Fréttablaðið - 29.01.2014, Qupperneq 22
FÓLK|FERÐIR
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn
Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Mið-Asía er ekki algengur viðkomustaður íslenskra ferðalanga en þangað
hafa þó fáeinir skipulagðir hópar
farið undanfarin ár. Meðal þeirra
sem hafa heimsótt svæðið eru
hjónin Þórður Harðarson og Sól-
rún B. Jensdóttir sem létu gamlan
draum rætast nýlega og heim-
sóttu Kirgisistan og Úsbekistan
ásamt fámennum en góðmennum
hópi frá Íslandi. Þórður og Sól-
rún ferðast mikið og heimsóttu
meðal annars fimm heimsálfur á
síðasta ári. Þau segja þrennt hafa
vakið áhuga þeirra á svæðinu. „Í
fyrsta lagi er mikil náttúrufegurð
á þessum slóðum þar sem háir
fjallgarðar gnæfa yfir allt. Tian
Shan-fjallgarðurinn þekur sem
dæmi rúmlega 80% af lands svæði
Kirgisistans. Margir tindar á
þessum slóðum ná 7-8.000 metra
hæð,“ segir Þórður.
Í öðru lagi nefnir Sólrún söguna
en vafalaust sé ekkert land meiri
miðpunktur heimsins en Ús-
bekistan. „Þarna mætast áhrif frá
Kína, Indlandi, Íran, arabaheim-
inum, Tyrklandi og Rússlandi.
Allar þessar þjóðir hafa látið sig
svæðið varða undanfarnar aldir
og flutt með sér menningu og
trúarbrögð. Ekki skemmdi fyrir
í þessu sambandi að við vorum
með afburðagóða leiðsögukonu
í för.“
Að lokum nefnir Þórður þann
þátt sem hann var spenntastur
fyrir, sem er arkitektúrinn. „Hann
er svo sannarlega óviðjafnan-
legur, sérstaklega í Úsbekistan.
Margar byggingar þar hafa verið
endurreistar af mikilli natni á
tímum Sovétríkjanna, en flestar
eru þær frá 14. til 17. öld. Þarna
má raunar finna nokkrar af glæsi-
legustu byggingum sem maður
hefur séð um ævina og höfum við
nú ferðast víða.“
ÓLÍK LÖND
Þó nokkur munur er á löndunum
tveimur að sögn Þórðar og Sól-
rúnar. „Bæði er Úsbekistan miklu
stærra og fjölmennara land en
auk þess er Kirgisistan öllu frum-
stæðara. Þó ríkir þar mun frjáls-
lyndara stjórnarfar og landið er
opnara fyrir erlendum viðskipt-
um. Í Úsbekistan ríkir harðstjórn
og ferðamönnum er gert aðeins
erfiðara fyrir svo maður orði
hlutina á mildan hátt.“
Bæði löndin eiga ríka sögu þeg-
ar kemur að handverki, svo sem
teppagerð, vefnað, keramik og
silkigerð sem stendur á fornum
merg. „Við kynntumst auðvitað
matargerð heimamanna og vor-
um nokkuð hrifin af henni, sér-
staklega forréttum. Þeir byggja
mikið á grænmeti og ávöxtum
sem eru oft vel kryddaðir og
bornir fram með sósu. Aðalrétt-
irnir voru oftast „plov“ sem er
nokkurs konar hrísgrjónaréttur,
oft borinn fram með nautakjöti
eða lambakjöti. Einstaka sinnum
fengum við grillað kjöt á teini
en fiskfang var þó af skornum
skammti.“
Hjónin eru hvergi nærri hætt
þrátt fyrir mikil ferðalög undan-
farin ár. „Okkur hefur lengi
dreymt um að heimsækja Íran og
einnig að keyra sjálf yfir Kletta-
fjöllin, frá Calgary til Vancouver
í Kanada. Einnig er Marokkó
athyglisverður kostur þannig að
margir spennandi möguleikar eru
í stöðunni.“ ■ starri@365.is
MIÐPUNKTURINN
HEIMSÓTTUR
FRAMANDI SLÓÐIR Mikil náttúrufegurð, stórbrotin saga og glæsilegur arki-
tektúr einkenna Mið-Asíuríkin Kirgisistan og Úsbekistan. Rúmlega 35 milljónir
manna búa þar á landsvæði sem er nær fimm sinnum stærra en Ísland. Fáir
Íslendingar hafa heimsótt löndin en nú kann breyting að verða á.
FALLEGUR ARKITEKTÚR Grafhýsi Sufi
Bakhautdin í Bukhara. MYND/ÚR EINKASAFNI
HÓPURINN Íslenski hópurinn með fararstjórum. Þórður stendur aftast fyrir miðju og Sólrún fyrir framan hann. MYND/ÚR EINKASAFNI
RISASTÓRT Issyk Kul í Kirgisistan er
eitt stærsta stöðuvatn heims, 74 sinnum
stærra en Þingvallavatn. MYND/GETTY
ÞJÓÐLEGT Plov er hrísgrjónaréttur, oft
borinn fram með nautakjöti eða lamba-
kjöti. MYND/ÚR EINKASAFNI
Algjört möst