Austurland - 27.11.2014, Blaðsíða 6

Austurland - 27.11.2014, Blaðsíða 6
27. Nóvember 20146 Of mörg orð eftir Sigríði láru Sigurjónsdóttur Ein af skemmtilegri bókum ársins er bókin Of mörg orð eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur. Undirtitill bókarinnar er Þroskasaga tiltölulega ungrar konu í góðæri og eru það orð á sönnu því miklar breytingar verða á lífi höfundar í bókinni. Bókin er byggð á bloggskrifum Siggu Láru frá árunum 2003-2008 þar sem hún spáir í íslenskt samfélag (ráðamenn þjóðarinnar fá nokkrar athugasemdir og einlægar spurningar í anda barns- ins í Nýju fötum keisarans), barneignir og sambúð, hvernig það er að vera fátækur námsmaður (sem þó er aldrei alveg auralaus) og þunglyndi svo eitt- hvað sé nefnt. Allir sem hafa verið einhleypir eitt- hvað upp eftir aldri kannast við margt sem Sigga Lára nefnir. Ein skemmti- legasta færsla bókarinnar er á bls. 33 og hljómar svo: „Maðurinn gaf út vottorð um piprun vora með skelf- ingarsvip og hefði látið það gilda til lífstíðar hefði tölvukerfið boðið uppá.“ Sigga Lára orðar hlutina skemmti- lega og oft á óvæntan og nýjan hátt: „Kvennafrídagurinn fór framhjá mér vegna annríkis. Þversögn í því. Best að bæta fyrir brot sín með jafnréttis- kjaftæði“ (bls. 86). Hún ræðir einnig þunglyndi á einlægan og opinn hátt. „Ég vissi ekkert um þunglyndi. Það litla sem ég hélt að ég vissi voru rang- hugmyndir og fordómar. Hluti af þunglyndisforvörnum þyrfti að vera að útrýma þeim“ (bls. 104). Of mörg orð er, eins og áður segir, skemmtileg bók, þótt þar sé rætt um mál sem margir vilja helst ekkert af vita. Góð bók fyrir alla. Norðfjarðarkirkja Undanfarna mánuði hefur verið fjallað um kirkjur á Austurlandi og hef ég notað texta Vigfúsar Ingvars Ingvarssonar um Kirkjur og kirkjugöngur í Múla- prófastsdæmi. Ég hef ekki fjallað um allar kirkjurnar í því riti en ákvað að bregða mér niður á firði og því er Norð- fjarðarkirkja kirkja vikunnar að þessu sinni. Textinn um kirkjuna er fenginn úr Kirkjur Íslands, 20. bindi sem er um friðaðar kirkjur í Austfjarðaprófasts- dæmi. Textarnir sem ég nota um Norð- fjarðarkirkju eru Kirkjustaður eftir Hjörleif Guttormsson og Byggingarsaga kirkjunnar eftir Pál V. Bjarnason. [. . . ] Skorrastaðarkirkja fauk af grunni 8. mars 1896 í stórviðri af norðvestri og var hún fjórða timbur- kirkjan í prófastsdæminu sem þannig fór fyrir á rúmum tveimur áratugum. Eftir nokkra umræðu var ákveðið að byggja nýja kirkju í stækkandi þéttbýli í Nesþorpi. Réði eflaust miklu afstaða sóknarprestsins, Jóns Guðmundssonar, sem þá hafði þjónað staðnum í sjö ár. Lögðu Nesbæingar til lóð undir kirkj- una og Sveinn Sigfússon lánaði fyrir timbri. Flutningur kirkju frá Skorrastað að Nesi var heimilaður með landshöfð- ingjabréfi 29. ágúst 1896. Norðfjarðar- kirkja, eins og hún er oftast kölluð, var byggð á grjóthlöðnum grunni sumarið 1896. Yfirsmiður við bygginguna var Vigfús Kjartansson. Við hana var byggt safnaðarheimili 1985, teiknað af arki- tektunum Ormari Þór Guðmundssyni og Örnólfi Hall. Kirkjan stendur miðsvæðis í kaup- staðnum niður af Skrúðgarði Neskaup- staðar skammt ofan fjöru á horni Eg- ilsbrautar og Kvíabólsstígs skammt innan við upphaflegt