Fréttablaðið - 17.05.2014, Blaðsíða 79

Fréttablaðið - 17.05.2014, Blaðsíða 79
LAUGARDAGUR 17. maí 2014 | TÍMAMÓT | 47 Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru ERLU BJARGAR GUÐJÓNSDÓTTUR sjúkraliða, Fjarðarseli 25, Reykjavík. Dagfinnur Ólafsson Þóra Björg Dagfinnsdóttir Geir Magnús Zoëga Elísabet Dagfinnsdóttir Ari Jóhannesson Ólöf Dagfinnsdóttir Albert Þór Sverrisson börn, barnabörn og aðrir aðstandendur. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR DAVÍÐSDÓTTIR Ljósheimum 12, lést miðvikudaginn 7. maí á Hrafnistu í Reykjavík. Jarðarförin hefur farið fram. Jóhanna Andrea Ólafsdóttir Guðni Þór Gunnarsson Urður Ólafsdóttir Leifur Ólafsson Jóhanna Ólafsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, LOFTS ÞORSTEINSSONAR verkfræðings. Einnig viljum við þakka starfsfólki á hjúkrunarheimilinu Skjóli fyrir veitta umönnun. Þorsteinn Loftsson Hanna Lilja Guðleifsdóttir Matthías Loftsson Kolbrún Þorsteinsdóttir Ingibjörg Loftsdóttir Páll Loftsson Anna Pála Vignisdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Af alhug þökkum við öllum okkar góðu vinum og velunnurum fyrir hlýjar kveðjur og ómetanlega hjálp vegna andláts og útfarar eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, SVEINBJÖRNS ÓSKARSSONAR viðskiptafræðings, Næfurási 1. Guð blessi ykkur. Ingibjörg S. Gísladóttir Áslaug Ingibjörg Sveinbjarnardóttir Gunnar E. Carlsen Guðrún Jóna Sveinbjarnardóttir Óskar Gísli Sveinbjarnarson Karen Milek Hafdís Arna Sveinbjarnardóttir og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSTA SIGURLAUG JÓNSDÓTTIR frá Læk í Aðalvík, Eyrarlandsvegi 33, Akureyri, lést 10. maí. Útförin fer fram frá Akureyrar- kirkju 22. maí kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð Staðarkirkju í Aðalvík, reikningur 0114-15-381858 kt. 480182-0149. Guðrún Elín Sigurðardóttir Smári S. Sigurðsson Nanna K. Sigurðardóttir Hrafn Óli Sigurðsson David N. Ekström Sigurður Arnar Sigurðsson Harpa Gunnarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA GUÐNÝ ÁRMANNSDÓTTIR Bólstaðarhlíð 45, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi mánudaginn 12. maí. Útförin fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn 19. maí kl. 13.00. Hermann Bridde Jóhann Kristinsson Anne Grethe Salvesen Ásta Kirkeby Torben Kirkeby Vilhelmína Kristinsdóttir Friðrik Bridde Svava Guðmundsdóttir Einar Bridde Guðný Steinunn Guðjónsdóttir Karl Bridde Sigrún Ævarsdóttir og barnabörn. Ástkær frændi okkar og vinur, ÓLAFUR HELGI AXELSSON áður til heimilis að Vesturgötu 61, er látinn. Sálumessa fyrir honum verður sungin í Dómkirkju Krists konungs í Landakoti þriðjudaginn 20. maí kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Anna Aðalheiður Rögnvaldsdóttir Ástkær bróðir okkar og frændi, JENS KRISTJÁN HÖSKULDSSON Miðgarði 6, Egilsstöðum, verður jarðsunginn frá Egilsstaðakirkju mánudaginn 19. maí kl. 14.00. Systkini, systkinabörn og fjölskyldur. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát ástvinar okkar, SKÚLA BJARNASONAR læknis, Njálsgötu 98, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks á krabbameinsdeild 11E Landspítalans, Heimahlynningar Landspítalans og útskriftarfélaga úr læknadeild. Sigurlaug Halldórsdóttir Margrét Skúladóttir Páll Aðalsteinn Svansson Halldór Skúlason Brynja Björk Harðardóttir Nanna Kristín Skúladóttir Ómar Örn Jónsson barnabörn og barnabarnabarn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát móður okkar, tengdamóður og ömmu, GEIRRÚNAR TÓMASDÓTTUR Vestmannaeyjum, sem lést á Landspítalanum Fossvogi þriðjudaginn 29. apríl. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja. Tómas Jóhannesson Margrét Sigurgeirsdóttir Lúðvík Jóhannesson Ingibjörg Þorsteinsdóttir Jóna Dís Kristjánsdóttir Hlynur Jóhannesson Aldís Björgvinsdóttir Hjalti Jóhannesson Þórdís Sigurðardóttir Helga Jóhannesdóttir Guðmundur Helgi Sigurðsson Sæþór Jóhannesson Svanhildur Hanna Freysteinsdóttir og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA MARGRÉT CORTES Silfurteigi 6, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum í Fossvogi, mánudaginn 12. maí, verður jarðsungin frá Laugarneskirkju miðvikudaginn 21. maí kl. 13.00. Björg Cortes Stefánsdóttir Halldór I. Elíasson Steinunn Guðbjörg Stefánsdóttir Stefán Valdimar Halldórsson Anna Margrét Halldórsdóttir Haraldur Darri Þorvaldsson Steinar Ingimar Halldórsson Xue Li Halldór Alexander, Jökull Ari og Hugrún Eva Haraldsbörn. Ástkær eiginmaður minn og fósturfaðir okkar, HERMANN ÞORSTEINSSON Espigerði 2 (Þórsgötu 9), verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju fimmtudaginn 22. maí kl. 15.00. Konurnar hans þrjár: Helga Rakel, Steinunn Sara og María. Skáld á ekki samleið með neinum … er yfirskrift málþings um Gunnar Gunnarsson í Norræna húsinu á morgun milli klukkan 13.30 og 17. Þann dag verða liðin 125 ár frá fæð- ingu skáldsins. „Þetta afmæli er gott tilefni til mál- þings,“ segir Skúli Björn Gunnarsson forstöðumaður Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri. „Ekki síst vegna þess að hann Oskar Vistdal, rithöfundur og þýðandi, hefur nýlokið við bók um Gunnar og segir okkur frá henni. Þar dregur hann fram skemmtilega hluti sem ekki hafa verið skoðaðir áður, svo sem bréfaskipti Gunnars við norska höfunda eins og Einar Seim og Olaf Duun.“ Fleira áhugavert er á dagskrá þingsins. Jón Yngvi Jóhannsson bók- menntafræðingur fjallar um skand- ivisma skáldsins, Áskell Másson tón- skáld segir frá glímu sinni við að semja Söngva um vorið sem eru inn- blásnir af Sonnettusveig Gunnars og Sigrún Hjálmtýsdóttir syngur fyrsta hluta verksins. Róbert Haraldsson prófessor verður með hugleiðingu um síðasta skáldverk Gunnars og Krist- ján Jóhann Jónsson dósent talar um tvo heimsborgara. Að lokum mun Silja Aðalsteinsdóttir bókmennta- fræðingur fjalla um barnasögur Gunnars sem voru myndskreyttar af sama teiknara í Bretlandi og mynd- skreytti sögur Enid Blyton. „Sennilega hefur skáldið hugsað þær fyrst bara fyrir strákana sína,“ giskar Skúli Björn á og segir þær enn einn vinkilinn á Gunnari Gunnars- syni. „Eitt af markmiðum okkar með málþinginu er að draga fram aðrar hliðar á Gunnari en hann er þekkt- astur fyrir. Það vantar ekki að menn geti haldið áfram að stúdera Gunnar. Verk hans eru langt frá því að vera fullkönnuð.“ Um 30 þúsund manns koma í Gunnars stofnun á Skriðuklaustri á ári að sögn Skúla Björns. „Við reyn- um að haga hlutum þannig að þegar fólk fer frá Skriðuklaustri finnist því það þurfa að fara að lesa bók eftir Gunnar, hvort sem það hefur þekkt til hans áður eða ekki.“ gun@frettabladid.is Verk Gunnars langt frá því að vera fullkönnuð Afmælismálþing um Gunnar Gunnarsson rithöfund verður í Norræna húsinu á morgun á vegum hússins og Gunnarsstofnunar. Það er öllum opið meðan húsrúm leyfi r. FORSTÖÐUMAÐUR GUNNARSSTOF- NUNAR „Eitt af markmiðum okkar með málþinginu er að draga fram aðrar hliðar á Gunnari en hann er þekktastur fyrir,“ segir Skúli Björn Gunnarsson. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.