Fréttir - Eyjafréttir - 03.10.1991, Page 10
Fimmtudaginn 3. október 1991 - FRÉTTIR
^ Mik
• Einar Jónsson, læknir ÍBV, tekur
lífínu með stóískri ró fyrir leikinn
gegn Runar.
Evrópukeppni bikarhqf q, f y rri leikur, Runar-ÍBV21 -14(9-9):
aðrir. Sigurður í hinu horninu komst
lítið áleiðis. Gylfi skaut og skaut en
skoraði bara þrjú mörk. Guðfinnur
var úti á þekju mest allan leikinn og
Sigurður þjálfari náði sér ekki á
strik. Erlingur línumaður fékk sig
lítið hrært á línunni og Sigbjörn stóð
sig ágætlega í vörninni en síður í
sókninni. Jóhann Pétursson lék mjög
vel þær síðustu 10 mínútur sem hann
fékk að spila. Skoraði eitt mark og
fiskaði tvö víti sem fóru reyndar
bæði í súginn.
Sænski landsliðsmarkmaðurinn
Mats Fransson varði þau bæði, en
þess má geta að hann lék annars
ekkert með, átti við bakmeiðsli að
stríða. En það kom lítið að sök því
hinn markvörðurinn varði eins og
berserkur allan tímann. Landsliðs-
mennirnir Kjetil Lundberg og Pal
Vidar Lundquist léku annars best af
leikmönnum Runar.
„Það var algjör óþarfi að tapa
svona stórt, því þetta Runar-lið er
ekkert sérstakt. Við getum sjálfum
okkur um kennt. Seinni hálfleikur-
inn var hroðalegúr og við þurfum
ýmislegt að lagfæra. Ég er ekki
ánægður með frammistöðu mína í
leiknum, ég fann mig ekki í nýju
buxunum. Runar spilar slakan sókn-
arleik en það er varnarleikurinn og
hraöaupphlaupin sem eru þeirra
stcrkustu vopn. En nú er bara hálf-
lcikur og við ætlum að taka þá í
bakaríiö í Ijónagryfjunni í Eyjum á
laugardaginn," sagöi Sigmar Þröstur
eftir leikinn.
Roger Carlsson þjálfari Runarvar
ánægður með sína mcnn eftir leik-
inn. „Þetta er mikið stemmningslið
hjá okkur og þegar við komumst á
skrið eins og við gerðum í seinni
hálfleik, erum við illviðráðnalegir.
Urn leikinn er það annars að segja að
mér fannst ÍBV gera þau mistök að
rcyna að halda niðri hraðanum í
leiknum. Þeir féllu eiginlega á eigin
bragði mcð þcssu. ÍBV-liðið er ann-
arseinsogégátti von á. Markmaður-
inn var mjög góður, sérstaklega í lok
fyrri hálflciks þegar hann lokaði
markinu. Sigurður Gunnarsson var
potturinn og pannan í sóknarleikn-
um og þá voru hornamennirnir mjög
ógnandi. Ég á frekar von á því að
þcssi sjö marka sigur dugi okkur til
að komast í aðra umferð. En við
erum með frekar reynslulítið liö en
þetta var það sem við þurftum til að
þess að eiga möguleika að komast í
næstu umferð. En leikurinn á íslandi
verður mjög crfiður," sagði Roger
Carlsson að lokum.
Mörk ÍBV:Gylfi3. Sigurður Gunn
3(1 víti), Zoltán 3(2 víti). Sigurður
Fr. 2. Erlingur R. 2, Jóhann Péturs-
son 1.
-sagdi Sígmar bröstur fyrirlidi ÍBV.
9 Sigurður Gunnarssun, þjálfari, fer yfír leikaðferðina á fundi fyrir leik.
en Ijónagryfjan okkar í Eyjum ætti
að verða okkur drjúg. Að vinna upp
sjö mörk í Evrópukeppni er alls ekki
vonlaust dæmi. Annað eins hefur nú
gerst,“ sagði Sigmar Þröstur Óskars-
son fyrirliði ÍBV eftir leikinn.
Þetta var fyrsti Evrópuleikurinn í
sögu beggja félaga og það var greini-
legt að þetta yrði mikið taugastríð
frá upphafi. Mikið var um misheppn-
aðar sendingar hjá báðum liðum og
leikurinn því lítið fyriraugað. Runar
með landsliðsmenn í hverju rúmi,
náði strax undirtökunum í fyrri hálf-
sjö marka ósigurs þcgar síðari hálf-
leikur hófst.
En þjálfari Runar, Svíinn Rogcr
Carlsson, scm var landsliðsþjálfari
sænska landsliðsins lyrir nokkrum
árum og lagði grunninn að heims-
meistaraliði Svía í dag, las greinilega
vel yfir sínum mönnum í leikhléinu
og breytti um lcikaðfcrð. Þetta gafst
vel því Runar breytti stöðunni úr 10 -
10 í 16 - 10 og síðan í 20 - 12. Þegar
flautað var til lciksloka voru loka-
tölurnar 14-21 Runarívil.
Var hræðilegt að horfa upp á
sóknarleik ÍBV-liösins í síðari hálf-
leik. Hvað eftir annað glopruðu lcik-
menn liðsins boltanum i hendur
Runarmanna, sem voru fljótir að
nýta sér þetta og skoruðu hvert
markið á eftir öðru úr hraðaupp-
hlaupum og kafsigldu þar með ÍBV.
