Fréttir - Eyjafréttir - 21.07.1992, Blaðsíða 2
• Verðlaunahafar á Coca Cola mótinu ásamt Sigmari Pálmasyni umboðsmanni.
Coca Cola mótið i golfi:
Halli nálægt vallarmeti
Haraldur Júlíusson sýndi og sann-
aði í Coca Colamótinu, sem fór fram
á laugardag og sunnudag, að honum
er fleira lagið en skalla bolta í mark.
Seinni daginn var hann nálægt því að
slá sex ára gamalt vallarmet Úlfars
Jónssonar, þegar hann fór 18 holum-
ar á 65 höggum sem er fimm höggum
undir pari vallarins. Met Úlfars, sem
er margfaldur íslandsmeistari er 64
högg.
Haraldur var ótvíræður sigurveg-
ari mótsins í keppni án forgjafar.
Fyrri daginn fór hann 18 holurnar á
76 höggum og á hæla hans komu Ás-
mundur Friðriksson og Júlíus Hall-
grímsson á 77 höEEum. Seinni daginn
stakk Haraldur þá rækilega af og fór
18 holurnar á 65 höggum. Fyrri
hringinn, níu holur, fór hann á 32
höggum og þann seinni á 33. Með
þessum glæsta árangri er Haraldur
kominn með 1,5 í forgjöf.
Að mótinu loknu voru Ásmundur,
Júlíus og Birgir Ágústsson jafnir
með 150 högg en í bráðabana varð
Ásmundur hlutskarpastur og hafnaði
í 2. sæti en Júlíus varð þriðji.
Með forgjöf vann ívar Guðmunds-
son á 128 höggum, Ásmundur 2. á
130 o£ Ársæll Árnason 3. á 132.
Vífilfell gaf myndarlega verðlauna-
gripi sem Sigmar Pálmason umboðs-
maður afhenti verðlaunahöfum. _m.
• Haraldur Júlíusson besti kylflngur Eyjanna í dag.
Motocross á lauqardaq:
Sigurður með
fullt hús stiga
Motocrosskeppni var haldin upp á
Nýjahrauni á laugardag og voru 10
keppendur mættir, 4 Vestmannaey-
jingar og 6 ofan af landi.
Að sögn Sigurjóns Eðvarðssonar
cins keppandans var þátttaka sæmi-
leg í mótinu, þó sagðist hann hafa
viljað fá fleiri keppendur ofan af
landi.
Áhorfendur voru um 50, en það er
ein lélegasta mæting síðan moto-
cross menn byrjuðu að halda mót
hér í Eyjum og voru menn ekki á
eitt sáttir hverju það sætti.
í þessu móti sem er annað mótið
af fjórunt sem gildir til íslandsmeist-
aratitils var það Sigurður Bjarni Ric-
hardsson sem sigraði elæsilega með
fullt hús stiga, eða 60 stig, en annars
var röðin svona:
1. Sigurður B. Richardsson 60 stig
2. Helgi Valur Georgsson 51 stig
3. Jón B. Björnsson 45 stig
4. Símon Þ. Eðvarðsson 37 stig
5. Ingibergur J. Sigurðsson 31 stig
6. Guðmundur Sigurðsson 29 stig
7. Sigurjón Eðvarðsson 26 stig
8. Emil Þ. Kristjánsson 25 stig
9. Kristján Viktorsson 25 stig
10. Sigmar Lárusson 8 stig
Eftir þetta mót er staðan í íslands-
mótinu orðin þannig að í fyrsta sæti
með 111 stig, er Helgi Valur
Georgsson, í öðru til þriðja sæti eru
Sigurður Bjarni Richardsson og Jón
B. Björnsson með 96 stig hvor, í 4.
sæti er Guðmundur Sigurðsson með
66 stig og Símon Þór Eðvarðsson
kemur rétt á hæla honum með 65
stig.
Þriðjudaginn 21. júlí 1992 - FRÉTTIR
Naumur sigur
og toppsæti
Annar flokkur karla vann enn
einn sigurinn í íslandsmóti 2. flokks
á föstudaginn var og komst þar með
á topp deildarinnar. Leikið var gegn
Keflvíkingum sem að öllu eðlilegu
hefðu ekki átt að vera mikil fyrir-
staða, en slakur leikur okkar manna
gerði ÍBK kleift að komast inn í leik-
inn hvað eftir annað. __
ÍBV komst tvívegis yfir í leiknum,
fyrst 1 - 0 og síðan 3 - 1 en Keflvík-
ingar náðu að jafna í bæði skiptin og
fengu meira að segja tækifæri á að
komast yfir 3 - 4, en misnotuðu það
sem betur fer. Staðan hélst því 3 - 3
þangað til ca. 15 mín. voru til leiks-
loka en þá tókst Eyjamönnum að
gera tvö mörk og innbyrða sigurinn.
Ómar Jóhannsson þjálfari IBV var
afar óhress með leikinn. “Þetta var
mjög lélegt, það aldaprasta sem við
höfum sýnt í sumar. Eini jákvæði
punkturinn var að við fórum á topp
deildarinnar. Það var nánast eins og
menn hafi ætlað að taka þetta of
létt, sem er að sjálfsögðu áhyggju-
efni“, sagði Ómar.
