Fréttablaðið - 29.01.2014, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 29.01.2014, Blaðsíða 6
29. janúar 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 6 1. Um hversu mörg prósent hefur umsóknum hælisleitenda fjölgað frá 2011? 2. Hvað er há upphæð í verkfallssjóði Kennarasambandsins? 3. Hvaða sveitarstjórn vill varafl ugvöll fyrir millilandafl ug? SVÖR: 1. 130 prósent. 2. 1400 milljónir króna. 3. Sveitarstjórn Skagafjarðar. Hágæða flotefni í Múrbúðinni Neytendur athugið! Múrbúðin selur al lar vörur s ínar á lágmarksverði fyr ir a l la , a l l taf . Gerið verð- og gæðasamanburð! Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Weberfloor 4150 flotefni 4-30mm 2.495 Weberfloor 4160 Hrað- þornandi lotefnif 2-30mm 3.795 Weberfloor 3104 refjastyrktT otefni fl -50mm5 .7952 Weberfloor 4350 Flotefni fyrir 20-80 mm 2.190 Weberf 630 4 urolitD ðnaðai útiflo& .6905 rDeka Acryl grunnu 1kg 1.225 5kg 4.590 Reykjavík Kletthálsi 7. Opið má-fö kl. 8-18, laug. 10-16 Reykjanesbær Fuglavík 18. Opið má-fö kl. 8-18 Akureyri Óseyri 1. Opið má-fö kl. 8-18, laug. 10-14 Munið 5% Pallaafsláttinn Leitið tilboða í meira magn. Látið fagmenn vinna verkin! loor r t SVEITARSTJÓRNARMÁL Af tíu sveitarfélögum, þar sem hlutfall inn- flytjenda er hæst, hefur ekkert mótað stefnu í málefn- um innflytjenda. Verkefni sveitar- félaganna í mála- flokknum eru nær eingöngu bund- in við lög- bundin verkefni á borð við túlkaþjón- ustu í leik- skólu m og skólum, auk sérkennslu og íslensku- kennslu. Bæj- arstarfsmenn sem tala algeng tungumál innflytjenda aðstoða við hin ýmsu mál. Hlutfall inn- flytjenda hefur farið vaxandi á Íslandi undan- farin ár og er nú 6,7 prósent fyrir landið allt. Í sumum sveitarfélögum er hlutfallið þó mun hærra. „ Þ a ð e r feiknahátt hlutfall erlends verkafólks hér í sveit,“ segir Guðbjartur Gunnarsson, oddviti Eyja- og Miklaholtshrepps. Þar er hlutfall erlendra borgara hæst á landinu, eða 30 prósent. Guðbjartur segir sveitarfélagið ekki sinna málaflokknum sérstak- lega, en að skólinn sæki til Jöfnun- arsjóðs sveitarfélaga vegna aðstoð- ar við börn af erlendum uppruna. Skólastjóri Laugargerðisskóla segir lítið fást frá sjóðnum. „Það væri æskilegt ef hægt væri að gera meira. Við höfum fengið túlkaþjónustu á tveimur tungumál- um, en ég notfæri mér líka eldri nemendur til þess að þýða blöð og slíkt,“ segir Kristín Björk Guð- mundsdóttir skólastjóri. Í Sandgerði er þriðja hæsta hlut- fall innflytjenda á landinu. „Við höfum gert ýmislegt til að auðvelda aðlögum fólks af erlendum uppruna í leik- og grunnskólanum, Innflytjendum býðst helst íslenskukennsla og túlkun Hlutfall innflytjenda á Íslandi hefur aukist mikið undanfarin ár og samkvæmt opinberum tölum telja inn- flytjendur víða hátt í tuttugu prósent íbúa. Engin sveitarfélaganna sem Fréttablaðið hafði samband við hafði mótað stefnu í málaflokknum og voru verkefni þeirra að mestu bundin við túlkun og íslenskukennslu. STJÓRNMÁL Svandís Svavarsdótt- ir, alþingimaður VG, hefur lagt fram fyrirspurn á þingi um utan- landsferðir Ólafs Ragnars Gríms- sonar, forseta Íslands á árinu 2013. Svandís vill fá