Fréttir - Eyjafréttir - 13.12.1990, Blaðsíða 10
Fimmtudaginn 13. desember 1990 • FRETTIR
Að versla í Betri bónus er raunveruleg kjarabót.
'TÓRARP'ZZUB^KB'Mct
’ WEÐftNBlRGÐmENDAST
^ó/a avextir
°9 graenmeti
CocaGo'a
2l-6 fl. i kippu
oo i!f f/?P®»sin
°9 rnaltöl
JÓLIN NÁLGAST
TILBOÐSVERÐ
ÓDÝRAST^QukÖn^;
I hátíðarmatínrTirKa^
OPIÐ LAUGARDAG FRÁ KL. 11 -18
NÝTT GREIÐSL UKORTA TÍMABIL
SMÁ
auglýsingar
Leöurstóll
Sem nýr leðurstóll til sölu.
Upplýsingar © 12698.
Snjóþota
tapast hefur gul snjóþota með
andarhaus. Finnandi hringi S
12533.
Fíattil sölu
Fíat Ritmo super, árgerð 1987,
eftir 38.000 km., framdrifinn og
sparneytin. Góður bíll.
Upplýsingar S 12533.
Bíll til sölu
Lada lux, árgerð 1985, í góðu
sambandi.
Upplýsingar S 12797.
Til sölu
Honda Civic 1500 sport, árgerð
1985, 5 gíra, 3 dyra, topplúga,
útvarp, segulband, sílsalistar,
nýsprautaður, fallegur bíll, góð
greiðslukjör. til sýnis og sölu hjá
Bifreiðaverkstæði Vestmanna-
eyja, Flötum 27 © 12958 &
12782.
Málningarvinna
Tek að mér alla almenna máln-
ingarvinnu, úit sem inni.
Upplýsingar ©11891, Viðar Ein-
arsson.
Turbo
Til sölu Daihatsu charade Turbo,
árgerð 1985, ekinn 87.000 km.
Svartur.
Upplýsingar® 12569.
Zippokveikjari fundinn
Gylltur Zippokveikjari með
ágröfnum stöfunum K Þ Þ fannst
á gólfinu í Hallarlundi fyrir
skömmu.
Ef einhver kannast við gripinn
getur hann vitjað hans á
FRÉTTUM.
• Þeir bræður, Einar og Guðjón
Guðnasynir, eru nýbúnir að fá sann-
kallað undratæki, litla gröfu af Bob-
cat gerð. Hentar hún ntjög vel þar
sem þyngri tæki komast ekki að t.d. í
húsagörðum og víðar. Einnig er hún
útbúin lítilli ýtutönn.
Vélstjórar
Skipstjórar
Stýrimenn
Atkvæöagreiðsla um kjarasamningana stendur yfir til
17. desember 1990.
Kjörgögn eru á Vinnslustöðvarvigtinni.
Hægt er að framkvæma atkvæðagreiðslu utan úr sjó og
skal framkvæmd hennar þá vera þannig:
a) Skipstjóri skal sjá til þess, að fram fari leynileg
atkvæðagreiðsla um kjarasamninginn.
b) Að lokinni talningu skal senda í telefaxi eða
staðfestu skeyti til:
Ríkissáttasemjara
Borgartúni 22
105 Reykjavík
Telefax: 91-688290
þar skal koma fram niðurstaða atkvæðagreiðslunnar og
nafnalisti, ásamt félagsaðild og kennitölu yfir þá
yfirmenn í aðildarfélögum innan FFSÍ, sem greiddu
atkvæði.
c) Telefax eða staðfest skeyti skal berast til Ríkis-
sáttasemjara fyrir kl. 9:00, föstudaginn 21. desember
1990. Vélstjórafélag Vestmannaeyja S.S. Verðandi
Jolaljos í kirkjugarði
Tengingar jólaljósanna í kirkjugaröinum hefjastfimmtudaginn
20. desember næstkomandi og standa til og meö 22.
desember.
Tengingargjald kr. 1.700,-
Upplýsingar S 12749 og 12244.
Rafvirkjarnir
Kjartan á Múla
skrifar frá Aberdeen
Nú er veturinn loksins farinn að
gera vart við sig hér í Skotlandi, það
er orðið kalt hitinn fer niður fyrir
frostmark á næturnar, en er svona 6 -
7 stig á daginn. Veðurstofan spáði
norðan átt og 9 vindstigum og snjó í
fjöllum en rigningu annars staðar.
Við höfum ennþá samt sloppið furðu
vel miðað við aðra hluta Bretaveldis.
Sjósóknin er orðin lítil hérna,
flestir búnir með kvóta sína. Aðeins
voru 1000 kassar af fiski á markaðn-
um í morgun, sem er svona um 20
tonn. heldur meira var uppi í Peter-
head, en þar voru 1500 kassar seldir.
Hér tala allir um kassa eða 1 stone
þegar talað er um fisk hér í Skot-
landi. Eitt stone er 6,35 kíló og einn
kassi (box) hjá þeim er átta stone.
Fiskverðið hefur hækkað mikið sl.
vikur. Þorskurinn hefur farið í 90 til
130 pund segja blöðin hérna. Enda
má sjá það að þorsk- og ýsuflök í
fiskbúðinni í stórmarkaðnum eru á
3,50 pund, eða 7 til 800 krónur kílóið
og þykir dýrt.
Breski flotinn var í gær að ná upp
togbátnum Antares, sem fórst í
Clydefirði, með allri áhöfn, í síðasta
mánuði. Telja margir að kafbátur
hafi lent í trollinu hjá honum og
dregið hann niður. Þetta er ekki
fyrsta slysið sem veröur af þessu tagi
og er mikill urgur í mönnum á
vesturströndinn vegna þessa máls.
Þegar ég kom hingað fyrst fyrir 25
árum,.var höfnin full af togurum,
sem margir hverjir stunduðu ís-
landsmið. en núna sér maður ekki
einn einasta. Aðalumferðin í höfn-
inni er núna hjalparskip fyri olíupall-
ana í Norðursjó. En Aberdeen er
aðalþjónustumiðstöðin fyrir olíuiðn-
aðinn. Mikill fjöldi manna hérna
vinnur á pöllunum, eða er tengdur
þessum iðnaði á einhvern hátt.
Að endingu vil ég svo óska öllum
Vestmannaeyingum gleðilegra jóla
og farsæls komandiárs.
Jólakveðjur í
FRÉTTIR
Þeir aðilar sem áhuga hafa á að koma jólakveðjum í
jólablað FRÉTTA eru vinsamlegast beðnir að skila þeim
á ritstjórn FRÉTTA eigi síðar en
föstudaginn 15. desember n.k.
Flug og
bíll
Flug fram og til
baka og bíll í sól-
arhring. Innifalið er
25 km akstur og
vsk.
Verð kr. 6150,-
ARNARFLUG
Innanlandsflug
sími 73050 og