Fréttablaðið - 21.01.2014, Side 30
21. janúar 2014 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 26
Rekja má uppruna strákabanda til
rakarakvartettanna sem voru vin-
sælir seint á 19. öld. Orðið stráka-
band er hins vegar yfirleitt notað
til að lýsa hljómsveitum sem voru
stofnaðar á áttunda áratugnum
og fram til dagsins í dag. Stráka-
bönd á borð við Osmonds, Jackson
5 og Monkees ruddu brautina fyrir
hljómsveitir nútímans þó þessar
sveitir séu sjaldnast flokkaðar með
hefðbundnum strákaböndum.
Boston-grúppunni New Edition
hefur oft verið eignaður heiðurinn
af því að hafa komið strákabanda-
bylgju af stað á níunda áratugnum.
Tónlistarmaðurinn Maurice Starr
fékk innblástur þegar hann sá hve
vinsæl New Edition varð og stofn-
aði New Kids on the Block árið
1984, fyrsta strákabandið sem sló
í gegn.
Í kjölfarið tóku umboðsmenn í
Evrópu sig til og stofnuðu sín eigin
strákabönd. Nigel Martin-Smith
myndaði Take That árið 1990 og
Tom Watkins sveitina East 17 árið
1991. Take That sló öll met og náðu
allar smáskífur bandsins nema ein
toppsæti í Bretlandi.
Írski umboðsmaðurinn Louis
Walsh, sem margir þekkja í dag
úr hæfileikaþáttunum X Factor,
hoppaði á strákabandsvagninn
og stofnaði írska útgáfu af Take
That, strákabandið Boyzone, árið
1993. Önnur strákabönd sem nutu
velgengni í Bretlandi á svipuðum
tíma voru Let Loose, MN8, 911 og
Damage. Undir lok tíunda áratug-
arins seig hins vegar frægðarsól
bandanna til viðar og þau hættu
hvert af öðru.
Á miðjum tíunda áratugnum nutu
hylli strákabönd sem fluttu R&B
og gospelskotna tónlist, til dæmis
Boyz II Men sem var stofnuð árið
1988 og All-4-One sem var stofnuð
árið 1993. Strákabandasprengingin
í Bandaríkjunum varð þó ekki fyrr
en árið 1997 þegar sveitir á borð
við Backstreet Boys, 98 Degress,
´N Sync og Hanson voru stofnaðar.
Simon Cowell var farsæll
umboðsmaður strákasveita. Hann
sá um sveitirnar 5ive og Westlife.
Hann steig hins vegar feilspor
á þessum tíma því hann hafnaði
tveimur af stærstu strákaböndun-
um; Take That og Busted.
Segja má að strákabönd hafi
gengið í endurnýjun lífdaga í
kringum árið 2010 þegar sveitirnar
Big Time Rush, The Wanted og One
Direction komu fram á sjónarsvið-
ið. Af þessum nýju böndum er One
Direction það langvinsælasta og er
í tíunda sæti á lista yfir söluhæstu
strákabönd allra tíma. Hljómsveit-
in lenti í þriðja sæti í sjöundu seríu
bresku X Factor-þáttanna árið 2010
og komst í kölfarið á samning hjá
Simon Cowell. One Direction er
meðal annars fyrsta bandið í sögu
Billboard 200 sem hefur komið
fyrstu þremur plötum sínum beint
í fyrsta sæti.
STRÁKASVEITIR
SNÚA AFTUR
Skilgreining á orðinu strákaband er poppgrúppa sem skipuð er myndarlegum,
ungum mönnum sem spila tónlist sem höfðar til ungra aðdáenda. Bylgja
strákabanda hófst um miðjan níunda áratuginn og reis faldur hennar hæst í
byrjun tíunda áratugarins þegar strákabönd réðu ríkjum á vinsældalistum. Nú
virðist ný bylgja vera að rísa með tilkomu sveitarinnar One Direction.
1. Backstreet Boys, Bandaríkin, 130 milljónir seldra platna
2. The Osmonds, Bandaríkin, 102 milljónir seldra platna
3. The Jackson 5, Bandaríkin, 100 milljónir seldra platna
4. New Kids on the Block, Bandaríkin, 80 milljónir seldra platna
5.-6. Boyz II Men, Bandaríkin, 60 milljónir seldra platna
5.-6. Menudo, Púerto Ríkó, 60 milljónir seldra platna
7. ´N Sync, Bandaríkin, 50 milljónir seldra platna
8. Westlife, Írland, 50 milljónir seldra platna
9. Take That, Bretland, 45 milljónir seldra platna
10. One Direction, Bretland/Írland, 35 milljónir seldra platna
* Heimild: Wikipedia
Söluhæstu strákabönd allra tíma
STOFNUÐ
Á Flórída árið 1993
MEÐLIMIR
A. J. McLean, Howie
Dorough, Nick Carter,
Kevin Richardson og
Brian Littrell.
➜ Take That Hljómsveitin naut gríðarlegra
vinsælda á fyrri hluta tíunda áratugarins en babb
kom í bátinn þegar Robbie hætti árið 1995. Hinir
fjórir kláruðu tónleikaferðalag um heiminn en
hættu svo árið 1996, mörgum unglingsstúlkum
til sárra vonbrigða. Fjórmenningarnir komu aftur
saman árið 2006 eftir að þeir tóku upp heimildar-
mynd um bandið og fóru í tónleikaferðalagið The
Ultimate Tour um Bretlandi. Þeir gáfu út plötuna
Beautiful World árið 2006 og Circus árið 2008 og
urðu gríðarlega vinsælir þó Robbie vantaði. Hann sneri aftur í bandið árið
2010 og þá kom platan Progress út sem varð þá sú plata á 21. öldinni sem
seldist hraðast. Í október árið 2011 tilkynntu strákarnir í Take That að þeir
ætluðu að taka sér pásu en þeir komu fram á lokaathöfn Ólympíuleikanna
árið 2012, þó án Robbies. Í maí í fyrra tilkynnti Mark að Take That ætlaði að
hefja upptökur á sjöundu stúdíóplötu sinni í ár. Þeir hafa slegið hvert metið á
fætur öðru og eru vinsælasta strákaband allra tíma í Bretlandi.
➜ New Kids on the Block
Sveitin er oft kölluð NKOTB en átti upp-
runalega að heita NYNUK. Pródúsent-
inn Maurice Starr setti hana saman í
Boston. Bandið var gríðarlega vinsælt
seint á níunda áratugnum og snemma
á tíunda áratugnum. Það lagði upp
laupana árið 1994 og voru gerðar margar misheppn-
aðar tilraunir til að koma grúppunni aftur saman.
Strákarnir hittust á ný árið 2007 í laumi og tóku upp
nýja plötu, The Block, og fóru í kjölfarið í tónleika-
ferðalag árið 2008. Þeir fóru svo í tónleikaferðalag
með Backstreet Boys á árunum 2011 til 2012 og var
þessi nýja súpergrúppa nefnd NKOTBSB. New Kids
on the Block gáfu út plötuna 10 í fyrra sem hlaut
afar misjafna dóma.
ONE DIREC-
TION Endurkoma
strákabandanna
á 21. öldinni er
að mörgu leyti
One Direction að
þakka en sveitin
hefur notið
mikilla vinsælda
meðal ungra
stúlkna síðustu
misseri.
MYNDIR/GETTY IMAGES
Lilja Katrín
Gunnarsdóttir
liljakatrin@frettabladid.is
➜ Backstreet Boys Kevin yfirgaf sveitina eftir tónleikaferðalagið Never Gone árið
2006. Fjórmenningarnir gáfu út tvær plötur eftir brotthvarf hans en í apríl árið 2012 tilkynnti
grúppan að Kevin væri genginn til liðs við þá aftur. Ári seinna gáfu þeir út plötuna In a World
Like This og fóru í tónleikaferðalag. Í apríl sama ár héldu þeir upp á tuttugu ára starfsafmæli
og sýndu brot úr væntanlegri heimildarmynd sem verður frumsýnd á þessu ári. 22. apríl í fyrra
fengu strákarnir stjörnu á Frægðargötunni í Hollywood og var sá dagur gerður að Backstreet
Boys-deginum. Þá léku þeir skemmtilegt aukahlutverk í kvikmyndinni This Is the End sem var
sýnd í kvikmyndahúsum í fyrra.
STOFNUÐ
1990 í Bretlandi
MEÐLIMIR
Robbie Williams, Gary
Barlow, Mark Owen,
Howard Donald og
Jason Orange.
STOFNUÐ
1984 í Boston, BNA
MEÐLIMIR
Jordan og Jonat-
han Knight, Joey
McIntyre, Donnie
Wahlberg og Danny
Wood.