Mörk ÍBV gerðu þeir Daði Pálsson
12, Rútur Snorrason, Tryggvi Guð-
t mundsson og Steingrímur Jóhannes-
sson. Skástu menn liðsins voru þeir
I Rútur Snorrason og Yngvi Borg-
þórsson en aðrir léku undir getu.
Næsti leikur ÍBV verður á morgun
(miðvikudag) á Helgafellsvellinum
gegn Þrótti Reykjavík og hefst hann
kl. átta. Það er vonandi að strákarn-
ir taki sig saman í andlitinu og bjóði
Vestmannaeyingum upp á góða
knattspyrnu á síðasta heimaleik fyrir
Þjóðhátíð.
Þess má að lokum geta að dregið
hefur verið í undanúrslitum bikar-
keppni annars flokks. ÍBV fékk
heimaleik gegn Fram og verður
leikurinn spilaður þann 7. ágúst,
föstudaginn eftir Þjóðhátíð. Von-
;
• Daði Pálsson býr sig undir að
skora fyrsta mark leiksins.
andi verða piltarnir okkar búnir að
jafna sig þokkalega þegar þar að
kemur, svo Frömurum verði spark-
að öfugum út úr bikarnum.
Staðan í 1. deild 2. flokks er sem hér
segir:
ÍBV 8 leikir 20 stig
Víkingur 8 - 19 -
ÍA 8 - 18 -
KR 8 - 15 -
Fram 8 - 10 -
UBK8 - 9 -
ÍBK 8 - 3 -
Þróttur 8 - 0 -
Siqurður Jónsson skrifar:
Nú var það grátlegt
Eftir úrslitin á Akureyri á móti
KA fór maður nokkuð bjartsýnn
á leikinn að Hh'ðarenda á móti
Val. Það virtist enda ekki að ætla
að verða nein fýluferð.
Maður var rétt búinn að koma
sér þægilega fyrir þegar okkar
menn höfðu náð að negla boltann
í netið. Glæsilegt mark sem Leif-
:ir Geir skoraði úr þröngri stöðu.
Virkilega vel gert. Nú virtist allt
stefna í öruggan sigur ÍBV, menn
óðu í færum og hefðu hreinlega á
þessum fyrstu mínútum, með
smá heppni, náð að gera út um
leikinn.
Svo fór því miður ekki og það
voru Valsmenn sem náðu að
jafna eftir að hafa fengið víta-
spyrnu á ódýra markaðnum.
Valsmenn náðu svo forystu strax
á eftir. Hálf klaufalegt að fá það
mark á sig. Aftur fylltist maður
bjartsýni þegar Tómasi Inga tókst
að skora eftir góða fyrirgjöf frá
Inga Sig. Fyrir hálfleik var svo
Arnljótur rekinn af velli. Vals-
menn urðu að leika 10 í síðari
hálfleik.
Það var því létt yfir stuðnings-
mönnum ÍBV í hléinu og spjallað
á léttu nótunum yfir kaffibollan-
um.
Menn voru sannfærðir um
sigur. Brottfluttir Eyjamenn eins
og Andri Hrólfs, Helgi Bem-
ódus, Birgir Jóhanns, Magnús H.
Magnússon og Pálmi Lór. Við
biðum eftir seinni hálfleik. Nú
yrði létt og gaman og stigin þrjú
örugglega okkar. En eins og svo
oft í fótboltanum fer það á annan
veg. Vonbrigðin urðu mikil, þeg-
ar Valsmenn, strax í byrjun síðari
hálfleiks, náðu að skora og kom-
ast yfir. Þar við sat. ÍBV náði
ekki að jafna hvað þá að vinna.
Þama töpuðust dýrmæt stig.
Margt fallegt sást til IBV í
leiknum, sérstaklega í fyrri hálf-
leik. í síðari hálfleik sofnaði
vömin illilega í byrjun og það
kostaði mark.
Það vakti furðu mína að sjá í
síðari hálfleik, hversu oft menn
spiluðu langtímum saman á öðr-
um helmingi vallarins. Það var
alltaf spilað upp vinstra megin og
þaðan inn á miðjuna. Hægra
megin var ekkert spilað langtím-
um saman. Langtímum saman
fékk Ingi Sig ekki boltann og
hefði alveg eins getað sest hjá
okkur áhorfendum og spjallað
við okkur. Auðvitað gengur
svona ekki. Það er óþarfi að nota
ekki baráttujaxl eins og Inga Sig.
Valsmenn vom 10 og því ennþá
meiri nauðsyn á að dreifa spilinu
ennþá meira.
Úrslit þessa leiks em staðreynd
og næsti leikur er á sunnudaginn
gegn Víkingum í Víkinni í
Reykjavík. Þetta er sex stiga
leikur. Tap í leiknum setur ÍBV í
alvarlega stöðu. Nú dugir ekkert
annað en sigur. Liðið hefur sýnt
það að það býr heilmikið í því,
það er alltof gott til að fara falla í
aðra deild. Slíkt má ekki gerast.
Það er heldur engin ástæða til að
örvænta enn. Þrjú stig fyrir unn-
inn leik og staðan er fljót að
breytast til batnaðar.
Kveðja, S.J.