Fréttir - Eyjafréttir - 08.06.1989, Page 4
Fimmtudaginn 8. júní 1989 -FRÉTTIR
111
II
fi
III
■
H
m
Þórður Karlsson:
Barátta við inn-
flutning á nýjum
og notuðum brettum
Eitt af þeim fyrirtækjum
sem ekki fer mikið fyrir í
Eyjum er Bretti hf. sem tók
til starfa árið 1985 og hefur
framleitt bretti síðan undir
fiskafurðir og fl. hefur rek-
sturinn gengið nokkuð vel
til þessa, en nú á fyrirtækið í
harðri samkeppni við innf-
lutning á notuðum og nýjum
brettum.
í byrjun negldu starfs-
menn saman með naglabyss-
um en í dag er framleiðslan
að mestu vélvædd. í mars
1986 fengum við sænska vél,
til framleiðslunnar. Er hún
að mestu sérsmíðuð því
vegna smæðar markaðarins
þurfti hún að geta framleitt
allar gerðir og stærðir af
brettum. Einnigvar keyptur
veltari og staflari sem sér
um að raða fullsmíðuðum
brettum í stæður.
Allt efni er keypt beint
frá Portúgal, tilsniöið og er
framleiðslan um 85 þús.
bretti á ári, en fram-
leiðslugetan er á milli 120 og
140 þús. bretti með góðu
rnóti.
Stærstu kaupendur bretta
hafa verið SH og SÍF, en
samkeppnisaðstaðan er
slæm þar sem skipafélögin
annaðhvort stunda innflutn-
ing og sölu á brettum eða
flytja þau til landsins fyrir
SH án þess að taka nokkuð
fyrir, nema út- og uppskip-
unargjöld, vörugjöld og
gámaleigu. Reiknuð fragt til
skipsins er engin. Þetta er
gert sem afsláttur á þá vöru
sem er í miklu magni flutt
út. Að gefa afslátt á eina
vöru á kostnað annarra er
ekki heiðarlegt.
Innflutningur á gömlum
notuðum brettum sem keypt
eru á aðeins helmingi þess
verðs sem ný bretti kosta og
fragt er gefin eða reiknuð á
aðra vöru getur aldrei verið
heiðarleg í samanburði við
ný bretti, framleidd hér á
landi og hafa þurft að greiða
fulla fragt. Þessi gömlu
bretti eru keypt á sérstökum
skiptibrettamörkuðum í
Englandi og því ekki vitað
hvað hefur verið á þeim
áður. Hugsanlegt er að
kjötvara, grænmeti eða jafn-
vel efnaúrgangur hafi verið
geymdur á þessum brettum.
Sem síðan eru flutt heim og
á þau sett fyrsta
flokks gæðavara til útflutn-
ings.
Það kostar um 890 kr. á
rúmmeter að flytja bretti
sem keypt eru ný og saman-
sett frá Portúgal hingað til
lands. Þegar efni í brettin er
flutt með sama skipafélagi í
sömu ferð kostar um 2300
kr. að flytja rúmmeterinn,
> Þórður Karlsson fyrir framan brettastæðu
þó að tilbúið taki það 330%
meira pláss. Þarna er 160%
mun að ræða í verði á rúm-
metra. Sagt er að hægt sé að
bjóða svo hagstæða fragt
þar sem skipafélagið sjálft
eða dótturfyrirtæki þess á i
hlut og nægjanlegt ónotað
pláss er í skipinu. Eins mætti
geta þess að þegar skipafé-
lagið kemur með brettin til-
búin til Portugal, þá er þeim
dreift beint upp úr skipi á
ströndina. Á meðan þau
bretti ganga út, þá þurfum
við að halda lager hér heima
en skipafélagið er laust við
allan lager og fjármagn-
skostnað.
Ekki er þó hægt að flytja
tilbúinn samansett bretti
hingað fyrir Bretti hf., þegar
spurt var hvort það sama
mundi gilda ef fyrirtækið
flytti starfsemina til Portúg-
als. Til gamans má geta þess
að þau gömlu notuðu bretti
sem flutt eru til landsins frá
Englandi með skipum Eim-
skipafélagsins eru í fjölda
u.þ.b. 20 - 25 þús. Þau eru
sett í 40 feta gáma og til þess
að koma þeim heim þarf
aðeins 90 - 115 gáma, góður
afsláttur það.
