Akureyri - 20.03.2014, Blaðsíða 2
2 11. tölublað 4. árgangur 20. mars 2014
Eftirtalin Apótek og heilsubudin.is selja Proactiv® Solution
AkureyrArApótek, Kaupangi - LyfjAver, Suðurlandsbraut 22
borgArApótek, Borgartúni 28 - gArðsApótek, Sogavegi 108
urðArApótek, Grafarholti - ÁrbæjArApótek, Hraunbæ 115
Apótek gArðAbæjAr, Litlatúni 3 - reykjAvíkurApótek,
Seljavegi 2, Apótek HAfnArfjArðAr, Tjarnarvöllum 11
Heildsölubirgðir, Konkord ehf. S. 568 9999, heilsubudin@heilsubudin.is
Í proactiv® solution eru efni sem hreinsa húð þína
og eyða bólum. Með daglegri notkun koma efnin í
veg fyrir að nýjar bólur myndist. Við lofum því!

u ð rApótek, Grafarholti - ÁrbæjArApótek, Hraunbæ 115
Apótek gArðAbæjAr, Litlatúni 3 - reykjAvíkurApótek,
Seljavegi 2, Apótek HAfnArfjArðAr, Tjarnarvöllum 11
Heildsölubirgðir, Konkord ehf. S. 568 9999, heilsubudin@heilsubudin.is
Í proactiv® solution eru efni sem hreinsa húð þína
og eyða bólum. Með daglegri notkun koma efnin í
veg fyrir að nýjar bólur myndist. Við lofum því!
Eftirtalin Apótek og heilsubudin.is selja Proactiv® Solution
AkureyrArApótek, Kaupangi - LyfjAver, Suðurlandsbraut 22
borgArApótek, Borgartúni 28 - ArðsApótek, Sogavegi 108
urðArApótek, Grafarholti - ÁrbæjArApótek, Hraunbæ 115
Apótek gArðAbæjAr, Litlatúni 3 - reykjAvíkurApótek,
Seljavegi 2, p ek HAfnArfjArðA , Tjarnarvöllum 11
Heildsölubirgðir, Konkord ehf. S. 568 9999, heilsubudin@heilsubudin.is
Í proactiv® solution eru efni sem hreinsa húð þína
og eyða bólum. Með daglegri notkun koma efnin í
veg fyrir að nýjar bólur myndist. Við lofum því!
Versta útfærsla gjald-
töku sem hugsast getur
„Það er mat mitt að hér sé um verstu
birtingarmynd hugmynda um gjald-
töku að ræða,“ segir Edward Hui-
jbens, prófessor við Háskólann á
Akureyri og forstöðumað-
ur Rannsóknamiðstöðvar
ferðamála um gjaldtök-
una sem hófst við Geysi
um helgina.
Málið vísar út fyrir sig
til Norðurlands því land-
eigendur í Reykjahlíð hafa
boðað gjaldtöku í sumar.
Edward segir: „Ferða-
þjónusta getur verið og á að vera
jákvætt afl í okkar samfélagi. Þar
sem ferðaþjónusta kemur inn á öll
svið mannlífsins og gesti er að finna
um allt, þá virkar hún sem jákvætt
afl með því að bæta við allt sem
fyrir er. Þannig höfum við úr fleiri
kaffihúsum og veitingastöðum að
velja vegna ferðaþjónustu og gesta
okkar, við Íslendingar eigum ótrú-
lega fjölbreytta möguleika í að ferð-
ast frá landinu, þökk sé gestum og
ferðaþjónustu, við gætum búið að
mun öflugri almenningssamgöngum
ef gestum væri frekar beint í nýta
þær og einmitt mun öflugra
innanlandsflug ef gestir
gætu nýtt það betur. Það er
hinsvegar deginum ljósara
að gjaldtaka á hverjum stað,
með nefi hvers og eins sem
þar þykist eiga landið, er
engum til gagns utan þess
mögulega að skapa einhver
sárafá störf. Hún mun ekki
nýtast í uppbyggingu innviða, vernda
náttúru eða efla aðdráttarafl stað-
anna þar sem gjaldtakan sjálf tekur
allt sem í hana fer og landeigendur
ekki látið í annað skína en að restina
hirði þeir, ef hún er einhver.“
Edwars segir að uppbygging
áfangastaða og vernd náttúru eigi
að vera á forsjá hins opinbera í sam-
starfi við sveitarfélög og landeigend-
ur. „Til þess á hið opinbera að efla
framkvæmdasjóð ferðamannastaða
sem þegar er til og til hans ættu að
renna skatttekjur af ferðaþjónustu.
