Fréttablaðið - 21.01.2014, Page 14

Fréttablaðið - 21.01.2014, Page 14
21. janúar 2014 ÞRIÐJUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is DÆGURMÁL: Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is VÍSIR: Kristján Hjálmarsson, kristjan@visir.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÁ DEGI TIL DAGS Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is Skólamál eru einn mikilvægasti mála- flokkur stjórnmálanna og geta skipt sköpum fyrir velferð og hagsæld sam- félagsins. Verulegu fjármagni er varið til menntamála, einkum þeirra skóla- stiga sem eru á forræði sveitarfélaga. Í leikskólum og grunnskólum er unnið gott starf, sem birtist í jákvæðum við- horfum nemenda og forelda. En mikl- ar áskoranir felast í brotthvarfi nem- enda úr framhaldsskólum, háu hlutfalli drengja sem ekki nýtur sín í skóla, fjöl- breytileika nemendahópsins og óviðun- andi starfskjörum kennara. Umræða um þessi atriði hefur staðið árum saman en árangur lætur á sér standa – kannski vegna þess að við hlustum ekki nægilega vel á fagfólkið sem vinnur verkin. Forgangsverkefni Ný PISA-könnun sýnir að staða íslenskra nemenda hefur versnað í undirstöðu- greinum, einkum á landsbyggðinni. Í Reykjavík er árangur nemenda í stærð- fræði yfir meðaltali Norðurlanda en undir í lestri og náttúrufræði. Sérstak- lega hallar þar á drengi sem rímar við nýlegar niðurstöður um að 30% drengja geti ekki lesið sér til gagns við lok grunnskóla. Afleiðingarnar eru afdrifa- ríkar fyrir ungt fólk á leið út í lífið. Það verður að vera forgangsverkefni að efla læsi og lesskilning allra barna og beita þeim aðferðum sem skila árangri. Leið til jafnaðar Ég er jafnaðarmaður og trúi því að sam- félaginu farnist best ef allir hafa jöfn tækifæri til að láta drauma sína rætast. Það er krefjandi markmið en leiðin að því liggur um menntakerfið, þar getum við og eigum að nesta börnin okkar fyrir framtíðina. Það eru ekki önnur tækifæri til að leggja grunninn. Árangur mun á endanum ráðast af því að stjórnvöld og fagfólk í skólum vinni saman að mótun markmiða og aðgerða, þar með talið um hvernig megi auka veg og virðingu kennarastarfsins. Ég er til- búinn að leggja mitt af mörkum við að mynda slíka breiðfylkingu. Ég býð mig fram í flokksvali Samfylk- ingarinnar 7.-8. febrúar, ekki síst til að beita mér í þessum mikilvæga mála- flokki. Fylkjum liði í menntamálum MENNTUN Skúli Helgason fv. alþingismaður ➜ Árangur mun á endanum ráðast af því að stjórnvöld og fagfólk í skólum vinni saman að mótun markmiða og aðgerða… Innskot í Fréttablaðið skilar árangri! MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið landsins með glæsilegt forskot á keppinautana. Meðallestur Fréttablaðsins í aldurshópnum 25-54 ára er 73% á höfuðborgarsvæðinu.* Við bendum auglýsendum á að notfæra sér forskotið þegar þeir velja dreifingarleið fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins. Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448 eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is *P re nt m ið la kö nn un C ap ac en t o kt ób er –d es em be r 2 01 2 – hö fu ðb or ga rs væ ði 2 5- 54 á ra HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU Aftur til upprunans Umræðan um 50 milljarða frímarkið á bankaskatt tók enn eina slaufuna í gær þegar í ljós kom, eftir fund í efnahags- og viðskiptanefnd, að þessi upphæð varð ekki til í meðförum fjármálaráðuneytisins, eins og Frosti Sigurjónsson, formaður nefndar- innar, hafði haldið fram, heldur einmitt hjá Frosta sjálfum og meirihluta nefndarinnar. Ógeð eður ei? Enn er því haldið fram að upp- hæðin hafi ekki verið sett á til að hygla MP banka um- fram önnur fyrirtæki, vegna tengsla nú- verandi og fyrrver- andi forsvarsmanna bankans við ríkisstjórnina og það má vel vera rétt. Hins vegar er ekki skrítið, miðað við þá snúninga sem málið hefur tekið síðustu daga, að fólk spyrji spurninga. Svör frá meirihlutanum hafa verið ónákvæm eða röng og því sjálfsagt að fá nákvæmlega allt upp á borðið til að taka af öll tvímæli. Það er ekki „ógeðfelld pólitík“. Hverjir eru nasistarnir? Stóra Austurríkismálinu lauk í bili í gær með sameiginlegri yfirlýsingu