Austurland - 06.09.2012, Qupperneq 9

Austurland - 06.09.2012, Qupperneq 9
96. SEPTEMBER 2012 Arnbjörg Sveinsdóttir á Seyðisfirði 1. Markmið á kjörtímabilinu: a. Koma Fjarðarheiðargöngum inn á samgönguáætlun. b. Ná tökum á fjárhagsstöðu sveitarfélagsins. c. Stuðla að auknum atvinnutækifærum og styrkja stöðu kaupstaðarins sem menningarstaðar í samvinnu við stjórnvöld og menningarstofnanir. 2. Búsetukostir: Lifandi og fjölbreytt mannlíf og atvinnulíf. Gott veðurfar og nálægð við stórbrotna náttúru. 3. Árangur sem þú ert stolt af: Viðurkenning á Fjarðarheiðargöngum í samgönguáætlun. 4. Það sem hefði mátt betur fara? Ná betri árangri í að stuðla að fleiri atvinnutækifærum. 5. Framtíðarsýn: Unnið er að grundvallarstefnumótun fyrir Seyðisfjörð í metnaðarfullu stefnumótunarstarfi, þar sem margir íbúar koma að málum. Mín sýn er að Seyðisfjörður verði áfram góður búsetukostur fyrir ungt fólk, þar sem hægt er að treysta á góða skóla, fjölbreytt mannlíf og blómlegt menningarstarf. 6. Austurland eitt sveitarfélag: Þegar búið er að tengja byggðarlög saman með mannsæmandi samgöngum er eðlilegt að huga að þeim kostum og göllum sem fylgja rekstri á svo stórri einingu. 7. Þriðja stjórnsýslustig í formi landshlutasamtaka: Nei. 8. Viltu fara aftur til gömlu kjördæmaskiptingarinnar, Austurlandskjördæmi frá Öræfum til Vopnafjarðar? Já, ég tel það heppilegri einingu sem kjördæmi af mörgum ástæðum. 9. Hollráð til blaðsins: Að vera með vandaðan fréttaflutning og standa fyrir málefnalegri umræðu. Jón Björn Hákonarson í Fjarðabyggð 1. Markmið á kjörtímabilinu: a. Berjast fyrir bættum samgöngum innan Fjarðabyggðar með Norðfjarðargöng og Suðurfjarðaveg þar fremst í flokki. b. Bæta rekstrarstöðu sveitarfélagsins án þess þó að ganga á þjónustu þess til íbúa c. Halda áfram að byggja upp öflugt og sterkt sameinað samfélag íbúum Fjarðabyggðar til heilla 2. Búsetukostir: 3. Árangur sem þú ert stoltur af: Sú góða samstaða og samvinna sem ríkt hefur innan bæjarstjórnar Fjarðabyggðar á kjörtímabilinu. 4. Það sem betur hefði mátt fara: Samvinna milli ríkis og sveitarfélaga hefði mátt vera nánari í tengslum við niðurskurð á ýmsum þáttum þjónustu ríkisvaldsins. Það hefur farið sorglega mikill tími í að verja sjálfsagða grunnþjónustu íbúa Austurlands og réttindi. 5. Framtíðarsýn: Að Fjarðabyggð verði áfram góður staður til að búa í. Hlúa þarf að öllum þáttum samfélagsins til þess að svo megi verða. 6. Austurland eitt sveitarfélag: Stórauka þarf samstarf og samstöðu sveitarfélaganna á Austurlandi og sjá síðan til hvað framtíðin ber í skauti sér. 7. Þriðja stjórnsýslustig í formi landshlutasamtaka: Hef alltaf verið ákafur stuðningsmaður þriðja stjórnsýslustigsins og held að hlutverk þess náist með auknum flutningi verkefna frá ríki til sveitarfélaga með eðlilegum tekjustofnum einnig. Vill sjá frekari kraft í því á næstu árum og til að mynda að sveitarfélögin taki yfir málefni aldraðra eigi síðar en á árinu 2014 til að þeim málaflokki verði sinnt með sómasamlegum hætti. 