Með því að láta ferðaþjónustu vera
í eðlilegum skattaflokkum, en ekki
undanþágu flokkum eins og vsk á
gistingu, þá ættu mun meiri skatt-
tekjur að verða til og gestir okkar
verða þetta jákvæða viðbótaafl. Þá
þarf bara sýn frá hinu opinbera á
málaflokkinn og skilning á mikilvægi
uppbyggingar og verndunar. Hið
opinbera ætti því ekki að þurfa að
vera í nokkrum vandræðum með að
standa myndarlega að uppbyggingu
og vernd án þess upp þurfi að rusla
reipum og gjaldheimtuskúrum.“
Edward vitnar til Guðmundar
Páls Ólafssonar, skrifaði í Hálendinu
um náttúru Íslands: „Enginn á land;
enginn á vatn, vind eða sól. En land
á fólk, þjóðina sem í því býr og af
því er orðið fósturjörð dregið. Ekkert
getur breytt þessu.“ -BÞ
Háskólinn næstfalleg-
asta nýbyggingin
Háskólinn á Akureyri hreppti annað
sæti á lista yfir fallegustu nýbyggingar
landsins hjá fagaðilum sem Frétta-
blaðið tók saman. Blaðið fékk þau
Elísabetu V. Ingvarsdóttur hönnunar-
fræðing/hönnuð og kennara, Pétur H.
Ármannsson arkitekt, Frey Einarsson
sjónvarpsstjóra 365 miðla og Sigrúnu
Birgisdóttur deildarforseta hönnun-
ar- og arkitektúrdeildar Listaháskóla
Íslands til að setja saman listann.
Alls voru sex byggingar á listan-
um, og kemur fram á vef Háskólans
á Akureyri að fjórar þeirra séu á
Norðurlandi, þar af tvær á Akur-
eyri. Þá eru þrjár menntastofnanir
á listanum.
Listinn yfir sex fallegustu ný-
byggingar landsins, byggðar eftir
2007:
1. Sundlaugin á Hofsósi
2. Háskólinn á Akureyri
3. Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ
4. Safnasafnið á Svalbarðsströnd
5. Kaffihúsið í Lystigarði Akureyrar
6. Háskólatorg HÍ
Í umsögn um Háskólann á Akur-
eyri, fjórða áfanga eftir Gláma-Kím
arkitekta segir meðal annars: “Eldri
og yngri byggingar mynda sannfær-
andi heild þar sem mikil alúð er lögð
í mótun rýmis og öll útfærsluatriði.
Sterk grunnhugmynd að skipulagi
bygginga, samsett úr minni einingum
sem unnt var að byggja í hóflegum
áföngum.”
Logi Már Enarsson, arkitekt sem
á vegum Kollgátu hannaði kaffihúsið
í Lystigarðinum á Akureyri, segist
ánægður með hve hlutur norðlenskr-
ar byggingarlistar njóti mikillar
viðurkenningar. a
Þór segir rógburð ráða
ferð í veðmálarannsókn
Í skriflegu svari við fyrirspurn Ak-
ureyrar vikublaðs segir formaður
knattspyrnudeildar Þórs að hann viti
ekki „hvað býr að baki svo annar-
legum og einbeittum vilja manna
að halda áfram með slíkan rógburð
og ærumeiðandi slúðursögur annað
en að skemma enn frekar mannorð
Þórsara“. Fyrirspurn blaðsins er vís-
að „til föðurhúsana“ segir í svari
frá Aðalsteini Pálssyni, formanni
knattspyrnudeildar Þórs.
Fyrirspurn blaðsins laut að því
hvort allir leikmenn Þórs sem kepptu
við Dalvík-Reyni í knattspyrnuleik í
Kjarnafæðismótinu um miðjan jan-
úar hefðu gefið heimild til að rafræn
persónugögn þeirra verði skoðuð,
gögn sem gætu sýnt fram á aðkomu
að veðmáli eða ekki. Einnig var spurt
hvort formaður knattspyrnudeildar
Þórs væri enn sannfærður um sak-
leysi allra leikmanna sinna.
