Akureyri


Akureyri - 20.03.2014, Blaðsíða 14

Akureyri - 20.03.2014, Blaðsíða 14
14 11. tölublað 4. árgangur 20. mars 2014 HEYRST HEFUR að hjónin Halldór Arinbjarnarson og eig- inkona hans Edda Aradóttir sem búa á Svalbarðsströnd séu ekki alveg sammála um hvaða ökumenn sýni skokkurum mesta tillitssemi. Í umræðu á facebook segir Halldór, sem keppt hefur í maraþonhlaupum, að um síðustu helgi hafi verið ljómandi notalegt að skokka 20 km fram og til baka eftir marauðum Svalbarðsstrandarveginum, þrátt fyrir rok. Svo skrifar Halldór sem starfar hjá Ferðamálastofu: „Þetta er líka ágætis tækifæri til að æfa sig í félagsfræðilegum greiningum á mismunandi háttarlagi ökumanna þegar þeir mæta manni á hlaupum. Sumir beinlínis strjúkast vð mann á meðan aðrir sveigja vel til hliðar. Áralangt rannsóknarstarf mitt á þessu sviði hefur leitt til eftirfarandi niðurstaðna: - Ungt fólk er jafnan tillitssamara en það eldra - Karlar eru heilt yfir tillitssamari en konur - Fólk á jeppum víkur síður fyrir hlaupara, sérstaklega ef ökumaðurinn er kona í yngri kantinum - Atvinnubílstjórar eru 99% til fyrirmyndar í umferðinni PS: Og ég nenni ekki að hlusta á athugasemdir um að það sé stórhættulegt að hlaupa svona á þjóðveginum. Í dagsbirtu á auðum vegi, snemma á sunnudagsmorgni. pps: Að lokum ætti að lækka hámarkshraða á Svalbarðs- strandarvegi í 70 km.“ Kona hans Edda bregst við með eftirfarandi: „Þessar niðurstöður eru nokkuð ólíkar þeim sem ég hef fengið úr svipaðri greiningu á framkomu við konu á reiðhjóli. Karlmenn, 40 - 60 ára, á jeppum, fá t.d. lága einkunn fyrir tillitssem og tekur steininn úr þegar þeir eru komir með ferðavagn aftaní. Mögulega gæti verið einhver bias í gangi sem tengist kyni rannsakandans.“ Fylgir broskall frá kerlu til bónda. HEYRST HEFUR að Hild- ur Eir Bolladóttir prestur á Akureyri hafi slegið í gegn sem aldrei fyrr með sögu sem hún sagði um helgina og fékk vængi í netheimum. Svo sagðist klerkinum frá reynslu sinni af morgun- hlaðverðarborði í Mývatns- sveit: „Hörmungarsaga úr morgun- verðarhlaðborði í Mývatns- sveit: Ef þið sjáið ónefnt hótel í Lögbirtingarblaðinu á næstunni þá er það ss mèr að kenna. Vaknaði á hót- elherbergi endurnærð eftir 10 tíma svefn og skottaðist niður í morgunverð með koddafar og hreiður í hnakkanum. Skundaði að áleggsborðinu og þar sem èg er að bisa við að skera gráðost snýst þyndaraflið gegn mèr og Dominoáhrif leiddu til þess að allt hlaðborðið hrundi í gólfið þannig að egg, ostar , lýsisflaska, kjötálegg og marmelaði myndaði myndarlegan hrauk á teppalögðu gólfinu. Èg tilkynnti öðrum gestum í salnum sem horfðu á mig í forundran að èg gæti veitt gullfiska sem svömluðu þarna í búri ef þau væru ennþá svöng. Það fyndnasta við þetta allt saman var að ástkær eiginmaður minn haggaðist ekki og horfði á mig fjarrænum augum eins og hann biði annarar konu sem væri kannski læst inn á salerni. Nú erum við búin að liggja upp á hót- elherbergi og öskra úr hlátri.“ Samsýning í Boxinu Næstkomandi laugardag þann 22. mars, verður slegið upp stórri sam- sýningu í sal Myndlistarfélagsins (Boxinu). Heiti sýningarinnar er Ar- tala Vista, og hópurinn sem stendur að baki sýningunni á það sameiginlegt að allir innan hans leigja sér vinnu- stofu í Portinu (Kaupvangsstræti 10). Starfsemin í vinnustofunum er stór og litrík og rúmar alla þætti myndlist- ar, en einnig tónlist, ritlist og gjörn- ingalist og því má búast við líflegri opnun á laugardaginn. Undanfarið hefur hópurinn sameinast um að hafa vinnustofur sínar opnar og boðið gestum og gangandi upp á innlit og sýningar í rýmum sínum, en á laugar- daginn ætla þau að færa sig um set og sýna í Boxinu með pompi og prakt. Allir eru hjartanlega velkomnir í sal Myndlistarfélagsins klukkan 15:00 og njóta lista, lita og léttra veitinga. Sýningin stendur til 30. mars og er opin laugardaga og sunnudaga frá 14-17. a Sýning á tekötlum Sýning á tekötlum verður opnuð laugardaginn 22. mars og stendur yfir laugardag og sunnudag frá kl. 14-17. Tekatlarnir voru unnir af 13 konum á námskeiðum á Punktinum undir handleiðslu Sigríðar Ágústs- dóttur leirkerasmiðs. Unnið var með hvítan og rauðan jarðleir og voru tekatalarnir handmótaðir frá grunni. a

x

Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.