Fréttablaðið - 17.05.2014, Qupperneq 79
LAUGARDAGUR 17. maí 2014 | TÍMAMÓT | 47
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát
og útför okkar ástkæru
ERLU BJARGAR GUÐJÓNSDÓTTUR
sjúkraliða,
Fjarðarseli 25, Reykjavík.
Dagfinnur Ólafsson
Þóra Björg Dagfinnsdóttir Geir Magnús Zoëga
Elísabet Dagfinnsdóttir Ari Jóhannesson
Ólöf Dagfinnsdóttir Albert Þór Sverrisson
börn, barnabörn og aðrir aðstandendur.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGRÍÐUR DAVÍÐSDÓTTIR
Ljósheimum 12,
lést miðvikudaginn 7. maí á Hrafnistu
í Reykjavík.
Jarðarförin hefur farið fram.
Jóhanna Andrea Ólafsdóttir Guðni Þór Gunnarsson
Urður Ólafsdóttir
Leifur Ólafsson Jóhanna Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur
hlýhug og samúð við andlát og útför föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
LOFTS ÞORSTEINSSONAR
verkfræðings.
Einnig viljum við þakka starfsfólki á
hjúkrunarheimilinu Skjóli fyrir veitta
umönnun.
Þorsteinn Loftsson Hanna Lilja Guðleifsdóttir
Matthías Loftsson Kolbrún Þorsteinsdóttir
Ingibjörg Loftsdóttir
Páll Loftsson Anna Pála Vignisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Af alhug þökkum við öllum okkar góðu
vinum og velunnurum fyrir hlýjar kveðjur
og ómetanlega hjálp vegna andláts og
útfarar eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
SVEINBJÖRNS ÓSKARSSONAR
viðskiptafræðings,
Næfurási 1.
Guð blessi ykkur.
Ingibjörg S. Gísladóttir
Áslaug Ingibjörg Sveinbjarnardóttir Gunnar E. Carlsen
Guðrún Jóna Sveinbjarnardóttir
Óskar Gísli Sveinbjarnarson Karen Milek
Hafdís Arna Sveinbjarnardóttir
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÁSTA SIGURLAUG JÓNSDÓTTIR
frá Læk í Aðalvík,
Eyrarlandsvegi 33, Akureyri,
lést 10. maí. Útförin fer fram frá Akureyrar-
kirkju 22. maí kl. 13.30. Þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Minningarsjóð Staðarkirkju í Aðalvík,
reikningur 0114-15-381858 kt. 480182-0149.
Guðrún Elín Sigurðardóttir
Smári S. Sigurðsson Nanna K. Sigurðardóttir
Hrafn Óli Sigurðsson David N. Ekström
Sigurður Arnar Sigurðsson Harpa Gunnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
ANNA GUÐNÝ ÁRMANNSDÓTTIR
Bólstaðarhlíð 45, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
mánudaginn 12. maí. Útförin fer fram frá
Háteigskirkju mánudaginn 19. maí kl. 13.00.
Hermann Bridde
Jóhann Kristinsson Anne Grethe Salvesen
Ásta Kirkeby Torben Kirkeby
Vilhelmína Kristinsdóttir
Friðrik Bridde Svava Guðmundsdóttir
Einar Bridde Guðný Steinunn Guðjónsdóttir
Karl Bridde Sigrún Ævarsdóttir
og barnabörn.
Ástkær frændi okkar og vinur,
ÓLAFUR HELGI AXELSSON
áður til heimilis að Vesturgötu 61,
er látinn. Sálumessa fyrir honum verður
sungin í Dómkirkju Krists konungs í
Landakoti þriðjudaginn 20. maí kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Anna Aðalheiður Rögnvaldsdóttir
Ástkær bróðir okkar og frændi,
JENS KRISTJÁN HÖSKULDSSON
Miðgarði 6, Egilsstöðum,
verður jarðsunginn frá Egilsstaðakirkju
mánudaginn 19. maí kl. 14.00.
Systkini, systkinabörn og fjölskyldur.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát
ástvinar okkar,
SKÚLA BJARNASONAR
læknis,
Njálsgötu 98, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á
krabbameinsdeild 11E Landspítalans,
Heimahlynningar Landspítalans og útskriftarfélaga úr læknadeild.
Sigurlaug Halldórsdóttir
Margrét Skúladóttir Páll Aðalsteinn Svansson
Halldór Skúlason Brynja Björk Harðardóttir
Nanna Kristín Skúladóttir Ómar Örn Jónsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur hlýhug og samúð við andlát móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
GEIRRÚNAR TÓMASDÓTTUR
Vestmannaeyjum,
sem lést á Landspítalanum Fossvogi
þriðjudaginn 29. apríl. Sérstakar þakkir
fær starfsfólk Heilbrigðisstofnunar
Vestmannaeyja.
