Austurland - 06.09.2012, Page 8

Austurland - 06.09.2012, Page 8
8 6. SEPTEMBER 2012 Í ljósi þess að fyrsta tölublað vikublaðsins „Austurland“ er að koma út þá er ekki úr vegi að fara aðeins yfir það svæði sem blaðinu er ætlað að flytja fréttir frá og hvaða hugmyndir, markmið og tækifæri ráðamenn sjá í sínum sveitarfélögum. Blaðið nær til 9 sveitarfélaga, 8 þeirra eru á Austurlandi en Sveitarfélagið Hornafjörður tilheyrir Suðurlandi og Suðurlandskjördæmi. Lagðar voru fram 9 spurningar til oddvita (forseta bæjarstjórna) í sveitarfélögunum: • Vopnafjarðarhreppi Þórunn Egilsdóttir (Framsóknarflokkur) • Fljótsdalshéraði Stefán Bogi Sveinsson (Framsóknarflokkur) • Fljótsdalshreppi Gunnþórunn Ingólfsdóttir • Borgarfjarðarhreppi Jakob Sigurðarson • Seyðisfjarðarkaupsstað Arnbjörg Sveinsdóttir (Sjálfsstæðisflokkur) • Fjarðabyggð Jón Björn Hákonarson (Framsóknarflokkur) • Breiðdalshreppi Jónas Bjarki Björnsson, • Djúpavogshreppi Andrés Skúlason • Sveitarfélaginu Hornafirði Ásgerður K. Gylfadóttir Ánægjulegt er að sjá að 4 oddvitar eru konur sem er harla gott miðað við að allir bæjar- og hreppstjórar í sveitarfélögunum eru karlar fyrir utan oddvitann í Fljótsdalshreppi sem jafnframt sinnir skyldum hreppstjórans. Spurningarnar snéru að markmiðum á kjörtímabilinu, búsetukostum, árangri sem oddvitar væru stoltir af, það sem betur mætti fara og framtíðarsýn. Í ljósi umræðna um sameiningu sveitarfélaga og aukið hlutverk/vægi landshlutasamtaka voru oddvitarnir spurðir hvort sameina ætti Austurland í eitt sveitarfélag og hvort æskilegt væri að skilgreina landshlutasamtökin sem þriðja stjórnsýslustigið á Íslandi. Í lokin óskaði ritstjóri eftir hollráðum til blaðsins. Þórunn Egilsdóttir á Vopnafirði 1. Markmið á kjörtímabilinu: a.Koma rekstri legudeildar Sundabúðar í varanlegt form og eyða ósvissu varðandi reksturinn svo Vopnfirðingar fái þá þjónustu sem þeir þurfa. b.Vinna áfram að góðum rekstri sveitarfélagsins og jafnframt að lækka skuldir enn frekar. c. Vinna sem kostur er að fjölbreytileika í atvinnu- og mannlífi. 2. Búsetukostir: Fjölskylduvænt samfélag í fallegu umhverfi með öfluga og góða skóla. Atvinnuástand er gott og félagsstarf öflugt. 3. Árangur sem þú ert stolt af: Við höfum rétt af skuldastöðu sveitarfélagsins sem styrkir getu sveitarfélagsins til góðra verka í framtíðinni. 4. Það sem betur hefði mátt fara: Eflaust margt og alltaf má gera betur. 5. Framtíðarsýn: Að hér líði öllum vel og þjónusta fyrir íbúa samfélagsins sé sem best á öllum aldursskeiðum. Að hér verði fjölbreyttari atvinnumöguleikar og öll grunnþjónusta verði í lagi. 6. Austurland eitt sveitarfélag: Nei, við þurfum fyrst að slípast betur í hinum ýmsu samvinnuverkefnum og öðlast þá sýn að jaðrarnir styrkji miðjuna og þurfi því að vera öflugir þátttakendur í öllu samstarfi. 7. Þriðja stjórnsýslustig í formi landshlutasamtaka: Ef það á að gerast þarf að fylgja fjármagn og embætti út um landið. Kostnaðarmat og tekjustofnar hinna ýmsu verkefna þurfa að liggja fyrir. 8. Viltu fara aftur til gömlu kjördæmaskiptingarinnar, Austurlandskjördæmi frá Öræfum til Vopnafjarðar? Það gæti verið styrkur fyrir Austurland og þau málefni sem Austfirðingar þurfa að standa vörð um. 9. Hollráð til blaðsins: Munið eftir öllum íbúum svæðisins. Stefán Bogi Sveinsson á Fljótsdalshéraði 1. Markmið á kjörtímabilinu: Traustari fjárhagur, sterkari samkeppnisstaða og meiri atvinna. 2. Búsetukostir: Á Fljótsdalshéraði er einstök náttúra sem auðvelt er að njóta með allri fjölskyldunni. Þá er í boði góð þjónusta og öflugt félagsstarf fyrir börn og fjölskyldufólk. 3. Árangur sem þú ert stoltur af: Ég er stoltur af því að bæjarstjórn hefur staðið við ýmsar skipulagsbreytingar þrátt fyrir töluverða og á tíðum mjög erfiða gagnrýni. Þegar rykið er sest mun réttmæti þessara ákvarðana verða ljóst. 