Fréttablaðið - 21.01.2014, Side 4
21. janúar 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundur@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Löður er með
á allan bílinn
Við erum á sex stöðum á höfuðborgarsvæðinu
www.lodur.is - Sími 544 4540
Rain-X býður upp á fullkomna yfirborðsvörn
Rain-X verndar bílinn, eykur útsýni og öryggi
Hreinn bíll eyðir allt að 7% minna eldsneyti
514% aukning varð á verðmæti
útfluttrar síldar frá Íslandi milli
áranna 2002 og 2012.
Fyrrnefnda árið var verðmætið tæpir
4,2 milljarðar króna en 2012 var seld
síld fyrir 25,6 milljarða króna.
Á STOPPISTÖÐINNI Kanna ætti hvort
gefa eigi strætisvögnum forgang á
umferðarljósum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Veðurspá
Fimmtudagur
5-10 m/s, kólnar.
VÍÐA EINHVER VÆTA Heldur milt á landinu í dag og á morgun með vætu víða,
einkum suðaustantil. Suðvestanátt á fimmtudag og kólnar heldur í veðri.
2°
7
m/s
2°
7
m/s
4°
8
m/s
7°
9
m/s
Á morgun
3-8 m/s.
Gildistími korta er um hádegi
5°
3°
2°
5°
3°
Alicante
Basel
Berlín
17°
10°
0°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
2°
7°
4°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
1°
1°
20°
London
Mallorca
New York
8°
17°
-3°
Orlando
Ósló
París
22°
-5°
7°
San Francisco
Stokkhólmur
16°
-3°
6°
8
m/s
6°
12
m/s
5°
9
m/s
4°
11
m/s
3°
5
m/s
2°
6
m/s
0°
7
m/s
4°
4°
5°
4°
3°
HEILBRIGÐISMÁL „Þegar Ráðgjöf
í reykbindindi hóf göngu sína
vorum við einungis að aðstoða
fólk við að hætta reykingum. Á
næsta stigi fórum við að hjálpa
þeim sem þurftu að losna af
nikótínlyfjum og núna erum við
í auknum mæli að hjálpa fólki að
hætta að nota
munntóbak,“
segir Jóhanna
S. Kristjáns-
dóttir, hjúkr-
unarfræðingur
og verkefnis-
stjóri Ráðgjafar
í reykbindindi.
Nikótínneyt-
e n d u r h a fa
getað sér að
kostnaðarlausu hringt í reyk-
lausa símann frá aldamótum og
fengið ráðgjöf um hvernig eigi að
svæfa nikótínþörf.
Jóhanna segir að meðferðin sé
sniðin að þörfum hvers og eins
sem fái hjálp við að hætta á eigin
forsemdum. Langflestir sem leita
sér hjálpar í fyrsta skipti gera
það í janúar. Þó að tölur fyrir
janúar á þessu ári séu ekki til-
búnar virðist ásóknin ekki hafa
minnkað frá í fyrra.
Jóhanna segir tvennt hafa
mikil áhrif þegar fólk ákveður
að hætta, annars vegar verð-
hækkanir á tóbaksvörum og
hins vegar lagasetningar. Til að
mynda hafi fjölgað mjög í hópi
þeirra sem leituðu sér aðstoðar
eftir að bannað var að reykja inni
á veitinga- og skemmtistöðum
Nikótínlausi síminn
í stað þess reyklausa
Í stað þess að hjálpa fólki að hætta að reykja aðstoðar Ráðgjöf í reykbindindi
stöðugt fleiri sem vilja hætta að taka í vörina eða hætta neyslu nikótínlyfja. Mun
erfiðara er að venja fólk af því að taka í vörina en hætta reykingum.
JÓHANNA S.
KRISTJÁNSDÓTTIR
um mitt ár 2007. Á sama tíma
hafi hins vegar fjölgað þeim sem
fóru að nota reyklausar tóbaks-
vörur, svo sem nikótínlyf og að
taka í vörina.
Hún segir að stór toppur hafi
myndast þegar sígarettupakk-
inn fór yfir þúsund krónur, þá
hafi margir ákveðið að hætta.
Það sama hafi gerst um áramót-
in 2012/13 þegar neftóbak sem
fólk tekur í vörina hækkaði um
50 prósent, margir hafi þá ákveð-
ið að hætta.
„Þeir sem eru að hætta að taka
í vörina þurfa oft lengri með-
ferð en þeir sem eru að hætta
að reykja. Hver skammtur af
munntóbaki sem tekinn er í vör-
ina inniheldur álíka mikið magn
af nikótíni og fjórar sígarettur,“
segir Jóhanna og útskýrir að það
geti því verið mun erfiðara að
hætta munntóbaksnotkuninni.
Þá segir hún að þeir sem eru að
venja sig af notkun nikótínlyfja
svo sem tyggjós þurfi að trappa
sig niður, það er að minnka
skammtinn smátt og smátt.
„Nikótínlyf eru einungis ætluð
til notkunar í stuttan tíma. Nikó-
tíntyggjó fer illa með slímhúðina
í munninum og langtímanotkun
þess getur valdið tannlosi,“ segir
hún.
„Reyklausi síminn er eiginlega
orðið rangnefni, það væri miklu
nær að tala um nikótínlausa
símann,“ segir Jóhanna.
johanna@frettabladid.is
SAMGÖNGUR Farþegum Strætó
bs. hefur fjölgað um þriðjung
á fjórum árum. Kolbeinn Ótt-
arsson Proppé, upplýsinga-
fulltrúi Strætó, segir komið
að því að taka ákvarðanir um
framtíðarþróun og skipulagn-
ingu almenningssamgangna eigi
markmið sveitarfélaganna um
fjölgun farþega að nást.