Tómas Jóhannesson Margrét Sigurgeirsdóttir
Lúðvík Jóhannesson Ingibjörg Þorsteinsdóttir
Jóna Dís Kristjánsdóttir
Hlynur Jóhannesson Aldís Björgvinsdóttir
Hjalti Jóhannesson Þórdís Sigurðardóttir
Helga Jóhannesdóttir Guðmundur Helgi Sigurðsson
Sæþór Jóhannesson Svanhildur Hanna Freysteinsdóttir
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ANNA MARGRÉT CORTES
Silfurteigi 6, Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum í Fossvogi,
mánudaginn 12. maí, verður jarðsungin
frá Laugarneskirkju miðvikudaginn 21. maí
kl. 13.00.
Björg Cortes Stefánsdóttir Halldór I. Elíasson
Steinunn Guðbjörg Stefánsdóttir
Stefán Valdimar Halldórsson
Anna Margrét Halldórsdóttir Haraldur Darri Þorvaldsson
Steinar Ingimar Halldórsson Xue Li
Halldór Alexander, Jökull Ari og Hugrún Eva Haraldsbörn.
Ástkær eiginmaður minn
og fósturfaðir okkar,
HERMANN ÞORSTEINSSON
Espigerði 2 (Þórsgötu 9),
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju
fimmtudaginn 22. maí kl. 15.00.
Konurnar hans þrjár:
Helga Rakel, Steinunn Sara og María.
Skáld á ekki samleið með neinum …
er yfirskrift málþings um Gunnar
Gunnarsson í Norræna húsinu á
morgun milli klukkan 13.30 og 17.
Þann dag verða liðin 125 ár frá fæð-
ingu skáldsins.
„Þetta afmæli er gott tilefni til mál-
þings,“ segir Skúli Björn Gunnarsson
forstöðumaður Gunnarsstofnunar á
Skriðuklaustri. „Ekki síst vegna þess
að hann Oskar Vistdal, rithöfundur
og þýðandi, hefur nýlokið við bók um
Gunnar og segir okkur frá henni. Þar
dregur hann fram skemmtilega hluti
sem ekki hafa verið skoðaðir áður,
svo sem bréfaskipti Gunnars við
norska höfunda eins og Einar Seim
og Olaf Duun.“
Fleira áhugavert er á dagskrá
þingsins. Jón Yngvi Jóhannsson bók-
menntafræðingur fjallar um skand-
ivisma skáldsins, Áskell Másson tón-
skáld segir frá glímu sinni við að
semja Söngva um vorið sem eru inn-
blásnir af Sonnettusveig Gunnars og
Sigrún Hjálmtýsdóttir syngur fyrsta
hluta verksins. Róbert Haraldsson
prófessor verður með hugleiðingu um
síðasta skáldverk Gunnars og Krist-
ján Jóhann Jónsson dósent talar um
tvo heimsborgara. Að lokum mun
Silja Aðalsteinsdóttir bókmennta-
fræðingur fjalla um barnasögur
Gunnars sem voru myndskreyttar af
sama teiknara í Bretlandi og mynd-
skreytti sögur Enid Blyton.
„Sennilega hefur skáldið hugsað
þær fyrst bara fyrir strákana sína,“
giskar Skúli Björn á og segir þær enn
einn vinkilinn á Gunnari Gunnars-
syni.
„Eitt af markmiðum okkar með
málþinginu er að draga fram aðrar
hliðar á Gunnari en hann er þekkt-
astur fyrir. Það vantar ekki að menn
geti haldið áfram að stúdera Gunnar.
Verk hans eru langt frá því að vera
fullkönnuð.“
Um 30 þúsund manns koma í
Gunnars stofnun á Skriðuklaustri á
ári að sögn Skúla Björns. „Við reyn-
um að haga hlutum þannig að þegar
fólk fer frá Skriðuklaustri finnist því
það þurfa að fara að lesa bók eftir
Gunnar, hvort sem það hefur þekkt
til hans áður eða ekki.“
gun@frettabladid.is
Verk Gunnars langt frá
því að vera fullkönnuð
Afmælismálþing um Gunnar Gunnarsson rithöfund verður í Norræna húsinu á morgun á
vegum hússins og Gunnarsstofnunar. Það er öllum opið meðan húsrúm leyfi r.
FORSTÖÐUMAÐUR
GUNNARSSTOF-
NUNAR „Eitt af
markmiðum okkar
með málþinginu er
að draga fram aðrar
hliðar á Gunnari en
hann er þekktastur
fyrir,“ segir Skúli Björn
Gunnarsson.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA