Fréttablaðið - 29.01.2014, Side 4
29. janúar 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 4
23.000 lítrar af þorra-bjór seldust
fyrstu helgina sem bjórinn var í
sölu í ár.
Það er um 46% aukning frá því í
fyrra, þegar 15,7 þúsund lítrar af
þorrabjór seldust fyrstu helgina.
Heimild: ÁTVR
SJÁVARÚTVEGUR Landssamband smá-
bátaeigenda krefst þess að ýsukvóti
verði aukinn um fimm þúsund tonn
án tafar, svo hægt sé að mæta með-
afla við þorskveiði. Kaup á ýsukvóta,
til að mæta meðafla, eru svo gott
sem vonlaus. Þegar hafa smábátasjó-
menn neyðst til að hætta veiðum
með yfirvofandi atvinnuleysi.
Örn Pálsson, framkvæmda-
stjóri LS, útskýrði þessa stöðu fyrir
atvinnuveganefnd Alþingis á fundi
nefndarinnar í gær, þar sem staða
sjávarútvegsins var til umfjöllunar.
Örn bætti við að þegar hafa smá-
bátasjómenn þurft að kaupa ýsu-
kvóta til að mæta meðafla fyrir
hálfan milljarð króna, og útgerðar-
kostnaður hefur stóraukist vegna
flótta undan ýsu á hefðbundnum
krókamiðum, en sjómenn ná vart á
hrein þorskmið sem liggja of djúpt
fyrir krókabátana.
„Það er óþolandi að þurfa að leita
að blettum þar sem eingöngu fæst
þorskur, og þetta hefur valdið því
að olíukostnaður hefur rokið upp úr
öllu valdi,“ sagði Örn og gagnrýndi
Hafrannsóknastofnun hart fyrir
ráðgjöf sína í ýsuveiðinni. Sagði
hann varfærni Hafró keyra fram
úr öllu hófi.
Björn Ævarr Steinarsson, for-
stöðumaður veiðiráðgjafarsviðs
Hafrannsóknastofnunar, sat fundinn
en aðspurður aftók hann að ýsukvóti
yrði aukinn til að mæta vandræðum
sjómanna. Minnti hann á að fimm til
sex lélegir ýsuárgangar hefðu mælst
á undanförnum árum, og það segði
ekki alla söguna þó veiðin væri ágæt
og mikið að sjá. - shá
Smábátasjómenn binda báta sína vegna kvótaleysis í ýsu en Hafró varar við kvótaaukningu:
Krefjast 5.000 tonna neyðarkvóta í ýsu
TIL VANDRÆÐA Fyrirsjáanlegt er að
kvóti í ýsu verði skertur, en á sama
tíma krefjast sjómenn aukningar.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundur@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Löður er með
á allan bílinn
Við erum á sex stöðum á höfuðborgarsvæðinu
www.lodur.is - Sími 544 4540
Rain-X býður upp á fullkomna yfirborðsvörn
Rain-X verndar bílinn, eykur útsýni og öryggi
Hreinn bíll eyðir allt að 7% minna eldsneyti
Elísabet
Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Föstudagur
8-18 m/s, hvassast SA-til.
UMHLEYPINGAR Bætir heldur í vindinn er líður á daginn og í kvöld verður fremur
stíf suðaustanátt og þykknar upp syðra. Vestanátt með snjókomu síðdegis á morgun
en annars víða rigning eða slydda en úrkomulítið á norðanverðu landinu.
-1°
5
m/s
0°
5
m/s
0°
4
m/s
5°
7
m/s
Á morgun
5-13 m/s, hvassast við A-ströndina.
Gildistími korta er um hádegi
-3°
-2°
3°
3°
-2°
Alicante
Basel
Berlín
17°
3°
-3°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
0°
4°
5°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
-2°
-2°
19°
London
Mallorca
New York
6°
17°
-5°
Orlando
Ósló
París
17°
-3°
5°
San Francisco
Stokkhólmur
15°
-4°
-2°
5
m/s
3°
8
m/s
0°
3
m/s
1°
2
m/s
-3°
3
m/s
-2°
3
m/s
-7°
2
m/s
1°
-1°
3°
3°
0°
SJÁVARÚTVEGUR Með hverjum deginum sem
líður dregur úr líkum á að takist að mæla
loðnustofninn og þar af leiðandi yrði nákvæm
ráðgjöf til veiða í uppnámi. Ekki er loku
fyrir það skotið að göngumynstur loðnunnar
verði óhefðbundið; loðnan gangi ekki norður
og austur fyrir land þar sem veiðarnar hafa
verið mestar undanfarin ár heldur verði um
vesturgöngu að ræða. Það skapar sömu vand-
ræði því þá gefst of stuttur tími til mælinga
og veiða áður en loðnan hrygnir og drepst.
Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri nytja-
stofnasviðs Hafrannsóknastofnunar, útskýrði
þessa stöðu fyrir atvinnuveganefnd Alþing-
is á fundi nefndarinnar í gær, þar sem staða
sjávarútvegsins var til umfjöllunar.
Eins kom fram í máli Þorsteins að Haf-
rannsóknastofnun bíður átekta eftir fréttum
frá loðnuveiðiflotanum norður af landinu, en
ekkert hefur fundist dögum saman. Rann-
sóknaskipin hafa ekki sinnt leit nema í sex
daga, en fjárheimildir leyfa ekki leit þegar
lítið sem ekkert er að frétta. Í þeirri leit
fannst aldrei magn af loðnu sem réttlætti
mælingu.