4. Það sem betur hefði mátt fara: Nokkur spennandi verkefni hafa ekki verið leidd til lykta ýmist vegna skorts á tíma, mannafla eða fjármunum. Við höfum þó ennþá tíma til að bæta úr því. 5. Framtíðarsýn: Ég vil að Fljótsdalshérað verði fremst á meðal jafningja á landsbyggðinni í þjónustu við íbúa sína og að sköpuð verði búsetuskilyrði sem jafnast á við það besta sem gerist á landinu. Að innan sveitarfélagsins verði atvinnu-, menningar- og félagslíf í blóma þannig að einstaklingar geti hér unað glaðir við sitt frá vöggu til grafar. 6. Austurland eitt sveitarfélag: Já. Við þurfum á samheldninni að halda, en þetta getur þó aldrei orðið nema með breytingu stjórnskipan sveitarfélagsins sem myndi tryggja nærstjórnarvald innan þess. 7. Þriðja stjórnsýslustig í formi landshlutasamtaka: Nei. Ég vil frekar að sveitarfélög verði stækkuð með sameiningum og þriðja stjórnsýslustigið jafnframt mótað í formi smærri eininga innan hvers og eins sveitarfélags. 8. Viltu fara aftur til gömlu kjördæmaskiptingarinnar, Austurlandskjördæmi frá Öræfum til Vopnafjarðar? Ég vil breyta kjördæmaskipan en ekki endilega í það horf sem hún var fyrir 1999. Frekar vil ég að kjördæmin miðist einfaldlega við núverandi mörk landshlutasamtaka sveitarfélaga. 9. Hollráð til blaðsins: Fjölmiðill á að vera gagnrýninn, en hann þarf ekki bara að vera gagnrýninn. Í samfélaginu gerast jákvæðir og neikvæðir hlutir og fjölmiðill á að segja frá og endurspegla hvorutveggja Gunnþórunn Ingólfsdóttir í Fljótsdal 1. Markmið á kjörtímabilinu: Stuðla að fjölbreyttara atvinnulífi og bæta vegi og fjarskiptasamband. 2. Búsetukostir sveitarfélagsins: Veðursæld, fagurt og gróðursælt umhverfi . 3. Árangur sem þú ert stolt af: Ljósleiðari lagður á alla bæi. 4. Það sem hefði mátt betur fara: Gengur ekki vel að fjölga börnum í sveitinni. 5. Framtíðarsýn: Að Fljótsdalshreppur verði góður valkostur fyrir fólk að flytja til. 6. Austurland eitt sveitarfélag: Ef til vill verður Austurland eitt sveitarfélag í framtíðinni, en sami árangur getur náðst með samvinnu sveitarfélaganna á svæðinu . 7. Þriðja stjórnsýslustig í formi landshlutasamtaka: Tel að skoða megi þann kost 8. Viltu fara aftur til gömlu kjördæmaskiptingarinnar, Austurlandskjördæmi frá Öræfum til Vopnafjarðar? Ef atkvæðisvægi verður jafnað að fullu verður landsbyggðin áhrifalítil.Kjördæmaskipting skiptir þar litlu. 9. Hollráð til blaðsins: Nýi miðillinn verður að kynna sig áður en hægt er að gefa honum hollráð.Vona að miðillinn verði ekki áróðursblað fyrir einhverja aðila/flokka. Jakob Sigurðarson á Borgarfirði Eystri 1. Markmið á kjörtímabilinu: Að sveitarfélagið standi vel og verði aðlaðandi til búsetu, 2. Búsetukostir: Búsetukostirnir eru svo margir. 3. Árangur sem þú ert stoltur af? Að hafa tekið þá ákvörðun að byggja yfir sparkvöllinn. 4. Það sem hefði mátt betur fara? Betur fara, var eitthvað sem mátti betur fara? 5. Framtíðarsýn: Að íbúum fjölgi og þar með atvinnulíf eflist. 6. Austurland eitt sveitarfélag? Nei mér finnst það ekki vera tímabært. 7. Þriðja stjórnsýslustig í formi landshlutasamtaka: Nei. 8. Viltu fara aftur til gömlu kjördæmaskiptingarinnar, Austurlandskjördæmi frá Öræfum til Vopnafjarðar? Kjördæmin virðast vera orðin of stór þannig að það er spurning. 9. Hollráð til blaðsins: Að dreifa fréttaflutningi um fjórðunginn. Oddvitar sitja fyrir svörum Þórunn Egilsdóttir Gunnþórun IngólfsdóttirStefán Bogi Sveinsson Jakob Sigurðarson

x

Austurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurland
https://timarit.is/publication/1094

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.