Austurland - 13.11.2014, Page 10

Austurland - 13.11.2014, Page 10
13. Nóvember 201410 Upplýsingamiðstöð Austurlands lokað Vegna rekstrarerfiðleika hefur Upplýsingamiðstöð Austur-lands verið lokað og óvíst í hvaða mynd hún opnar að nýju. Ljóst er að um mikla afturför í þjónustu við ferðamenn er að ræða. Upplýsingamiðstöð Austurlands er staðsett á Egilsstöðum og er landshluta- miðstöð sem hefur verið rekin af Aust- urbrú. Hennar helsta verkefni er að veita ferðamönnum þjónustu og þannig auka öryggi þeirra. Í ljósi aukningar á ferða- mönnum síðustu ár, fjölgunar ferða- manna á eigin vegum og fjölgunar þeirra að vetri, jarðhræringa norðan Vatna- jökuls og veðráttu er ljóst að tilgangur, markmið og almannavarnarhlutverk upplýsingamiðstöðva í öllum lands- hlutum er gríðarlega mikilvægt. Undanfarin ár hefur Upplýsingamið- stöð Austurlands verið opin allt árið en ljóst er að mikið fjármagn vantar til að halda heilsársstarfsemi úti. Rekstur- inn hefur verið mjög erfiður síðustu ár en fjármagn frá Ferðamálastofu Íslands hefur minnkað ár frá ári auk þess sem sveitarfélagið Fljótsdalshérað ákvað nýverið að endurskoða þátt sinn í rekstrinum. Af þessum ástæðum leitar Austurbrú ses. nú allra leiða til að finna rekstri landshlutamiðstöðvarinnar far- veg en frá og með 1. nóvember 2014 er hún lokuð og óljóst hvenær og í hvaða mynd hún opnar að nýju. Aðalfundur SSA setti fram ályktun um rekstur upplýsingamiðstöðva í sept- ember. Þar sagði: „Upplýsingamiðstöðvar [eru] afar mikilvægur þáttur í að fjölga áfanga- stöðum ferðamanna, vísa þeim leið og tryggja góða umgengni um landið. Því skorar aðalfundur SSA á stjórnvöld að auka fjármagn til upplýsingamiðstöðva á Austurlandi þannig að þeir fjármunir dugi til að þjónusta ferðamenn og auka öryggi þeirra allt árið.“ Stjórn Austurbrúar ses. tekur heils- hugar undir ályktun SSA og ítrekar hversu mikið öryggis- og hagsmunamál rekstur Upplýsingamiðstöðvarinnar sé fyrir ferðaþjónustu á svæðinu og þess vegna afar brýnt að henni sé tryggður rekstrargrundvöllur. Upplýsingamið- stöðin sinni grunnþjónustu sem þurfi að vera til staðar svo hægt sé að taka á móti ferðamönnum allt árið. Fljótsdalshérað harmar lokun upplýsinga- miðstöðvarinnar Eftirfarandi frétt birtist á heimasíðu Fljótsdalshéraðs þann 6. nóvember síðastliðinn: Fljótsdalshérað harmar lokun Upp- lýsingamiðstöðvar Austurlands nú þegar aðeins tveir mánuðir eru eftir af árinu. Fljótsdalshérað hefur, eitt sveitarfélaga á Austurlandi, langt beint framlag (3,8 millj. kr. á ári) til reksturs upplýsinga- miðstöðvarinnar og ávallt staðið við allar greiðslur til hennar. Atvinnu- og menningarnefnd Fljótsdalshéraðs hefur verið að skoða rekstrarframlag sveitar- félagsins til miðstöðvarinnar. Engin ákvörðun vegna þessa hefur hins vegar verið tekin og því tengist lokun Upp- lýsingamiðstöðvar Austurlands þeirri skoðun ekki á neinn átt. Mikilvægt er að ferðamenn hafi að- gengi að réttum upplýsingum ekki síst þegar vetur er genginn í garð og yfir stendur eldgos í Holuhrauni. Fljótsdals- hérað hvetur hagsmunaaðila til að leita lausna á vanda upplýsingamiðstöðvar- innar og vonast til að farsæl lausn fáist í málinu. Og frá Framkvæmdaráði SSA barst eftirfarandi ályktun: Framkvæmdaráð Sambands sveitarfé- laga á Austurlandi lýsir yfir þungum áhyggjum yfir þeirri stöðu sem nú er komin upp í landshlutanum með lokun Upplýsingamiðstöðvar Austurlands. Ljóst er að hið opinbera verður að tryggja frekara fjármagn til rekstursins, ekki síst í ljósi þeirra aðstæðna sem nú eru uppi vegna eldgoss í Holuhrauni. Samræmi verður að vera á milli þeirrar stefnu sem mörkuð hefur verið opinber- lega um „Ísland allt árið“ og þess fjár- magns sem veitt er til upplýsingagjafar til ferðamanna. Vísað er til ályktunar SSA um þetta efni sem nefnd er hér að ofan. Frétt af www. fljotsdalsherad.is og fréttatilkynningar frá Austurbrú og framkvæmdaráði SSA Fréttatilkynnig frá Framfarafélagi Fljótsdalshéraðs: Veiting viðurkenningar- innar Frumkvæði til framfara 2014 Á aðalfundi Framfarafélags Fljótsdalshéraðs 2014, fimmtudaginn 30. október sl. fór fram afhending viðurkenningar- innar „Frumkvæði til framfara 2014” á veitingastaðnum Fjóshorninu á Egils- staðabúinu. Viðurkenning þessi er veitt fyrirtæki eða einstaklingum, sem þykja hafa skarað framúr varðandi nýsköpun og atvinnuþróun í félagssvæðinu. Þetta hefur alllengi verið árlegur viðburður frá hendi með dyggum stuðningi og þátttöku Landsbankans á Egilsstöðum. Að þessu sinni hlaut Þráinn Lár- usson, veitingamaður og fram- kvæmdastjóri, þessa viðurkenningu fyrir „uppbyggingu í ferðaþjónustu og veitingastarfsemi á Héraði“ eins og fram kemur á viðurkenningarskjalinu. Skammt hefur verið stórra högga milli hjá Þráni. Jafnhliða skólastjórn Hússtjórnarskólans á Hallormsstað byggði hann upp afar myndarlegan gisti- og veitingarekstur á staðnum og rak hann, fyrst undir nafninu „Grái hundurinn“ og síðan Hótel Hallorms- staður. Þá festi hann kaup á húsnæði í suðurálmu Kleinunnar við Mið- vang á Egilsstöðum og kom þar upp veitingastaðnum Salt – Café Bistro. Nú í haust keypti hann síðan hið alþekkta fyrrum félagsheimili Fljótsdalshéraðs, Valaskjálf (sjá mynd), og hefur hafist handa við að reisa það, svo að segja úr öskustónni. Kom fram í þakkar- orðum Þráins við þetta tækifæri á aðalfundinum að hann stefni að mjög fjölbreyttu notagildi Valaskjálfar. Auk gisti-, samkomu- og veitingaaðstöðu, hyggst hann stefna að því að geta boðið upp á fyrsta flokks ráðstefnuaðstöðu og alvöru kvikmyndahús, svo að það helsta sé nefnt, sem um leið kallar á all- nokkra stækkun hússins. Húsið hefur nú fengið nafnið„Menningarhúsið Valaskjálf “. Þessi upptalning, nægir til að bera vott um frumkvæði, hugkvæmni, sem og dugnað og áræðni. Er þetta mik- ill fengur fyrir okkur Héraðsbúa og þess vegna Austfirðinga alla og vekur okkur bjartsýni. Óhætt er því að segja að Þránn sé ákaflega vel að þessari viðurkenningu kominn. Framfara- félagið óskar Þráni til hamingju með þetta frábæra uppbyggingarstarf og þá, ekki síður, góðs gengis í framtíðinni. Stjórn Framfarafélags Fljótsdalshéraðs. 23Bændablaðið | fimmtudagur 7. júlí 2011 Öflugir High Tech rafgeymar fyrir jeppa. Er bíllinn tilbúinn fyrir ferðalagið? MANITOU MLT 625- 75 H Nett fjölnotatæki Lyftigeta: 2.500 kg Lyftihæð: 5.900 mm 4-hjóladrifinn 4-hjólastýrður 75 hö, Kubota, Hlaðinn aukabúnaði td., loftkælt ökumannshús, skófla, gafflar, útvarp. STAÐGREIÐSLUVERÐ KR. 8.200.000 + VSK 2x10 Þór Á landsmóti hestamanna á Vindheimamelum síðastliðin laugardag afhenti Hrossarækt.is styrk til Styrktarfélags krabba- meinssjúkra barna, (SKB). Styrkurinn er afrakstur söfnunar á vegum Hrossaræktar.is þar sem boðnir voru upp folatollar á Stóðhestaveislu í Ölfushöll sl.vetur og happdrættismiðar seldir í kjöl- farið. Hrossaræktendur tóku málefninu mjög vel og rúmlega 50 stóðhests- eigendur gáfu folatolla sem nýttir voru í uppboðið og happdrættið. Hestamenn tóku málefninu ekki síður vel og útkoman var veglegur styrkur upp á kr. 2.015.000 sem afhentur var á stærstu hátíð hesta- manna á Íslandi í dag. Hrossarækt.is er fyrirtæki sem á og rekur stóðhestavefinn stodhestar. com. Að auki stendur Hrossarækt. is fyrir stóðhestasýningum norð- an og sunnan heiða og gefur út Stóðhestabók. Í vetur kviknaði sú hugmynd hjá aðstandendum vefs- ins að standa fyrir söfnun til handa góðu málefni og leita þar liðsinnis hrossaræktenda í landinu. Fyrir val- inu varð að styrkja Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna sem hefur um árabil stutt krabbameinsjúk börn og fjölskyldur þeirra. Viðstaddir afhendinguna voru m.a. Hinrik Bragason frá Hestvit ásamt stóðhestinum Héðni frá Feti og Helgi Eggertsson með Stála frá Kjarri, en þeir voru meðal þeirra sem lögðu sitt til fjáröflunarinnar. Við styrknum tók fjölskylda hestafólks sem þekkir vel til starfs félagsins en eldri sonur þeirra var skjólstæðingu félagsins á sínum tíma en hefur nú náð fullum bata. Þau Rannveig Árnadóttir, Brynjar Jón Stefánsson og Brynjar Jón yngri tóku við styrknum fyrir hönd Styrktarfélagsins, en fyrir hönd Hrossaræktar.is afhenti ung hestakona Nadía Sif Gunnarsdóttir styrkinn. Hulda G. Geirsdóttir, fjölmiðla- fulltrúi Hrossaræktar.is sagði það mikla ánægju að geta styrkt þetta góða málefni og vildi þakka þeim fjölmörgu hrossaræktendum sem gáfu folatolla til söfnunarinnar sem og hestamönnum sem voru duglegir að styrkja málefnið. Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna fékk styrk frá Hrossarækt.is Frá afhendingu styrksins. Frá vinstri, Brynjar Jón Stefánsson, Rannveig Árnadóttir, Hinrik Bragason með Héðinn frá Feti, Hulda G. Geirsdóttir, Guðmundur Björgvinsson, Magnús Benediktsson, Björn Kristjánsson og Snorri Kristjánsson frá Hrossarækt.is og Helgi Eggertsson með Stála frá Kjarri. Fyrir framan standa Brynjar Jón yngri og Nadía Sif Gunnarsdóttir með ávísunina á milli sín. Mynd / Gígja Einars STAÐGREIÐSLUVERÐ KR. 8.200.000 + VSK th!! Útvegum varahluti í flestar gerðir véla og tækja – á góðu verði!! Á myndinni heldur Þráinn á viðurkennigarskjalinu sem hann veitti viðtöku úr hendi vigfúsar Ingvars Ingvarssonar, ritara og formanns viðurkenn- ingarnefndar félagsins, sem með honum er á myndinni.

x

Austurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurland
https://timarit.is/publication/1094

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.