Fréttablaðið - 17.05.2014, Blaðsíða 37
GÆLUDÝR
LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2014 Kynningarblað Fóður, ræktun, snyrtivörur og beituhlaup.
Flestir hundaeigendur þekkja hvimleitt vandamál sem f ylgir vorinu. Þegar sól
hækkar á lofti hrynja gjarnan
hárin af ferfættu vinunum okkar.
Margrét Mekkin á Labrador-
hundinn Konna og þekkir þetta
vandamál vel. Hún hóf störf hjá
Líflandi fyrir nokkrum mán uðum
og kynntist þar ARION-fóðrinu
sem Lífland er með umboð fyrir.
„Ég var að verða geðveik á hárlosi
hundsins og þurfti orðið að ryk-
suga tvisvar sinnum á dag. Það
voru hundahár alls staðar, á föt-
unum mínum, í bílnum, meira að
segja í smjörinu!“ Margrét segir
kímin að hún hafi meira að segja
reynt að ryksuga hundinn en ekk-
ert hafi virkað. „Svo prófaði ég að
kaupa ARION Premium Lamb &
Rice-fóðrið þar sem það er sérstak-
lega ætlað fyrir betri húð og feld.
Ég hafði engar sérstakar vænt ingar
um að ástandið myndi batna en
það kom skemmtilega á óvart að
hárlosið minnkaði töluvert eftir
að hann hafði verið á fóðrinu í
nokkrar vikur. Það þekkja það
líka allir hundaeigendur að það er
engin „Colgate-lykt“ út úr þessum
elskum en mér fannst andremman
líka minnka mjög mikið.“
Náttúruleg innihaldsefni
„Ég gef Konna einu sinni á dag og
hef tekið eftir því að hann nýtir
fæðið miklu betur núna en hann
hefur gert áður. Ég vil hundinum
mínum auðvitað það besta og það
gleður mig sérstaklega að fá svona
góð gæði fyrir gott verð.“ ARION-
vörurnar eru einstaklega bragð-
góðar en leyndarmálið á bak við
góða bragðið er einstök blanda
vel valinna, náttúrulegra inni-
haldsefna sem eru laus við gervi-
efni í litar- og bragðefnum. „Það
skemmir auðvitað ekki fyrir að
hann er gjörsamlega sjúkur í þetta
fóður. Á slaginu sex sest Konni við
dallinn sinn og bíður eftir því að
fá að borða. Ef maður bregst ekki
nógu fljótt við lætur hann mann
alveg vita að maður er að gleyma
honum.“
Fjölbreytt úrval
ARION-fóðrið verður sífellt vin-
sælla hjá gæludýraeigendum og
fæst nú hjá fjölmörgum endur-
söluaðilum um allt land. Fram-
leiðendur ARION vita að gott
fóður er grundvöllur góðrar heilsu
og hafa sérfræðingar þeirra, í
samvinnu við rannsóknasetur
virtra háskóla, þróað heildstætt
úrval fóðurs sem tryggir það
besta sem besti vinurinn þarfn-
ast. Tekið er tillit til nýjustu rann-
sókna og framfara á þessu sviði í
samsetningu og framleiðslu fóð-
ursins.
Til eru þrjár línur af ARION-
fóðri. ARION Friends, sem er gott
fóður á góðu verði, ARION Premi-
um, sem er hágæðafóður og er
sérstakt fóður fyrir allar stærð-
ir og gerðir af hundum. Nýlega
bættist svo þriðja línan við, sem
heitir ARION Health & Care og er
ofnæmisfóður.
Mikill munur á hundinum
Margrét hefur séð mikinn mun
á Konna eftir að hún skipti yfir í
ARION- fóður.
„Labradorum fylgir oft bæði
hárlos og eyrnabólga og Konni
var búinn að vera með þráláta
eyrnabólgu stanslaust í tvö ár. Ég
var búin að reyna svo til allt, setja
hann á alls konar lyf og ég veit
ekki hvað, en það var ekki fyrr en
ég bæði skipti um fóður og fékk
dropa frá dýralækninum sem
eyrnabólgan fór loksins. Ég er ekki
að segja að droparnir hafi ekki átt
sinn þátt í því, en ég held að fóðrið
hafi alls ekki skemmt fyrir.“
Var með hundahár á heilanum
ARION-fóðrið frá Líflandi hefur verið vinsælt meðal gæludýraeigenda. Margrét Mekkin á Labradorhund sem hún sér mikinn
mun á eftir að hún fór að gefa honum ARION Premium Lamb & Rice en það er sérstaklega ætlað fyrir betri húð og feld.
Margrét með Konna sem fer minna úr hárum eftir að Margrét fór að gefa honum fóður frá ARION.
BESTI VINUR ÞINN
BESTI VINUR OKKAR
ER
Arion dýrafóður er unnið út frá rannsóknum á því hvað
það er sem besti vinur þinn þarfnast og þróað með það
í huga. Því besti vinur þinn á aðeins það besta skilið.