Aðeins hafa verið gefnar út heimild-
ir til veiða á 160 þúsund tonnum, og í hlut
íslenskra skipa komu um 85 þúsund tonn
– en heildarafli á vertíðinni í fyrra var um
400 þúsund tonn. Það er til marks um hversu
staðan er óvenjuleg að loðnan er oft gengin
upp í fjöru við Suðausturland á tímabilinu
frá mánaðamótum janúar/febrúar og fram í
miðjan febrúarmánuð. Eftir það gengur hún
hratt með strandsjónum til að hrygna á stóru
svæði við Suður- og Vesturland.
„En ef loðnan fer ekki að birtast fyrir norð-
an og austan þá bendir margt til að hún gæti
komið vestan að, en það gerðist síðast 2001,“
sagði Þorsteinn og útskýrði að þá kemur loðn-
an beint undan ísnum við Grænland mjög
seint og fer beint í hrygningu, aðallega fyrir
vestan land.
Á fundinum bættust við upplýsingar um að
markaðsmál loðnu eru miklum vafa undir-
orpin, ef hún þá veiðist á annað borð í ein-
hverju verulegu magni – bæði til mjöl- og
lýsis framleiðslu auk frystingar loðnu og
hrogna. svavar@frettabladid.is
Góð vertíð sífellt ólíklegri
Með hverjum deginum sem líður minnka líkur á góðri loðnuvertíð. Ekkert finnst að ráði fyrir norðan land og
Hafrannsóknastofnun fer að falla á tíma með mælingu á stofninum, en getur lítið beitt sér vegna fjárskorts.
Páll Jóhann Pálsson, þingmaður Framsóknarflokksins, spurði Þorstein af hverju rannsóknaskipunum væri ekki
beitt til leitar á loðnu fyrir norðan land, og hvort stofnunin „tímdi ekki“ að hjálpa til við loðnuleitina.
Ástæðu þessa útskýrði Þorsteinn með þeirri einföldu staðreynd að í ljósi framlaga til stofnunarinnar væru
úthaldsdagar rannsóknaskipanna á starfsáætlun tæplega 200. Á sama tíma eru óskir um notkun á skipunum
upp á 400 daga samtals.
„Því er ljóst að það verður að forgangsraða hjá stofnuninni miðað við fjárheimildir,“ sagði Þorsteinn.
„Þetta er gagnrýnivert, ég tek undir það, og ekki sú staða sem við vildum vera í einfaldlega vegna þess að
loðnan er bæði mikilvægur veiðistofn en ekki síður sem ein aðalfæða annarra nytjastofna við Ísland,“ bætti
hann við og að á meðan ekki væri hægt að beita skipi til rannsókna væri lítið hægt að læra um það sem er
að gerast í stofninum og í hafinu.
Framlög leyfa ekki leit og rannsóknir
Í HÖFN Birtingur
í heimahöfn í Neskaup-
stað á síðustu vertíð.
Mikil uppgrip tapast hjá
fiskvinnslufólki ef fram
heldur sem horfir.
➜ Gögn Hagstofu Íslands sýna að útflutningsverðmæti síðustu loðnuvertíðar var rúmir 33
milljarðar; því kosta hver 100 þúsund tonn þjóðarbúið rúmlega átta milljarða
miðað við sömu markaðsaðstæður.
MYND/KRISTÍN SVANHVÍT
SVÍÞJÓÐ Flokkurinn Svíþjóðardemó-
kratar sótti um og fékk árið 2010 1,4
milljónir sænskra króna, jafngildi
um 25 milljóna íslenskra króna, í
styrk frá sænska þinginu vegna
kvennahreyfingar sem ekki var til.
Aftonbladet hefur það eftir hátt-
settum manni innan flokksins að
send hafi verið fölsuð fundargerð
frá stjórnarfundi kvennahreyfing-
arinnar sem átti að hafa farið fram
áður en sótt var um styrkinn. Sam-
kvæmt heimasíðu kvennahreyf-
ingarinnar var fyrsti ársfundurinn
haldinn hálfu ári eftir umsóknina
eða í maí 2011. - ibs
Svíþjóðardemókratar:
Milljónastyrkur
út á fölsuð skjöl
FLUGMÁL Hagstæðir háloftavindar
yfir norðanverðu Atlantshafi síð-
astliðinn fimmtudag, urðu til þess
að allar aðalflugleiðir milli Evr-
ópu og Ameríku lágu yfir Íslandi,
að því er segir í tilkynningu frá
Isavia.
„Miklar annir voru í flugstjórn-
armiðstöðinni í Reykjavík og
þurfti að manna ellefu af fimm-
tán starfsstöðvum sem er álíka og
gerðist í eldgosinu í Eyjafjallajökli
þegar beina þurfti allri flugumferð
yfir hafið norður fyrir gosstöðina,“
segir í tilkynningunni. Þar kemur
einnig fram að um þriðjungur af
heildarumferðinni yfir Atlantshafi
sé um íslenska flugstjórnarsvæðið
en undanfarna mánuði hafi hlut-
fallið verið óvenju hátt. - gar
Mikil umferð yfir Íslandi:
Flogið eins og í
eldgosinu 2010
EYJAFJALLAJÖKULL Beina þurfti flugi
norður fyrir Ísland vegna ösku frá Eyja-
fjallajökli. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM