Austurland - 27.11.2014, Page 8

Austurland - 27.11.2014, Page 8
27. Nóvember 20148 Austurland – áhugaverður valkostur í list- og verkgreinum Sama dag og sýningin Að heiman og heim var opnuð hélt Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrrverandi alþingismaður og menntamálaráðherra nú verkefnastjóri í mennta- og nýsköp- unarmálum hjá Samtökum atvinnulífs- ins, erindi um list-, verk- og tækninám. Hún varpaði fram þeirri spurningu af hverju börn færu ekki inn í verk- og tækninám og taldi eina lausnina vera þá að auka læsi og byrja fyrr. Auka þyrfti alls konar læsi, þar á meðal talnalæsi, tölvulæsi og svo framvegis. Auka þyrfti samtalið á milli leik- og grunnskóla. Þau börn sem væru orðin vel læs í fyrstu bekkjum grunnskóla héldu sig yfirleitt á beinu brautinni og lentu síður í brott- falli. Þau öðluðust mikilvæga grunn- færni snemma og vissu yfirleitt fljótt hvað þau vildu. Þorgerður Katrín taldi að breyta þyrfti kerfinu, gera það einfaldara, þverfaglegra og brjóta niður veggi. Hún sagði að allir vildu breyta kerfinu en enginn þyrði að stíga skrefið. Eitthvað í hugsanahættinum kæmi í veg fyrir það. Virkja þyrfti 24. grein grunnskólalaga um að gera bók- og verknámi jafnhátt undir höfði. Foreldrar væru hræddir við verknámið og beindu börnum sínum frekar í bóklegt nám, teldu það öruggara og leiða til einhvers. Það leiddi til þess að í bóklega náminu væru margir einstaklingar sem ættu þar ekki heima. Könnun hefði sýnt að 60% þeirra sem eru í bóklegu námi hefðu viljað taka eitthvað verklegt og 37% þeirra sem eru í bóklegu námi hefðu viljað vera eingöngu í verklegu námi. Þegar þetta er niðurstaðan þá er augljóslega eitthvað að kerfinu. Auka þarf útgönguleiðir út úr nám- inu svo brottfall verði ekki einn af möguleikunum. Atvinnulífið og skólinn þurfa að eiga í eldheitu ástarsambandi. Hægt er að auka hagnað fyrirtækja með því að nýta betur þá sem hafa farið í list-, iðn- og verknám. Breytingar á iðn- og verknámi munu kosta og því þurfa stjórnvöld að vera tilbúin til að leggja peninga í verkefnið. Þorgerður Katrín hvatti til þess að ekki yrðu haldnar fleiri 17. júní ræður heldur farið í framkvæmdir og verkin látin tala. Að heiman & heim Nú fer sýningu á lokaverk-efnum austfirskra listnema í Menntaskólanum á Egils- stöðum að ljúka en hún hefur staðið frá 12. nóvember og mun standa til 30. nóvember. Sýningin er í anddyri kennsluhúss og er hún opin á opn- unartíma skólans Sýningarstjórn og utanumhald er í höndum SAM-félagsins, grasrótar- samtaka skapandi fólks á Austurlandi og Láru Vilbergsdóttur hjá Austurbrú. Formaður SAM-félagsins er Ingunn Þráinsdóttir. Styrktaraðilar eru Menningarráð Austurlands og Fljótsdalshérað í samstarfi við Menntaskólann á Eg- ilsstöðum. Listnemarnir ungu eru: elísabet Sara emilsdóttir, f. 1989, frá Seyðisfirði. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Egilsstöðum, umhverfis- og byggingaverkfræði frá Háskóla Íslands og BA í Arkitektúr, Listaháskóla Íslands. Um verkefnið: Byggingin er sel, staðsett á Kleif- arvatni. Hún er áningarstaður ferða- langa í pílagrímsför sem ferðast þvert yfir landið og endurspeglast þrískipt vegferð þeirra í byggingunni. Selið er einnig fræðslusetur fyrir skólahópa yfir vetrartímann. Byggingin birtist manni sem þrír hlutar, í hverjum hluta er aðaláhersla lögð á vinnustofur. Hver kjarni mótast af því hvað dregið er inn úr umhverf- inu hverju sinni en kjarnarnir eru allir samtengdir undir jörðu. Fyrstu tveir hlutarnir falla undir almenningsrými og snúa til suðurs, meðan þriðji hlut- inn hvílir í norðurhlíðinni og heldur utan um einstaklinginn. Skúli andrésson, f. 1988, frá Djúpivogi. Skúli hefur stundað nám við Grunnskóla Djúpavogs, Mennta- skólann á Egilsstöðum, Fjölbrauta- skólann í Breiðholti, Háskóla Íslands og Kvikmyndaskóla Íslands Um verkefnið: Einn á báti er stuttmynd sem tekin var upp á Djúpavogi