Fréttablaðið - 17.05.2014, Side 20
17. maí 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 20
Álfrún
Pálsdóttir
alfrun@frettabladid.is
Íris Björk Reynisdóttir, ljósmyndari í London.
Jóga og BA-skil í London
„Ég ætla að fara í jóga bæði í dag og á sunnudag.
Svo mun ég eyða restinni af helginni fyrir
framan tölvuna að fylla inn í rannsóknar-
vinnu og persónulegar skýrslur ásamt því
að leggja lokahönd á myndvinnslu því að
ég er að skila BA-lokaverkefninu mínu á
mánudagsmorguninn.“
Arnar Dan Kristjánsson
leikari.
Landsbyggðin kallar
„Ég er að fara í brúðkaup
að Helln um á Snæfells-
nesi hjá mági mínum. Svo
næ ég vonandi að kíkja í
Frystiklefann á Rifi í leiðinni
og sjá sýninguna hans Kára
Viðarssonar, Hetju.
Fanndís Friðriksdóttir,
landsliðskona í knattspyrnu.
Undirbýr Íslands-
fl utninga
„Í dag er þjóðhátíðardagur
Norðmanna svo ég ætla að
skella mér í morgunmat með
nokkrum vel völdum vinkonum
og njóta dagsins hér í Bergen.
Sunnudagurinn fer í það að
pakka niður og kveðja Noreg.“
Benedikt Valsson Hrað-
fréttamaður.
Fer kannski í partí
„Okkur Fannari er boðið í
innflutningspartí í kvöld hjá
konu sem heitir Kolla en
ég veit ekki hvort ég nenni.
Á sunnudaginn ætla ég að
skella mér í sund og fá mér
svo ís.“
- Á TÓNLEIKA
SELKÓRSINS, VIÐ
REYKJAVÍKUR-
TJÖRN, sem verða í Hörpu
á morgun kl. 17 og 20.
Þar flytur kórinn ásamt
þeim Þóru Einarsdóttur
og Garðari Thór Cortes
helstu dægurlög Gunnars
Þórðarsonar, sem eru fyrir
löngu orðin klassísk.
- Á LAGIÐ
SEASONS
MEÐ HLJÓM-
SVEITINNI FUTURE
ISLANDS og hitaðu upp
fyrir Airwaves í leiðinni
en sveitin mun spila á há-
tíðinni næsta haust.
- BÓKINA 20
TIL EFNI TIL
DAGDRYKKJU
eftir Þorbjörgu Marínós-
dóttur sem kom út í
vikunni. Sprenghlægileg og
neyðarleg bók sem er sú
fjórða eftir höfundinn.
Á KVIKMYNDINA
VONARSTRÆTI,
sem var frumsýnd
í gær, en þessi íslenska
mynd eftir leikstjórann
Baldvin Z hefur hlotið
góða dóma.
HELGIN
17. maí 2014 LAUGARDAGUR
FARÐU HLUSTAÐU LESTU HORFÐU …
Opinn fundur á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla
Íslands og Evrópustofu. Fjallað verður um stöðu
mannréttinda innan ríkja Evrópusambandsins í kjölfar
efnahagsþrenginga undangenginna ára.
Einnig verður fjallað um stefnu sambandsins í mann-
réttinda málum og hvernig hún nær yfir borgaraleg,
pólitísk, efnahagsleg og félagsleg réttindi. Sjónum verður
sérstaklega beint að réttindum hinsegin fólks, jafnrétti
kynjanna og tjáningarfrelsi í þessu samhengi.
Fundirnir fara fram á ensku. Allir velkomnir.
Nánari upplýsingar: www.ams.hi.is og www.evropustofa.is
EVRÓPUMÁL
MÁNUDAGURINN 19. MAÍ KL. 12:00-13:30 Í NORRÆNA HÚSINU
Mannréttindi og
Evrópusambandið
Fundarstjóri: Alyson Bailes, aðjúnkt við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.
Versnandi staða í mannréttinda-
málum í kjölfar efnahagsþrenginga
Kinga Göncz er Evrópuþingmaður, varaformaður
nefndar Evrópuþingsins um borgaraleg réttindi, dóms-
og innanríkismál, og fyrrverandi utanríkisráðherra
Ungverjalands.
Stefna Evrópusambandsins í
mannréttinda málum – mannréttindi
um allan heim
Pauline Torehall er sérfræðingur hjá utanríkisþjónustu
Evrópusambandsins (EEAS).