verslunarsvæði frá 1895 við Neseyri. Þar upp af, inn af Kvíabóli, er gamall grafreitur, nú innan skrúðgarðs en saga hans er lítt þekkt. Þess utan eru grafreitir frá 19. öld og ef til vill eldri á nokkrum stöðum innan núverandi kaupstaðar. [. . . ] Að- alkirkjugarður sóknarinnar var hins vegar á Skorrastað og stóð kirkjan þar í garðinum. Skömmu fyrir 1920 var vígður kirkjugarður á Bakkabökkum nokkru utan við þáverandi byggð og stækkaður síðar. (bls. 247) [. . . ] Þegar hin nýja kirkja var byggð árið 1896 voru íbúar á Nesi skráðir 49 talsins og söfnuðurinn taldi 466 meðlimi. Ekk- ert var endurnýtt af viðum gömlu kirkj- unnar á Skorrastað, heldur var hún rifin um vorið og viðirnir seldir á uppboði. Í vísitasíu Neskirkju frá 27. júlí 1897 segir: „Prédikunarstóllinn er það eina sem gamalt er í kirkjunni.“ Reyndar er söngtaflan einnig úr Skorrastaðarkirkju enda merkt henni. [. . . ] Vorið 1896 hófust framkvæmdir við að hlaða grunn nýju kirkjunnar á Nesi. Gísli Þorláksson í Sandhóli hafði um- sjón með því verki. Alls unnu sex smiðir og snikkarar að smíði kirkjunnar þetta sumar og haust. Yfirsmiður var Vigfús Kjartansson úr Mjóafirði og honum til aðstoðar var Ólafur Ásgeirsson á Ekru sem fáum árum áður hafði verið yfirsmiður Brekkukirkju í Mjóafirði. [. . . ] Söfnuðurinn kostaði bygginguna en heildarkostnaður er talinn vera kr. 6.308,58. Sérstaklega er tekið fram að Vigfúsi yfirsmið hafi veirð greiddar þrjár krónur fyrir eins dags vinnu við „uppriss kirkjunnar.“ Ekki hefur oft verið getið um hönnunarkostnað á kirkjum á Íslandi á þessum tíma. Nýja kirkjan var jafnlöng þeirri gömlu eða 18 álnir (11,3 metrar) en að- eins breiðari eða 12 álnir (7,5 metrar) og skartaði turni með íbjúgu píramítaþaki. Um nýárið 1897 var kirkjan fullsmíðuð en ómáluð utan sem innan. Haustið 1897 var norskur málari, Ingebrigt að nafni, ráðinn til að mála kirkjuna að innan. Páll Markússon, helsti málar- inn í þorpinu, var ráðinn honum til aðstoðar. Ljóst er að þeir hafa málað kirkjuna að innan og einnig oðrað eða eikarmálað [. . . ]. Einnig er greitt fyrir að lýsisbera kirkjuna að utan. [. . . ] Timburklæðning kirkjunnar virðist ekki hafa staðist tímans tönn lengi því fljótlega er farið að huga að endur- bótum á henni. Strax á árunum 1904- 1905 voru norðurhlið og austurstafn klædd bárujárni og um svipað leyti voru suðurhlið, vesturstafn, þak og turn „máluð með steingráu máli.“ Tveimur árum síðar voru hliðar kirkjuturnsins klæddar bárujárni, en suðurhlið og vesturstafn kirkjunnar voru járnklædd síðar. Árið 1912 var settur kolaofn í kirkj- una sem gefinn var af kvenfélaginu Nönnu. Upphaflega virðist þak kirkj- unnar ekki hafa verið viðarklætt undir bárujárninu en árið 1920 var ákveðið að „rífa þakið af henni og setja borð og pappa á það undir járnið.“ Þetta var gert árið 1921. [. . . ] Sumarið 1956 var kirkjan máluð og prýdd á ýmsan hátt af Jóni og Grétu Björnsson listmálurum. Tók það verk sex vikur og var talið hið vandaðasta. Þá er þess einnig getið að járnkross sé á turninum upplýstur með neonljósi. Árið 1957 var keypt nýtt pípuorgel frá Þýskalandi, og sett upp í kirkjunni. [. . . ] Árið 1977 var haldið upp á 80 ára afmæli kirkjunnar, voru bekkirnir endurbættir af því tilefni og sett upp ný útihurð í stað þeirrar gömlu sem var orðin léleg. Heimild: Kirkjur á Íslandi, 20. bindi. Friðaðar kirkjur í Austurlandsprófasts- dæmi. HverJIr er þetta? Enn höldum við áfram að birta myndir úr Ljósmyndasafni Aust- urlands hjá Héraðsskjalasafni Austfirðinga. Þessi mynd kem- ur frá Þórhalli Eyjólfssyni, úr búi foreldra hans Ingibjargar Einarsdóttur og Eyjólfs Þórar- inssonar. Hrafnkell Lárusson og fleiri þekktu ungu mennina á síðustu mynd. Þeir heita f.v. Valur Fann- ar Gíslason frá Eskifirði og Andri Már Blöndal frá Seyðisfirði. Eru upplýsingar frá lesend- um eru vel þegnar og er þeim sem geta gefið þær bent á að hafa samband við Héraðs- skjalasafnið í síma 471 – 1417 eða á netfangið: magnhildur@ heraust.is. Ný verslun á Egilsstöðum Jötunn Vélar hafa opnað nýja verslun að Sólvangi 5 á Egilsstöðum. Jó- hannes Bjarnason, verslunarstjóri fyr- irtækisins, segir markmiðið að stórefla þjónustu við núverandi og nýja við- skiptavini á Austurlandi, jafnframt því að færa þjónustuna heim í hérað, líkt og Jötunn Vélar gerðu á Akureyri fyrir hálfu öðru ári. „Húsnæðið á Egilsstöðum er um 200 fermetrar að stærð og má segja að versl- unin sé smækkuð mynd af verslunum okkar á Selfossi og Akureyri. Engu að síður endurspeglum við í vöruúrvali alla okkar vöruflokka, leggjum ríka áherslu á rekstrarvörur fyrir landbún- aðinn líkt og ýmsar aðrar vörur, svo sem gæludýrafóður, hestavörur, efnavörur, bætiefni fyrir búfénað, hlífðarfatnað, leikföng og fleira,“ segir Jóhannes en úti fyrir versluninni er einnig útisvæði þar sem koma til með að verða dráttarvélar og önnur tæki sem Jötunn Vélar selur. „Það hefur verið góður vöxtur í versluninni hjá okkur og við erum hæstánægð með þróunina á Akureyri frá því fyrirtækið opnaði þar í byrjun sumars 2013. Opnun verslunarinnar á Egilsstöðum er því rökrétt framhald í uppbyggingu okkar,“ segir Jóhannes. Að Sólvangi 5 er fyrirtækið í ná- grenni við verslun Húsasmiðjunnar og hefur Jötunn Vélar samstarf fyrir fyrirtækið Bara snilld ehf. en starfs- menn þess fyrirtækis annast afgreiðslu í versluninni. List sem heldur höfðinu hlýju Húfurnar eru framleiddar með hefðbundnum aðferðum úr ull af seyðfirsku sauðfé ásamt handofnu myndmerki í þremur mis- munandi útgáfum. Hægt er að prófa húfurnar í Bókabúðinni – verkefna- rými. Opið er daglega frá 23. - 29. nóvember kl. 14: 00-18: 00. Múmínálfar í Safnahúsinu Í tilefni af 100 ára fæðingarári Tove Jansson verður Múmínhátíð á Bókasafni Héraðsbúa fyrstu dagana í desember. Mánudaginn 1. desember verður opnuð Múmín- sýning í skápnum fyrir framan bókasafnið. Boðið verður upp á piparkökur að hætti Míu litlu og glögg Múmínpabba klukkan 16. Sýningin verður í tvær vikur og lýkur 12. desember. Á fimmtudeginum verður hægt að taka þátt í teiknisamkeppni Múmín- mömmu á safninu. Samkeppnin er ætluð börnum frá 6 til 12 ára. Íris Lind er dómari og verða úrslit úr keppn- inni kynnt þriðjudaginn 9. desember klukkan 17. Á föstudeginum, 5. desember frá klukkan 14 til 18, verða svo sýndar Múmínmyndir á safninu.

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/1094

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.