En það sem flutt er frá
Portúgal kemur laust í
skipunum. heildarmagn sem
þaðan er flutt samansett er
um 15 - 20 þús. stk. Rúmmál
þess magns er um 3600 rúm-
metrar. Sambærilegur fjöldi
af efni í bretti er aðeins 836
rúmmetrar.
Það er ansi ódýr rúm-
meterinn í skipinu ef hægt
er að gera þetta á þennan
máta. Góð samlíking er að
betra sé að flytja til landsins
uppblásna loftbelgi en hafa
þá loftlausa.
Eins og sést er vonlaust
að keppa við svona aðstæð-
ur. Ef þetta er smækkuð
mynd af samkeppnisaðstöðu
íslensks iðnaðar, þá er von
að allt sé hér á hausnum.
Reynt hefur verið að fá
leiðréttingu á þessum mál-
um með bréfaskriftum og
samtölum við alla þá sem
hér eiga hlut að máli en
ekkert hefur gengið. Ef það
kallast samkeppni að fram-
leiða vöru hér á landi; hvað
svo sem framleitt er, og
greiða þarf fulla fragt á
hráefni til framleiðslunnar,
en þegar varan
er tekin samsett, þá er hægt
að flytja hana frítt, þar sem
verið er að gefa afslátt á
annarri vöru.
Spyrja má hver er sam-
keppnisaðilinn? Ekki er það
erlendi frmleiðandinn, held-
ur er það íslenska skipafé-
lagið. Allt virðist þetta vera
auðvelt úrlausnar, en ein-
hverra hluta vegna þá hafa
þau hagsmunasamtök, sem
eiga að gæta réttlætis félaga
sinna, ekki staðið sig í stykk-
inu.
Mér er spurn, hvað gerðu
þeir, sem eiga hlut að plast-
pokaframleiðslu og öðrum
umbúðum, ef skipafélögin
segðu að betra væri að koma
heim með þá fulla al' lofti
(uppblásna) og allan pappa
tilbúinn sem öskjur eða
kassa tilbúið til notkunai .
Hvað yrði um alla fjárfest-
inguna og fólkið hjá þessum
fyrirtækjum.
Ansi er ég hræddur um að
flutningsgeta skipalélag-
anna yrði lítil við þessar
aðstæður.
Þórður Karlsson
Verkafólk í
Vestmannaeyjum
Að gefnu tilefni vilja undirrituð stéttarfé-
lög ítreka það að samkvæmt fundarsam-
þykktum beggja félaganna er félagsmönn-
um þeirra óheimilt að vinna um helgar yfir
sumarið, nema til komi sérstakar undan-
þágur samþykktar af stjórnum félaganna.
Félagsmenn eru hvattir til að snúa sér til
skrifstofu félaganna til að fá staðfestingu á
að undanþága hafi verið veitt.
Verkakvennafélagið Snót
Verkalýðsfélag Vestmannaeyja.
Atvinnuhúsnæði
Til sölu nýtt atvinnuhúsnæði á Eiðinu
(Smiður: Valur Andersen).
Hentar mjög vel fyrir hverskonar atvinnu-
starfsemi, svo sem veiðarfærageymslu.
Jón Hauksson, hdl.
Kirkjuvegi 23, 3. hæð, sími 12000.
Ég fer í frí
Ljósmyndastofa mín verður lokuð frá 25.
þ.m. til 23. júlí n.k. vegna sumarleyfis.
Óskar Björgvinsson, ljósmyndari.
Vestmannaeyingar!
STÓRDRÁTTUR FRAMUNDAN.
Þann 9. júní verður dregið í happdrætti
Landssambands hjálparsveitar skáta.
Vinningar eru bæði margir og glæsilegir.
Við hvetjum ykkur til að kaupa miða, því
stór hluti af andvirði hvers miða rennur til
reksturs sveitarinnar hér í bæ.
Með kærri kveðju og þakklæti.
Hjálparsveit skáta í Vestmannaeyjum.
Orlofsnefnd
húsmæðra
Konur athugið. Orlofsvika húsmæðra
verður að Laugarvatni dagana 26. júní - 2.
júlí n.k.
Vinsamlega látið skrá ykkur fyrir 17. júní
í sím
1216