Education and Culture
Lifelong Learning Programme
JEAN MONNET
ht.is
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
10-50% AFSLÁTTUR
HAFNARGÖTU 90 REYKJANESBÆ S: 414 1740 • EYRARVEGI 21 SELFOSSI S: 480 3700 • GARÐARSBRAUT 18A HÚSAVÍK S: 464 1600 • GLERÁRGÖTU 30 AKUREYRI S: 460 3380 • KAUPVANGI 6 EGILSSTÖÐUM S: 414 1735 • ÞJÓÐBRAUT 1 AKRANESI S: 431-3333 • SUÐURLANDSBRAUT 26 REYKJAVÍK S: 569 1500
WHIRLPOOL DAGAR
ÞVOTTAVÉLAR - ÞURRKARAR - UPPÞVOTTAVÉLAR
ÖRBYLGJUOFNAR - OFNAR - HELLUBORÐ - GUFUGLEYPAR
KÆLISKÁPAR - FRYSTISKÁPAR - FRYSTIKISTUR
„Ég er stolt af því að hafa tekið
þátt í undirbúningi sýningar-
innar og það ferli var afar lær-
dómsríkt. Skemmtilegt var að
vinna með góðu teymi fólks og
móður minni, taka við hana við-
töl sem tengdust fatnaði frá for-
setatíð hennar og fram spruttu
margar minningar, skemmti-
legar sögur og fróðleikskorn,“
segir Ástríður Magnúsdóttir,
dóttir frú Vigdísar Finnboga-
dóttur, sem verður með leiðsögn
um sýninguna Ertu tilbúin, frú
forseti? á morgun, á Alþjóða-
safnadaginn, á Hönnunar safni
Íslands.
Fatnaður Vigdísar leikur lyk-
ilhlutverk í sýningunni en hann
var mikilvægur í ímyndar-
sköpun forsetans. Það sem mót-
aði persónulegan stíl Vigdísar
var Parísardvöl hennar, leikhús-
lífið og að lokum diplómatískar
hefðir. Þegar hún tók við emb-
ætti forseta Íslands árið 1980
stóð Vigdís frammi fyrir því að
skapa hefð um klæðaburð fyrir
konu í slíku embætti.
Ástríður, sem er meistara-
nemi í listfræði og í sýningar-
nefnd sýningarinnar, var sjö ára
þegar móðir hennar varð forseti
og ætlar að rifja upp skemmti-
legar sögur í leiðsögninni. „Eins
og til dæmis þegar hún þurfti
að fara um borð í þyrlu á Græn-
landi í skautbúningi og hversu
mikinn tíma það gat oft tekið að
hengja utan á fínu silkikjólana
orður og aðra fylgihluti sem til-
heyrðu embættinu. Sagan þegar
skórnir gleymdust á 17. hæð á
Imperial-hótelinu í Japan og
hún var komin hálfa leið niður á
töfflunum að hitta keisarann. Þá
voru góð ráð dýr.“
Ástríður segist afar stolt af
móður sinni og það aukist bara
eftir því sem hún kafar dýpra
í feril hennar, líf, boðskap og
gjörðir. „Hún er brautryðjandi
á mörgum sviðum, fyrsta konan
til að vera kosin þjóðhöfðingi í
lýðræðislegum kosningum og
einnig fyrsta íslenska einhleypa
konan til að fá leyfi til að ætt-
leiða barn,“ segir Ástríður. Sýn-
ingin sjálf stendur til 5. október.
Hvað? Leiðsögn Ástríðar Magnús-
dóttur um sýninguna Ertu tilbúin,
frú forseti?
Hvar? Hönnunarsafn Íslands.
Hvenær? Á morgun kl. 14.
Verð alltaf stoltari
og stoltari af mömmu
Ástríður Magnúsdóttir kynntist nýrri hlið á móður sinni, frú Vigdísi Finnboga-
dóttur, er hún tók þátt í að setja upp sýninguna Ertu tilbúin, frú forseti? Hún
var sjö ára þegar móðir hennar var kjörin forseti en á morgun verður hún með
leiðsögn um sýninguna þar sem hún rifj ar upp sögur tengdar fatnaðinum.
KYNNTIST NÝRRI HLIÐ Ástríður Magnúsdóttir rifjar upp sögur tengdar fatnaði móður sinnar, frú Vigdísar Finnbogadóttur, er
hún verður með leiðsögn um sýninguna Ertu tilbúin, frú forseti? á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA