Austurland - 13.11.2014, Page 9

Austurland - 13.11.2014, Page 9
13. Nóvember 2014 9 Vélstjórinn frá Aberdeen (Grásk. i. – Frásögn Axels Tulinius. þórbergur þórðarson skrásetti. ) Fyrsta júlí árið 1894 var ég settur sýslumaður í Norður-Múlasýslu. Settist ég að á Seyðisfirði og fékk til íbúðar eitt herbergi uppi á lofti í öðrum enda lyfjabúðar Ernst lyf- sala. Hafði ég þar skrifstofu mína, en í einu horni herbergisins stóð rúm mitt, og var dregið hengi fyrir. Á herberginu voru tveir gluggar á gafli. Meðal þeirra mála, er fyrir mér lágu, þegar ég tók við sýslumanns- embættinu, var beiðni frá Magnúsi Stephensen landshöfðingja um að halda rannsókn út af skozkum togara, sem komið hafði inn á Seyðisfjörð í maímánuði um vorið. Skip þetta hét M.a. Dodds og var frá Aberdeen. Hélt það frá Seyðisfirði heim til Aberdeen, en þegar þangað kom, hafði það misst vélstjórann. Skýrðu skipverjar svo frá, að hann hefði dottið fyrir borð milli Færeyja og Hjaltlands. En það þótti þó grunsamlegt, að framburði eins hásetans hafði ekki borið saman við frásögn hinna. Þess vegna leituðu við- komandi yfirvöld vitneskju um málið hingað heim. Skömmu eftir að ég kom til Seyðis- fjarðar, fór ég bæði út með norður- og suðurbyggð fjarðarins til þess að spyrjast fyrir um þennan togara frá Aberdeen. En ég gat enga fræðslu um hann fengið aðra en þá, að skipverjar höfðu gert sér glaðan dag, meðan þeir stóðu við á Seyðisfirði, og að einn Ís- lendingur, kallaður Páll jökull, hefði verið með þeim að gleðinni. Svo líður og bíður þar til seint í september. Þá er það eitt sinn snemma nætur, að ég sit að vinnu minni í skrif- stofunni. Kemur þá inn til mín Ernst lyfsali. Spyr hann mig að því, hvort mér hafi ekki verið tilkynnt, að lík hafi slæðzt upp á línu úti í mynni Seyðis- fjarðar hjá fiskimönnum frá Brimnesi. En Brimnes stendur sem kunnugt er, utarlega með Seyðisfirði norðanmegin. Ég segi að mér hafi ekkert verið til- kynnt um þetta, og ég kvaðst ekki leggja neinn trúnað á sögu þessa, því að það væri skylda að láta sýslumann vita, þegar slíkir fundir fyndust. Rétt á eftir fer ég að hátta. En ég get með engu móti sofnað. Ligg ég andvaka lengi fram eftir nóttu af um- hugsun um það, að sagan hlyti líklega að vera sönn, og sannfærðist ég meira að segja um það þá um nóttina, að líkið hlyti að vera af vélstjóranum frá Aberdeen. Á sjötta tímanum vakna ég og fer á fætur. Er ég þá algerlega sannfærður um, að sagan um líkfundinn sé sönn. Fer ég því til og fæ léðan lítinn gufu- bát hjá Ottó Wathne og tek með mér nokkra menn, þar á meðal Eyjólf Jóns- son ljósmyndara. Héldum við síðan út að Brimnesi. Ég geng þar á land og er þá svo sannfærður um líkfundinn, að ég spyr fyrsta manninn, sem ég hitti: „Hvar er líkið? “ Hann vísar mér í hjall þar á túninu og segir, að það sé þar. Förum við svo þangað allir, berum líkið út og leggjum það á túnið. Þar tók Eyjólfur mynd af því, sem ég á ennþá. Líkið var þannig á sig komið, að báðir framhandleggirnir voru dottnir af því, en naktar beinapípurnar voru eftir af upphandleggjunum. Allt hár og hold var skafið burt af höfðinu, svo að einungis nakin hauskúpan var eftir. Sömuleiðis voru og allir vöðvar kropp- aðir burt af hálsliðunum. Að öðru leyti var búkurinn lítt skemmdur. Var það því að þakka, að fötin tolldu ennþá utan á honum, en þau virtust hafa verið gegnsósa af olíu eða feiti. Það voru venjuleg sjómannsföt, en á fótunum voru fjaðrastígvél. Bún- ingurinn og þó einkum stígvélin virt- ist mér benda á, að þetta hefði verið vélamaður. Á buxnahnöppunum stóð nafnið Aberdeen, og í öðrum buxna- vasanum fundum við einn penny. Allt útlit líksins var hið hvumleiðasta, og svo megnan ódaun lagði af því, að við tókum töluvert nærri okkur að koma í námunda við það. Ég sannfærðist undir eins um, að þetta mundi vera lík vélstjórans frá Aberdeen. Fluttum við það inn til Seyðisfjarðar, og sendi ég þegar eftir Jóni Jónssyni, lækni á Fljótsdalshér- aði, til þess að rannsaka líkið, því að Guðmundur Scheving, er þá var hér- aðslæknir á Seyðisfirði, var um þessar mundir í siglingu. En nú vildi svo til, að hann kom heim úr siglingunni, áður en Jón læknir hóf að kryfja líkið, og voru þeir því báðir við uppskurðinn. Ég lagði fyrir læknana ýmsar spurn- ingar, er áttu að leiða það í ljós, hvort maðurinn