Enginn lék af eðlilegri gctu í
ÍBV-liðinu í þessutn leik, allir geta
miklu betur. Sigmar Þröstur varði.
ágætlega í fyrri hálflcik, eða átta
skot, en bara þrjú í þeim seinni.
Ungverjinn snaggaralegi, Zoltán
Belániy sýndi ágætis takta í horninu
én var ansi mistækur eins og flestir
Þorsteinn Gunnarsson
skrifar frá Noregi:
ÍBV reiö ekki feitum hesti frá fyrri
viðureign sinni gegn norsku bikar-
meisturunum Runar í Evrópukeppni
bikarhafa sl. laugardag í Noregi.
Runar sigraði með sjö marka mun 21
- 14 eftir að staðan í hálfleik hafði
verið jöfn, 9 - 9. „Það verður geysi-
lega erfitt að vinna upp þetta forskot,
leik og höföu ávallt tveggja til þriggja
marka forystu. En síðustu tíu mínút-
urnar í fyrri hálfleik tóku Eyjamenn
fjörkipp. Sigmar Þröstur komst loks-
ins í stuð í markinu og varði glæsilega
livað eftir annað og ÍBV tókst að
vinna upp forskot Runar og jafna
metin á síðustu sekúndunum með
fallegu skoti SigurðarGunnarssonar.
Staðan 9 - 9 í hálflcik og benti fátt til
L
# Zoltán
Belániy gerir sig klárann fyrir leikinn í Noregi.
Evrópu-
punktar
Leikur IBV og Runar fór fram i
glænýrri íþróttahöll þeirra Run-
arsmanna. Hún tekur um 2000
manns en aðeins 813 áhorfendur'
voru á þessum fyrsta Evrópuleik
Runar og (BV. Þess má að á
heimaleikjum liðsins f norsku 1.
deildinni eru yfirleitt um 1200 -
1300 manns.
Dómarar í fyrri leiknum voru
frá Danmörku, þeir Per Elbrönd
og Vilhelm Jensen. Dæmdu þeir
leikinn ágætlega. I seinni leikn-
um á laugardainn í Eyjum verður
dómaraparið sænskt.
Einar Jónsson læknir fór með
liðinu til Noregs til halds og
trausts. Einar er önnum kafinn
læknir því hann er einnig læknir
fótboltaliðs (BV og yngri lands-
liða Islands í knattspyrnu og þar
af leiðandi oft á ferð og flugi.
Fyrir leikinn í Noregi mátti lesa
í norskum blöðum að þeir Run-
arsmenn væru í öngum sínum
yfir því að þeir komust ekki yfir
vídeóspólu með leik hjá ÍBV-lið-
inu til að vera sem best undirbún-
ir undir Evrópuleikinn. Leituðu
þeir m.a. til Steinars Birgissonar
hjá Haukum sem lék með Runar
fyrir nokkrum árum, en sam-
kvæmt norsku blöðunum varð
hann ekki við ósk Runarsmanna
þvLhann vildi ekki láta kalla sig
„föðurlandssvikara". Þess má
geta að ÍBV komst yfir vídeóupp-
töku af leik Runars frá síðasta
keppnistímabili eftir ýmsum
krókaleiðum, en það virðist ekki
hafa komið að miklum notum í
sjálfum leiknum.
Eftir leikinn bauð stjórn Runar
báðum liöunum til matarveislu.
Þar var norskur pottréttur á boð-
stólum og rann hann Ijúflega
niður. í veislunni hélt formaður
Runar þakkarræðu en þegar það
var komið að forsvarsmanni
handknattleiksráðs ÍBV, Stefáni
Jónssyni, að þakka fyrir Eyja-
mennina, var hann fjarri góðu
gamni. Einar Ben framkvæmda-
stjóri hljóp í skarðið fyrir Stefán
og fórst það vel úr hendi. Ástæð-
an fyrir því að Stefán var ekki á
svæðinu var sú að hann hafði
haft tilbúna skrifaða ræðu sem
hann gleymdi svo á hótelinu. Fór
hann á hótelið að ná í hana en
þegar hann kom aftur var matar-
veislan búin.
VIÐSKIPTAVINIR
ATH
Bára Sigurðardóttir, hárgreiðslumeistari, byrj-
ar á stofunni í dag, 3. október.
Gerið svo vel og reynið viðskiptin.
HÁRGREIÐSLUSTOFA GUÐBJARGAR
KIRKJUVEGI 28 ©11630
Veggtennis
Þá er hið vinsæla veggtennis byrjað aftur. Einnig
skalltennis, körfubolti, badminton og ýmislegt fleira.
Höfum ennþá nokkra tíma lausa. Þeir sem huga hafa á
að festa tíma hafi samband sem fyrst © 12060.
íþróttafélagið Þór
Aðalfundur Smástundar
Aðalfundur Knattspyrnufélagsins Smástundar verður
haldinn laugardaginn 5. október n.k. kl. 10 fyrir hádegi.
Um kvöldið verður slúttað með mat og öllu tilheyrandi.
Þeir sem ætla að taka þátt í slúttinu láti Ásgeir vita ©
11549 eða® 11278.
Frúarleikfimi
Frúarleikfimin vinsæla er byrjuð. getum bætt við nokkr-
um konum, einnig í erobik. Hressið ykkur við og gefið
ykkur tíma í Þórsheimilinu. Þar getið þið einnig farið í
okkar vinsæla Ijósalampa, þann besta í bænum. hafið
samband © 12060.
íþróttafélagið Þór
„Algjör óþarfi að tapa svona stórt"