Fréttablaðið - 29.01.2014, Side 15

Fréttablaðið - 29.01.2014, Side 15
MIÐVIKUDAGUR 29. janúar 2014 | SKOÐUN | 15 FRÁBÆR TILBOÐ! Kletthálsi 11 -110 Reykjavík Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is www.bilaland.is www.facebook.com/bilaland.is TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ Gerðu mögnuð kaup! Fjöldi bíla á staðnum! TOYOTA AURIS TERRA Nýskr. 06/08, ekinn 96 þús. km. bensín, beinskiptur. Verð áður kr. 1.750.000 TILBOÐSVERÐ! 1.450 þús. HYUNDAI SONATA Nýskr. 07/08, ekinn 93 þús km. bensín, sjálfskiptur. Verð áður kr. 1.990.000 TILBOÐ kr. 1.590 þús. HYUNDAI SANTA FE 4x4 Nýskr. 06/06, ekinn 174 þús km. dísil, sjálfskiptur. Verð áður kr. 1.740.000 TILBOÐ kr. 1.290 þús. NISSAN PATHFINDER SE Nýskr. 06/08, ekinn 118 þús km. dísil, sjálfskiptur. Verð áður kr. 4.180.000 TILBOÐ kr. 3.380 þús. TOYOTA LAND CRUISER 150 Nýskr. 05/12, ekinn 43 þús km. dísil, sjálfskiptur. Verð áður kr. 8.800.000 TILBOÐ kr. 7.990 þús. NISSAN PATROL SE Nýskr. 08/08, ekinn 125 þús km. dísil, sjálfskiptur. Verð áður kr. 4.380.000 TILBOÐ kr. 3.380 þús. NISSAN MURANO 3.5 Nýskr. 06/09, ekinn 57 þús km. bensín, sjálfskiptur. Verð áður kr. 3.990.000 TILBOÐ kr. 3.290 þús. Rnr. 310010 Rnr. 120238 Rnr. 120182 Rnr. 101779 Rnr. 141902 Rnr. 151451 Rnr. 200291 GÖNGUM FRÁ FJÁRMÖGNUN Á STAÐNUM WWW.BÍLALAND.IS Um áramótin tóku gildi nýjar reglur hjá Sjúkra- tryggingum um greiðslu á notkun fyrir hin ýmsu hjálpartæki. Nú er það yfirlýst stefna stjórn- valda í málefnum aldr- aðra, að stuðla að því að eldri borgarar geti búið heima hjá sér sem lengst. Og vissulega er það líka það sem flestir aldrað- ir vilja á meðan heilsan leyfir. En þegar heils- an bilar eða fólk fer að finna til öryggisleysis, ekki síst þeir sem búa einir, þá er gott að geta fengið sér ýmislegt sem styrkir búsetuna og hjálpar fólki til sjálfshjálpar. Þar á meðal er að fá sér öryggishnapp sem hægt er að hafa um úlnliðinn, eða í bandi um hálsinn og er til þess ætlaður að geta kallað á hjálp í ýmsum aðstæðum. Nú hafa reglur verið hertar fyrir veitingu styrkja vegna öryggishnapps. Slíka hnappa er hægt að fá t.d. hjá Securitas eða Öryggismiðstöð- inni. Frá 1. janúar hefur gjald- ið sem Sjúkratryggingar greiða fyrir þessa þjónustu til fyrirtækj- anna lækkað úr kr 6.700 í kr. 5.500 á mánuði. Hingað til hefur notand- inn greitt hjá Securitas kr. 1.350 mánaðarlega fyrir öryggishnapp, og ekki hefur verið tekin ákvörðun um breytingar þar á bæ, en hækki það sem nemur lækkun hjá Sjúkra- tryggingum, þá er það tæplega 100% hækkun hjá notandanum. Að búa á eigin heimili sem lengst Annað skiptir líka verulegu máli fyrir þá sem vilja búa heima sem lengst og nýta sér heimaþjónustu sveitarfélags eða ríkis. Í heimil- ishjálp felst t.d. að hjálpa fólki við böðun. Þá þarf oft að notast við sturtustóla, baðstóla eða baðbretti til þess að fólk þurfi ekki að klifra upp í baðkar, eða aðstoðarmaðurinn þurfi ekki að bogra við verkið. Nú getur aldrað fólk ekki leng- ur fengið slík tæki frítt, heldur verður einstakling- urinn að kaupa þessi tæki sem geta kostað á bilinu 25-50.000 kr. Fyrri reglu- gerð kvað á um að væri fólk með verulega skerta færni eða verulega skert jafnvægi, þá væru kaup á baðstólum og bað- brettum styrkt 100%. Samræmingar þörf