hefði dáið, áður en hann datt í sjóinn. Sannaðist það við upp- skurðinn, að því er læknarnir fullyrtu, að hann hefði þá verið dáinn eða með- vitundarlaus. Að uppskurðinum loknum lét ég þvo fötin af líkinu og rannsakaði á þeim sauma og bætur. Má geta þess hér, þótt það varpaði í sjálfu sér ekki miklu ljósi yfir rannsókn mína, að ég lagði það undir úrskurð tveggja greindra kvenna, hvort bætur, sem voru á buxnarassinum, væru bættar af karli eða konu. Staðhæfðu þær hiklaust, að þær væru bættar af kven- manni. Eftir þetta var líkið jarðað með mikilli viðhöfn, og gerðu bæjarbúar allt til þess að hafa útförina sem virðu- legasta. Þessu næst tek ég að rannsaka málið að nýju. Kemur nú ýmislegt upp úr kafinu, sem enginn þóttist hafa neina hugmynd um við fyrra réttarhaldið. Meðal annars er mér sagt, að óregla mikil og ölæði hefði verið á skipinu. Það hefði morrað lengi stjórnlaust úti á Seyðisfirði. Þar hefði hver höndin verið uppi á móti annarri, og áflog og háreysti hefðu bergmálað þaðan í land. Stór hundur hefði verið á skipinu, er hefði verið sígeltandi, meðan á þessum ólátum stóð. Þetta bar sama fólkið, sem ekkert mundi við fyrra réttarhaldið. Um sömu mundir, sem ég lauk réttarhöldunum, kom eimskip frá út- löndum til Seyðisfjarðar. Minnir mig það vera frá Zöllner stórkaupmanni og kæmi til að sækja lifandi fénað. Ég greip nú tækifærið, snaraði öllum réttarprófunum í snatri á ensku og sendi þau með fjártökuskipinu til lög- reglustjórans í Aberdeen. Var þá málið tekið þar fyrir á nýjan leik. Sannaðist nú, að manninum hafði verið varpað fyrir borð úti á Seyðisfirði, og höfðu járn verið bundin við framhandleggi hans. Þess vegna hafði líkið haldizt svona lengi við botninn og framhand- leggirnir slitnað af, er það var dregið upp. Um kvöldið, þegar allt þetta var um garð gengið, gekk ég snemma til náða og hugði að njóta góðrar hvíldar eftir þetta rannsóknarvafstur. En nú brá svo við, að ég gat með engu móti sofnað. Úti var tunglskin og bjartviðri. Ég hafði dregið tjöldin frá glugganum, og her- bergið var allt uppljómað af tunglsljósi. Klukkan þrjú til fjögur um nóttina hafði mér ekki runnið blundur í brjóst. Lá ég glaðvakandi með opin augu og horfði til dyra. Sé ég þá allt í einu, að herbergishurðin opnast ofurhægt og að í dyrunum stendur skozki vélstjórinn, nákvæmlega eins ásýndum og líkið leit út. Hauskúpan var nakin og skinin, augnatóftirnar holar og auðar. Glitti í hvítan tanngarðinn mili skoltanna, og skjallhvítar beinapípurnar héngu niður með síðunum. Ég þóttist samt sjá, að hann væri reiður og bæri illan hug til mín. Þessi ferlega mannsmynd þokast hægt og hægt inn eftir gólfinu, stefnir beint að rúmi mínu og starblínir á mig holum augnatóftunum. Ég vildi ekki eiga á hættu að bíða lengur boðanna og snarast fram úr rúminu og út á gólfið á móti ófreskjunni. Ég var að eðlisfari myrkfælinn, en í þetta sinn fann ég ekki til neinnar hræðslu. Ég ávarpa hann á íslenzku og spyr, hvað hann sé að gera hér, og segist ég sízt hafa búizt við því af honum, að hann lofaði mér ekki að vera í friði. En hann gefur orðum mínum engan gaum, heldur mjakar sér steinþegjandi beint framan að mér, unz við mætumst á miðju gólfi og hann ræðst á mig með heljarafli. Slöngvar hann berum beinapípunum yfir um handleggina á mér og utan um mig hálfnakinn. Ég tek á móti eftir föngum, og hefjast þarna milli okkar harðvítugar stimpingar. Þótt hann væri sterkur og illur viðskeytis, veitti mér samt betur, og fékk ég að lokum hrakið hann aftur á bak og út úr herbergisdyrunum, sem þá stóðu galopnar. Smelli ég síðan hurðinni í lás, gríp eldspýtustokk og kveiki og les, það sem eftir er nætur. Kom mér ekki dúr á auga, fyrr en fólk var komið á stjá í húsinu um morguninn. Tvær næstu nætur gekk draugur þessi ljósum logum á neðri hæðinni. Sótti hann þá svo ákaft að Ernst lyfsala, að hann fékk ekki sofið með neinni værð. Eftir það varð hans ekki vart þar í húsinu. Heimild: Þjóðsagnabókin. Sýnisbók íslenzkra þjóðsagnasafna. Annað bindi. Sigurður Nordal tók saman. Almenna bókafélagið. 1980, Reykjavík, bls. 88-91 vélstjórinn frá Aberdeen gerðist á Seyðisfirði

x

Austurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurland
https://timarit.is/publication/1094

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.