Fréttablaðið - 29.01.2014, Page 32

Fréttablaðið - 29.01.2014, Page 32
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is Netfang rit stjorn@markadurinn.is Sími 512 5000 Fax 512 5301 Hin VALA VALTÝSDÓTTIR SVIÐSSTJÓRI SKATTA- OG LÖGFRÆÐISVIÐS DELOITTE hliðin Nei ekki er þetta alveg rétt en gæti verið það. Það eru nefnilega í gildi lög um gjaldeyrishöft á Íslandi (lög nr. 87/1992 með breytingum sbr. lög nr. 127/2011). Í hugum fólks eru þessi sérstöku lagaákvæði sem kveða á um takmarkanir á gjaldeyrisviðskiptum og fjármagnshreyfingum á milli landa tengd við fjárfestingar og viðskipti. En svo er ekki eingöngu og hafa að minnsta kosti þeir sem hafa ferðast til útlanda undanfarin ár áttað sig á því að kaup á gjaldeyri eru takmörk sett. En höftin eru víðar og ná til fleiri tilvika. Höft gagnvart viðskiptum Svo öllu sé haldið til haga þá giltu um gjaldeyrishöft til að byrja með reglur sem settar voru 28. nóvember 2008. En almennt má segja, hvað varðar viðskipti milli landa, að fyrir utan kaup á þjónustu og vöru erlendis frá sé ekki hægt að fá gjald- eyrisyfirfærslu. Þannig er óheimilt að fjárfesta í erlendum fyrirtækjum, taka lán erlendis nema sérstök skilyrði séu uppfyllt eða kaupa fasteignir erlendis án þess að flytjast búferlum, svo eitthvað sé nefnt. Þannig er í raun íslenskum fyrirtækjum meinað að fara í landvinninga erlendis. Hins vegar er erlendum aðilum almennt heimilt að fjárfesta á Íslandi. Einnig skal tekið fram að greiðslum erlendis frá vegna sölu á vöru eða þjónustu ber að skila til Íslands innan þriggja vikna frá því greiðslan fór fram. Höft gagnvart einstaklingum Svo vitnað sé til yfirskriftar þessa pistils þá eru meira að segja höft á gjöfum milli landa. Til dæmis getur Íslendingur ekki móttekið peningagjöf í erlendum gjaldeyri nema eiga hann á banka- reikningi á Íslandi. Þannig er óheimilt að taka við gjöf í formi reiðufjár eða inneignar á erlendum bankareikningi, nema þá að skila fjármununum heim til Íslands innan þriggja vikna frá því að gjöfin komst í umráð viðkomandi. Auk þessa er t.d. óheimilt að taka við gjöf sem er í formi eignarhlutar í erlendu fyrirtæki eða fasteign. Skilaskylda á gjaldeyri Eins og fram hefur komið ber að skila öllum erlendum gjaldeyri sem innlendir aðilar eignast, svo sem fyrir seldar vörur og þjónustu, eða með öðrum hætti, á innlánsreikning í eigu þess innlenda aðila hjá fjármálafyrirtæki hér á landi innan þriggja vikna frá því að gjald- eyriirnn komst eða gat komist í umráð eiganda eða umboðsmanns hans. Er hægt að sekta vegna gjafar frá frænku? Já, ef gjöfin er móttekin með óheim- ilum hætti þá er heimilt að sekta og í raun geta brot á umræddum reglum varðað sektum eða fangelsi allt að tveimur árum. Sektir á einstaklinga geta numið frá 10 þús. kr. til 65 millj. kr. og frá 50 þús. kr. til 250 millj. kr. ef um lögaðila er að ræða. Umfjöllun þessi er langt í frá tæmandi og undantekningar frá umræddum reglum eru flóknar og margvíslegar. „Sektuð vegna gjafar frá frænku“ Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is USD 114,9 GBP 190,15 DKK 21 EUR 156,71 Gengi gjaldmiðla NOK 18,686 SEK 17,81 CHF 127,7 JPY 1,11

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.