Fréttablaðið - 17.05.2014, Qupperneq 67
KYNNING − AUGLÝSING Gæludýr17. MAÍ 2014 LAUGARDAGUR 3
V ið höfum ræktað Bor-der Collie, Briard og Australian Shepherd
( Aussie), sem eru af fjárhunda-
kyni, síðastliðin nítján ár. Pedi-
gree-fóðrið hefur reynst okkur
afar vel við ræktun hundanna en
við höfum eingöngu notað þurr-
fóður frá Pedigree síðastliðin í
tíu ár,“ útskýrir Lára Birgis dóttir
hundaræktandi en hún rekur
Hundaskóla Heimsenda Hunda
ásamt Birni Ólafssyni, hunda-
þjálfara og hundaatferlisfræðingi.
Lára er menntaður búfræð-
ingur og hefur einnig sótt nám-
skeið um ræktun og sýningar er-
lendis. Þá hefur Lára sýnt á Crufts
og Westminster, virtustu hunda-
sýningum í hundaheiminum.
Meistarinn þeirra Láru og
Björns, Heimsenda Rauði Refur,
var sýndur á Crufts í Englandi á
síðasta ári, fyrstur hunda rækt-
aðra á Ísland. Rebbi, eins og hann
er kallaður, er nú glæsilegur Aust-
ralian Shepherd-öldungur en
hann hefur verið fóðraður á Pe-
digdree frá því hann var hvolpur.
Reynslumiklir ræktendur
og hundaþjálfarar
Lára og Björn eru ræktendur árs-
ins 2013 í Hundaræktunarfélagi
Íslands. Á ferlinum hafa þau átt
og ræktað yfir fjörutíu meistara
og segir Lára fóðrun gegna mikil-
vægu hlutverki við ræktun og
þjálfun hunda.
„Það skemmtilegasta sem við
gerum er að leiðbeina nýjum
hundaeiganda við að eignast
góðan og vel þjálfaðan hund. Við
förum sjálf árlega utan á nám-
skeið til að læra meira um ræktun,
hundaþjálfun og um fóðrun
hunda,“ segir Lára.
„Það er ekkert til sem heitir
slæmur hundur heldur einungis
óvanur hundaeigandi. Gott fóður
er ekki síður mikilvægt en að
kenna hundinum góða siði á já-
kvæðan og skemmtilegan hátt.
Það er okkar reynsla að hund-
arnir fóðrast vel á Pedigree.
Feldurinn verður skínandi fal-
legur og fóðrið er lystugt. Það er
aðgengilegt og á góðu verði sem
skiptir miklu máli.“
Góð meðmæli
„Á síðustu tíu árum hefur vaxið
upp hjá okkur heil kynslóð hunda
sem eingöngu hafa verið fóð raðir
á Pedigree en við höfum prófað
f lestar gerðir fóðursins, allt frá
hvolpafóðri til fóðurs fyrir elstu
hundana. Það finnst mér segja
allt sem segja þarf um Pedigree,”
segir Lára.
Nánari upplýsingar um Heims-
endaræktun og Hundaskóla
Heimsenda Hunda Láru og Björns
má finna á vefsíðunum www.
heimsendahundar.net og www.
hundaskoli.net.
Ræktendur
ársins nota
Pedigree
Björn Ólafsson og Lára Birgisdóttir hafa ræktað hunda hátt í
tuttugu ár undir heitinu Heimsenda Hundar. Í tíu ár hafa þau
eingöngu notað fóður frá Pedigree með góðum árangri og eru
ræktendur ársins 2013 í Hundaræktunarfélagi Íslands.
Lára Birgis-
dóttir og Björn
Ólafsson,
hundaræktendur
hjá Heimsenda
Hundum, með
2 og hálfrar viku
gamla Australian
Shepherd-hvolpa.
MYND/VILHELM