8. Viltu fara aftur til gömlu kjördæmaskiptingarinnar, Austurlandskjördæmi frá Öræfum til Vopnafjarðar? Já það vil ég. Þrátt fyrir gott sambýli við nágranna okkar á Norðurlandi þá er það mín skoðun að norðausturkjördæmi sé allt of víðfeðmt hvort sem er fyrir þingmenn til að geta sinnt því og eins til að efla samvinnu innan þess. 9. Hollráð til blaðsins: Að það sinni hlutverki sínu sem austfirskur miðill til sóma og koma til skila fréttum af öllum þeim krafti og jákvæðni sem er að finna á Austurlandi. Jónas Bjarki Björnsson í Breiðdal 1. Markmið á kjörtímabilinu: a. Klára aðalskipulag fyrir Breiðdalshrepp. b. Frekari uppbygging atvinnulífs. 2. Búsetukostir: Helstu kostir þess að búa á Breiðdalvík er að hér þekkjast allir og við höfum mjög fjölbreytta þjónustu í sveitarfélaginu, miðað við íbúafjölda, mjög barnvænt umhverfi. 3. Árangur sem þú ert stoltur af: Uppbygging á smábátahöfn með mikilli fjölgun leguplássa, sem hefur skilað sér í fjölgun báta sem landa hérna. 4. Það sem betur hefði mátt fara: Persónulega hefði ég viljað sjá meira umleikis í frystihúsinu, miðað við þá miklu aukningu á lönduðum afla hér á síðustu árum. Þar eru klárlega miklir möguleikar fyrir hendi, ef rétt er haldið á spilunum. 5. Framtíðarsýn: Ég sé fyrir mér að Breiðdalur geti eflst á komandi árum. Ferðaþjónustan er í blóma og ört vaxandi og auk þess hafa bæði sjávarútvegur og landbúnaður óþrjótandi möguleika hér á svæðinu. 6. Austurland eitt sveitarfélag: Nei. 7. Þriðja stjórnsýslustig í formi landshlutasamtaka: Nei. 8. Viltu fara aftur til gömlu kjördæmaskiptingarinnar, Austurlandskjördæmi frá Öræfum til Vopnafjarðar? Nei, ég held að það myndi ekki breyta neinu að vera að hringla með það fram og til baka. 9. Hollráð til blaðsins: Austurland: Ég hvet nýjan fréttamiðil til þess að vera með jákvæðar fréttir af því sem er að gerast í öllum fjórðungnum, líka í smærri byggðarlögunum Andrés Skúlason á Djúpavogi 1. Markmið á kjörtímabilinu: Að byggja upp fjölskyldu- og umhverfisvænt samfélag – vinna að bættum samgöngum – stuðla að fjölbreyttri atvinnuuppbyggingu í sátt við svæðið. 2. Búsetukostir: Fjölskylduvænn og fjölbreyttur bær – vistvænn og vinalegur. 3. Árangur sem þú ert stoltur af: Að hafa almennt við erfiðar aðstæður unnið að uppbyggingu í sveitarfélaginu sem hefur leitt til mun betri þjónustu við íbúana, sömuleiðis komið að mikilvægum málum er varða atvinnuuppbyggingu, ásamt því að hafa lagt mikla vinnu af mörkum við gerð metnaðarfulls og stefnumarkandi aðalskipulags fyrir sveitarfélagið. Með þessu og fleiru höfum við stuðlað að því ásamt samstarfsfólki að gera sveitarfélagið að eftirsóknarverðari búsetukosti. 4. Það sem betur hefði mátt fara: Það þarf m.a. að vinna að því að finna góða og heildstæða lausn á málefnum aldraðra á svæðinu. 5. Framtíðarsýn: Djúpavogshreppur hefur alla burði til að halda áfram að vaxa og dafna til framtíðar ef menn halda áfram að vinna með fjölbreytni atvinnulífs í huga sem byggð verður upp í sátt við svæðið. 6. Austurland eitt sveitarfélag: Verður aldrei að veruleika meðan stytting um Axarveg er ekki tryggð með heilsársvegi. Fleiri samgöngubætur þurfa sömuleiðis að verða á Austurlandi til að þjappa sveitarfélögunum betur saman þannig að þau geti átt skilvirkt og árangursríkt samstarf. 7. Þriðja stjórnsýslustig í formi landshlutasamtaka: Mest um vert að efla landshlutann með frekari verkefnum m.a. frá ríki til sveitarfélaga, en því aðeins að nægt fjármagn fylgi. Með fjölgun og tilfærslu verkefna til fjórðungsins verður stjórnsýslustigið sjálfkrafa öflugra á svæðinu. 8. Viltu fara aftur til gömlu kjördæmaskiptingarinnar, Austurlandskjördæmi frá Öræfum til Vopnafjarðar? Það er mikilvægt að endurskoða kjördæmaskiptinguna – hún hefur ekki reynst hinum dreifðu byggðum vel eins og hún er í dag. 9. Hollráð til blaðsins: Látið ekki hákarlana á svæðinu gleypa / kaupa ykkur! Ásgerður K. Gylfadóttir á Hornafirði 1. Markmið á kjörtímabilinu: Tryggja áframhaldandi góðan rekstur sveitarfélagsins. Örva nýsköpun og samfélagsþróun með fjárstuðningi og samvinnu við atvinnugreinar og félagasamtök svæðisins. Hlúa að umhverfinu með því að byggja áfram upp húseignir, götur og opin svæði í eigu sveitarfélagsins. 2. Búsetukostir: Hér er gott mannlíf í umhverfi sem gefur af sér margvíslega afþreyingarmöguleika fyrir alla fjölskylduna. Atvinnustig er gott, öflugur sjávarútvegur, sístækkandi ferðaþjónusta og vaxandi þekkingarstarfsemi. 3. Árangur sem þú ert stolt af: Að sveitarfélagið búi við traustan fjárhag og öflugt starf á mörgum sviðum. 4. Það sem betur hefði mátt fara: Að hefta fok jarðefna á Leirusvæði sem hefur verið mikið í þurrkunum í sumar, en unnið er að úrbótum sem skilar sér vonandi strax í haust. 5. Framtíðarsýn: Að verða þekkt fyrir framsækið atvinnulíf sem byggir á nýsköpun í sátt við náttúruna, fjölskylduvænar aðstæður. 6. Austurland eitt sveitarfélag: Nei, hugsanlegar sameiningar við önnur sveitarfélög hafa ekki verið ræddar í bæjarstjórn Hornafjarðar og stendur ekki til að setja málið á dagskrá á þessu kjörtímabili. 7. Þriðja stjórnsýslustig í formi landshlutasamtaka: Ég er almennt hlynntari því að verkefni verði færð beint niður til sveitarfélaga. Ég tel að sýnt hafi verið fram á að sveitarfélög á stærð við Hornafjörð geti axlað ábyrgð á stórum málaflokkum sem nú eru á ábyrgð ríkisins t.d. heilbrigðis- og öldrunarmál. 8. Viltu fara aftur til gömlu kjördæmaskiptingarinnar, Austurlandskjördæmi frá Öræfum til Vopnafjarðar? Nei, Hornfirðingar hafa verið að aðlaga sig að nýrri kjördæmiskiptingu sem er ekki gallalaus. Ég tel að ekki sé gott að vera sífellt að hringla með kjördæmaskiptingu í landinu. 9. Hollráð til blaðsins: Að vera gagnrýninn á uppbyggilegan hátt. Þórunn Egilsdóttir Jónas Bjarki BjörnssonJón Björgvin Hákonarson Andrés Skúlason Ásgerður K. Gylfadóttir

x

Austurland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/1094

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.