Fréttablaðið - 17.05.2014, Page 86
17. maí 2014 LAUGARDAGUR| MENNING |
SUNNUDAGUR
LAUGARDAGUR
facebook.com/BYKO.is
Öl
l v
er
ð
er
u
bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r o
g/
e
ða
m
yn
da
br
en
gl
. A
lla
r v
ör
ur
fá
st
í
BY
KO
B
re
id
d
en
m
in
na
fr
am
bo
ð
ge
tu
r v
er
ið
í
öð
ru
m
v
er
sl
un
um
.
Ve
rð
ve
rn
d
BY
KO
tr
yg
gi
r þ
ér
læ
gr
a
ve
rð
. S
já
n
án
ar
i u
pp
lý
si
ng
ar
o
g
sk
ilm
ál
a
á
w
w
w
.b
yk
o.
is
.
w
w
w
.e
xp
o.
is
/
E
XP
O
au
gl
ýs
in
ga
st
of
a
159.995kr.
Vnr. 79290122
Kerra, 1800x1200 mm.
Leyfileg heildarþyngd
750 kg.
INNANMÁL 1800X1200X310 MM
BURÐARGETA 550 KG
BÓN OG ÞVOTTAVÖRUR
FRÁ SONAX FÁST Í BYKO
Vnr. 41312250
Þvottakústur
nylon. 4.995kr.
Vnr. 41312253
Skaft á þvottakúst,
1,8 m.
3.495kr.
Vnr. 74807505
EINHELL bónvél
BT-PO 90. 5.995kr.
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
Tónleikar
17.00 Söngsveitin Fílharmónía undir
stjórn Magnúsar Ragnarssonar heldur
tónleika í Siglufjarðarkirkju. Flutt
verður dagskrá íslenskra og erlendra
kórlaga. Miðaverð er 1.500 kr.
21.00 Helena Eyjólfsóttir fagnar 60 ára
söngferilsafmæli næsta laugardag á
Græna hattinum með glæsilegum tón-
leikum. Sjálfur Þorvaldur Halldórsson
tekur lagið með Helenu. Hljómsveitina
skipa: Gunnar Gunnarsson píanó og
Hammond-orgel, Grímur Sigurðsson
söngur, trompett, Sigurður Flosason
saxófónar og ásláttarhljóðfæri, Árni Ket-
ill trommur, Brynleifur Hallsson gítar,
Jón Rafnsson bassi, Alfreð Almarsson
söngur og Friðrik Bjarnason gítar og
Þorvaldur Halldórsson söngur. Miðaverð
er 3.500 krónur.
21.00 Tónlistarmennirnir Rúnar Þóris-
son og Hallur Ingólfsson ásamt fleirum
verða með tónleika á Gamla Gauknum.
23.00 Bat out of Hell í Hörpu. Sam-
starf Meatloaf og lagahöfundarins
Jims Steinman náði nýjum hæðum í
október árið 1977 þegar fyrsta plata
þeirra í trílógíunni Bat out of Hell leit
dagsins ljós. Platan verður flutt ásamt
fleiri slögurum af söngvurum á borð
við Matthías Matthíasson, Dag Sigurðs-
son, Eirík Hauksson, Stefán Jakobsson,
Friðrik Ómar, Heiðu Ólafsdóttur, Ernu
Hrönn Ólafsdóttur og Stefaníu Svavars-
dóttur. Miða er hægt að nálgast á
heimasíðu miði.is. Uppselt er á fyrri
tónleika klukkan 20.00 en laust er á
seinni tónleikanna klukkan 23.00.
Sýningar
14.00 Halldóra Helgadótir opnar mál-
verkasýninguna AF JÖRÐU í Mjólkur-
búðinni í Listagilinu á Akureyri. Eins og
nafn sýningarinnar gefur til kynna eru
verkin unnin út frá áhrifum náttúru
landsins. Undanfarin ár hefur Halldóra
beint sjónum sínum að því smálega í
náttúrunni, stækkað það upp og sett í
nýjan búning. Viðfangsefnin eru hraun,
mosi og blóm sem við lítum oft á
sem illgresi en eru þó svo sterk ímynd
íslenskrar náttúru.
14.00 Myndlistarsýningin KJÓLANDI
opnuð í Populus Tremula í Listagilinu
á Akureyri. Þar leiða saman kjóla sína
listakonurnar Brynhildur Kristinsdóttir,
Dagrún Matthíasdóttir, Jónborg Sigurð-
ardóttir og Thora Karlsdottir og opna
innsetningu í sýningarrýminu. Sýningin
KJÓLANDI stendur aðeins þessa einu
helgi og er opið laugardag og sunnudag
kl. 14-17. Allir velkomnir.
15.00 Opnuð verður útskriftarsýning
nemenda á listnámsbraut Fjölbrauta-
skólans í Breiðholti í einum af vatns-
tönkum Perlunnar. Nemendur eru að
sýna þrívíddarhönnun, grafíska hönnun,
teikningar og myndlist.
Uppákomur
12.00 Guðmundur Geirdal, fram-
bjóðandi í 5. sæti Sjálfstæðisflokksins,
sjómaður og aðalmaður í skipulags-
nefnd Kópavogs, býður upp á fiskisúpu
við smábátahöfnina á Kársnesi og talar
um framtíðarskipulagið. Aðrir fram-
bjóðendur Sjálfstæðisflokksins verða á
staðnum. Harmóníkuleikari heldur uppi
léttri stemningu og blöðrulistamaður
skemmtir börnunum.
