Austurland - 06.09.2012, Page 16
Álver Alcoa á Reyðarfirði var reist með samstilltu átaki allra sem að komu að
verkefninu og hefði ekki orðið að veruleika án stuðnings þorra Austfirðinga.
Framleiðsla áls hófst í Fjarðaáli í apríl árið 2007. Á þeim fimm árum sem síðan
eru liðin hafa verið framleiddar þar um 1,6 milljónir tonna af áli og nemur
útflutningsverðmæti þeirra um 400 milljörðum króna, eða um 800 milljónum
króna á hvern starfsmann fyrirtækisins. Um 150 milljarðar af því hafa runnið inn í
íslenska hagkerfið.
Að jafnaði starfa milli 800 og 900 manns á álverssvæðinu, ýmist hjá álverinu sjálfu
eða fyrirtækjum sem veita því þjónustu. Fjarðaál býður fjölbreyttan vinnustað og
leggur áherslu á að vera virkur þátttakandi í samfélaginu á Austurlandi.
www.alcoa.is
Fyrir samfélagið og
komandi kynslóðir
Fjarðaál fimm ára
ÍSLE
N
SK
A
/SIA.IS ALC
60842 08/12
Fyrir samfélagið
Bræðurnir Snorri og Jón Óli Benediktssynir, starfsmenn Fjarðaáls,
gera sér glaðan dag með fjölskyldunni heima á Egilsstöðum.