Árleg októbertalning farþega
hjá Strætó sýnir að árið 2013
fjölgaði farþegum um nær tvö
prósent milli ára. Er þetta fjórða
árið í röð sem fjölgun verður á
farþegum. Fjölgunin frá árinu
2009 nemur 33,4 prósentum.
„Mest er fjölgunin á annatíma,
frá sjö til níu á morgnana og milli
tvö og fimm á daginn,“ segir Kol-
beinn, en farþegafjöldinn á þess-
um afmarkaða tíma sé farinn að
valda verulegum vandræðum.
„Sú staðreynd gæti verið hluti
skýringarinnar á því að fjölgunin
árið 2013 var mun minni en árin
þar á undan,“ segir Kolbeinn.
Í samningi Samtaka sveitar-
félaga á höfuðborgarsvæðinu og
ríkisins er stefnt að því að auka
hlut almenningssamgangna úr
fjórum prósentum í átta pró-
sent árið 2023. Huga þarf að
bæði fjármagni og skipulagi til
að ná þeim markmiðum, segir
Kolbeinn.
Fram undan séu stórar ákvarð-
anir varðandi hvernig þessum
markmiðum verði náð, svo sem
um hvort endurskoða eigi tíðni
ferða eða stækka vagna hraðar
en hingað til hafi verið gert. - oka
Ákveða þarf hver framtíðarþróun almenningssamgangna á að vera eigi markmið um farþega að nást:
Farþegum fjölgað um þriðjung frá 2009
HEILSA Kannabínóðinn CBD dregur
úr neikvæðum áhrifum áfengis-
neyslu á lifur í músum.
Þetta kemur fram í nýrri rann-
sókn sem framkvæmd var við
bandaríska og kínverska háskóla.
Við áfengisdrykkju safnast fita
á lifrina og langvarandi áfengis-
neysla getur orsakað skemmdir á
lifrinni og leitt til skorpulifrar.
CBD, sem er eitt virku efnanna í
kannabisplöntunni, getur dregið úr
þessari fitusöfnun og þannig hjálp-
að til við að koma í veg fyrir nei-
kvæð áhrif áfengisneyslu á lifrina
í músum.
Vísindamennirnir rekja þessi
áhrif meðal annars til andoxunar-
áhrifa CBD. - js
Kannabínóðar gætu gagnast:
Varnar skorpu-
lifur í músum
KANNABISEFNI Vísindamenn rannsaka
áhrif kannabisplöntunnar. NORDICPHOTOS/AFP
FJARSKIPTI Míla ætlar að tvöfalda
hraðann á ljósveitukerfi sínu á
völdum stöðum á þessu ári. Fjar-
skiptafyrirtækið getur þá boðið
heimilum í landinu upp á netteng-
ingar sem ná allt að eitt hundrað
megabætum á sekúndu, að því er
fram kemur í tilkynningu Mílu.
Þar segir að fyrirtækið ætli
einnig að fjölga þeim heimilum
sem hafa aðgang að ljósveitukerf-
inu um fimmtán prósent. Þá muni
um áttatíu prósent heimila á öllu
landinu hafa möguleika á að nálg-
ast háhraðanettengingar hjá sínu
fjarskiptafyrirtæki. - hg
Fjölgar háhraðatengingum:
Tvöfaldar hraða
á ljósveitukerfi
SUÐUR-KÓREA Tölvufræðingur,
sem starfaði sem verktaki
hjá suður-kóresku kortafyrir-
tæki, hefur frá árinu 2012 stolið
kredit kortaupplýsingum frá
um helmingi íbúa Suður-Kóreu.
Hann er sagður hafa selt lána-
fyrirtækjum upplýsingarnar.
Þetta komst upp í síðustu viku
en í gær báðust yfirmenn þriggja
stærstu kreditkortafyrirtækja
Suður-Kóreu opinberlega afsök-
unar á blaðamannafundi.
Verktakinn, sem vann við að
þróa hugbúnað sem átti að koma
í veg fyrir kreditkortasvindl, er
talinn hafa stolið upplýsingum
um 80 milljónir kreditkorta. - gb
Hneyksli í S-Kóreu:
Stal gögnum
um kreditkort
HNEIGÐU SIG DJÚPT Yfirmenn þriggja
kreditkortafyrirtækja báðust opinber-
lega afsökunar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÍRAN, AP Evrópusambandið sam-
þykkti í gær að létta að hluta
refsiaðgerðum af Íran, eftir að
staðfesting hafði fengist á því að
Íranar væru byrjaðir að draga
verulega úr auðgun úrans.
Þetta hvort tveggja er gert
í samræmi við samning, sem
írönsk stjórnvöld gerðu í nóvem-
ber. Mega Íranar nú búast við að
efnahagur þeirra vænkist nokkuð
strax á allra næstu mánuðum.
- gb
Íranar draga úr auðgun úrans:
Refsiaðgerðum
létt að hluta
Elísabet
Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
NIKÓTÍNFÍKLAR SEM HRINGJA Í JANÚAR
90
80
70
60
50
40
30
20
10
0 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013
64
36
56
82
64 64
46
31
82
72
52
50
sem hringja í Ráðgjöf
í reykbindindi eru
karlar
sem hringja
í Ráðgjöf í
reykbindindi
eru konur
38% 62%