skömmu fyrir jólin 2011. Við höfðum 4 daga til að taka upp þessa mynd. Tökurnar gengu hraðar fyrir sig en til stóð og náðum við að klára tökur á 1 og ½ degi, hinir 2 dagarnir fóru í ferðalag til og frá Djúpavogi. Magnús Ólafsson fer með aðalhlutverkið og í stuttu máli fjallar myndin um eldri mann sem býr í jaðri lítils þorps. Gamli maður- inn sem er drykkfelldur reynir að ná sambandi aftur við dóttur sína sem býr í þorpinu. Stefanía Ósk Ómarsdóttir, f. 1989, frá Egilsstöðum. Stefanía hefur stundað nám við Menntaskólann við Hamrahlíð, tungumálabraut 2005- 2006, 2008-2009 Menntaskólann á Egilsstöðum, tungumálabraut og listabraut 2007- 2008 Istituto Europeo di Design Barcelona, Ilustración y animación multimedia (Myndskreyting og teikni- myndagerd), 3ja ára diplómunám 2009-2012 og IDEC – Universidad de Pompeu Fabra, Master de Animación 3D (master í þrívíddar teiknimyndagerd), 2012-2014 Um verkefnið: LOUD! er tónlistartímarit gefið út í Portúgal einu sinni í mánuði, með sérstakan fókus á þungarokk. Síðan útgáfa blaðsins hófst í byrjun árs 2012, hef ég séð um að myndskreyta grein- ina um „plötu mánaðarins“ (ásamt nokkrum öðrum greinum, og forsíðu tímaritsins). Verkefnið felst í því að teikna einn eða fleiri meðlimi hljóm- sveitarinnar sem hefur orðið fyrir valinu hverju sinni, en teiknistílinn og/eða þemað er mér frjálst að velja. Oftast kemur innblásturinn frá hvaða tónlistarstefnu hljómsveitin flokkast undir, þema eða nafn plötunnar, og stundum útlit plötunnar. Þórný Sigurjónsdóttir, f. 1984, frá Hallormsstað. Þórný hefur numið við Menntaskólann á Egilsstöðum. Mála- braut með listakjörsvið 2004, Háskóla Íslands. BA próf í ensku og almennum bókmenntum 2009, Háskóla Íslands. MA próf í ensku 2011 og University of Brighton. BA próf í myndskreytingu 2014. Um verkefnið: Ég hef mikinn áhuga á sambandinu milli myndar og texta. Fyrir prófverk- efnið mitt í Brighton University samdi ég og myndskreytti tvær bækur um líf tveggja brasilískra listamanna. Önnur er um listamanninn Anitu Malfatti og hin um ljóðskáldið Cecíliu Meireles. Í lokaverkefninu mínu sameinaði ég áhuga minn á mat, heimahögunum og ævisögum í bók sem ber heitið, Matarminningar frá Íslandi – Sjálfsævisögulegar uppskriftir. Leif Kristján Gjerde, f. 1989, frá Fellabæ. Leif Kristján hefur lokið stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Egilsstöðum og B. A. gráðu í skap- andi tónlistarmiðlun frá Listaháskóla Íslands. Um verkefnið: Þetta verkefni var útskriftarverkefni mitt úr Listaháskóla Íslands og snérist um það að láta hóp af fólki með litla eða enga tónlistarreynslu að búa til tónverk saman. Þátttakendur verk- efnisins hittust tvisvar sinnum til þess að búa til tónverkið. Í fyrra skiptið komu þeir saman til þess að deila hug- myndum sínum um þema og upp- byggingu verksins en í það seinna var verkið klárað og flutt fyrir myndavél og upptökutæki. Verkefnið var síðan kynnt með fyrirlestri og tónverkið flutt á lokatónleikum mínum í maí 2014. Valgerður Jónsdóttir, fædd í Reykjavík. Valgerður hefur lokið stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð og C og D önn í textíl- deild Myndlistaskólans í Reykjavík. Valgerður stundar nú nám á BA stigi við Gerrit Rietveld Akademie. Verkefnið: Verkefnið Flóki(ð) er rannsókn á möguleikum til að framleiða nýjan textíl á Íslandi úr íslenskum hráefnum. Efnin voru unnin úr hvítri íslenskri ull ásamt afgangs nylon- þráðum úr landbúnaði og netagerð. Verkefnið var að stórum hluta unnið í flókavél Ullarvinnslu frú Láru á Seyðisfirði. Ætlunin var að ögra vélinni örlítið, komast að því hvort í henni leyndust dulin tækifæri og sýna fram á að þau tæki og tól sem við eigum hér heima eiga erindi við hönnuði.

x

Austurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurland
https://timarit.is/publication/1094

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.