Fréttir - Eyjafréttir - 24.10.1990, Page 7
FRÉTTIR • fimmtudaginn 25. október 1990
Kjartqn Bjömsson:
Verum minnug þess
Ég hef eins og
aðrir íslendingar
í gegnum árin
fylgst með fram-
gangi og þróun
mála í Vest-
mannaeyjum.
Þótt fjarlægðin
sveinn val-
geirsson:
Árna
fyrir Eyjar
Nú styttist í
prófkjör Sjálf-
stæðisflokksins,
sem verður n.k.
laugardag og
ennfremur stytt-
ist í að við sjáum
hvort við berum
gæfu til að nýta þá möguleika sem
við eigum til að endurheimta okkar
sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í
komandi alþingiskosningum og
tryggja okkur Vestmannaeying á
þin|.
Ég tel að okkar möguleikar í
stöðunni í dag séu þeir að sameinast
um Árna Johnsen í 2. sætið og ef við
komum Arnari Sigmundssyni í 3. til
4. sæti held ég að við höfum nýtt þá
möguleika vel sem við höfum í dag.
Eg ber aftur á móti kvíðboga fyrir
því að við förum að ætla okkur um of
og setja okkar menn í efstu sætin og
dreifa með því atkvæðaþunga Eyj-
anna svo að við komum hvorugum í
það sæti sem við viljum fá þá í.
Þorstein í 1. sœtið
Þorsteinn Pálsson , formaður
Sjálfstæðisflokksins, sem setið hefur
í 1. sætinu hjá Sjálfstæðisflokknum í
Suðurlandskjördæmi, sækist eftir
endurkjöri í það sæti í prófkjörinu.
Ef Sjálfstæðisflokkurinn kemur
sterkur út úr næstu alþingiskosning-
um þá eru allar líkur á að hann sitji í
ríkisstjórn. Það er mikils virði fyrir
hagsmuni okkar Eyjamanna að eiga
formann Sjálfstæðisflokksins sem 1.
þingmann úr okkar kjördæmi. Slíkt
styrkir stöðu okkar verulega. Það er
því rétt að hvetja þátttakendur í
prófkjörinu til að tryggja Þorsteini 1.
sætið.
SameinumstumÁrna
En við skulum ekki gleyma því að
það er ekki sjálfgefið að við fáum 2.
sætið, það hefst einungis með því að
Eyjamenn sameinist um einn mann í
það og sá maður sem við getum öll
sameinast um er án efa Árni
Johnsen. Ég veit fáa sannari Eyja-
menn, en einmitt Árna og ötulli
baráttumaður fyrir hagsmunum
Vestmannaeyja er vandfundinn.
Það sem Árni Johnsen hefur fram
yfir aðra í prófkjöri flokksins er
ótvíræður stuðningur langt út fyrir
raðir Sjálfstæðisflokksins.
Að endingu þetta: Vestmanna-
eyingar, eina raunhæfa tækifæri okk-
ar til að eignast þingmann er að að
tryggja Árna Johnsen í 2. sætið í,
prófkjörinu 27. október.
Brennum okkur ekki á sömu mis-
tökum og síðast, okkur dugar ekki 3.
eða 4. sæti fyrir okkar mann.
Sjálfstæðis- og stuðningsfólk Sjálf-
stæðisflokksins, það er mikið atriði
að þátttaka í prófkjörinu verði sem
mest og dreifing atkvæða verði ekki
í þá veru að við fáum ekki öruggt
sæti fyrir okkar mann. Þátttakendur
í prófkjörinu: Sameinaðir stöndum
vér, sundraðir föllum vér.
Sameinumst um Árna Johnsen í 2.
sætið og tryggjum með því ötulan
talsmann Eyja á þing.
sé ekki mikil þá vill það nú brenna
við að fólk taki undir sig stærri stökk
þegar það leitar á vit ævintýranna.