KSÍ hratt af stað rannsókn í
kjölfar fréttar Akureyrar vikublaðs
í febrúar sl. sem teygir sig út fyrir
strendur landsins. Erlend vefsíða var
notuð til veðmálanna, enda veðmál
bönnuð hér nema með sérleyfum og
bannað um allan heim að veðja á
tengdar viðureignir. Freistnivandi
er hugtak sem notað hefur verið af
forráðamönnum Íslenskrar getspár
í umfjöllun annarra fjölmiðla um
rannsóknina. Í yfirlýsingu frá Þór
sagði skömmu eftir frétt Akureyrar
vikublaðs að allir leikmenn liðsins
neituðu að hafa veðjað á úrslit í eig-
in leik. Farið var fram á afsökunar-
beiðni af hálfu Akureyrar vikublaðs
og fréttaflutningurinn harmaður.
Síðar upplýsti Stöð 2 að sannað
væri að veðjað hefði verið á stóran
sigur Þórs í leiknum af aðilum hér
innanlands. Ekki hefur verið leitt til
lykta hvort þeir sem veðjuðu tengd-
ust leikmannahópi Þórs beint. Leik-
urinn fór 7-0. Þáttur Dalvíkurliðsins
hefur einnig verið til skoðunar og
ásakanir gengið í ýmsar áttir.
Málið er ekki á borði lögreglu á
Akureyri að svo stöddu. -BÞ
Verkfallið árið 2000 stórfækkaði nemendum
Margir nemendur í VMA sem lentu í kennara-
verkfalli árið 2000 hættu námi og hafa enn
ekki snúið til baka í framhaldsskóla að sögn
Sigríðar Huldar Jónsdóttur, aðstoðarskóla-
meistara VMA. Hún telur að hækkun sjálf-
ræðisaldurs síðan 2000 og hugarfarsbreyting
í samfélaginu kunni að leiða til þess að færri
nemendur hætti nú að loknu kennaraverk-
falli. Eigi að síður óttast aðstoðarskólameistari
VMA mjög afleiðingar verkfallsins sem einnig
kann að hafa áhrif á aðsókn nýnema næsta
haust. Eftir verkfallið 2000 mátti greinilega
sjá fækkun nemenda í VMA. Á haustönn 2000
innrituðust 1065 nemendur í dagskóla VMA. Á
vorönn 2001 innrituðust 869 nemendur sem er
í kringum 100 nemendum færra en á vorönn
2000 (974) og 2002 (971). „Verkfallið 2000 hafði
klárlega áhrif á námsframvindu nemenda og
færri skilað sér til baka á vorönnina,“ segir
aðstoðarskólameistari VMA.
Sigríður Huld hvetur nemendur til að halda
dampi og koma til baka til að klára önnina að
loknu verkfalli. „Mér finnst enn sums staðar
svolítið ýtt undir þá hugmynd að nemend-
ur leiti sér að vinnu og fari að vinna eins og
það sé góður valkostur sem það er ekki,“ segir
Sigríður Huld.
Afleiðingar kennaraverkfalla geta orðið
mjög alvarlegar í ljósi sögunnar, að sögn að-
stoðarskólameistara VMA. Tap fyrir alla, nem-
endur, skóla og samfélag í heild. „Það græðir
enginn á verkfalli.“
Sigríður Huld segist hafa minnstar áhyggjur
af útskriftarnemendum, einkum bóknámsnem-
endum. Háskólarnir þurfi á nýstúdentum að
halda næsta haust og þeir muni ekki loka
dyrum á stúdenta vorannar nú.
„Útskriftarnemendur eru sá hópur sem er
líklegastur til að klára önnina, það er verra
með iðnnema sem til dæmis geta ekki smíðað
glugga sem hluta af lokaverkefni án leiðsagnar
kennara. En alvarlegast stendur þessi hópur
sem er á öðru eða þriðja ári í náminu. Það er
brothættasti hópurinn, því þeim finnst sumum
svo langt eftir í náminu að það skipti ekki máli
hvort þau framlengi skólagöngu sína um eina
önn eða eitt ár. Afleiðingin getur orðið sú að
þeir snúi aldrei til baka.“
Hver nemandi sem hættir í skóla er tap
fyrir samfélagið, segir Sigríður Huld. Hún segir
að allir hafi fundið fyrir doða í síððustu viku
hvernig stemmning bæði nema og kennara
koðnaði niður. -BÞ
EDWARD HUIJBENS
EKKI ER ANNAÐ í boði fyrir nemendur
framhaldsskóla á Akureyri þessa
dagana en mæla göturnar vegna
kennaraverkfalls.