Samkvæmt nýrri reglugerð er það aðeins fólk sem er með alvarlega tiltekna sjúkdóma s.s. MS, MND, Parkinson og fleiri, sem á rétt á niðurgreiðslu á slíkum tækjum, ekki er nóg að vera orðinn 67 ára eða eldri með skerta líkam- lega færni. Sama regla gildir um hækjur og stafi. Þá eru líka gerð- ar breytingar á reglum um gervi- brjóst, stuðningshandrið og stoðir á heimili, einnota bleiur, og breyt- ingar á bifreiðum fyrir hreyfi- hamlaða, svo dæmi sé tekið. Það er með ólíkindum að stefna stjórn- valda í málefnum aldraðra og svo framkvæmd í ýmsum málum sem snerta þann málaflokk skuli stangast svona verulega á. Á sama tíma er kostnaðurinn við rekstur hvers hjúkrunarrýmis á öldrunar- stofnun á bilinu 500-650.000 kr. á mánuði fyrir hvern einstakling. Það hlýtur því að vera miklu hag- stæðara fyrir ríkissjóð að styrkja fólk til að búa heima hjá sér, held- ur en að fjölga hjúkrunarrýmum í það óendanlega. Frá því að ný ríkisstjórn tók við völdum, hefur hún verið að draga til baka skerðingar á kjörum eldri borgara sem gerðar voru árið 2009. Nú um áramótin höfðu þær lagfæringar í för með sér að hækk- un til þeirra sem eru á lægsta líf- eyri hjá TR nemur um 7-8.000 kr. á mánuði. En með breytingum á reglugerð um kostnað sem Sjúkra- tryggingar greiða vegna aldraðra er verið að taka þær hækkanir margfalt til baka. Það er sem sé verið að taka með annarri hend- inni það sem gefið var með hinni. Það er engan veginn verið að fram- fylgja þeirri stefnu stjórnvalda í málefnum aldraðra að þeir búi heima hjá sér svo lengi sem heilsa og geta leyfir. Þvert á móti eru framtíðarsýnin og framkvæmdin að stefna hvor í sína áttina. Gefi ð með annarri hendinni – tekið með hinni Eyjólfur Árni Rafnsson skrifaði grein í Frétta- blaðið 24. janúar sl. undir heitinu Norðlingaöldu- veita – söguleg þróun og nokkrar staðreyndir. Því miður fer Eyjólfur Árni rangt með helstu stað- reyndir í þessu máli og ætla ég að nefna tvær sem eru lykilatriði. 1 Eyjólfur segir: „Um 1980 var þess í stað (þ.e. í stað 200 km2 lóns) gert samkomulag við Náttúruverndarráð um mun minna lón í Þjórsá sem þó myndi ná inn í neðstu verin í vatnshæð 581 my.s. Einnig var heimilað að veita aust- urkvíslum Þjórsár til Þórisvatns- miðlunar.“ Hér er vísvitandi verið að slíta setningu í sundur þannig að mikilvægur fyrirvari týnist. Staðreyndin er að það var gert samkomulag sem orðað er í aug- lýsingu að friðlandi frá 1981 á eft- irfarandi hátt: „Ennfremur mun Náttúruverndarráð fyrir sitt leyti veita Landsvirkjun undanþágu frá friðlýsingu þessari til að gera uppistöðulón með stíflu við Norð- lingaöldu í allt að 581 m y.s., enda sýni rannsóknir að slík lónsmynd- un sé framkvæmanleg án þess að náttúruverndargildi Þjórsárvera rýrni óhæfilega að mati Náttúru- verndarráðs“ (leturbr. GMG) (Stj. tíð. B, nr. 753/1981). Í kjölfarið var Líffræðistofn- un Háskólans undir forystu dr. Þóru Ellenar Þórhallsdóttur falið að stýra rannsóknum á áhrifum fyrirhugaðs lóns á gróður og jarð- vatnsstöðu í Þjórsárverum og skil- aði hún lokaskýrslu um það 1994, þar sem komist var að þeirri nið- urstöðu að ekki væri hægt að gera fyrirhugað lón án þess að það hefði mikil áhrif á gróður og grunnvatn. Í kjölfarið hóf Lands- virkjun að leita leiða til að minnka áhrif frá lón- inu, en að lokum komst arftaki Náttúruverndar- ráðs, Náttúruvernd ríkis- ins, að þeirri niðurstöðu að slík lónsmyndun mundi rýra náttúruverndargildi Þjórsárvera óásættanlega. Landsvirkjun hélt áfram í ljósi þess að ný lög um mat á umhverfis áhrifum höfðu tekið gildi og því væri sam- komulagið ekki í gildi leng- ur. Síðan hefur Landsvirkj- un haldið málinu til streitu. 