Fréttablaðið - 21.01.2014, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 21.01.2014, Blaðsíða 30
21. janúar 2014 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 26 Rekja má uppruna strákabanda til rakarakvartettanna sem voru vin- sælir seint á 19. öld. Orðið stráka- band er hins vegar yfirleitt notað til að lýsa hljómsveitum sem voru stofnaðar á áttunda áratugnum og fram til dagsins í dag. Stráka- bönd á borð við Osmonds, Jackson 5 og Monkees ruddu brautina fyrir hljómsveitir nútímans þó þessar sveitir séu sjaldnast flokkaðar með hefðbundnum strákaböndum. Boston-grúppunni New Edition hefur oft verið eignaður heiðurinn af því að hafa komið strákabanda- bylgju af stað á níunda áratugnum. Tónlistarmaðurinn Maurice Starr fékk innblástur þegar hann sá hve vinsæl New Edition varð og stofn- aði New Kids on the Block árið 1984, fyrsta strákabandið sem sló í gegn. Í kjölfarið tóku umboðsmenn í Evrópu sig til og stofnuðu sín eigin strákabönd. Nigel Martin-Smith myndaði Take That árið 1990 og Tom Watkins sveitina East 17 árið 1991. Take That sló öll met og náðu allar smáskífur bandsins nema ein toppsæti í Bretlandi. Írski umboðsmaðurinn Louis Walsh, sem margir þekkja í dag úr hæfileikaþáttunum X Factor, hoppaði á strákabandsvagninn og stofnaði írska útgáfu af Take That, strákabandið Boyzone, árið 1993. Önnur strákabönd sem nutu velgengni í Bretlandi á svipuðum tíma voru Let Loose, MN8, 911 og Damage. Undir lok tíunda áratug- arins seig hins vegar frægðarsól bandanna til viðar og þau hættu hvert af öðru. Á miðjum tíunda áratugnum nutu hylli strákabönd sem fluttu R&B og gospelskotna tónlist, til dæmis Boyz II Men sem var stofnuð árið 1988 og All-4-One sem var stofnuð árið 1993. Strákabandasprengingin í Bandaríkjunum varð þó ekki fyrr en árið 1997 þegar sveitir á borð við Backstreet Boys, 98 Degress, ´N Sync og Hanson voru stofnaðar. Simon Cowell var farsæll umboðsmaður strákasveita. Hann sá um sveitirnar 5ive og Westlife. Hann steig hins vegar feilspor á þessum tíma því hann hafnaði tveimur af stærstu strákaböndun- um; Take That og Busted. Segja má að strákabönd hafi gengið í endurnýjun lífdaga í kringum árið 2010 þegar sveitirnar Big Time Rush, The Wanted og One Direction komu fram á sjónarsvið- ið. Af þessum nýju böndum er One Direction það langvinsælasta og er í tíunda sæti á lista yfir söluhæstu strákabönd allra tíma. Hljómsveit- in lenti í þriðja sæti í sjöundu seríu bresku X Factor-þáttanna árið 2010 og komst í kölfarið á samning hjá Simon Cowell. One Direction er meðal annars fyrsta bandið í sögu Billboard 200 sem hefur komið fyrstu þremur plötum sínum beint í fyrsta sæti. STRÁKASVEITIR SNÚA AFTUR Skilgreining á orðinu strákaband er poppgrúppa sem skipuð er myndarlegum, ungum mönnum sem spila tónlist sem höfðar til ungra aðdáenda. Bylgja strákabanda hófst um miðjan níunda áratuginn og reis faldur hennar hæst í byrjun tíunda áratugarins þegar strákabönd réðu ríkjum á vinsældalistum. Nú virðist ný bylgja vera að rísa með tilkomu sveitarinnar One Direction. 1. Backstreet Boys, Bandaríkin, 130 milljónir seldra platna 2. The Osmonds, Bandaríkin, 102 milljónir seldra platna 3. The Jackson 5, Bandaríkin, 100 milljónir seldra platna 4. New Kids on the Block, Bandaríkin, 80 milljónir seldra platna 5.-6. Boyz II Men, Bandaríkin, 60 milljónir seldra platna 5.