Ég hef alla tíð heillast í tilhugsun um
líf á eyju og eitt sinn datt mér í hug
að flytja til Hríseyjar til að auka
víddina í hugsanagangnum, en þetta
er nú eins og hver önnur hugdetta
sem skýtur upp kollinum í hugskoti
manna.
Ég hef kynnst fjölmörgum Vest-
mannaeyingum í gegnum tíðina en
fyrst kynntist maður þeim að ráði í
upphafi árs 1973, en þá eins og allir
vita skullu hörmungar yfir. Fólk á
nokkrum dögum flúði undan ógnar-
krafti móður náttúru eitthvað út í
óvissuna meðal annars kom fjöldi
Vestmannaeyinga til Selfoss. Það
voru allir tómir salir fylltir af fólki og
algjört öngþveiti skapaðist, en allt
leystist með seiglu og vilja.
Þessa næstu daga á eftir kynntist
maður mikið af krökkum sem héldu
til hér á Selfossi og í nágrenni og á
vinnustað föður míns og síðar mín-
um iðaði allt af lífi á morgnana en þá
komu Vestmannaeyingarnir í pláss-
inu inn á stofu og spjölluðu og ræddu
stöðu mála. Þetta minnti helst á þá
gömlu góðu daga þegar menn komu
á rakarastofurnar að ræða málin og
fá fréttirnar um leið og þeir fengu
raksturinn.
En það ber vott um einstaka sam-
heldni, kraft og áræði þegar maður
sér þá feikilegu uppbyggingu í sam-
félagi Eyjaskeggja á öllum sviðum
sem lögð var í. rúst á nokkrum
dögum. Tryggir eru þeir líka því enn
þann dag í dag koma þeir við á
rakarastofunni til að heilsa upp á og
fá kaffisopa.
En það voru ekki allir sem héldu
aftur til heimahaganna, en Vest-
mannaeyjahverfið, en svo var byggð
Viðlagasjóðshúsanna kölluð, stend-
ur enn undir nafni því þar er að finna
mæta Eyjapeyja og stelpur sem gefið
hafa góða strauma frá sér út í
samfélagið. Þau voru og eru virk í
kórum og félagsstarfsemi ýmisskon-
ar og til þess var tekið hvað þau
skreyttu húsin sín mikið og fallega
hver jól.
En allt eru þetta vangaveltur sem
koma upp í hugann þegar maður
hugsartil baka. Eyjamenn hafasterk
íþróttafélög og skemmst að minnast
frábærs árangurs knattspyrnuliðsins
í sumar sem frægt varð og skemmti-
legt að fylgjast með fyrir það hversu
líflegir þeir eru og sókn mikil á
völlinn. Ég tók ncfnilcga i mig þá
bakteríu að læra til dómgæslu í
knattspyrnu og i gegnum það starf
hef ég komið oftsinnis til Eyja og
fylgst með þróun íþróttamálanna.
Ég tcldist líkjast Steingrími Her-
mannssyni ef ég gleymdi að minnast
á Þjóðhátíð Vestmannaeyja en af
þeirri upplifun að skemmta mér á
Þjóðhátíð Vestmannaeyja hefði ég
ckki viljað missa. Helst hefði ég
viljað komast hjá því en er þó
tilneyddur að nefna að ég á mér fleiri
áhugamál en íþróttir og félagsmál,
en það eru þjóðmál.
Af því tilcfni tók ég þá ákvörðun
að vera með í þcssu prófkjöri sem
Iramundan er og undirbúa mig af
alvöru.
Ég livet allt sjálfstæðisfólk til að
taka þátt í prófkjörinu og hafa þann-
ig áhrif á uppröðun framvarðarsveit-
arinnar og sérstaklega hvet ég ungt
fólk til að slást í hóp okkar sjálf-
stæðismanna. Verum minnug þess
að hlutfall ungra kjósenda er stór og
því mikilvægt að hafa breiðan og
sterkan lista.
Lifið heil.
