Fréttablaðið - 21.01.2014, Side 34
21. janúar 2014 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 30SPORT
HANDBOLTI Það tók sinn tíma en hundleiðinlegt
handboltalið Makedóna var lagt á elleftu stundu
með marki nýliðans Gunnars Steins Jónssonar.
Leikurinn tók á en sigur Íslands var sanngjarn.
Stefnan var að koma til leiks með látum.
Keyra yfir þunga Makedóna og skilja þá eftir í
rykinu. Er óhætt að segja að það hafi ekki geng-
ið eftir. Strákarnir okkar voru þeir sem mættu
þungir og voru hreinlega sofandi. Er þeir vökn-
uðu var staðan orðin 4-0 fyrir Makedóna.
Smám saman tóku þeir þó við sér og Björgvin
Páll og Ásgeir Örn ákváðu í sameiningu að taka
leikinn yfir. Þeir léku á als oddi. Ásgeir skoraði
frábær mörk og bjó nánast öll hin mörkin til á
meðan Björgvin skellti í lás í markinu. Hann
varði eina fjórtán bolta í hálfleiknum og Ásgeir
kom að um tíu mörkum.
Ísland jafnaði, 7-7, eftir nítján mínútna leik
og var komið yfir skömmu síðar. Strákarn-
ir höfðu svo þriggja marka forystu í leikhléi,
14-11. Frábær viðsnúningur eftir afar þunga og
erfiða byrjun.
Síðari hálfleikur byrjaði því miður nákvæm-
lega eins og sá fyrri. Makedónar skoruðu fyrstu
þrjú mörkin og jöfnuðu leikinn. Það var smá
basl á sóknarleiknum og Björgvin ekki í sama
stuði og í fyrri hálfleik. Strákarnir hleyptu þó
Makedónum aldrei fram úr sér en þeir voru
samt aldrei langt undan. Strákunum gekk ekk-
ert að hrista þá almennilega af sér.
Mikil spenna var undir lokin en Gunnar
Steinn Jónsson skoraði sigurmarkið nokkrum
sekúndum fyrir leikslok. Vel útfærð sókn og
nýliðinn brást ekki á ögurstundu. Enn einn sig-
urinn staðreynd og meiðslum hrjáð lið Íslands
heldur áfram að gera flotta hluti í Danmörku.
Ásgeir Örn vex með hverri raun á þessu
móti og hefur spilað frábærlega. Sérstaklega
aðdáunarverð frammistaða í ljósi þess að hann
hefur nánast ekki spilað neinn handbolta í
vetur. Hann og Rúnar mynda fínt par og allar
áhyggjur af hægri vængnum fyrir mót voru
óþarfar.
Björgvin Páll átti enn einn stórleikinn en
hann hefur verið frábær í öllum leikjum nema
einum á mótinu. Fyrirliðinn Guðjón Valur var
ekki fjarri því að spila þriðja leikinn í röð með
hundrað prósent skotnýtingu. Enn og aftur
stórkostlegt mót hjá járnmanninum okkar sem
bregst aldrei.
Róberti hefur vaxið ásmegin með hverjum
leik og hann er að finna taktinn. Svo er gaman
að sjá óreyndu strákana koma inn fulla af
sjálfstrausti og leysa sín hlutverk vel í hverjum
leiknum af öðrum.
Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari hefur
stýrt liðinu stórkostlega á þessu móti. Nær að
rúlla liðinu vel og fær allt sem hann vill út úr
mönnum. Núna sigur gegn fínu liði Makedón-
íu og það án Arons Pálmarssonar sem gat rétt
leikið fyrstu mínútur leiksins. Frammistaðan
á mótinu hingað til er mikill sigur fyrir hann.
Seiglusigur gegn Makedóníu
Strákarnir okkar brugðust ekki gegn Makedóníu. Eft ir brösuga byrjun náðu þeir yfi rhendinni og unnu sigur,
29-27. Liðið á enn möguleika á því að spila um fi mmta sæti Evrópumótsins sem væri frábær árangur.