-6. Menudo, Púerto Ríkó, 60 milljónir seldra platna 7. ´N Sync, Bandaríkin, 50 milljónir seldra platna 8. Westlife, Írland, 50 milljónir seldra platna 9. Take That, Bretland, 45 milljónir seldra platna 10. One Direction, Bretland/Írland, 35 milljónir seldra platna * Heimild: Wikipedia Söluhæstu strákabönd allra tíma STOFNUÐ Á Flórída árið 1993 MEÐLIMIR A. J. McLean, Howie Dorough, Nick Carter, Kevin Richardson og Brian Littrell. ➜ Take That Hljómsveitin naut gríðarlegra vinsælda á fyrri hluta tíunda áratugarins en babb kom í bátinn þegar Robbie hætti árið 1995. Hinir fjórir kláruðu tónleikaferðalag um heiminn en hættu svo árið 1996, mörgum unglingsstúlkum til sárra vonbrigða. Fjórmenningarnir komu aftur saman árið 2006 eftir að þeir tóku upp heimildar- mynd um bandið og fóru í tónleikaferðalagið The Ultimate Tour um Bretlandi. Þeir gáfu út plötuna Beautiful World árið 2006 og Circus árið 2008 og urðu gríðarlega vinsælir þó Robbie vantaði. Hann sneri aftur í bandið árið 2010 og þá kom platan Progress út sem varð þá sú plata á 21. öldinni sem seldist hraðast. Í október árið 2011 tilkynntu strákarnir í Take That að þeir ætluðu að taka sér pásu en þeir komu fram á lokaathöfn Ólympíuleikanna árið 2012, þó án Robbies. Í maí í fyrra tilkynnti Mark að Take That ætlaði að hefja upptökur á sjöundu stúdíóplötu sinni í ár. Þeir hafa slegið hvert metið á fætur öðru og eru vinsælasta strákaband allra tíma í Bretlandi. ➜ New Kids on the Block Sveitin er oft kölluð NKOTB en átti upp- runalega að heita NYNUK. Pródúsent- inn Maurice Starr setti hana saman í Boston. Bandið var gríðarlega vinsælt seint á níunda áratugnum og snemma á tíunda áratugnum. Það lagði upp laupana árið 1994 og voru gerðar margar misheppn- aðar tilraunir til að koma grúppunni aftur saman. Strákarnir hittust á ný árið 2007 í laumi og tóku upp nýja plötu, The Block, og fóru í kjölfarið í tónleika- ferðalag árið 2008. Þeir fóru svo í tónleikaferðalag með Backstreet Boys á árunum 2011 til 2012 og var þessi nýja súpergrúppa nefnd NKOTBSB. New Kids on the Block gáfu út plötuna 10 í fyrra sem hlaut afar misjafna dóma. ONE DIREC- TION Endurkoma strákabandanna á 21. öldinni er að mörgu leyti One Direction að þakka en sveitin hefur notið mikilla vinsælda meðal ungra stúlkna síðustu misseri. MYNDIR/GETTY IMAGES Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is ➜ Backstreet Boys Kevin yfirgaf sveitina eftir tónleikaferðalagið Never Gone árið 2006. Fjórmenningarnir gáfu út tvær plötur eftir brotthvarf hans en í apríl árið 2012 tilkynnti grúppan að Kevin væri genginn til liðs við þá aftur. Ári seinna gáfu þeir út plötuna In a World Like This og fóru í tónleikaferðalag. Í apríl sama ár héldu þeir upp á tuttugu ára starfsafmæli og sýndu brot úr væntanlegri heimildarmynd sem verður frumsýnd á þessu ári. 22. apríl í fyrra fengu strákarnir stjörnu á Frægðargötunni í Hollywood og var sá dagur gerður að Backstreet Boys-deginum. Þá léku þeir skemmtilegt aukahlutverk í kvikmyndinni This Is the End sem var sýnd í kvikmyndahúsum í fyrra. STOFNUÐ 1990 í Bretlandi MEÐLIMIR Robbie Williams, Gary Barlow, Mark Owen, Howard Donald og Jason Orange. STOFNUÐ 1984 í Boston, BNA MEÐLIMIR Jordan og Jonat- han Knight, Joey McIntyre, Donnie Wahlberg og Danny Wood.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.