Fréttir - Eyjafréttir - 22.01.1981, Síða 1
i FRÉTTIR
■ VIKUBLAÐ V
•7 r___ _. ____• • r i aa< -> . | 1 1 J
IÐNÞRÓUNARSJÓÐUR SUÐURLANDS:
Utlán í undirbúningi
Hin nýkjörna stjórn Iðn-
þróunarsjóðs Suðurlands hélt
fyrsta stjórnarfund sinn 19.
desember s.l.
Formaður stjórnar var kos-
inn Páll Zophoníasson, Vest-
mannaeyjum. Aðrir í stjórn
eru: Þór Hagalín, Eyrar-
bakka, varaformaður, Arnar
Sigurmundsson, Vestmanna-
eyjum, Olvir Karlsson, Þjórs-
ártúni. Jón Ingi Einarsson,
Vík, Steingrímur Ingvarsson,
Selfossi og Þorsteinn Garð-
arsson, Þorlákshöfn.
A þessum fyrsta fundi var
ákveðið að auglýsa eftir um-
sóknum úr sjóðnum skv. 9. og
9. lið 2. gr. reglugerðarinnar
en þar segir:
„Tilgangur sjóðsins skál
vera að astuðla að eflingu
atvinnulífs á svæðinu. Til-
gangi sínum skál sjóðurinn
leitast við að ná á eftirfar-andi
hátt:
a) Með lánveitingum til
nýrra framkvæmda einstakl-
Flutningar Herjólfs
Blaðið fékk upplýsingar á
skrifstofu Herjólfs um flutn-
inga vöru og farþega fyrir s.l.
ár, svo og öll hin árin, svo
hægt er að bera saman.
1976 1977 1978 1979 1980
Farþegar 21.271 34.416 40.367 42.661 45.186
Bílar 3.359 7.117 9.027 8.668 9.430
Kojur 3.746 10.731 14.731 15.653 16.867
Vörur í tn 3.000 6.667 8.130 9.538 11.130
Ferðir 170 270 355 334 353
Þann 31. des. s.l. voru
ferðir Herjólfs frá upphafí
orðnar sem hér segir:
Þann 19. jan. sl. hafði Her-
jólfur farið 1500 ferðir frá því
skipið kom til landsins:
. 1.482 183.901 37.601 Farþegar 185.248:1500 = 123,50
Bílar 37.819:1500 = 25.21
Kojur 58.785:1500 = 39.19
57.982 Vörur 35.665:1500 = 24 tonn
35.665
Á fundi bæjarstjórnar 15.
janúar s.l. var lögð fram fjár-
hagsáætlun bæjarsjóðs og
stofnana hans fyrir 1981.
Hér á eftir kemur tekju-
áætlun bæjasjóðs 1981, eins
og hún var lögð fram til fyrri
umræðu:
Útsvör og aðst.gj..G.kr. 2.300.000.0000
Fasteignagjöld.............- 380.000.000
Framlag úr Jöfnunarsjóði.. - 310.000.000
Aðrar tekjur...............- 50.000.000
Vaxtatekjur................- 220.000.000
Samtals................ Gkr. 3.260.000.000
eða nýkr. 32.600.000
Tekjuáætlunin gerir ráð
fyrir 11.55% útsvari eða 5%
aukaálagi og þá er gert ráð
inga, fyrirtækja og stofnana
til langs eða skamms tíma.
b) Með lánveitingum til
sveitarfélaga til framkvæmda
sem beint eða óbeint gætu
stuðlað að betir þjónustu við
uppbyggingu iðnaðar.
, c) Með því að kosta eða
veita styrk til sérstakra athug-
ana og áætlanagerða í sam-
bandi við nýjar atvinnugrein-
ar, sem hugsanlega kæmu til
greina á svæðinu. Einnig er
heimilt að veita styrk til hag-
nýtra athugana á atvinnulífi
svæðisins og möguleika svæð-
isins til atvinnuþróunar.
d) Með því að verja fé til
hlutafjárkaupa í sérstökum
stórum fyrirtækjum á Suður-
landi samkvæmt samþykkt
aðalfundar sjóðsins hverju
sinni.
Umóknareyðublöð munu
liggja frammi hjá öllum sveit-
arstjórnum á Suðrulandi,
sem eru aðilar að sjóðnum og
umsóknarfrestur er til 15.
febrúar 1981.
Hamborgarar
Franskar
Scack og aftur
Snack
Kalt 1 lítersöl.
Líttu við...
SHSLIÐ
Geir á
fundi í
kvöld
Sjálfur formaður Sjálf-
stæðisflokksins, Geir Hall-
grímsson mun verða á Full-
trúaráðsfundi Sjálfstæðisfé-
laganna í Samkomuhúsinu í
kvöld.
Ekki er að efa að marga
fýsi að sækja þennan fund,
því búast má við fjörugum
umræðum og fyrirspurnum
til Geirs.
SAMHYGÐ
fæst við vandamál hins daglega lífs
Vegna fyrirhugaðs kynningarfundar hjá Samhygð
hafði blaðið samband við Ragnar Gunnarsson, leið-
beinanda hjá Samhygð í Vestmannaeyjum og spurði
hann í þennan félagsskap.
Bæjarstjóður Vestmannaeyja:
Fjárhagsáætlun 1981 til
fyrri umræðu
fyrir 25% álagi á fasteigna-
gjöld á sama hátt og undan-
farin ár.
í næsta blaði verður nánar
greint frá Fjárhagsáætluninni
en reiknað er með að síðari
umræða fari fram í bæjar-
stjórn 30. janúar n.k.
Breytingartillögur koma
yfirleitt fram við síðari um-
ræðu og boðuðu fulltrúar
minnihlutans breytingartil-
lögur, en ágreiningur varð
um aukaálag á útsvar og að-
stöðugjöld, en samtals gera
þessi aukaálög c.a 160 gamlar
milljónir, eða 1.6 nýjar.
Hvað er Samhygð?
Félagið Samhygð var stofn-
að hér á Islandi 18. ágúst s.l.
Félagið hefur það megin-
markmið að stuðla að jafn-
vægi og jákvæðri þróun
mannsins.
Þessi félagsskapur er nú
þegar starfandi í 40 þjóð-
löndum víðs vegar um ver-
öldina. Starf Samhygðar
byggir á bókinni „Innri ró“
eftir argentíska bóndann Síló
og bók Samhygðar.
Við í félaginu bendum á
lífsmáta, sem byggir á að-
ferðum og kenningum til að
samræma hugsanir, tilfinn-
ingar og gjörðir.
Við viljum að einstakling-
urinn verði virkur þátttak-
andi i lífmu og fái aukin
tækifæri til að sinna þeirri
frumþörf sinni að gefa það
bezta af sjálfum sér til ann-
arra, án þess að vænta ein-
hvers í staðinn.
Hvað gerir Samhygð og
hverjir eru helztu mikil-
vægustu þættir í kenning-
um ykkar?
Mikilvægustu þættina í
kenningum Samhygðar get-
um við dregið saman sem hér
segir:
1. Það er eðli mannsins
að leita eftir og reyna að öðlast
hamingju.
2. Sársauki og þjáning
standa í vegi hamingjunnar
og hindra framrás hennar.
3. Sársauki er líkamlegur
og meðhöndlun hans fer eftir
þróunarstigi þjóðfélagsins og
vísindanna. Þjáningin aftur á
móti er huglæg og meðhöndl-
Framhald á hls. 2