TEKIÐ Á ÞVÍ Sverre Jakobsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson taka hér á skyttunni Filip Mirkulovski sem skoraði
þrjú mörk fyrir Makedóníu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
HANDBOLTI „Ég fann mig vel og
þá lætur maður vaða. Það var allt
inni hjá mér í dag,“ sagði Ásgeir
Örn Hallgrímsson en hann átti
stórkostlegan leik gegn Makedón-
um í gær. Þegar allt var í rugli í
fyrri hálfleik tóku hann og Björg-
vin Páll leikinn yfir.
„Þegar maður skorar þá opn-
ast allt fyrir manni. Sjálfstraust-
ið kemur og allt verður náttúru-
legt. Það hægist á leiknum og
allir verða opnari en áður. Ég
var í „zone-inu“ eins og Peyton
Manning gegn New England,“
sagði Ásgeir en hann er mik-
ill áhugamaður um NFL-deild-
ina og missti ekki af leiknum á
sunnudag.
„Það gekk ekkert í byrjun hjá
okkur. Svo náðum við því fljótt
aftur. Þeir eru góðir í að rífa
hraðann niður og drepa leikinn.
Þeir spila alveg hundleiðinlega
og það er því gott að hafa klárað
leikinn. Svo ákváðum við að hafa
þetta spennandi í lokin.“
Ásgeir hefur spilað frábærlega
á mótinu og það kemur mörgum á
óvart enda hefur hann lítið spilað
með félagsliði sínu, PSG.
„Ég er sáttur við minn þátt og
þetta hefur verið gaman. Það var
búið að tala mikið um að ég væri
ekkert að spila sem er alveg rétt.
Mér fannst ég þurfa að sýna mig
og sanna og þar á meðal fyrir
sjálfum mér. Ég undirbjó mig
mjög vel fyrir mótið og svo hefur
þetta gengið mjög vel.“ - hbg
Ég var eins og Peyton Manning í NFL
Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði sex mörk og átti stórleik fyrir Ísland gegn Makedóníu í Herning í gær.
FRÁBÆR
Ásgeir Örn
skoraði sex
mörk fyrir
Ísland í
gær. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/DANÍEL
Henry Birgir
Gunnarsson
henry@frettabladid.is
Daníel
Rúnarsson
danielr@365.is
Frá EM í Álaborg
HANDBOLTI „Þetta var erfiður leikur
og þá aðallega andlega. Það sýnir
gríðarlegan styrk að vinna hálfleikinn
með þriggja marka mun eftir að hafa
lent 4-0 undir,“ sagði Björgvin Páll
Gústavsson en það var ekki síst stór-
leik hans að þakka að Ísland vann sig
aftur inn í leikinn.
Björgvin skellti í lás í fyrri hálf-
leiknum og varði fjórtán skot.
„Ég er þokkalega sáttur við mína
frammistöðu en ég hefði viljað verja
meira. Ég var í smá vandræðum með
Lazarov en það slapp því hinir voru
slappir. Ég hefði samt viljað hafa það
öfugt. Ásgeir var annars geðveikur og
í miklu stuði í þessum leik. Frábært
að fylgjast með honum.“
Það tók sinn tíma fyrir strákana
að klára Makedóna og var í raun ekki
gert fyrr en alveg í blálokin. Make-
dónar gáfust ekki upp og komu alltaf
til baka. „Við hefðum viljað klára
þetta fyrr en mér er samt eiginlega
alveg sama fyrst við unnum hvort eð
er. Þetta var flott frammistaða á end-
anum og það eru alltaf nýir menn að
stíga upp hjá okkur og í raun alveg
sama hver er inná. Gunnar Steinn
kemur til að mynda og klárar leikinn
fyrir okkur. Það er margt virkilega
ánægjulegt í leik okkar.“ - hbg
Ég hefði viljað verja fl eiri skot
HANDBOLTI „Þeir vildu kannski hleypa mér inn en það kom aldrei annað til
greina en að setja þennan bolta í netið,“ sagði nýliðinn Gunnar Steinn Jóns-
son en hann skoraði sigurmark Íslands í leiknum í gær.
Hans fyrsta sigurmark fyrir landsliðið.
„Ég var aldrei í vafa um að ég myndi skora. Ég
skildi ekki alveg af hverju ég var svo rekinn af velli
en það skiptir ekki máli núna. Við vorum að bíða eftir
að leikurinn kláraðist í stað þess að ganga frá honum.
Sem betur fer gekk þetta upp.“
Gunnar Steinn hefur fengið talsvert traust frá þjálfar-
anum í Danmörku og nýtt sínar mínútur vel.