upplýst hversu marga daga forsetinn var erlend- is og hversu margar utanferðir voru opinberar og hversu margar í einkaerindum. Hún spyr um kostnað og hver hafi greitt hann sundurliðað eftir embætti forset- ans, forsetanum sjálfum, ríkjum sem hann heimsótti og einka- ðilum sem hún vill þá vita og af hvaða tilefni buðu forsetanum. Þá er spurt um kostnað forsetaemb- ættisins vegna ferða eiginkonu forsetans, Dorrit Moussaieff. - gar Fyrirspurn um forsetann: Hver borgaði ferðir forseta? SVANDÍS SVAVARSDÓTTIR Alþingis- maður spyr um ferðalög forseta. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA en það er engin yfirlýst stefna. Það væri ekki óeðlilegt að hafa hana,“ segir Sigrún Árnadóttir, bæjarstjóri í Sandgerði. Í skólum bæjarins eru nú um fimmtán til tuttugu prósent barnanna af erlendum uppruna. í Sandgerði hefur verið hugað að þátttöku innflytjenda í bæjar- málum, en þó með litlum árangri. „Við höfum leitað að fólki í nefndir, en það er ekki mikið um það og við vitum að þær endurspegla ekki fjöl- breytileika samfélagsins. Við erum þó meðvituð um mikilvægi þess að raddir sem flestra heyrist,“ segir Sigrún. Hún segist ekki kunna skýr- ingu á lítilli þátttöku innflytjenda. Flest sveitarfélaganna eru fámenn og hafa ekki sérstaka starfsmenn sem sinna málaflokkn- um. Margir nefndu að mikil hjálp væri í bæjarstarfsmönnum sem tala algengustu tungumál innflytjenda. „Það er gríðarlegur akkur í því og hefur létt mikið undir. Hann fer hiklaust út fyrir sitt svið og hjálpar þeim sem þurfa á hjálp að halda,“ segir Gauti Jóhannesson, sveitar- stjóri Djúpavíkurhrepps, um ferða- og menningarfulltrúa bæjarins sem er pólskumælandi. Þjónusta við fullorðna innflytj- endur eru helst námskeið í íslensku. Eingöngu í tveimur sveitarfélögum af þeim sem Fréttablaðið ræddi við hafði verið unnið markvisst að nýjum verkefnum á þessu sviði. Í Langanesbyggð var nýverið stofn- að fjölmenningarfélag. „Markmið félagsins er að leggja áherslu á það sem við eigum öll sameiginlegt, alveg sama hvaðan við komum,“ segir Hilma Steinars- dóttir, grunnskólakennari á Þórs- höfn, en hún stýrði einnig þróunar- verkefni á vegum sveitarfélagsins á síðasta ári sem miðaði að því að auka stuðning við nemendur og for- eldra af erlendum uppruna. eva@frettabladid.is SVEITARFÉLÖG MEÐ FLESTA INNFLYTJENDUR ➜ Hlutfall af íbúafjölda Heimild: Hagstofan VEISTU SVARIÐ? Við höfum gert ýmislegt til að auðvelda aðlögum fólks af erlendum upp- runa í leik- og grunn- skólanumm, en það er engin yfirlýst stefna. Það væri ekki óeðlilegt að hafa hana. Sigrún Árnadóttir bæjarstjóri í Sandgerði ÞÝSKALAND, AP Töluverð spreng- ing varð í fjósi einu í Rasdorf í Þýskalandi í gær. Svo virðist sem vindgangur úr kúm hafi valdið sprengingunni. Þakið á fjósinu skemmdist nokkuð og ein kýr fékk brunasár, en annað tjón varð ekki. Að sögn lögreglu eru 90 kýr í fjósinu, og hafði metangas safn- ast þar upp vegna vindgangs úr kúnum. Lítill neisti frá stöðu- rafmagni hafi svo nægt til að sprengingin varð. - gb Uppsafnaður vandi í fjósi: Vindgangur olli sprengingunni

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.