HSÍ, Austurríkismanna og Evrópska handknattleiks- sambandsins þar sem meðal annars var undirstrikað að rasismi og pólitík ættu ekki heima í umfjöllun um alþjóðleg íþróttamót. Eitt slær mann sérstaklega í yfirlýsingunni, en það er sú trú Austurríkismanna að samlíking Björns Braga Arnarssonar milli sigurs Íslands og innlimunar Þýskalands á Austurríki árið 1938 „endurspegli ekki skoðun íslensku þjóðarinnar“. Það er líka vonandi, því að þetta bull er fyrst og fremst sagn- fræðilega ónákvæmt, þar sem sárafáum var „slátrað“ þegar Þjóðverjar innlimuðu Austurríki árið 1938. Þess utan er móðgunin mest við íslenska liðið sem var líkt við nasista. thorgils@frettabladid.is F arsinn í kringum frískuldamark bankaskattsins er vandræðalegur fyrir stjórnarmeirihlutann á Alþingi. Enginn virðist vita almennilega hvernig eigi að rökstyðja 50 milljarða viðmið, sem sett var inn í lög um skattinn að tillögu meirihluta efnahags- og viðskiptanefndar, eða hvaðan tillagan um þessa upphæð kom. Málið er sennilega fremur til marks um hefðbundið íslenzkt fúsk í lagasetningu en eitthvert spillingarhneyksli. Það breytir því ekki að það er vont. Þegar frumvarpið um bankaskatt kom fram báðu sparisjóðirnir um að þeim yrði hlíft við skatt- inum með því að skuldir undir þremur milljörðum króna yrðu undanþegnar honum. Straumur fjárfestingabanki vildi láta milda áhrifin á sig og lagði til sjö milljarða. Einhverra hluta vegna varð lendingin 50 milljarðar, sem ekkert fjármálafyrirtæki lagði til. Á vefsíðunni Andríki var bent á að það frískuldamark þýddi að MP banki slyppi við áhrif skattsins að miklu leyti, en hann skuldaði í haust um 57 milljarða króna. Síðan hefur verið bent á náin tengsl milli stjórnenda MP banka og forystumanna í stjórnarliðinu. Það er ekki þar með sagt að þau tengsl hafi skipt nokkru máli þegar ákvörðunin um frískulda- markið var tekin, en það er eðlilegt að spurt sé. Ef stjórnvöld hefðu málefnaleg svör og vandaðan rökstuðning á reiðum höndum væri auðvelt að blása alla tortryggni og efasemdir út af borðinu. Þar stendur hins vegar hnífurinn í kúnni. Enginn hefur svörin á reiðum höndum, heldur bendir hver á annan. Vandræðalegust er framganga Frosta Sigurjónssonar, for- manns viðskipta- og efnahagsnefndar. Hann byrjaði á að segja að færa mætti rök fyrir því að MP banki hefði átt að sleppa alveg við skattinn af því að hann hefði ekki valdið ríkissjóði tjóni í hruninu. Það var augljóslega röng fullyrðing – MP banki átti til dæmis sinn þátt í ástarbréfaviðskiptunum svokölluðu – enda dró Frosti hana til baka í Fréttablaðinu á laugardag og sagðist bara ekkert vita hvaðan honum hefði komið þessi hugdetta. Svo er það önnur saga að það er hæpin forsenda fyrir skattlagningu að ætla að refsa sumum bönkum fyrir að hafa valdið tjóni en öðrum ekki. Frosti hélt því líka fram til að byrja með að 50 milljarða talan hefði komið frá fjármálaráðuneytinu, en hann vissi ekkert um það hvernig hún væri fundin út. Þessu hafnaði Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra um helgina, svo og fulltrúar ráðuneytisins sem mættu á fund þingnefndarinnar í gærmorgun. Nú viðurkennir Frosti að talan hafi komið frá nefndarmeirihlutanum, en hann veit ennþá ekki hvernig hún var rökstudd. Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, samþykkti 50 milljarða markið í nefndinni og lýsti meira að segja ánægju með það í nefndaráliti. Samt hefur hann farið fram á fundi til að fá að vita hvaðan tillagan um það kom og hvernig talan var fundin út. Átti hann ekki að vita það? Eiga þingmenn ekki almennt að vita hvernig það sem þeir samþykkja og lýsa ánægju með er rökstutt? Ísland er lítið land. Það er ekki alls ekki alltaf réttlætanlegt að gera tengsl tortryggileg, jafnvel þótt fyrirtæki undir stjórn manna sem eru nátengdir stjórnvöldum græði á ákvörðunum þeirra síðarnefndu. En þá þurfa ákvarðanirnar líka að vera gegnsæjar, málefnalegar og rökstuddar. Það vantar verulega upp á það í þessu máli – og það gerir það tortryggilegt, hvort sem stjórnmálamönnunum líkar það betur eða verr. Hvaðan kom tillagan og hvernig var hún rökstudd? Bankaskattsfúsk

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.