„Ég er þakklátur fyrir traustið og fæ að spila
lokamínúturnar. Ég er ekki 19 ára og hef alveg
spilað nokkra mikilvæga leiki. Þegar gengur vel er líka
léttara að koma af bekknum.“ - hbg
Þakklátur fyrir traustið
HANDBOLTI „Ég er mættur með
allt stóðið. Þau verða að sjá
hvernig þetta er hjá pabba í
vinnunni,“ sagði fjölskyldumað-
urinn Guðjón Valur Sigurðsson
en hann var mættur með börnin
sín þrjú á viðtalasvæðið eftir leik
í gær.
„Við ákváðum að láta keyra
yfir okkur í upphafi og það var
ekki spes. Ásgeir ákvað að mæta
í vinnuna fyrsta korterið en svo
komum við hinir smám saman
með. Það er hundleiðinlegt að
spila við lið sem kemst upp með
að spila svona hægt. Það er
ánægjulegt að hafa unnið en ég
vil henda öllu öðru sem tengist
þessum leik í ruslið. Vil ekki sjá
hann aftur eða greina hann.“
Enn eina ferðina náði þjálfar-
inn að rúlla liðinu vel og allir
skiluðu sínu.
„Það hefur gengið vel í síðustu
leikjum sem er gott. Við reyn-
um alltaf að taka einn leik fyrir
í einu og það er stígandi í liðinu
og hefur gengið vel. Við kiknum
ekki undan pressu og ég er
ánægður með okkur.“ - hbg
Hendum leikn-
um í ruslið
GUÐJÓN VALUR Fyrirliðinn fagnar einu
marka sinna í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
BJÖRGVIN PÁLL GÚSTAVSSON
ÚRSLIT
EM 2014 Í DANMÖRKU
MILLIRIÐILL 1
ÍSLAND - MAKEDÓNÍA 29-27 (14-11)
Mörk Íslands (skot): Guðjón Valur Sigurðsson
6/2 (8/3), Ásgeir Örn Hallgrímsson 6 (11), Róbert
Gunnarsson 4 (4), Þórir Ólafsson 3 (4), Ólafur
Guðmundsson 3 (6), Gunnar Steinn Jónsson 2 (3),
Snorri Steinn Guðjónsson 2 (3), Vignir Svavarsson
1 (1), Bjarki Már Gunnarsson 1 (1), Rúnar Kárason
1 (3), Aron Pálmarsson (3).
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 20/2 (46/6,
43%), Aron Rafn Eðvarðsson (1/1, 0%).
Hraðaupphlaup: 5. Utan vallar: 8 mínútur.
Makedónía - Mörk (skot): Kiril Lazarov 7/1 (11/3),
Dejan Manaskov 5/4 (5/4), Goce Georgievski 5 (6),
Branislav Angelovski 3 (4), Filip Mirkulovski 3 (6),
Stojance Stoilov 2 (4), Zlatko Mojsoski 1 (1), Goce
Ojleski 1 (2).
Varin skot: Borko Ristovski 14 (42/1, 33%), Petre
Angelov (1/1, 0%).
Hraðaupphlaup: 4. Utan vallar: 10 mínútur.
AUSTURRÍKI - SPÁNN 27-28 (12-14)
DANMÖRK - UNGVERJAL. 28-24 (14-11)
STAÐAN
Danmörk 4 4 0 0 117-102 8
Spánn 4 3 0 1 123-113 6
Ísland 4 2 1 1 117-114 5
Ungverjaland 4 1 1 2 117-114 3
Makedónía 4 1 0 3 95-110 2
Austurríki 4 0 0 4 104-116 0
MILLIRIÐILL 2– LEIKIR DAGSINS
RÚSSLAND - KRÓATÍA KL. 14.45
FRAKKLAND - HV. RÚSSLAND KL. 17.00
PÓLLAND - SVÍÞJÓÐ KL. 19.15
STAÐAN
Frakkland 3 3 0 0 90-80 6
Króatía 3 2 0 1 83-73 4
Svíþjóð 3 2 0 1 83-74 4
Pólland 3 2 0 1 82-80 4
Rússland 3 0 0 3 77-88 0
Hv. Rússland 3 0 0 3 74-94 0