Austurland - 06.09.2012, Side 10
Mennta- og menningarmálaráðherra
ferðast um Austurland
Katrín Jakobsdóttir heimsótti fjölda menningar og
fræðasetra á ferð sinni frá Egilsstöðum til Reykjavíkur
29. ágúst síðastliðinn. Ferðin var farin að frumkvæði
menntamálaráðherra en auk hennar voru með í för
starfsmenn úr ráðuneytinu þau Hellen M. Gunnarsdóttir,
Eiríkur Þorláksson og Auður Björg Árnadóttir.
Ferðin hófst á Egilsstaðaflugvelli en þaðan héldu ráðherra og sérfræðingar úr ráðuneytinu til
Stöðvarfjarðar þar sem hún kynnti sér
starfsemi HERE sköpunarmiðstöðvar
og fundaði með Signýju Ormarsdóttur
menningarfulltrúa og Ástu
Sigurjónsdóttur verkefnisstjóra um
„Make it happen!“ ráðstefnuna. Þá
var haldið til Breiðdalsvíkur þar
sem ráðherra hitti forsvarsmenn
Breiðdalsseturs og skoðaði
samfélagssýninguna „Bernskublíð
Breiðdalsvík - brot úr sögu þorps.
Frá Breiðdalsvík var haldið til
Djúpavogs þar sem Gauti Jóhannesson
hreppsstjóri tók á móti ráðherra í
Ríkharðsstofu. Næsti viðkomustaður
var Þórbergssetur en þar undirritaði
ráðherra a samning um fjárstuðning
við setrið. Síðdegis var komið við
í Kirkjubæjarstofu þar sem Ólafía
Jakobsdóttir og listamaðurinn Erró
tóku á móti ráðherra og ræddu framtíð
stofunnar sem rannsókna-, menningar-
og fræðsluseturs. Að lokum gróðursetti
ráðherra og föruneyti rauðgreni á
Sandhóli í Meðallandi en rauðgrenið
fékk ráðherra að gjöf frá Ártúnsskóla
í tilefni af „Lesið í skóginn“ verkefninu
2011. Að lokinni gróðursetningu
var komið við í félagsheimilinu
Efri-Ey í Meðallandi þar sem verið
er að endurnýja húsið og setja upp
safn í tengslum við Meðallandið og
barnaskólann sem rekinn var þar.
Ritstjóri var í sambandi
við Katrínu eftir ferðina:
Katrín lýsti yfir ánægju sinni með
ferðina en hugmyndin hafi verið
að kynna sér þau verkefni sem
ráðuneytið styrkti og hefði umsjón
með en væru utan alfaraleiðar. Það
væri mikilvægt fyrir ráðherra að sjá
og upplifa með áþreifanlegum hætti
þau áhrif sem mennta-, menningar- og
þróunarverkefni hafa á ólíkum stöðum
á landsbyggðinni.
Hver líst þér á mennta- og
menningarstarfssemi á Austurlandi
og Hornafirði? Allt sem ég hef séð
af menningarstarfsemi á Austurlandi
og Hornafirði hefur verið feykilega
skemmtilegt og ber vott um mikla
skapandi hugsun. Nægir þar að nefna
bæði handverk og hönnun, austfirskar
kræsingar og alla þá staði og viðburði
sem ég hef heimsótt. Gaman var að
sjá menningarsmiðju ungra eldhuga á
Stöðvarfirði þar sem gömlu frystihúsi
í menningar- og félagshús. Þá fékk ég
að kynnast Ríkharðssafni á Djúpavogi
og öðru blómlegu menningarlífi þar
sem og Breiðdalssetri á Breiðdalsvík
þar sem fléttast saman menning og
fræði. Sama má segja um menntun og
skólastarf þar sem Austfirðingar hafa
unnið vel saman að því að byggja upp
menntun í landshlutanum og farið
þar nýjar leiðir sem hafa vakið athygli.
Ég er svo á leiðinni á Höfn í október
og þekki vel það mikla starf sem þar
hefur verið unnið á sviði mennta og
menningarmála.
Hvað er eftirminnilegast úr starfi
mennta- og menningarmálaráðherra
hingað til? Það er margt eftirminnilegt
- mér finnst ég hafa kynnst ótrúlegu
starfi í skólum og rannsóknastofnunum,
listum og menningu og íþróttum
þannig að það eftirminnilegasta er
líklega krafturinn og gróskan sem við
Íslendingar eigum í öllu því fólki sem
sinnir þessum störfum.
Hvernig leggst kosningaveturinn
2012-2013 í þig? Hann leggst
ágætlega í mig og ég vona að okkur
stjórnmálamönnum takist að ljúka sem
flestum góðum málum.
-SGK
10 6. SEPTEMBER 2012
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 · Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150 · Opið virka daga kl. 10.00 - 18.00 · laugardaga 12.00 - 16.00
12 mánaða vaxtalausar greiðslur*
Gerið gæða- og verðsamanburð
*3,5% lántökugjald
Ný sending
af hágæða
sængurverasettum
i
BOAS RAFDRIFNIR
Leður hægindasófar
og stólar
i
l
NÝT
T
Menntamálaráðherra og föruneyti heimsækja Breiðdalssetur. Á myndinni frá hægri til vinstris: Katrín Jakobsdóttir
(mentamálaráðherra), Páll Baldursson (sveitastjóri Breiðdalshrepps)Eiríkur Þorláksson, Auður Björg Árnadóttir, Hellen
Gunnarsdóttir (skrifstofustjóri á ráðneytinu), Martin Gasser og Christa Feucht (jarðfræðingar og starfsfólk Breiðdalsseturs).
Menntamálaráðherra Katrín Jakobsdóttir.
Andrés Skúlason oddviti Djúpavogshrepps með Katrínu við listaverkið eftir
Sigurð Guðmundsson í Gleðivík.