmið Klak Innovit er að efla nýsköpunar- og frumkvöðlaumhverfið á Íslandi, með það að markmiði að búa
til öflug, framsækin fyrirtæki til framtíðar.
Klak Innovit er brautryðjandi í að aðstoða fólk með þróun viðskiptahugmynda. Við þurfum öflugt fólk til að taka
þátt í framþróun félagsins og uppbyggingu verkefna.
Klak Innovit vinnur að fjölmörgum verkefnum sem reyna á skapandi hugsun, greiningarhæfileika og úrlausn
flókinna viðfangsefna.
Getur þú hugsað út fyrir kassann og leyst óleysanleg
verkefni? Við leitum að metnaðarfullum verkefnastjóra
sem getur leitt lykilverkefni félagsins. Viðkomandi þarf að
hafa metnað fyrir framsetningu og eftirfylgni verk-, tíma-,
og kostnaðaráætlana og geta komið með frumkvæði að
úrlausnum sem félagið getur verið stolt af.
Háskólamenntun mjög æskileg.
Við lofum:
• Tækifærum til að læra, vaxa og þroskast í starfi
• Skemmtilegum vinnustað
• Fjölbreyttu starfsumhverfi
• Aðgengi að framúrskarandi tengslaneti
• Starf hjá félaginu hefur reynst mörgum dýrmætur stökkpallur
Meðal ábyrgðarverkefna er StartupReykjavik (startupreykjavik.com), StartupEnergy (startupenergy.is), Gulleggið (Gulleggid.is),
SeedForum (seedforum.is), Alþjóðleg athafnavika (athafnavika.is), Atvinnu- og nýsköpunarhelgar (startupweekend.org) og
Viðskiptasmiðjan. Þá munu viðkomandi vera virkir í stefnumótun félagins og verkefna þess í heild sinni.
Við leitum að fólki með:
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Mikinn metnað og framkvæmdasemi
• Áhuga á nýsköpunar- og frumkvöðlaumhverfinu
• Hæfni í mannlegum samskiptum, góða samskipta-
og forystuhæfileika
• Getu til að starfa í alþjóðlegu umhverfi
Okkur vantar kraftmikla, óþreytandi og áberandi
duglega manneskju sem kann allt; meðal annars að
stýra verkefnum, mynda og viðhalda tengslum og stýra
daglegum rekstri félagsins. Æskilegt er að viðkomandi
hafi reynslu af stjórnunarstörfum og sé framúrskarandi
í rituðu og mæltu máli, jafnt íslensku sem ensku, með
góða þekkingu á nýsköpunar- og frumkvöðlaumhverfinu
á Íslandi. Háskólamenntun mjög æskileg.
VerkefnastjóriFramkvæmdastjóri
Starfssvið
» Þátttaka í þróun nýrra vátrygginga-
vara og aðferða sem geta aukið
samkeppnisfærni félagsins.
» Greining á ytri og innri aðstæðum
á vátryggingamarkaði.
» Vinnsla og framsetning gagna úr
stórum gagnasöfnum.
» Þróun hugbúnaðar í ýmsum
forritunarmálum.
Hæfniskröfur
» Háskólanám í verkfræði, tölvunar-
fræði, stærðfræði eða sambæri-
legum greinum.
» Brennandi áhugi á lausn flókinna
verkefna með aðstoð tölvutækni
og stærðfræði.
» Hæfni í mannlegum samskiptum og
miðlun og framsetningu upplýsinga.
» Geta til að starfa sjálfstætt og í hópi.
» Geta til að starfa undir álagi.
54 4D 20 6C 65 69 74 61 72 20 61
F0 20 73 6E 69 6C 6C 69 6E 67 69
Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri fjárfestinga og viðskiptaþróunar,
Garðar Þ. Guðgeirsson (gardar@tm.is) og veitir hann frekari upplýsingar um starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 19. janúar n.k. Umsóknir ásamt ferilskrá skal
senda á netfangið starf@tm.is. Farið er með umsóknir sem trúnaðarmál og
öllum umsóknum verður svarað.
Hjá TM er viðskiptavinurinn og hagsmunir hans okkar meginviðfangsefni. Það er markmið okkar
að viðskiptavinir upplifi í öllum sínum samskiptum við TM að ekkert tryggingafélag á Íslandi veiti
betri vernd gegn áföllum. Í því felst að viðskiptavinurinn sé rétt tryggður á hverjum tíma og fái
ávallt framúrskarandi þjónustu við úrlausn sinna mála hvort sem er við kaup á tryggingum, við
tjón, í lánaviðskiptum eða greiðsluþjónustu.
Skilur þú það sem stendur hér að ofan? Þá vill Tryggingamiðstöðin
ræða við þig um starf í viðskiptaþróun félagsins.
Tryggingamiðstöðin Síðumúla 24 Sími 515 2000 tm@tm.is tm.is