13.00 Árleg torfærukeppni Flugbjörgun-
arsveitinnar á Hellu en hún hefur verið
fastur fjáröflunarliður í starfi sveitarinnar
síðan 1973. Alls eru 20 keppendur skráðir
til leiks og menn ýmist að keppa í fyrsta
eða tuttugasta skipti á Hellu. Keyrðar
verða sex brautir og þar verður áin og
mýrin að sjálfsögðu á sínum stað. Ekki
hefur verið keppt á Hellu í þrjú ár og lofa
keppnishaldarar góðri keppni.
13.00 Til að fagna hjólaborginni Reykja-
vík efnir Samfylkingin til hjólaferðar. Lagt
verður af stað frá Vesturbæjarlaug og
hjólað inn í Fossvogsdal og Elliðarárdal,
yfir nýju hjólabrýrnar og eftir nýju hjóla-
brautinni með Suðurlandsbraut, um
Borgartúnið og Hverfisgötu vestur í bæ.
Upplagt að skella sér í nýja pottinn í Vest-
urbæjarlauginni eftir ferðina. Aðgangur
að lauginni er innifalinn fyrir þá sem vilja.
Leiðsögumaður er Hjálmar Sveinsson.
Bókmenntir
14.00 Leshringur í Hannesarholti þar
sem rætt verður um bókina Stúlka með
maga eftir Þórunni Erlu- og Valdimars-
dóttur með þátttöku höfundar og
ritstjóra bókarinnar, Guðrúnar Sigfús-
dóttur. Allir velkomnir, aðgangseyrir er
1.000 krónur.
Markaðir
13.00 Hönnunarnemar í Listaháskólan-
um og fataóðar tískuskvísur selja bæði
fatnað sem og eigin hönnun á Lofti
Hosteli, Bankastræti 7. Til sölu verður
m.a: fatnaður, fylgihlutir, pósterar, silki-
þrykktir bolir, myndasögur, skissubækur,
merkjavara, skór og alls konar.
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
Tónleikar
15.00 Chrissie Telma Guðmundsdóttir
verður með útskriftartónleika í Salnum,
Kópavogi. Chrissie útskrifast með
BMus-gráðu í fiðluleik frá Listaháskól-
anum í vor.
16.00 Söngsveitin Fílharmónía undir
stjórn Magnúsar Ragnarssonar og kór
Akureyrarkirkju undir stjórn Eyþórs
Inga Jónssonar halda sameiginlega
tónleika í Akureyrarkirkju. Einsöngvari
er Michael Jón Clarke og orgelleikari
er Sigrún Jóna Þórsteinsdóttir. Kórarnir
flytja eigin efnisskrá ásamt því að flytja
nokkur lög saman. Miðaverð er 1.500
krónur.
17.00 Hallveig Rúnarsdóttir sópran, Sig-
ríður Aðalsteinsdóttir mezzósópran og
Birna Hallgrímsdóttir píanóleikari flytja
íslensk sönglög í tónleikaröðinni Perlur
íslenskra sönglaga í Kaldalóni Hörpu.
17.00 Andrea Jónsdóttir leikur og
kynnir lög af hljómplötum á Ob-La-Dí-
Ob-La-Da, Frakkastíg 8. Aðgangur er
ókeypis.
Fræðsla
11.00 Gönguferð með Guðjóni Friðriks-
syni suður Laufásveginn og fræðst um
fólk og byggingar. Að göngunni lokinni
er hægt að sjá stutta heimildarmynd
um Hannes Hafstein og uppvaxtarár
borgarinnar og skoða Hannesarholt
með leiðsögn. Allir velkomnir en
aðgangseyrir er 2.000 krónur.
Sýningar
14.00 Ástríður Magnúsdóttir verður
með leiðsögn um sýninguna Ertu
tilbúin frú forseti? í Hönnunarsafni
Íslands. Ástríður, dóttir Vigdísar, var
sjö ára gömul þegar móðir hennar
var kosin forseti. Ástríður mun ganga
um sýninguna með það að leiðarljósi
og rifja upp sögur og minningar sem
tengjast fatnaði og fylgihlutum sem eru
til sýnis frá ferli móður hennar.
Dansleikir
20.00 Dansað verður í félagsheimili
eldri borgara í Stangarhyl 4 í Reykjavík.
Danshljómsveitin Klassík leikur fyrir
dansi. Aðgangseyrir er 1.500 kr fyrir
félagsmenn en 1.800 fyrir gesti. Allir
velkomnir.
Dans
14.00 Barnasýning Kramhússins. Popp-
ing, breik og dans fjögurra og fimm ára.
Aðgangseyrir er 1.000 krónur.
20.00 Vorsýning Kramhússins í Tjarnar-
bíói. Breik, Beyoncé, Samtímadans, Afró
og fleira.
Listamannaspjall
15.00 Listheimspekingurinn Jón
Proppé og JKB Ransu, myndlistarmaður
og listgagnrýnandi, fjalla um og skiptast
á skoðunum um yfirstandandi sýningu
Önnu Jóelsdóttur í Ásmundarsal,
Listasafni ASÍ. Öllum er hjartanlega
velkomið að koma og fylgjast með og
taka þátt í umræðum. Aðgangur er
ókeypis, en Listasafn ASÍ er til húsa við
Freyjugötu 41.
Markaðir
12.00 Vorhátíð og markaður Langholts-
sóknar. Góð skemmtun og góð kaup,
allt á milli himins og jarðar til sölu.
Hoppukastali fyrir börnin, kaffisala og
grillaðar pylsur.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@
frettabladid.is