Austurland - 06.09.2012, Side 14
14 6. SEPTEMBER 2012
Ný ljóðabók
á Austurlandi
ÞFyrir stuttu kom út ljóðabókin Handan við ljóshraðann eftir Sigrúnu Björgvinsdóttur á
Egilsstöðum. Útgefandi er Félag
ljóðaunnenda á Austurlandi og er
þetta tólfta bókin sem félagið gefur út
í flokknum Austfirsk ljóðskáld. Sigrún
hefur áður sent frá sér þrjár bækur auk
lítils kvers með vísnagátum en þetta
er fyrsta ljóðabók hennar. Hún hefur
þó birt nokkur ljóða sinna í blöðum,
tímaritum og safnritum.
Ljóð Sigrúnar eru fjölbreytt að
efni og formi en iðulega yrkir hún
um lífið og tilveruna, um tilgang
lífsins og dauðann. Náttúran er henni
hjartfólgin, í öllum hugsanlegum
myndum, ekki síst í gróandanum.
Hún yrkir um árstíðirnar og teflir þá
gjarnan birtu sumarsins fram gegn
myrkri vetrarins. Þannig dregur hún
iðulega fram andstæður í náttúrunni
og í lífinu sjálfu. Er þetta stílbragð sem
Sigrún grípur oft til. Heilsteypt lífssýn,
bjartsýni og æðruleysi einkenna ljóðin.
Höfundur ver málstað þeirra sem minni
máttar eru og sýndarmennska er fjarri
þessum ljóðum.
Bókin verður til sölu í helstu
bókabúðum og einnig er hægt að panta
hana hjá útgefanda í símum 475-1211
og 867-2811, netfang: maggistef1@
simnet.is.
FÉLAG LJÓÐAUNNENDA Á
AUSTURLANDI
FA
B
R
IK
A
N
Opið: Virka daga kl. 10-18 · Laugardaga kl. 10-17 · Sunnudaga kl. 13-17
Glænýtt frá
UMBRA
Kauptúni og Kringlunni
Sími 564 4400 – www.tekk.is
Þekking – þróun – þjónusta
Austurbrú er að stíga sín fyrstu skref en stofnunin tekur við starfsemi Þekkingarnets
Austurlands, Menningarráðs Austur-
lands, Markaðsstofu Austurlands og
Þróunarfélags Austurlands ásamt
verkefnum og rekstri SSA.
Framundan er fyrsta skólaár
fræðslusviðs Austurbrúar, sem byggir
á starfsemi Þekkingarnets Austurlands,
og er unnið að hefðbundnum
verkefnum í bland við ný. Hér er fjallað
um það sem helst er á döfinni á því
sviði.
Nýlega var borinn í hús bæklingur
þar sem kynnt voru námskeið sem í boði
eru á vegum Austurbrúar í september
og október. Þar má nefna fasta liði
eins og Nám og þjálfun í almennum
bóklegum greinum, en það er nám
fyrir þá sem vilja hefja nám eftir hlé
og þá sem lokið hafa raunfærnimati,
Íslensku fyrir útlendinga og
Fimmtudaga til fróðleiks í hádeginu
annan fimmtudag í mánuði þar sem
fluttir eru fyrirlestrar um ýmis málefni.
Jafnframt er bryddað upp á ýmsum
nýjungum í stuttum námskeiðum sem
fólk getur nýtt sér til gagns og gamans.
Einnig eru mörg námskeið í boði frá
öðrum aðilum. Þá er í haust mikil
áhersla á námskeið sem eru sérsniðin
fyrir ýmis fyrirtæki og stofnanir og
eru starfsmenn og stjórnendur hvattir
til að kynna sér möguleika varðandi
símenntun á sínum vinnustað.
Ráðgjöf varðandi nám og störf er
einn af áhersluþáttum starfseminnar
en allir íbúar á Austurlandi geta
óskað eftir ókeypis námsráðgjöf og
farið í áhugasviðspróf hjá náms- og
starfsráðgjafa Austurbrúar.
Af nýjungum í þjónustu við
háskólanema er helst að nefna að í
haust verður boðið upp á stuðnings-
og umræðutíma fyrir háskólanema
þar sem nemendur geta komið saman
og rætt um nám sitt og verkefni og
fengið ýmsar leiðbeiningar og aðstoð.
Háskólanemar geta leitað til starfsfólks
Austurbrúar varðandi alla þjónustu
sem tengist náminu.
Gæðastarf er mikilvægur hluti af
fræðslustarfsemi og unnið er að því
að fá gæðavottun á símenntunarsviði
samkvæmt evrópustöðlum EQM og
einnig er unnið að því að Austurbrú
verði viðurkenndur fræðsluaðili
í framhaldsfræðslu samkvæmt
viðmiðum Menntamálaráðuneytis.
Á haustdögum er fyrirhugað að
bjóða kynningar í öllum sveitarfélögum
á Austurlandi á starfsemi Austurbrúar.
Þar verður kynnt sú þjónusta sem er
í boði hjá Austurbrú og íbúum gefst
tækifæri til að koma óskum á framfæri
um það hvernig við getum saman eflt
austfirskt samfélag.
Við þurfum menntun við allra
hæfi, öfluga þjónustu og ráðgjöf á
fjölbreyttum sviðum og mismunandi
tilboð fyrir mismunandi fólk!
Sigrún Björgvinsdóttir
Bergþóra Hlín Arnórsdóttir
Fulltrúi símenntunar
Blaðið Austurland óskar eftir að komast í samband við íbúa sveitarfélaganna á Austurlandi sem sjaldan eða
aldrei hafa veitt viðtöl en væru til í að segja skoðun sína í blaðinu eða veita stutt viðtöl. Vinsamlega sendið
okkur tölvupóst á stefania@einurd.is eða hringið í síma 891-6677.
VILTU SEGJA ÞÍNA SKOÐUN?