2  Eyjólfur Árni segir: „Í öðrum áfanga rammaáætlunar var fjallað um þá tilhögun sem stjórnsýslan sætt- ist á 2003. Í faghópum fékk fram- kvæmdin allgóða einkunn út frá umhverfis áhrifum og háa einkunn fyrir hagkvæmni. Niðurstaðan var þó sú við afgreiðslu Alþingis árið 2013 að veitan var sett í verndar- flokk. Þetta varð til þess að upp hófust deilur um pólitísk afskipti af rammaáætlun.“ Þetta er ein- faldlega rangt! Blekking? Staðreyndin er sú að í 1. áfanga rammaáætlunar voru Þjórsárver talin 3. verðmætasta náttúrusvæð- ið af vatnsaflskostum. Sem kunn- ugt er, fylgdu stjórnvöld ekki eftir niðurstöðum 1. áfanga. Árið 2007 hófst 2. áfangi rammaáætlunar. Lokaniðurstaða þeirrar vinnu var að raða Þjórsárverum sem 4. verð- mætasta svæði af 40 í faghópi 1 um náttúrufar og menningarminjar. Nefnd, sem skipuð var formönn- um faghópa og formanni verk- efnisstjórnar 2. áfanga, var falið að flokka svæði og virkjunarhug- myndir í verndarflokk, biðflokk eða nýtingarflokk. Þessi nefnd setti svæðið Þjórsá ofan Norð- lingaöldu í verndarflokk. Svæðið náði til efsta hluta af vatnasviði Þjórsár, þar með talinna Þjórsár- vera og farvegar Þjórsár með foss- unum Dynk, Gljúfurleitarfossi og Kjálkaversfossi, að Sultartanga- lóni. Í meðförum Alþingis, þar sem hagsmunaaðilar og almenningur kom athugasemdum á framfæri, var röðun Þjórsárvera eða ann- arra svæða í verndar- og biðflokk- um ekki hreyfð. Það er því fyrst núna með ákvörðun umhverfisráð- herra um að leggja til breytingar á þingsályktun Alþingis og færa vesturhluta Þjórsárvera í nýt- ingarflokk, að pólitísk afskipti af rammaáætlun hefjast. Hvað gengur forstjóra Mannvits til – er hann að reyna að blekkja almenning í landinu? Höfundur hefur setið í faghópi 1 í 1. og 2. áfanga rammaáætlun- ar um vernd og orkunýtingu land- svæða. Blekkingar Eyjólfs Árna Rafns- sonar, forstjóra Mannvits NÁTTÚRUVERND Gísli Már Gíslason prófessor í vatnalíf- fræði í HÍ og formaður Þjórsár- veranefndar sem er Umhverfi sstofnun til ráðuneytis um mál- efni friðlandsins SAMFÉLAG Jóna Valgerður Kristjánsdóttir formaður Landssambands eldri borgara ➜ Það er því fyrst núna með ákvörðun umhverfi s- ráðherra um að leggja til breytingar á þingsályktun Alþingis og færa vestur- hluta Þjórsárvera í nýtingar- fl okk, að pólitísk afskipti af rammaáætlun hefjast. Hvað gengur forstjóra Mannvits til – er hann að reyna að blekkja almenning í land- inu? ➜ En þegar heilsan bilar eða fólk fer að fi nna til öryggisleysis, ekki síst þeir sem búa einir, þá er gott að geta fengið sér ýmislegt sem styrkir búsetuna og hjálpar fólki til sjálfshjálpar. Þar á meðal er að fá sér öryggis- hnapp sem hægt er að hafa um úlnliðinn, eða í bandi um hálsinn, og er til þess ætlaður að geta kallað á hjálp í ýmsum aðstæðum. Nú hafa reglur verið hertar fyrir veitingu styrkja vegna öryggishnapps.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.