Kjartan Björnsson
Prófkjör
Sjálfstæðis-
flokksins
á laugardag
Kjörstaður
verður í
ÁSGARÐI
Kjörfundur
stendur frá
kl. 10-21
Jóhannes Kristjónsson
Höfðabrekku,
Mýrdal:__________
Londbúnaðurí sótt
við Innd og þjóð
Áliðnum árum
hefur umræðan
um landbúnað-
armál verið ofar-
lega á baugi. í
ræðu og riti hefur
verið fjallað um
„landbúnaðar-
hítina" og það
fjármagn sem
runnið hefur úr ríkissjóði tií þeirra
mála, hvort heldur um er að ræða
niðurgreiðslur eða stuðning við skóg-
rækt eða landgræðslu. Allt sett undir
sama hatt.
Athygli vekur að velflestir benda
á eina lausn, en það er óheftur
innflutningur landbúnaðarvara og
nota þá gjarnan orðið „frelsi“ nú
síðast Neytendasamtökin.
Vilji menn veita íslenskum land-
búnaði nábjargirnar er rétti tíminn
núna, þegar landbúnaður hefur verið
niðurnjörvaður í formi kvóta og
hafta og duglegum og framtakssöm-
um mönnum haldið með aðra hönd í
vasa.
í mínum huga er til önnur og betri
leið sem felst í trú á íslenskum
bændum og reyndar öðrum þeim
sem vinna við undirstöðuatvinnuvegi
þjóðarinnar.
Færum frelsið til bænda. Þeir
brenna af athafnaþrá. Leyfum þeim
að framleiða fyrir íslenska neytendur
á þann hagkvæmasta hátt sem þeir
geta.
Afléttum ofstjórn og ofsköttun á
allar landbúnaðargreinar, þá er ég
sannfærður um að hver og einn geti
fengið landbúnaðarvörur á viðráðan-
legu verði.
Leyfum bændum sem og öðrum
að njóta þess sem í þeim býr.
Tölum svo um innflutning.
Haustdansleikur
Norðlendinga-
félagsins
27. október
Hinn árlegi haustdansleikur Norö-
lendingafélagsins verður í Alþýðu-
húsinu 1. vetrardag frá kl. 23:00 -
03:00.
KASKÓ leikur fyrir dansi.
Miðasala frá kl. 22:00.
Allir velkomnir.
ATH. Ekki vínveitingar á staðnum.
Munið félagsvistina n.k. þriðjudag 30.
október kl. 20.30.
Stjórn og skemmtinefnd
Norðlendingafélagsins
Ahugafélag um
brjóstgjöf í
Vestmannaeyjum
auglýsir:
Miövikudaginn 31. október n.k. kl. 14 mun Hjalti
Kristjánsson, læknir, halda fræðsluerindi um þyngdar-
aukningu brjóstabarna.
Þyngist barnið eðlilega, of lítið eða of mikið?
Fundarstaður anddyri kapellu sjúkrahússins.
Kaffiveitingar.
Stjórnin
Styrktartónleikar
Styrktartónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja verða
haldnir í Bæjarleikhúsinu laugardaginn 27. október n.k.
og hefjast klukkan 16:00 (kl. 4).
Styrktarfélagar er hvattir til að koma.
Miðar verða seldir við innganginn.
Lúðrasveit Vestmannaeyja
Krabbameinsleit
Kvensjúkdómar
Fólk frá leitarstöð Krabbameinsfélags Islands ásamt
Hafsteini Sæmundssyni kvensjúkdómalækni verður
statt í Heilsugæslustöðinni dagana 12-16 nóvember
n.k.
Send verða út bréf til þeirra kvenna sem eiga að
koma í skoðun núna, samkvæmt starfsreglum Krabba
meinsfélagsins. Ef aðrar konur, sem ekki fá bréf, þurfa
að hitta kvensjúkdómalækni þá hafi þær samband
S 11955 föstudaginn 2. nóvember kl. 14 -16.
LESIÐ BRÉFIN VANDLEGA
__________________Heilsugæslustöðin